NT - 07.09.1984, Side 2
GD
Föstudagur 7. september 1984
Salmonellufaraldur í Portúgal:
Landlæknir ráðleggur
ferðamönnum aðgæslu
- sérstaklega fólki í matvælaiðnaði vegna úfbreiðsluhættu
„Það hefur borið nokkuð á
niðurgangi undanfarið hjá
ferðamönnum sem komið hafa
frá Portúgal, og við ræktun
sýna hafa fundist salmonellu-
og shigellusýkingar. Við viljum
af þessu tilefni ráðleggja fólki,
sérstaklega í matvælaiðnaði,
sem kemur frá Portúgal og finn-
ur fyrir þessum einkennum að
láta athuga saursýni áður en
það fer til vinnu því annars gæti
það hugsanlega breytt þetta út
hér,“ sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir í samtali við NT í
gær.
Landlæknisembættið sendi
frá sér tilkynningu í gær þar sem
varað er við salmonellusýkingu
í Portúgal og sérstaklega bent á
að ungbörnum og gamal-
mennum væri hættara við veik-
Hlutaf járútboð Arnarflugs:
Stóru hluthafarn
ir auka hlut sinn
■ Allir stærstu hluthafarnir í
Arnarflugi hafa aukið hlutfalls-
lega eign sína í félaginu með
kaupum á nýjum hlutabréfum.
Á miðnætti s.l. rann út annar
frestur hluthafa til að nýta sér
forkaupsrétt að hlutabréfunum
sem gefin voru út í júlí, og
ákváðu allir stærstu hluthafarnir
í flugfélaginu, Flugleiðir,
starfsmenn, Olíufélagið og
Reginn, að nýta sér forkaups-
réttinn til fulls. Par sem í þessari
umferð voru til sölu þau hluta-
bréf,sem smærri hluthafar nýttu
sér ekki forkaupsrétt á áður en
fyrsti fresturinn rann út um
miðjan ágúst, þá hafa stóru
hluthafarnir nú aukið hlut sinn
á kostnað minni hluthafanna.
Skipting hlutafjár í Arnar-
flugi mun nú vera þannig, að
Flugleiðir eiga 43,7%, starfs-
menn 23,5% Olíufélagið og
Reginn 18,25%; um 15% er í
eigu einstaklinga, annarra en
starfsmanna.
Enn á eftir að selja nálægt
einu prósenti, sem er að nafn-
virði um 400 þúsund krónur, af
nýja hlutafénu í Arnarflugi, en
stjórn félagsins mun taka
ákvörðun um hvernig staðið
verður að sölu þess.
Hver verður
útvarpsstjóri?
I Á næstu vikum munu fjöl-
miðlar skemmta sér við það að
velta því fyrir sér hver verði
útvarpsstjóri. Nokkuð víst er
að um sjálfstæðismann verður
að ræða, þar sem hinn óþreyt-
andi baráttukona fyrir aukinni
menntun barna jafnt sem full-
orðinna, kennaravinurinn
Ragnhildur Helgadóttir fer
með veitingarvaldið og fróðir
menn telja að Framsóknar-
flokkurinn geri ekki sérstakar
kröfur til starfans. Af sjálf-
stæðismönnum er helst nefnd-
ur skáldið og ritstjórinn Matt-
hías Jóhannessen og yrði hann
náttúrlega sjálfkjörinn til starf-
ans af þeim bæ og myndi
átakalaust sópa peðum eins og
Markúsi Erni undir teppið.
Dropi vill þó nefna annan
mann til starfans, holdtekju
hægri aflanna í Framsókn og
Sjálfstæðisflokki, sjálfan Indr-
’ iða G. Þorsteinsson. Þá yrði
gaman á gamlárskvöldum,
sjálfur Svarthöfði í Skaupbæti.
Þá yrði ritstjóra-
stóllinn falur
Fari svo að Matthías vippaði
sér yfir, þá yrði stóll hans laus.
Næst honum stendur að sjálf-
sögðu hinn mikli baráttumaður
fyrir vestrænum vörnum,
Björn Bjarnason. En fleiri
kynnu að renna hýru auga til
stólsins. Friðrik Sóphusson sér
ekki fram á feita daga í pólitík-
inni næstu árin, þar sem ráð-
herrar flokksins eru flestir heilsu-
hraustir. Friðrik hefur hins
vegar sterka stöðu sem vara-
formaður flokksins og er mjög
handgenginn Þorsteini Páls-
syni. Friðrik og þau frjálshyggju-
öfl sem hann styðst einkum við
hafa lítil ítök í Morgunblaðinu
og er enda lítið hampað þar.
Koma Friðriks í ritstjórastól
myndi því mjög treysta sam-
indum af þessum sökum.
Landlæknir sagði að hafa yrði
það í huga að salmonella væri
mjög algeng í löndunum við
Miðjarðarhafið og miðað við
allan þann fjölda ferðamanna
sem þangað fara árlega eru
sýkingar af völdum salmonellu
mjög fátíðar. Hinsvegar ættu
allflest tilfelli, sem koma upp
hérlendis, rætur að rekja frá
þeim löndum og af og til kæmu
upp svona tilfelli.
Salmonella veldur niðurgangi
og einnig geta fylgt hitaköst og
slappleiki sem þó gengur yfir-
leitt fljótt yfir og er ekki alvar-
legs eðlis. Hinsvegar sagði land-
læknir að ef ekki væri að gætt
gætu þessir sýklar breiðst út og
því yrði fólk í matvælaiðnaði
sérstaklega að vera á verði. En
undanfarið hefði gengið vel að
koma í veg fyrir útbreiðslu sal-
monellu hérlendis enda hefðu
ferðaskrifstofurnar gefið fólki
ágætar upplýsingar um málið.
Örn Steinsen hjá ferðaskrif-
stofunni Útsýn sagði NT að 164
farþegar væru nú á vegum skrif-
stofunnar í Portúgal og sam-
kvæmt upplýsingum fararstjór-
ans þar í gær hefðu fimm þeirra
fengið niðurgang, sem væri ekki
óeðlilegt hlutfall. Hinsvegar
væri því ekki að neita að þetta
væri vandamál á staðnum, og
band flokks og blaðs sem hefur
vægast sagt verið mjög brösótt
undanfarin ár. Þeir Friðrik og
Björn Bjarnason liafa áður
barist um formennsku og þar
með leiðtogahlutverk hjá ung-
um sjálfstæðismönnum fyrir 15
árum þar sem Friðrik sigraði
með minnsta mun.
Spilar á píanó
Raunar hefur Friðrik verið
nefndur sem útvarpsstjóri en
þegar Dropahöfundur bar það
undir hann benti hann á þá
augljósu staðreynd að hann
spilaði hvorki á píanó, né hefði
verið skólaskáld á mennta-
skólaárunum. Útvarpsstjóri
þarf nefnilega að hafa um sig
menningarsúkkulaðihjúp sé
hefðinni fylgt. Þetta leiðir hug-
ann að þingmanni sem spilar á
píanó og ætlaði sér að verða
formaður, en sér nú fram á að
verða bara óbreyttur þingmað-
ur. Það er Birgir ísleifur.
Hugsanlega mætti nefna fleiri
sem spila á píanó og sjá fram á
rýra framtíð í stjórnmálum.
Friðjón Þórðarson er einn
þeirra og hann söng annan
bassa með leikbræðrum, vest-
ur í Dölum, fyrir 30 árum.
Ávaðiðríða
tannsmiðir
Stöðnun virðist komin í
kjarasamninga eftir að VSÍ
bannaði atvinnurekendum á
Vestfjörðum um að semja um
4% kauphækkun. Verkalýðs-
forystan andaði léttar enda
næsta víst að sundrung hefði
komið í hreyfinguna og mörg
verkalýðsfélög, einkum á
landsbyggðinni,hefðu fylgt á
eftir og svo koll af kolli. Hins
vegar velta menn fyrir sér
hvort VSÍ ætli virkilega að
stefna í verkfall með það að
leiðarljósi að rúlla yfir verka-
lýðshreyfinguna í eitt skipti
fyrir öll. Annað hvort er það,
eða þá að samningabannið á
Vestfjörðum er alvarleg takt-
ísk mistök því VSÍ sleppur
aldrei með minni kauphækkun
en krafist var á Vestfjörðum,
nema þá eftir veruleg átök, ef
hin bognu bök brotna í verk-
fallsbaráttu sinni. En í fyrra-
dag kom reyndar upp nýr
flötur í samningamálunum.
Hinir hörðu baráttumenn í
Tannsmiðafélaginu riðu á vað-
ið og sömdu um 3% hækkun 1.
september og 3% hækkun 1.
janúar. Spurningin er.mun öll
hreyfingin fylgja á eftir?
Erffitt hlutskipti
sáttasemjara
Ríkissáttasemjari á ekki
náðuga daga framundan. Fyrir
14. september verður hann að
leggja fram sáttatillögu í launa-
deilu BSRB og ríkisins. Full-
víst má telja að BSRB kolfelli
allar tillögur sem ekki kveða á
um verulegar kauphækkanir
a.m.k.8-12%. Hins vegar er
næsta víst að fjármálaráðherra
muni fella allar tillgögur sem
kveða á um kauphækkanir.
T.d. sagði hann í sjónvarpsvið-
tali í fyrradag: „Það geta allir
fengið að sjá að ekkert fé er til
í ríkiskassanum. Opinberir
starfsmenn ættu frekar að taka
á sig launalækkun en launa-
hækkun.“ Já, Guðlaugur er
ekki öfundsverður.
sagðist Örn eiga von á skýrslu í
dag frá ferðamálayfirvöldum í
Portúgal en heilbrigðisyfirvöld
þar funduðu í gær um málið.
Sjá útlönd bls.28
■ „Það vex eitt blóm fyrir vestan“ stóð á kortinu sem fylgdi
kúrekahattinum sem Ragnheiður Hákonardóttir sjómannskona á
ísafirði færði Halldóri Ásgrímssyni frá vestfirskum sjómannskonum
ásamt gulrí rós.
Sjávarútvegsráðherra á fundi á Isafirði:
Vestfirðingar færðu
Halldóri kúrekahatt
- og lýstu yfir almennri andstöðu gegn kvótakerfinu
Frá fréttaritara NT á ísafírði:
■ Segja má að almenn and-
staða gegn kvótakerfinu hafi
komið fram hjá sjómönnum á
Vestfjörðum á fundi þeim sem
sjávarútvegsráðherra Halldór
Ásgrímsson hélt í Félagsheimil-
inu á Hnífsdal s.l. þriðjudag.
Ráðherra var þeim sammála
um að kvótakerfið væri langt
frá gallalaust, en spurði menn
hvaða ráð þeir hefðu í staðinn.
Kvaðst hann verða manna fegn-
astur ef menn gætu fært honum
Akureyri:
- mikið um hraðakstur
■ Lögreglan á Akureyri átti
annasaman dag í gær. Talsvert
var um umferðaróhöpp þar af
urðu þrír harðir árekstrar. Sá
fyrsti varð á mótum Hörgár-
brautar og Hlíðarbrautar. Bif-
reið sem ekið var út úr bænum
sveigði í vestur, í veg fyrir
bifreið sem í því bili kom aðvíf-
andi inn í bæinn. I fyrrnefndu
bifreiðinni var ökumaður einn,
en í þeirri síðarnefndu voru þrír
farþegar auk ökumanns. Voru
þeir allir fluttir á slysadeild,
þ.ám. kona sem skarst mjög illa
í andliti. Sagði lögreglan fullvíst
að hefðu bflbelti verið notuð
þegar slysið varð, hefði enginn
slasast.
Þá varð árekstur á gatna-
mótum Akurgerðis og Hamra-
gerðis um miðjan dag í gær.
Piltur á léttu bifhjóli ók fyrir
bifreið og var fluttur á slysa-
deild. Ekki var vitað um
meiðsli.
Loks skullu saman tveir bílar
á Skarðshlíð við Sunnuhlíð með
þeim afleiðingum að önnur
þeirra valt og skemmdust báðar
mikið. Slys á fólki urðu þó ekki
teljandi enda voru öryggisbelti
höfð um hönd í a.m.k. öðrum
bílnum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar þá var einnig óvenju
mikið um hraðakstur á Akur-
eyri í gær, og vill lögreglan
koma því á framfæri til ökuþóra
að nú eru skólar að hefjast og
skammdegi í nánd. Menn eru
því beðnir að stilla sig og taka
tillit til barna og ungmenna sem
eru mikið á ferli um þessar
mundir.
einhverja betri lausn á málun-
um, en hana höfðu fundarmenn
hins vegar ekki handbæra.
Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur viðurkenndi að menn
hefðu enn ekki nægja þekkingu
á þorskinum og háttum hans.
Vegna þess taldi Halldór enn
meiri ástæðu til að fara varlega
í stað þess að fara allt of nærri
bjargbrúninni og lenda svo
kannski fram af. Með því að
gefa veiðar frjáisar yrði lagt í
allt of mikla áhættu.
Fundurinn í Hnífsdal er tal-
inn sá allra fjölmennasti senv
þar hefur verið haldinn í árarað-'
ir og giskað er á að hann hafi sótt
um 300 manns. Ekki kom á
óvart að sjómenn voru margir í
hópi fundarmanna en hins vegar
voru konur þar fjölmennari en
búist hafði verið við á fundi um
sjávarútvegsmál og færðu þær
ráðherra kúrekahatt að gjöf.
Umræður voru mjög fjörugar
og sátu fundarmenn sem fastast
til kl. hálf tvö um nóttina, eða í
5 kiukkutíma. Mátti heyra á
fundarmönnum að þeim þótti
fundurinn hafa verið gagnlegur
og ýmiss misskilningur hafi þar
verið leiðréttur. Flestir munu
hafa haldið ánægðari af fundi en
á hann.
Kerlingardalsá
og Vatnsá
Kerlingardalsá er jökulsá
sem rennur til sjávar rétt
austan við Vík í Mýrdal.
Vatnsáin kemur úr Heiðar-
vatni og sameinast síðan
Kerlingardalsánni.
Áður fyrr var þarna góð
sjóbirtingsveiði, en fyrir
nokkrum árum minnkaði
veiðin að miklum mun, og
fiskurinn varð smærri og
smærri.
Þá var tekið til við að
rækta lax á vatnasvæðinu og
hefur það gefið dágóðan ár-
angur. Þar veiddust í fyrra 90
laxar.
Veiðin í sumar hefur verið
mikið minni, komnir eru á
land um 34 laxar og töluvert
af sjóbirtingi.
Laxinn gengur upp Kerl-
ingardalsá og upp Vatnsá og
á síðan greiða leið upp í
Heiðarvatn. Hann gengur
frekar seint á svæðið og aðal-
veiðitíminn er í ágúst og
september.
Tregt í Grímsá
Treg veiði hefur verið í
Grímsá að undanförnu, þó
hafa verið að reytast þar upp
nokkrir laxar, veitt er á 10
stangir.
Laxinn er frekar smár sem
veiðist, mikið um 3-5 punda
fiska. Eitthvað er af honum í
ánni, aðallega fyrir ofan brú
á þjóðveg.
955 laxar voru komnir á
land í vikunni og er það
slakara en var á sama tíma í
fyrra. Þá fengust í heildina
1380 laxar.
Grímsá hefur komist í
tæpa 2000 laxa, það var árið
1978. Árið eftir veiddust
1527 laxar en eftir það fór að
síga á ógæfuhliðina, 1980
veiddust 869 laxar og 1981
veiddust 845 laxar og aðeins
717 laxar 1982.
Góðveiðií
Haffjarðará
Ágæt veiði hefur verið í
Haffjarðará og eru komnir
á milli 5 og 6 hundruð laxar
á land.
Meira hefur verið um væn-
an fisk í ánni, eins og víðast
hvar annars staðar í sumar.
Stærsti laxinn var 22 pund.
Töluvert hefur sést af laxi
uppum alla á og eingöngu
veitt á flugu, en veitt er á sex
stangir í ánni.