NT - 07.09.1984, Page 3
Eíf
Föstudagur 7. september 1984
Bankarnir boða aðgerðir til að bæta stöðusína:
Staða viðskiptabankanna
sú versta um áratugaskeið
- nánast tekið fyrir ný útlán á næstunni
■ „Á undanförnum sumarmánuðum, og
þó einkum í ágústmánuði, hefur keyrt um
þverbak. Er staða bankanna nú verri en hún
hefur verið í áratugi" sögðu viðskiptabank-
arnir í óvenjulegri yfirlýsingu í gær, en eins
og fram kom í NT í gær þá var lausafjárstaða
þeirra og annarra innlánsstofnana neikvæð
um 3,4 milljarða króna í lok ágúst, og hafði
versnað um 70% frá júnílokum.
Eiríkur Guðnason, forstöðumaður Hag-
fræðideildar Seðlabankans, sagði í samtali
við NT í gær, að útlán bankanna hefðu á
síðustu tólf mánuðum aukist um 50%, en
innlánin aðeins um 31%.
Bankarnir boða nú nýja stefnu og ætla að
grípa til harðra ráðstafana til að snúa þessari
vafasömu þróun við. Þeir ætla enn að draga
mjög úr útlánum, fyrst um sinn í þeim mæli
„að nánast sé tekið fyrir ný útlán“, að
reglubundnum rekstrarlánum atvinnuveg-
Síldin:
Kvótinn er
45000 tonn
■ Síldveiðar nótabáta hefjast 30. septem-
ber klukkan 18 samkvæmt tilkynningu ráðu-
neytis og á sama tíma reknetaveiðar á síld.
Hringnótabátunum verður heimilt að veiða
320 lestir af síld en heildarafli reknetaveiði-
skipa hefur verið ákveðinn 15000 lestir.
Minni bátum, sem veiða síld í lagnet, er svo
leyft að veiða 1300 tonn en veiðitímabil
þeirra hófst 10. ágústog verðaþeirstöðvaðir
þegar aflamarki er náð. Aðrar veiðar standa
til 15. desember. Heildarsíldarkvóti í ár
nemur 45.000 tonnum en var í fyrra 52.500.
Tilfærslur á heilum og hálfum aflakvót-
um milli nótaskipa eru heimilar en ekki á
hlutum af kvóta. Þá má eitt skip aldrei fiska
meira en kvóta tveggja nemur og leita þarf
samþykkis ráðuneytis fyrir aflatilfærslum.
Þá verður skipum, sem ekki stunduðu
síldveiðar í fyrra og hittifyrra, óheimilt að
framselja kvóta sína. Þá er sú nýbreytni nú
við síldveiðar að loðnuveiðiskipin fá ekki
leyfi til síldveiða en þau hafa tekið þátt í
síldveiðunum síðastliðin tvö ár á meðan
loðnuveiðar lágu niðri.
Kaupstefnan íslensk föt:
„Gæðavara, sem stenst
fyllilega samanburð“
■ „Það má segja um fataiðnaðinn eins og
flestan annan iðnað, að sum fyrirtæki standa
mjög vel, en önnur ekki eins vel. Þau
fyrirtæki, sem hafa farið út í sérhæfingu og
látið hanna föt sérstaklega, eru með gæða-
vöru, sem stenst fyllilega samanburð við
hvað sem er. Það sem gerir þessum framleið-
endum erfitt fyrir er smæð markaðarins,“
sagði Þórarinn Gunnarsson framkvæmda-
stjóri kaupstefnunnar íslensk föt, sem var
opnuð á Hótel Sögu á þriðjudagskvöld.
Kaupstefnan íslensk föt er nú haldin í 30.
sinn og er hún eingöngu opin kaupmönnum
og innkaupastjórum. Hún er að jafnaði
haldin tvisvar á ári, vor og haust. Að þessu
sinni taka 10 framleiðendur þátt í henni og
sýna hinar fjölbreytilegustu flíkur. Sem
dæmi má nefna prjónavörur, nærföt,
skófatnað, buxur, sjó- og regnfatnað, vinnu-
fatnað og vetraríþróttaföt. Fyrirtækin, sem
sýna eru Prjónastofan Iðunn, Nærfatagerð-
in Ceres, Iðnaðardeild Sambandsins, Sjó-
klæðagerðin, R. Guðmundsson, Vinnufata-
gerð fslands, Scana, Belgjagerðin/Karna-
bær, Lexa og Max.
Þórarinn sagði, að sum þessara fyrirtækja
hefðu verið að þreifa fyrir sér með útflutning
á framleiðslu sinni, bæði til Danmerkur og
Bandaríkjanna, og hefði það gengið mjög
vel.
Kaupstefnunni íslensk föt lýkur í dag.
Tískusýning verður kl. 14.
anna undanteknum. Þá ætla þeir að herða
hvers kyns innheimtuaðgerðir vegna van-
goldinna lána. Ennfremur verður framvegis
ekki unnt að semja um lengingu lána í
jafnmiklum mæli og áður.
Verst hjá sjávarútvegs-
og landbúnaðarbönkum
„Það verður hver banki að grípa til þeirra
ráðstafana sem hann telur að henti sér, því
þeir eru í mismunandi aðstöðu og gegna
mismunandi hlutverkum, en allir verða þeir
að grípa til aðgerða sem duga“ sagði Jónas
H. Haralz, bankastjóri Landsbankans og
formaður Sambands íslenskra viðskipta-
banka, í samtali við NT í gær.
Jónas sagði að staða bankanna yfirleitt
væri mjög slæm þótt hún væri auðvitað
mismunandi slæm. Þ.á.m. væri staða Lands-
bankans afleit, en „það má kannski segja að
þeir bankar þar sem sjávarútvegur og land-
búnaður vegur þyngst standi tiltölulega
verst.“
Hann bætti því þó við að beinn tölulegur
samanburður á stöðu bankanna væri ekki
einhlítur, heldur miðuðu bankarnir einnig
við hvað væri venjulegt hjá þeim.
Jónas H. Haralz var spurður hvort áfrarn-
haldandi versnandi staða bankanna gæfi
eitthvað til kynna um hvernig til hefði tekist
með vaxtahækkunina í ágúst, en hann taldi
svo ekki vera. „Ég lield að það sé alltof
snemmt að dæma hana núna. Ég held að
áhrifa hennar gæti ekki fyrr en lengri tími er
liðinn" sagði Jónas.
Prent-
aradeilan:
Stefnir í
verkfall
■ Nýr samn-
ingafundur hef-
ur verið boðað-
ur með bóka-
gerðarmönnum
og viðsemjend-
um þeirra á
laugardag.
Fundur deilu-
aðila í gær varð
árangurslaus og
þykir allt benda
til þess að
prentsmiðjur
stöðvist á mið-
nætti aðfara-
nótt mánudags-
Áður en þú byríar að bygsja í vor
skaltn kynna þér
JLbyggingalánin og JL vöruúrvalið
Þaö.sem er mikilvægast fyrir þann sem er að
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar-
hraðinn.
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum
kleift að byggja með fyrsta flokics vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum.
kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf-
eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
un.
J.L. Byggingalánin
kvæmd:
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí-
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex
mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af
Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup-
eru þannig í fram- um. Um leið og búið er að grafa grunninn
geta smiðirnir komið til okkar og fengið
fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst
allt byggingarefnið hjá okkur.
Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
ef þú ert að byggja.
JL
I BYOCINGAVÖRURl
HRINGBRAUT 120
Byggmgavofuf
Go>Meppaoeöo
T irnpurOeilú
Malningarvoru' og verklæri 2B-605
FÞsar og hreiniælislæki 28-430
28 600 Soluslior. 28-693
28-603 Skr.lslOla 28-620
28-604 Haröviöarsala 28-604