NT - 27.08.1984, Blaðsíða 25
■ Hér berjast þeir Friðfinnur Hermannsson og Þorsteinn Sigurðsson hatrammlega um knöttinn í
leik KA og Þróttar. Báðir gerðu þeir mark fyrir sitt lið og voru bæði mörkin mjög góð.
NT-mynd: Sverrir.
2. deildin í knattspyrnu:
ÍBÍ í miklum ham
■ „Við förum upp, þetta er
loksins farið að ganga,“ sagði
Jóhann Torfason, ísfirðingur í
samtali við NT eftir leik ísfirð-
inga við Víði vestra. Leikinn
unnu ísfirðingar 3-0, örugg-
lega, og nú er svo komið að
möguleikar þeirra á fyrstu-
deildarsæti eru talsvert miklir.
ísafjarðarliðið lék ve! í
leiknum. Liðið var samstillt
þrátt fyrir að hinn sterka leik-
mann, Jóhann Torfason vant-
aði, en hann liggur nú í lungna-
bólgu. Eftir fyrsta stundar-
fjórðunginn, sem var jafn,
sóttu ísfirðingar í sig veðrið, og
skoruðu fyrsta markið á 18.
mínútu. Kristinn Kristjánsson
komst upp kantinn, og gaf vel
fyrir á hin hávaxna Guðmund
Jóhannsson, sem skallaði af
öryggi í fjærhornið, 1-0. Þannig
var staðan í hálfleik.
ísfirðingar bættu við keyrsl-
una í síðari hálfleik, og réðu
leiknum. Á 55. mínútu kom
annað mark þeirra, Guðmund-
ur Magnússon fékk fyrirgjöf
frá Kristni Kristjánssyni, komst
einn inn fyrir og skoraði lag-
lega, vippaði boltanum yfir
Gísla Hreiðarsson markvörð,
sem átti mjög góðan leik á
laugardag. Tuttugu mínútum
síðar innsiglaði Atli Einarsson
sigurinn, nafni hans, Atli Geir
Jóhannsson sem lék stöðu
„sweepers“ í leiknum lék upp
völlinn, gaf á Atla Einarsson,
og hann komst einn inn fyrir.
Atli vippaði boltanum laglega
yfir Gísla, 3-0.
Víðismenn voru ekki sann-
færandi í leiknum, áttu ekki
svar við góðum leik heima-
manna. Marteinn Geirsson
þjálfari þeirra var meiddur, lék
undir getu, og fór loks útaf.
Daníel Einarsson markaskor-
ari Víðis var rekinn útaf í
leiknum.
■ Þrátt fyrir að fimm mörk
hefðu verið gerð í leik Þróttar
og KA í 1. deild á laugardaginn
þá var leikurinn sjálfur ekki
mikið fyrir augað. Hann fór
fram á Valbjarnarvelli og lauk
með frekar óvæntum sigri
norðanmanna 3-2. Með þess-
um sigri þá setja KA-menn allt
í bál og brand á botninum og
stcfnir í grimman slag um
hvaða lið skal falla. Reyndar
bar leikurinn á laugardaginn
mikinn keim af þeirri baráttu
og nánast örvæntingu sem liðin
leggja í leiki þegar staða flestra
er veik og falldraugurinn teygir
sig eftir skottinu á þeim.
Leikurinn var gífurlega harð-
ur og gerðu menn sig seka um
mjög slæm brot. Var algengt að
sjá leikmenn sem misst höfðu
boltann, æða á eftir manninum
sem tók hann og skriðtækla
upp í axlir. Þá voru allir sem á
vellinum voru öskuvondir og
fúlir og hafði enginn gaman af
leiknum að því er virtist. Leik-
menn voru óvinir um leið og
leikurinn hófst og hreyttu
hvor í annan, mennirnir á
varamannabekkjunum voru
líka saltvondir og kölluðu inn á
völlinn „jarða þennan" eða
„þú sparkar bara í hann næst“
og svo fékk dómarinn sitt frá
bæði leikmönnum og áhorfend-
ur. En sú umgjörð utan um
einn knattspyrnuleik !!!
Best er þó að líta aðeins yfir
leikinn og hætta að skammast.
Þróttarar voru mun betri í fyrri
hálfleik og mátti sjá dálítinn
fallstimpil á KA-mönnum og
var mórallinn ekki alveg í lagi
lengst af. Strax á 4. mín
skoruðu Þróttarar og var Þor-
steinn Sigurðsson þarað verki.
Hann fékk stungusendingu inn
fyrir vörn KA og tók boltann á
sig með mann í bakinu og sendi
hann með fallegum boga í fjær
hornið. Óverjandi fyrir Þorvald
í markinu, 1-0. Rétt á eftir átti
Ásbjörn þrumuskot en rétt
framhjá. Annað markvert
gerðist ekki í fyrri hálfleiknum
nema að á lokamínútu hans þá
komst Birgir Sigurðsson Þrótt-
ari í gott færi en Þorvaldur
varði stórvel.
Síðari hálfleikur var ekki
nema þriggja mínútna gamall er
Þróttarar skoruðu aftur og var
það mark æði aulalegt. Arnar
bakvörður tók þá aukaspyrnu
rétt við hornfánann og sendi
fyrir markið. Boltinn fór beint
á Þorvald KA-markvörð sem
var á nærstöng, hann hafði
boltann í höndum sér í sekúndu
WK)V
SKúm
Daufur leikur
botnliðanna
Altt opið
átoppnum
■ Það var fremur daufur
leikur botnliðanna í annarri
deild, er Einherji frá Vopna-
firði heimsótti Tindastól á
Sauðárkróki á laugardag. Úr-
slitin urðu markalaust jafntefli,
sem var nokkuð sanngjarnt, ef
litið var á færin.
Tindastóll var mun meira
með boltann í leiknum, sótti
nokkuð, og réði spilinu í 85
mínútur nánast. Tindastóls-
menn fengu nokkur ágæt færi í
byrjun leiksins til að skora
mörk, en það tókst ekki vegna
frábærra tilburða Hreiðars Sig-
tryggssonar markvarðar og
þjálfara Einherja, sem var
langbesti maður Vopnfirðinga.
í lokin fengu Einherjar færi,
fyrst komst Páll í gegn en Árni
Stefánsson varði meistaralega
í horn. Síðan var dæmd óbein
aukaspyrna níu sentimetra frá
marklínu, á Tindastól, en leik-
menn höfðu oltið hver um ann-
an þveran fyrir framan markið,
og taldi dómarinn að einn varn-
armanna hefði haldið boltanum
á milli fóta sér fyrir framan
markið. Þrátt fyrir að stutt væri
í markið tókst Einherjum ekki
að skora.
Einkunnagjöf NT:
ÞRÓTTUR
Guðmundur Erlingsson .. 4
Ottó Hreinsson..........5
Kristján Jónsson .......4
Arnar Friðriksson......5
Ársæll Kristjánsson....3
Björn Björnsson.........4
Ásgeir Elíasson ........4
Þorvaldur í. Þorvaldsson . 4
Páll Ólafsson...........5
Þorsteinn Sigurðsson ... 4
Birgir Sigurðsson......5
Sverrir Pétursson......5
Sverrir kom inn fyrir Þor-
stein í hléi.
KA
Þorvaldur Jónsson.....4
Friðfinnur Hermannsson . 4
Ormarr örlygsson .......5
Bjarni Jónsson..........5
Erlingur Kristjánsson .... 4
Njáll Eiðsson...........3
Mark Duffield...........3
Ásbjörn Björnsson......4
Bergþór Ásgrímsson .... 5
Hafþór Kolbeinsson.....4
Steingrímur Birgisson ... 5
Þórarinn Þórhallsson .... 3
Þórarinn kom inn fyrir
Ormarr í hléi.
■ Grófur leikur sem bar
keim af botnbaráttunni ægi-
legu. KA-menn gáfust aldrei
upp og uppskáru eftir því.
Þróttarar slökuðu of mikið á
og því fór sem fór. Mörk
Þróttar gerðu Þorsteinn Sig-
urðsson á 4. mín. og Arnar
Friðriksson á 48. min. Fyrir
KA skoruðu Steingrímur
Birgisson á 57. mín., Frið-
finnur Hermannsson á 68.
mín. og Hafþór Kolbeinsson
á 90. mín. Dómari var Gísli
Guðmundsson og var í slak-
ara lagi. Áhorfendur voru
fáir.
en missti hann sfðan í hné sér
og inn í markið. Mikil mistök
og nú sáu menn fram á auðveld-
an Þróttarsigur. En svo var þó
ekki, KA-menn tóku sig saman
í andlitinu og er um 15 mín.
voru liðnar af síðari hálfleik þá
tók Ásbjörn aukaspyrnu sem
Guðmundur Erlingsson varði
en hélt ekki boltanunt sem
hrökk út til Steingríms sem
skoraði, 2-1. Rúmum fimm
mínútum seinna skoraði Frið-
finnur Hermannsson með góðu
skoti fyrir utan teig í bláhornið
ogstaðan allt í einu orð in 2-2.
Á lokamínútu leiksins þá
komst Birgir í gott færi en
Þorvaldur varði vel og stuttu
seinna var Ársæll Kristjáns-
son, sern var einn besti maður
Þróttar, að væflast með knött-
inn rétt fyrir utan teig og hafði
öll tök á að senda hann til
Guðmundar í markinu. En
hann lét Hafþór Kolbeinsson
hirða af sér knöttinn og Hafþór
lékk auðveldlega á Guðmund
og bombaði í markið af mark-
línu. Gífurlegur fögnuður KA-
manna og Gísli dómari flautaði
af stuttu seinna.
Það sem varð Þrótturum að
falli í þessum leik var að þeir
töldu sigurinn sinn í síðari
hálfleik eftir að vera komnir
tvö mörk yfir. Það er jú liægt
að skilja það því KA-liðið
virkaði lélegt, en þeir drifu sig
áfram mest í gegn um mennina
sívinnandi, þá Njál og Mark
Duffield, sem er mjög sterkur
og tapaði ekki skallaeinvígi
allan leikinn.
Jafntefli hefði ef til vill verið
sanngjörn úrslit en KA-menn
gáfust aldrei upp og það reið
baggamuninn.
Frá Eiríki Hermannssyni, frcttamanni NT á
Suðurnesjum:
■ Njarðvíkingar unnu verð-
skuldaðan sigur á Siglfirðingum
í annarri deildinni í knattspyrnu
á laugardag, er liðin mættust í
Njarðvík. Úrslitin urðu 1-0
Njarðvík í hag, en mörkin
hefðu getað orðið fleiri á báða
bóga. Njarðvíkingar voru þó
lengst af sterkari.
Leikurinn var þófkenndur
framan af fyrri hálfleik, en
Njarðvíkingar sköpuðu sér síð-
an færi í síðari hluta hálfleiks-
ins. Skúli Rósantsson átti
þrumuskot frá vítateig á 28.
mínútu, en varnarmaður Sigl-
firðinga varði á línu. Mínútu
síðar gerðist umdeilt atvik, Jón
Halldórsson markaskorari
Njarðvíkinga var að kljást við
Englendinginn Colin Thacker
á vítateig Siglfirðinga. Thacker
braut á Jóni og hann virtist vera
að detta, og dómarinn flautaði.
Jón datt þó ekki, og skoraði
með þrumuskoti í næstaskrefi.
Nj arðvíkingar voru ekki hressir
með fljótfærni dómarans.
Njarðvíkingum tókst síðan
ekki að skora í fyrri hálfleik
þrátt fyrir ágæt færi, og staðan
0-0 í hálfleik.
í síðari hálfleik var leikurinn
jafn framan af. Á 16. mín. var
Hörður Júlíusson, hinn fljóti
framherji Siglfirðinga felldur
innan vítateigs, þrátt fyrir
hættulitla staðsetningu, en Col-
in Thacker skaut i stöng úr
vítaspyrnunni, firnaföstu skoti
svo small í. Þremur mínútum
eftir vítaspyrnuna, á 65. mín-
útu, komstHaukurJóhannsson
einn í gegnum vörn KS en
bjargað var í horn. Tveimur
mínútum síðar kom svo
markið, Skúli tók aukaspyrnu
frá vinstri, Freyr Sverrisson
náði boltanum er hann hrökk
af vörninni og lyfti yfir mark-
vörðinn. Þar tók Jón Halldórs-
son við og ýtti boltanum yfir
línuna.
Jón Halldórsson var besti
maður Njarðvíkinga í þessum
leik, og Skúli Rósantsson var
einnig mjög góður. KS spilaði
ekki áferðarfallega knatt-
spyrnu í leiknum, Colin Thack-
er var þeirra besti maður, og
Hörður Júlíusson lék rrijögvel.
Vestmanneyingar
sterkari nyrðra
Frá Haflida Jósteinssyni á Húsavík:
■ Vestmannaeyingar unnu góðan sigur
á Völsungum er liðin mættust í annarrar
deildarkeppninni á Húsavík á laugardag.
Leiknum lauk með sigri Eyjapeyjanna
2-1. Með þessum sigri þá opnuðu þeir
deildina enn betur uppá gátt.
Annars voru það Húsvíkingar sem voru
mun sterkari í fyrri hálfleik og náðu
forystu með marki Helga Helgasonar
beint úr aukaspyrnu af um 20 til 25 m færi,
stórgott mark. Leikurinn var ekki mikið
fyrir augað og meira lagt uppúr baráttu en
góðum fótbolta.
I síðari hálfleik, þá sóttu Vestmanna-
eyingar í sig veðrið og sóttu nokkuð stíft.
Kári Þorleifsson skoraði síðan jöfnunar-
markið af stuttu færi. Fallegt mark og vel
gert hjá Jóhanni. Staðan orðin 2-1 fyrir
Eyjamenn og þar við sat.
Bæði liðin eiga möguleika á að komast
upp í 1. deild en slagurinn um sætið
harðnar með hverjum leik.