NT - 27.08.1984, Síða 15
[[1 Mánudagur 27. ágúst 1984 1 5
1 Útlönd
Risastór ioftsteinn:
Truman
Capote
látinn
■ Bandaríski rithöfundur-
inn Truman Capote lést á
laugardaginn 59 ára að aldri.
Capote þótt á sínum tíma
einn efnilegasti rithöfundur
Bandaríkjanna og vakti fyrst
á sér athygli með bókinni
Other Voices, Other Rooms
árið 1948, þá 24 ára að aldri.
The Crass Harp kom út árið
1951 og Breakfast at Tyffany’s
árið 1958. Árið 1965 gaf Cap-
ote síðan út In Cold Blood,
sem vakti heimsathygli og
hefur m.a. verið þýdd á
íslensku.
Á seinni árum sinnti Cap-
ote lítið ritstörfum en stund-
aði hið ljúfa líf og barst mikið
, á.
Sprakk í 19 km
hæð yfir jörðu!
■ Risastór, rauðglóandi loft-
steinn, kom inn í gufuhvolf
jarðar í þessum mánuði og
sprakk í tætlur yfir Moravíu,
að sögn opinberu fréttastof-
unnar í Tékkóslóvakíu í gær.
Fréttastofan sagði að vís-
indamenn sem leituðu nú að
leifum loftsteinsins reiknuðu
með að stærsta brotið úr hon-
um gæti vegið um 20 kíló.
Loftsteinninn sást fyrst 3.
ágúst en hann var þá á 12,5
kílómetra hraða, sem er lægsti
mögulegi hraði slíkra steina.
Hann brann upp aðeins 19
kílómetrum yfir yfirborði
jarðar.
Indland og Pakistan:
Milliríkjadeila
vegna flugráns
Nýja Dehli-Reuter
■ Rán á indverskri farþega-
Italía:
Átta látast
í átókum
glæpaflokka
Napólí-Reuter
■ Átta manns létust og 10
særðust í skotbardaga á götu í
gær milli tveggja glæpaflokka
sem tengjast Mafíunni.
Fólk sem var að koma út úr
kirkju í bænum Torre Annunz-
iata varð fyrir skotum þegar
nokkrir byssumenn stukku út
úr bíl og hófu skothríð á hóp
manna. Átta létust samstundis
og 10 særðust að sögn lögreglu
en skotmennirnir komust
undan.
Torre Annunziata hefur
lengi verið vettvangur átaka
milli tveggja glæpaflokka,
Nouva Camorra Oraqizzata,
sem stjórnað er af Raffaele
Cutolo og Nouva Famiglia,
samtök flokka sem eru and-
snúnir Cutolo. Lögreglan í
Napolí lýsti þessum átökum
sem hrikalegustu skipulögðu
glæpaverkunum sem framin
hefðu verið í landinu. Tveir
menn voru handteknir í gær-
kvöldi grunaðir um aðild að
verknaðinum og níu aðrir voru
færðir til yfirheyrslu.
þotu í innanlandsflugi á föstu-
dag hefur valdið deilum milli
Indlands og Pakistan. Flugvél-
in lenti á Lahore og Karachi í
Pakistan og fékk eldsneyti á
báðum stöðunum áður en vél-
inni var flogið til Dubai þar
sem flugræningjarnir, sem allir
voru Síkar, gáfust upp.
Indverjar hafa kvartað yfir
því að Pakistanir skuli hafa
látið vélina halda áfram til
Dubai, sem er í Sameinuðu
furstadæmunum, og gagn-
rýndu stjórnvöld fyrir að hafa
ekki reynt að ráða niðurlögum
flugræningjanna í Pakistan.
Til að bæta olíu á eldinn
hafa flugmaður og nokkrir
farþegar vélarinnar staðhæft
að flugræningjunum hafi verið
afhent skammbyssa á flugvell-
inum í Lahore. Meðal þeirra
sem staðhæfa þetta eru nokkrir
Bretar sem segja að byssan
hafi fyrst sést í höndum flug-
ræningjanna eftir að vélin fór
frá Lahore.
Utanríkisráðuneyti Pakistan
hefur neitað þessum staðhæf-
ingum. Það vitnaði í upplýsing-
ar frá yfirvöldum í Dubai sem
sögðu að flugræningjarnir
hefðu borið við yfirheyrslur að
þau vopn sem á þeim fundust
hefðu verið í fórum þeirra frá
upphafi ránsins.
„Þetta afsannar þessa fárán-
legu sögu... að flugræningjarn-
ir hafi fengið byssur á flugvell-
inum í Lahore“, segir í yfirlýs-
ingu ráðuneytisins.
■ Likin af 49 karimönnum og einni konu sem fundust í fjöldagröf nálægt bænum Huanta í Perú, um 370 kflómetrum frá höfuðborginni
Lima. Grunur leikur á að stjórnarher Perú hafi þarna verið að verki. simamynd-POLFOTO
Herinn í Perú:
Sakaður um stórfelld
brot á mannréttindum
- 50 limlest lík finnast í fjöldagröf
Lima, Perú-Reuter.
■ Grunur leikur á að herinn
í Perú hafi framið stófelld
mannréttindabrot í baráttu
sinni gegn vinstri sinnuðum
skæruliðum eftir að fimmtíu
lík fundust í fjöldagröf nálægt
bænum Huanta í Perú. Og
yfirlýsing ríkissaksóknara
landsins um að 934 menn hafi
horfið sporlaust síðan baráttan
gegn uppreisnarmönnum hófst
hefur styrkt þennan grun.
Fernando Belaunde Terry
forseti, sem kjörinn var í lýð-
ræðislegum kosningum árið
1980 eftir 12 ára herforingja-
stjórn, hefur neitað ásökunum
um mannréttindabrot og segir
að stríð við skæruliðana sé háð
samkvæmt stjórnarskránni.
Belaunde notaði samt sem
áður herflokka til að koma á
reglu í Lima á föstudag, í
fyrsta sinn síðan lýðræði var
komið á í landinu. Hernum
var beitt til að koma í veg fyrir
mótmælagöngu gegn mann-
réttindabrotum.
Fjöldagröfin fannst á svæði
í suð-austurhluta landsins, sem
verið hefur undir stjórn hersins
síðustu 20 mánuði. Herinn
heldur því fram að líkin, sem
báru sum merki pyntinga, séu
af uppreisnarmönnum sem
skæruliðar hafi grafið.
Mannréttindahreyfingar í
Perú saka öryggissveitir hers-
ins um að vera valdarað hvarfi
a.m.k. 650 manna undanfarið.
Öryggissveitirnar neita því og
segja að þeir sem eru týndir
hafi farið að heiman til að
ganga til liðs við skæruliða.
En nokkrir stjórnmálamenn
og verkalýðsleiðtogar sendu
frá sér harðorða yfirlýsingu á
föstudag þar sem segir að að-
gerðir ríkisstjórnarinnar til að
koma í veg fyrir mótmæla-
gönguna í Lima hafið miðað
að því að „hylma yfir ábyrgð
þeirra sem skipulagt hafa, eða
framið, pyntingar og morð á
hundruðum landsmanna í
sóðalegu stríði.“
Kjarnorkuskip sökk
undan strönd Belgíu
ekki bráð mengunarhætta á ferðum
París-Reuter
■ Franskt flutningaskip sem
sökk undan ströndum Belgíu
aðfaranótt sunnudags, hafði
innanborð 450 tonn af kjarn-
orkuhráefni, að sögn eigenda
skipsins í gær. Þeir töldu þó að
engin hætta væri á mengun af
efninu.
Skipið sem hét Mont Louis,
sökk eftir árekstur við farþega-
ferjuna Olau Brittannia, sem
var á leiðinni til Bretlands með
1.000 farþega innanborðs.
Áhöfn Mont Louis komst um
borð í ferjuna og engan sakaði
við áreksturinn.
í yfirlýsingu sem birt var í
París í gær, sagði að Mont
Louis hefði verið að flytja 30
geyma fulla af uraninum hexa-
fluoride, til sovésku hafnarinn-
ar Riga. í yfirlýsingunni sagði
að skipsstjórnarmenn hefðu
staðfest að geymarnir hefðu
ekki laskast við áreksturinn,
og vitnað var í frönsku kjarn-
orkunefndina sem taldi að eng-
in hætta stafaði af geymunum
a.m.k. næsta árið.
Áreksturinn varð seinni part
laugardags um 10 mílur undan
Ostende í Belgíu. Skipin fest-
ust saman við áreksturinn og
tók fimm klukkutíma að losa
þau sundur. Franska skipið
sökk skömmu seinna en ferjan,
sem skráð er í Þýskalandi, hélt
áfram ferð sinni til Bretlands.
Að sögn hafnarvarða í Cher-
bourg voru tvö frönsk skip á
slysstaðnum í gærkvöldi en
þau fundu engin merki um
geislavirkni. Efnið sem skipið
flutti er baneitrað og tærið, en
ekki geislavirkara en hreint
úraníum sem unnið er úr nám-
um .
Til að búa til kjarnavopn
eða eldsneyti fyrir flestar gerð-
ir kjarnorkuhreyfla verður að
blanda úraníum til að fá meiri
geislavirkni. Uranium hexa-
fluoride, samband úraníum og
flúoríðs, er hráefnið sem not-
að er til þessarar blöndunar.
■ Farþegaferjan Olau
Bríttannia í höfn í Flushing í
Hollandi í gær. Ferjan lenti í
árekstrí við franskt flutninga-
skip undan strönd Belgíu á
laugardag. Franska skipið
sökk og nú hefur komið í Ijós
að það var með geislavirk
efni innanborðs.
POLFÖTO-Símamynd.
Borðið hrátt kjöt!
Jóhannesarborg-Reuter
■ „Ekki að reykja né
drekka heldur éta nóg af
hráu kjöti“ er heilræði Je-
anette van der Westhuizen
til þeirra sem vilja ná
háum aldri, en Jeanette
varð um helgina 120 ára
og er talin elsti borgari
Suður-Afríku.
Að sögn dagblaða í Jó-
hannesarborgvarJeanette
hrókur alls fagnaðar í af-
mælisveislunni um helgina
og söng nær allan tímann.
Hún á 95 ára gamla dóttur.