NT - 07.09.1984, Qupperneq 14
Föstudagur 7. september 1984 14
Hljóðvarp kl. 21.10
Laglína í
tónlistar-
þætti
■ Hljómskálamúsík er einn
af lífseigari dagskrárliöum
hljóðvarpsins. Guðmundur
Gilsson organisti og starfsmað-
ur tónlistardeildar hefur séð
um þátt þennan frá upphafi og
farið það vel úr hendi.
Verkefnaval Guðmundar er
á þann veg að sú tegund tónlist-
ar sem hann kynnir virðist ekki
eiga greiðan aðgang að neinum
öðrum liðum í tónlistarvali
þeirra sem sjá um svokallaða
tónlistarþætti í hljóðvarpinu.
Þetta er létt músik og fjörleg,
yfirleitt vel leikin og í henni er
laglína sem þungatrommarar
og gítarlemjarar láta lönd og
leið, hafa líklega aldrei heyrt
minnst á melódíu og enn síður
lagt við eyra þegar svoleiðis
ber upp á.
■ Guðmundur Gilsson.
Sakamál til skemmtunar
■ Framhaldssakamál eiga
upp á pallborðið í hljóðvarp-
inu í kvöld. Endurfluttur verð-
ur síðasti þáttur framhalds-
leikritsins Hinn seki eftir
Frances Durbridge og hefst sá
flutningur kl. 21.35. Leikriti
þessu var áður útvarpað árið
1971 og var leikstýrt af Jónasi
Jónassyni.
Að þeim flutningi loknum
munu hlustendur meðtaka
veðurfregnir, fréttir, dagskrá
morgundagsins og orð kvölds-
ins þar til kvöldsagan hefst kl.
22.35, en það er sakamálasag-
an. Að leiðarlokum eftir Ag-
athaChristie í þýðingu Magnús-
ar Rafnssonar, en hann les
söguna.
Hin háborgaralega Agatha
Christie verður líklega seint
talin til kvenrithöfunda í þeirri
merkingu sem lagt er í það
fyrirbæri á síðustu og bestu
réttindabaráttutímum. í verk-
um sínum lætur hún vera að
úthella yfir lesendur ofboðs-
legum vandamálum sem rekja
má til kynferðis og þjóðfélags-
gerðar og samtvinna þau
hugðarefni á listilegan hátt eins
og nútímahöfundar sem kenna
sig sérstaklega við kvenkyn
tíðka nú á dögum og er mikið
innlegg í framsækna baráttu.
Sögur skáldkonunnar eru
enn lesnar af engu minna kappi
en þegar þær fóru að koma út
á öndverðri öldinni og öfugt
við flestar aðrar sakamála-
sögur eru sömu bækurnar iðu-
lega lesnar aftur og aftur af
áköfustu aðdáendum
höfundarins og sögupersón-
anna sem hann skapar. Fram-
leiddar eru dýrar og íburðar-
miklar kvikmyndir eftir sögum
Christie og áhorfendur láta
ekki á sér standa þegar slíkt
' stendur til boða í kvikmynda-
húsum heimsins.
Þótt talsvert hafi verið lesið
af sögum skáldkonunnar í út-
varp hér á landi eru fjöldi
sagna hennar ólesnar og
mundu endast eitthvað fram á
næstu öld þótt framhaldssögur
hennar séu lesnar annað veifið.
■ Agatha Christie spcglar sig við skrifborð sitt.
■ í kvöld kl. 19.40 lýsir
Ragnar Örn Pétursson íeik
Breiðabliks og KA frá Kópa-
vogsvelli. Þessi tvö félög
standa nú í mikilli baráttu fyrir
tilveru sinni í 1. deildinni í
knattspyrnu og þurfa bæði lið-
in tilfinnanlega á sigri að halda
í kvöld. KA er nú með 16 stig
og Breiðablik er með 17 stig.
Hvorugt þessara liða er þekkt
fyrir að gefa sinn hlut eftir og
má því búast við mikilli baráttu
í leiknum og aðRagnar Örn
hafi nóg að gera við að lýsa
leiknum.
■ Föstudagsmyndin nefnist
Eina von hvítu mannanna.
Þetta er bandarísk framleiðsla
og var myndin gerð árið 1970.
Hún fjallar um Jack Johnson,
sem fyrstur blökkumanna varð
heimsmeistari í hnefaleikum í
þungavigt og vann hann titilinn
árið 1908.
Johnson gerði betur en að
rota mótstöðumanninn hvíta
því hann krækti sér einnig í
hvíta konu, sem þótti mikil
óhæfa í guðs eigin landi á
dögum hnefaleikakappans.
Urðu hann og fylgikona hans
fyrir aðkasti og alls kyns upp-
ákomum, en nánar um það í
bíóinu, sem hefst kl. 22.10.
Með hlutverk Jacks John-
sons fer James Earl Jones, en
fylgikonu hans leikur Jane Al-
exander.
Lýst f rá
botn-
baráttunni
Ragnar Örn Pétursson.
Sjónvarp kl. 22.10:
Svartur skákar hvítum
Hljóðvarp kl. 22.35
Útvarp kl. 19.40:
Föstudagur
7. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. í
bítið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt
mál. Endurt. þáttur Eiríks Rögn-
valdssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Kjartan J. Jóhanns-
son talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Ævintýri hagamúsarinnar" eftir
Kjartan Stefánsson Heiðdis
Norðfjörð les.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um áttinn (RÚVAK).
11.15 Tónleikar
11.35 „Karen", smásaga eftir Alex-
ander Kielland Hannes Hafstein
þýddi. Helga Þ. Stephensen les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Daglegt líf í Grænlandi"
eftir Hans Lynge Gisli Kristjáns-
son þýddi. Stína Gísladóttir les (6).
14.30 Miðdegistónleikar Arturo
Benedetti Michelangeli leikur Pí-
anósónötu nr. 5 í C-dúr eftir Bald-
assare Galuppi.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Ei-
ríksdóttir kynnir nýútkomnar
hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Fílharmón-
iusveitin i New York leikur Sinfón-
íu í D-dúr eftir Sergej Prokofjeff;
Leonard Bernstein stj. / Michael
Ponti og Sinfóníuhljómsveitin í
Hamborg leika Píanókonsert í fís-
moll op. 20. eftir Alexander
Skrjabín; Hans Drewans stj.
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.40 íslandsmótið í knattspyrnu,
1. deild: Breiðablik-K.A. Ragnar
Örn Pétursson lýsir síðari hálfleik
frá Kópavogsvelli.
20.20 Við stokkinn Stjórnandi: Sól-
veig Pálsdóttir.
20.30 Tónleikar
20.40 Kvöldvaka a. Silfurþræðir
Þorsteinn Matthiasson heldur
áfram að segja frá ævi og störfum
Páls Hallbjarnarsonar fyrrum
kaupmanns í Reykjavík, - fimmti
þáttur. b. Einsöngvarakvartett-
inn syngur.
21.10 Hljómskálamúsík Guðmund-
ur Gilsson kynnir.
21.35 Framhaldsleikrit: „Gilberts-
málið“ eftir Frances Durbridge
Endurtekinn VIII. og síðasti
þáttur: Hinn seki“.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Kvöldsagan: „Að leiðarlok-
um“ eftir Agöthu Christie Magn-
ús Rafnsson les þýðingu sina (15).
23.00 Traðir Umsjón Gufinlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
Föstudagur
7. september
10.00-12.00 Morgunþáttur Fjörug
danstónlist. Viðtal. Gullaldarlög,
ný lög og vinsældarlisti. Stjórnend-
ur: Jón ðlafsson og Kristján Sigur-
jónsson.
14.00-16.00 Pósthólfið Lesin bréf
frá hlustendum og spiluð óskalög
þeirra ásamt annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur. Framsækin
rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund-
ur Jónsson og Árni Daníel Júlíus-
son.
17.00-18.00 í föstudagsskapi Þægi-
legur músíkþáttur í lok vikunnar.
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
23.15-03.00 Næturvaktin Stjórnend-
ur Ólafur Þórðarson og Vignir
Sveinsson.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 uæm allt
land).
Föstudagur
7. september
19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu
dögum 18. Þýskur brúðumynda-
flokkur. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir. Sögumaður Tinna Gunn-
laugsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Á döfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
20.45 Grínmyndasafnið Chaplin á
flækingi Skopmyndasyrpa frá
árum þöglu myndanna.
21.00 Handan mánans Bresk heim-
ildarmynd gerð í tilefni af því að
15 ár eru liðin síðan menn stigu
fæti á tunglið. Þessi merki áfangi
er rifjaður upp en siðan er fjallað
um þróun geimvísinda og framtíð
þeirra næsta áratuginn. Þýðandi
og þulur Bogi Arnar Finnbogason.
22.10 Eina von hvítu mannanna
(The Great White Hope) Banda-
risk bíómynd frá 1970. Leikstjóri
Martin Ritt. Aðalhlutverk: James
Earl Jones, Jane Alexander og
Lou Gilbert . Myndin er byggð á
sögu Jacks Johnsons sem fyrstur
blökkumanna varð heimsmeistari
í hnefaleikum í þungavigt árið
1908. Þýðandi Björn Baldursson.
23.50 Fréttir í dagskrárlok