NT - 07.09.1984, Síða 1
Landbúnaðarkaf linn taf ði afgreiðslu framtíðarplansins:
Orðalagságreiningur
um verðlagskerfið!
■ Óvænt snurða hljóp á
þráðinn hjá formönnum
stjórnarflokkanna í gær,
þegar þeir ætluðu að ganga
endanlega frá tillögum sín-
um í efnahags- og atvinnu-
málum. Ágreiningur kom
upp á milli þingflokka
Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokksins um orðalag á þeim
hluta landbúnaðarkaflans,
sem fjallar um verðlags-
kerfið. Formennirnir
leystu hins vegar úr vandan-
um og fengu blessun sam-
herja sinna á endanlegri
útgáfu plaggsins.
Tillögurnar gera ráð fyrir
uppstokkun verðlagskerfis
landbúnaðarins á þann
hátt, að staða bænda verði
treyst og að þeir fái fullt
verð fyrir framleiðslu sína.
Þá eiga vinnslufyrirtækin að
lúta svipuðu aðhaldi og
önnur fyrirtæki í landinu
hvað varðar verðmyndun.
Á næstu vikum mun
ríkisstjórnin kalla til full-
trúa bænda og vinnslu-
stöðva til þess að ræða
endanlegt fyrirkomulag.
Þessi ágreiningur varð til
þess að blaðamannafundi,
þar sem formennirnir ætl-
uðu að kynna verkefnaskrá
ríkisstjórnarinnar fyrir
næsta ár, var frestað til
dagsins í dag. Einnig kom
þar til mjög langur fundur
ríkisstjórnarinnar um fjár-
lögin.
Pá var frestun fundarins
í gær formönnunum ekkert
á móti skapi, þar sem þeir
hafa væntanlega skýrari
mynd af fjárlögum næsta
árs, í dag, og hvernig eigi
að fylla upp í fjárlagagatið.
Laugardags-
opnunin:
Skreið
ígegn
■ í skriflegri atkvæðagreiðslu
samþykkti fundur í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur í gær-
kvöldi með naumum meirihluta
- 65 atkvæðum gegn 56 - að
heimila félaginu að semja um
nýjan opnunartíma verslana.
Verslanir mega samkvæmt því
vera opnar til kl. 18.30 mánu-
daga til fimmtudaga, til kl. 21 á
föstudögum og frá kl. 9-16 á
laugardögum, sem mætti mestri
andstöðu.
Magnús L. Sveinsson kvað
niðurstöður atkvæðagreiðsl-
unnar ekki hafa komið sér á
óvart því honum væri vel ljós
mikil og vaxandi andstaða
verslunarfólks gegn þessum
langa vinnutíma. Vinnuveitend-
ur hafi ekki staðið við það sem
þeir hefðu sagt mjög auðvelt,
þ.e. að koma á vinnuskiptum
þannig að tryggt yrði að vinnu-
tími fólks yrði ekki óeðlilega
langur. Sé kominn tími til að
þeir geri sér ljóst að ekki er
hægt að reka afgreiðslufólk
áfram eins og þræla.
Síldarsöltun
engin í haust?
- Rússar tregir til samninga
■ Mikill uggur ríkir meðal
síldarsaltenda vegna óvissu
um sölu saltsíldar til Sovét-
ríkjanna á þessu ári, en félög
síldarsaltenda af öllu landinu
þinguðu í Reykjavík í
gærdag. Sovétmenn höfðu
boðað að þeir kæmu til við-
ræðna um síldarkaup um
miðjan september, en þeir
hafa nú frestað þeim fram í
miðjan október. Fulltrúar
sildarsaltenda ætluðu að
ræða við sjávarútvegsráð-
herra og viðskiptaráðherra
nú í morgun um þessi mál en
ljóst er að engin síldarsöltun
hefst fyrr en samningar liggja
fyrir. Sovétmenn eru lang-
stærstu kaupendur saltsíldar
frá íslandi. Heildarverðmæti
útfluttrar saltsíldar í fyrra
nam tæpum milljarði króna.
Viðskiptasamningur er í
gildi milli Sovétríkjanna og
kveður hann á um að Sovét-
menn kaupi árlega 150-200
tonn af síld árlega frá ís-
landi. Hins vegar þarf að
semja árlega um síldarverðið
og hvernig síldin skuli unnin.
Eins og nú horfir verður
ekki hafist handa um að
semja um þessi atriði fyrr en
um miðjan næsta mánuð.
Fulltrúar síldarsaltenda
munu á fundunum nú í
morgun leita eftir því við
ráðherrana að þeir freisti
þess með öllum ráðum að fá
Sovétmenn aö samninga-
borðinu áður en síldarver-
tíðin hefst.
Vðknuðuúti
í Tjðminni
■ Menn geta tekið upp á ýmsu
sér til skemmtunar. Einhverjir
gengu fram á tvær stúlkur sof-
andi í bifreið í fyrrinótt og fengu
þá snjöilu hugmynd að vekja
svefnpurkurnar. Tóku þeir sig til
og ýttu bíinum út í Tjömina og
hlupu siðan sem skrattinn vseri á
hælum þeim af vettvangi. Ung-
meyjamar vöknuðu upp við illan
draum úti i Tjöm en til allra
hamingju er Tjömin gronn svo
ekki fór illa. Bíllinn reyndist h'tið
skemmdur þegar til kom og
stúlkunum varð ekki meint af
volkinu.
En hvað hefði gerst, hcfði
bfllinn staðið við hafnarbakk-
ann?
RLR:
Krefsttveggja
vikna gæslu
- á manni vegna fjárdráttargruns
■ Rannsóknarlögregla ríkisins
befúr krafist tveggja vikna gæsiu-
varðhaids yfir manni sem gron-
aður er um fjárdrátt en rann-
sóknarlögreglunni hafa borist
þrjár kærorá manninn. Sakadóm-
arí tók sér sólarhrings frest til að
úrskurða um gæsluvarðhalds-
kröfuna.
Samkvæmt kæronum á mað-
urinn að hafa dregið sér fé
sem hann hafði undir höndum
frá öðrom. Rannsókn máisins er
enn á fromstigi.
■ Kristján náði að skutla litlu dóttur sinni út um svefnherbergisglugga og komast síðan út
sjálfur. Á næstu mínútum var húsið alelda og tveimur tímum seinna horfið.
NT-mynd: Róbert
Feðgin bjargast naumlega úr eldsvoða:
Braut glugga og
skutlaði sjö ára
dóttur sinm út!
■ „Ég vaknaði upp við dynk
og þá var eldurinn kominn inn
í svefnherbergisdyr. Ég braut
glugga og skutlaði dóttur minni
út þar og fór svo sjálfur á eftir,
berfættur í gallabuxum og hún
á náttkjólnum einum fata“.
Þetta segir Kristján Gunn-
laugsson á Ökrum á Snæfells-
nesi en hann bjargaðist naum-
lega ásamt 7 ára gamalli dóttur
sinni þegar eldur kom upp í
íbúðarhúsi hans í fyrrinótt.
íbúðarhúsið, sem var fjög-
urra ára gamalt, og allt innbú
varð eldinum að bráð. „En ég
vonast til að geta reist hús á
grunninum að nýju en fyrsta
skrefið er að hreinsa grunninn"
sagði Kristján Gunnlaugsson.
Sjá nánar á blaðsíðu 5.