NT - 27.08.1984, Síða 16
Rás 2 kl. 16.00 í dag
Útirokk
■ Á Rás 2 í dag er þátturinn
Útirokk. Það er Snorri Skúla-
son sem stjórnar þættinum, en
hann er einnig annar stjórn-
andi Rokkrásarinnar.
í þættinum verður fjallað
um útirokkhátíðir og saga
þeirra stærstu rakin. Aðallega
verður samt fjallað um rokk-
hátíðina í Roskilde í sumar.
Útirokkhátíðir eiga sé nú
orðið þó nokkra sögu. Fræg-
ustu útihátíðirnar voru líklega
Woodstock, Altamont og Isle
Of Wight hátíðirnar. Tværþær
fyrrnefndu voru haldnar í
Bandaríkjunum. Á Wood-
stock, sem haldin var skömmu
fyrir 1970, mættu líklega um
600.000 manns og var til þess
tekið hve friðsamlegt hefði
verið á hátíðinni. Þetta var
eins konar hápunktur hippa-
tímans. Þarna spiluðu hljóm-
sveitir eins og Santana, Jeffer-
son Airplane og Grateful
Dead. Altamont var haldin
nokkrum mánuðum seinna, og
Mánudagur 27. ágúst 1984 16
stóðu Rolling Stones fyrir
henni. Þeir réðu Hell’s Angels
til að vera öryggisverðir, og
þeir drápu einn svertingja á
meðan á hátíðinni stóð. Þótti
mönnum sem annað hljóð væri
nú í strokknum.
Isle Of Wight-hátíðin var
haldin á Wight-eyju í Bretlandi
um svipað leyti, og var mjög
fjölmenn, líklega fjölmennust
þessara hátíða. Þar lék m.a.
Bob Dylan.
Síðan hafa margar útihátíðir
verið haldnar, þó engin
jafnfræg. Ein þekktasta reglu-
lega rokkhátíðin er Reading-
hátíðin í Bretlandi, og einnig
er Roskilde-hátíðin í Dan-
mörku mjög þekkt. Þar hafa á
Að öllum líkindum mun heyrast í Lou Reed í Útirokki.
undanförnum árum leikið
mjög þekktir listamenn eins og
Simple Minds, U2 og Siouxsie
& The Banshees, og nú í ár
voru þar m.a. bæði New Order
og Lou Reed. Snorri mun
aðallega fjalla um þá hátíð
eins og áður segir.
Sjónvarp kl. 21.40:
Síðasti sumardagurinn
Bresk sjónvarpsmynd
■ í kvöld verður sýnd í sjón-
varpinu breska sjónvarps-
myndin Síðasti sumardagur-
inn. Hún er gerð eftir sögu lan
McEwans, sem einnig semur
handrit. Leikstjóri er Derek
Banham, en aðalhlutverk leika
Annette Badland og Graham
McGrath.
Tom og Jenny á ánni.
Myndin gerist árið 1970.
Tom, sem er 12 ára, býr með
eldri bróður sínum Peter og
hópi vina hans í húsi fjölskyld-
unnar. Frá húsinu sér yfir ána,
sem Tom finnst ákaflega vænt
um. Foreldrar hans fórust í
bílslysi.
Jenny svarar auglýsingu þar
sem óskað er eftir fleiri íbúum
í húsið. Hún er rúmlega tvítug,
feimin.nærsýn, óálitleg og feit.
Hún er ólík áhyggjulausu og
glaðværu fólkinu í húsinu, en
hún verður smám saman „hús-
móðir“. Hún sér um barnið
Alice og tekur að sér matar-
gerð og að halda húsinu
hreinu. Jenny verður ánægð-
ari, og nær jafnframt sterkum
tengslum við Tom. Þau eyða
fögru sumri við róður og úti-
veru í ánni. Hægt og hægt fer
Jenny að ná Tom út úr þeirri
einangruðu veröld sem hann
hefur verið í síðan foreldrar
hans fórust.
Jenny blómstrar og finnst
hún eiga heima þarna. Sjálfs-
traust hennareykst. Hún tekur
smám saman við móðurhlut-
verki gagnvart Tom. Sumarið
er þó ekki eilíft.. Óvæntir og
sorglegir atburðir gerast.
Sjónvarp í kvöld kl. 20.35:
Orustuflug-
vélin Spitfire
■ Orustuflugvélin Spitfire
nefnist bresk heimildamynd
um samnefnda flugvélategund,
sem er ein sú frægasta í sög-
unni.
Supermarine Spitfire var
eins sætis orustuflugvél,teikn-
uð upp úr Supermarine-flugbát
sem vann flugbátakeppni á 4.
áratugnum. Hún var ásamt
með Hurricane uppistaðan í
orustuflugflota Breta þegar
síðari heimsstyrjöldin hófst, og
var þá mjög nýtískuleg. Alla
styrjöldina var síðan unnið að
breytingum á henni, hún var
búin öflugri hreyflum og ýmsar
aðrar endurbætur gerðar,
þannig að við stríðslok var hún
enn í fullu gildi.
Frægasta stund þessarar teg-
undar var í orustunni um
Bretland, þegar færri en 1000
orustuflugvélar Breta af gerð-
inni Spitfire og Hurricane
stóðu gegn öllu loftveldi Þjóð-
verja. Frá því í ágúst 1940 og
fram yfir áramót stóð úrslita-
orustan um það hvort Þjóð-
verjar næðu yfirráðum í lofti
yfir Ermasundi og gætu síðan
gert innrás í Bretland í skjóli
þess. Það voru gæði Spitfire-
vélanna, ásamt með hugrekki
flugmannanna bresku sem
réðu úrslitum. Spitfire stóð
fyllilega jafnfætis Messer-
shmitt 109, helstu orustuvél
Þjóðverja, og langtum framar
bæði Stuka og Me-110, sem
voru aðrar tegundir sem Þjóð-
verjar beittu mikið. Takmark-
að flugþol Me-109 orustuvél-
anna ásamt með beitingu
radarstöðva gaf Bretum svig-
rúm sem þeir beittu til hins
ítrasta.
í myndinni verða sýndir
ýmsir filmubútar af loftorust-
um, einnig litmyndir af Spit-
fire-vélum sem enn eru til á
flugi. Teikningar sýna hönnun
og byggingu vélanna. Þróunar-
saga flugvélarinnar og margra
annarra frá þessu tímabili -
Wellington, Focke-Wulfe 190
og Me-109, er rakin. Það er
Brian Johnson sem samið hef-
ur og stjórnað gerð myndar-
innar, en hann er þekktur fyrir
aðrar myndir um svipað efni.
Að myndinni lokinni verður
rætt við Þorstein Jónsson flug-
stjóra, sem var orustuflugmað-
ur í Bretlandi á stríðsárunum
og flaug Spitfire.
Einar Pálsson.
Eins og margir vita hefur
Einar Pálsson gefið út margar
bækur um rannsóknir sínar á
íslenskum fornritum, t.d.
Njálu. Þessar rannsóknir hafa
verið vægast sagt umdeildar,
og hefur t.d. heimspekideild
Háskóla íslands lýst þær
ómerkar og óvísindalegar.
Hafa verið skrifaðar langar
greinar þar sem verk Einars
eru rökkuð niður og talin ein
grein gervivísinda.
Verk Einars eru flókin og að
ýmsu leyti torskilin, en byggj-
Útvarp kl. 23.
Útvarpsþáttur um vísinda-
störf Einars Pálssonar
- frá norska útvarpinu
■ Klukkan 11 í kvöld er á
dagskrá í útvarpinu þáttur sem
nefnist Kva gjöymer den norr-
öne kulturen - Einar Pálsson
og hans forskararbeid. Þetta
er dagskrá frá norska útvarp-
inu um Einar Pálsson og rann-
sóknir hans.
ast að nokkru á stærðfræði-
legum og goðfræðilegum túlk-
unum á fornritunum. Væntan-
lega verða menn margs vísari
um þessi fræði ef þeir hlusta á
þennan norska útvarpsþátt. En
hvernig væri að gera íslenskan
útvarpsþátt um sama efni?
Mánudagur
27. ágúst
7.00 Veðurlregnir. Fréttir. Bæn.
Baldur Kristjánsson flytur (a.v.d.v.)
í bítið - Hanna G. Sigurðardóttir
og lllugi Jökulsson. 7.25 Leikfimi.
Jónína Benediktsdóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Ásgerður Ingi-
marsdóttir talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Eins og ég væri ekki til“ eftir
Kerstin Johansson Sigurður
Helgason les þýðingu sína (10).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. landsmálabl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tið“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Reykjavík bernsku minnar
Endurtekinn þáttur Guðjóns Frið-
rikssonar frá sunnudagskvöldi.
Rætt við Ágústu Kristófersdóttur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Dönsku hljómsveitirnar Shu-
bi-dua og Kansas City Strompers
syngja og leika.
14.00 „Við bíðum" eftir J.M. Coetz-
ee Sigurlina Davíðsdóttir les þýð-
ingu sína (14).
14.30 Miðdegistónleikar „Húnarn-
ir“, sinfónikst Ijóð op. 11 eftir Franz
. Liszt. Fílharmóníuhljómsveitin í
Los Angeles leikur; Zubin Metha
stj.
14.45 Popphólfið - Sigurður Krist-
insson (RÚVAK).
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: a. Agnes
Baltsa syngur aríur eftir Mer-
cadante og Donizetti með Útvars-
hljómsveitinni í Múnchen; Heinz
Wallberg stj. b. Dietrich Fischer-
Dieskau og Elena Suliotis syngja
ariur eftir Verdi með Filharmóniu-
sveit Lundúna; Lamberto Gardelli
stj. c. Filharmóníusveit Lundúna
og Carl Taschke fiðluleikari leika
Ballettþátt op. 100 eftir de Bériot;
Herbert Kegel stj. d. Útvarpshljóm-
sveit Berlínar leikur dansa úr óper-
unni „Othello" eftir Verdi; Ferenc
Fricsay stj.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Siðdegisútvarp - Sigrún
Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego
og Einar B. Kristjánsson. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Eiríkur Rögn-
valdsson talar.
19.40 Um daginn og veginn Auðunn
Bragi Sveinsson talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldavaka a. Úr sögum Mar-
grétar. Úlfar K. Þorsteinsson les
úr Grimu hinni nýju. b. Kórsöng-
ur. Söngfélag Skaftfellinga i
Reykjavik syngur undir stjórn Þor-
valds Björnssonar. Umsjón Helga
Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Vindur, vind-
ur vinur minn“ eftir Guðlaug
Arason Höfundur lýkur lestrinum
(19).
22.15 Veðurfregnir. Frétlir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kammertónlist: Píanókvintett
í g-moll K.478 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Hans Erich Riebens-
ahm og félagar í Stross-kvartettin-
um leika.
23.00 Kva gjöymer den
norröne kulturen? Einar Pálsson
og hans forskararbeid. Dagskrá
norska Ríkisútvarpsins um Einar
Pálsson og rannsóknir hans.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
27. ágúst
19.35 Tommi og Jenni Bandarísk
teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Orrustuflugvélin Spitfire
Bresk heimildamynd um eina
frægustu flugvélategund fyrr og
síðar og sögu hennar. Yfirburðir
Spitfire-vélarinnar áttu rikan þátt
i að Bretum tókst að sigra þýska
loftflotann’ og afstýra innrás Þjóð-
verja i Bretland i siðari heimsstyrj-
öld. Að myndinni lokinni verður
rætt viö Þorstein Jónsson, flug-
stjóra, sem var orrustuflugmaður i
Bretlandi á stríðsárunum og flaug
Spitfire. Þýðandi Rafn Jónsson.
21.40 Síðasti sumardagurinn Bresk
sjónvarpsmynd eftir lan McEwan.
Leikstjóri Derek Banham. Aðal-
hlutverk: Annette Badland og Gra-
ham McGrath. Ung og óframfærin
stúlka fær leigt herbergi þar sem
ungt fólk og áhyggjulaust ræður
húsum. Hún verður smám saman
mesta hjálparhella við öll heimilis-
störf og innileg vinátta tekst með
henni og tólf ára dreng á heimilinu
sem misst hefur foreldra sina.
Þýöandi Kristrún Þórðardóttir.
22.35 íþróttir
23.05 Fréttir í dagskrárlok.