NT - 27.08.1984, Side 10
Mánudagur 27. ágúst 1984 10
■ Vígalegt farartæki, Pulsarbfllinn
é
■ Helsta veltihættan með slík farartæki sem Pulsarbflana er sú að þeir velti aftur fyrir sig, vélin
er aftur í og þeir eru kraftmiklir. Þeir eru frekar léttir að framan og ef farið er upp brattar brekkur
getur verið hætta á að þeir velti aftur fyrir sig. Veltigrindin kemur þó í veg fyrir þetta, því bfllinn
sest á grindina og hjólin fara þá á loft. Síðan fellur bfllinn niður aftur. Botninn er sléttur og 30 cm
undir lægsta punkt. Til samanburðar má geta þess að undir meðaljeppa eru 18 cm frá jörð upp í
drifkúlu. Nl-mynd: Árni Bjarna
■ Jean Claude t.v. og Georges t.h. og Pulsarbfll. Jean Claude er hönnuður bflanna, og var að
vinna að viðgerðum er NT bar að. NT-mynd: Ámi Bjama
Oku um landið á Pulsarbílum og
gerðu sjónvarpsmynd:
„Sums staðar er ísland
rétt eins og tunglið"
-sögðu þeir Jean Claude Bibollet og
Georges Pessey, tveir úr hópnum.
■ ísland er geysilega fallegt land, náttúran
stórbrotin. Sum svæðin þar sem við mynduðum
gæti allt eins verið á tunglinu, og þar höldum við
að við höfum náð geysilega skemmtilegum
myndum,“ sögðu Frakkarnir Jean Claude Bibol-
let og Georges Pessey, er NT heimsótti þá á
tjaldstæðin í Laugardal um helgina. Þeir Jean
Claude og Georges eru tveir Frakkar úr fimm
manna hópi sem kom hingað til lands með ný
torfærutæki til kvikmyndunar fyrir skömmu.
„Við komum hingað til
að framleiða sjónvarps-
mynd, sem við ætlum síð-
an að selja til hinna ýmsu
sjónvarpsstöðva, mynd
sem fjallar um land og
þjóð, íslenska náttúru og
svo Pu!sarbílana,“ sagði
Georges. Þeir félagar
sögðust vilja taka það
fram, að þeir væru miklir
náttúruunnendur, og
hefðu gætt þess í hvívetna
að valda ekki
gróðurspjöllum. „Við
Jean Claude erum báðir
bóndasynir og elskum
náttúruna. Við gættum
þess að skemma ekki nátt-
úruna,“ sagði Georges.
Þeir félagar sögðu að
kvikmyndatakan hefði
gengið vel, og bílarnir
hefðu komið vel út í
prófuninni. Eins og áður
var nefnt voru 5 manns í
hópnum, fjórir Frakkar og
einn Bandaríkjamaður,
sem sá um kvikmyndun.
Hópurinn fór austur í Vík
í Mýrdal, myndaði á sönd-
unum eystra, og inn á
hálendið, þar sem bæði
voru teknar myndir af
landi og úr lofti. Þegar
NT-menn bar að voru þeir
að dytta að því sem bilað
hafði í bílunum, og undir-
búa þá undir sölu, þar sem
þeir töldu of mikið mál að
ferðast með þá heim á ný.
Jean Claude Bibollet
hannaði bílana. Ökutæki
þessi eru gerð fyrir einn
mann, eru einföld að upp-
byggingu, en þó hvert
smáatriði úthugsað. Puls-
arbílarnir eru á litlum belg-
miklum hjólbörðum sem
gefa góða möguleika þeg-
ar ferðast er í ófærum,
hvert hjól hefur sjálfstæða
fjöðrun, og bíllinn tekur
mishæðir einkar vel, þrátt
fyrir að hæðarbreytingin,
upp eða niður, snerti að-
eins eitt hjól í einu. Bílarn-
ir eru drifnir með Yamaha
hreyfli, samskonar og eru
í Yamaha snjóbílum. Á
þeim er veltigrind, og er
hún þannig hönnuð að bíl-
arnir, sem eru mjög kraft-
miklir, eigi ekki að geta
oltið aftur fyrir sig, þá
stöðvast þeir á grindinni
hjólin fara á loft og þeir
falla fram á við á ný. Peir
eru mjög stöðugir og velta
ekki út á hlið nema stöðvað
sé í því meiri halla. Með
báða benstíntanka fulla og
tvö varadekk vega bílarnir
um 300 kg. Hver bíll átti
að kosta 100-200 þúsund
krónur, plús skatta og
tolla.
Bílarnir voru fluttir inn
með sérstöku leyfi og
fengu skoðun sem dráttar-
vélar. Voru þeir því þann-
ig útbúnir að þeir kæmust
ekki hraðar en 30 km á
klst. „Því er að sjálfsögðu
hægt að breyta, það fer
eftir stærð drifhjöls í vél-
inni,“ sagði Georges Pess-
ey.