NT - 07.09.1984, Page 27
Formlega hófst kosningabaráttan
í Bandaríkjunum á mánudaginn
Engin vopn virðast bíta á Reagan
að kjósa Reagan en 33%
Mondale. Staða Mondales hef-
ur aldrei verið lakari.
Þessi könnun virtist leiða í
Ijós, að staða Geraldine Ferr-
aro varaforsetaefnis væri mun
betri en staða Mondales. Af
því virðist mega draga þá
ályktun, að hún hafi a.m.k. í
bili komist yfir þá örðugleika,
sem skattamál þeirra hjóna
ollu henni um skeið, og jafnvel
grætt á snjallri frammistöðu á
blaðamannfundum í sambandi
við skattamálin.
ÞAU Mondale og Ferraro
hófu kosningabaráttuna á
verkalýðsdaginn með göngu á
Fifth Avenue í New York
var Mondale að koma lögum
um tryggingar í gegnum
þingið. Vinnubrögð þeirra eru
einnig ólík nú. Meðan Reagan
ræðir um að varpa sprengjum
á Sovétríkin, heitir Mondale
því að vinna að takmörkun
kjarnavopna og geimvopna, og
til frekari staðfestingar því og
til að auðvelda samninga við
Rússa, lofar hann að byrja á
því að frysta tilraunir og fram-
leiðslu á þessum vopnum með-
an viðræður fara fram, ef Rúss-
ar gera slíkt hið sama.
Mondale deildi hart á Reag-
an vegna tekjuhallans hjá rík-
inu. Hann sagði, að hvor
þeirra sem hlyti kosningu, yrði
að hækka skatta til að draga úr
hallanum. Munurinn væri hins
vegar sá, að hann myndi ekki
láta alþýðumanninn borga
meira en milljónamæringinn,
eins og Reagan myndi gera.
Þessi ummæli hans hlutu góðar
undirtektir.
AÐ SJÁLFSÖGÐU sat Re-
agan ekki auðum höndum á
verkalýðsdaginn. Hann mætti
á tveimur kosningafundum í
Kaliforníu og var um 500 km
vegalengd á milli þeirra. Reag-
an virtist í léttu skapi og vera
sigurviss. Markmið okkar,
sagði hann, er að gera Banda-
ríkin voldug að nýju. Við
repúblikanar göngum bjart-
sýnir til leiks með öruggri trú á
getu okkar og framtíðina.
Demókratar eru hins vegar
fullir svartsýni og finna Banda-
ríkjunum flest til foráttu.
Svartsýni þeirra má ekki sigra,
því að þá fer illa.
Þessi málflutningur Reag-
ans var mjög svipaður þeim,
sem einkenndi landsfund
repúblikana í Dallas. Bersýni-
lega ætla repúblikanar ekki
að svara gagnrýninni á stjórn
Reagans beint. í staðinn ætla
þeir að tíunda sem mest afrek
Reagans og stimpla gagnrýni
demókrata sem svartsýni og
óbeinar og óverðskuldaðar ár-
ásir á Bandaríkin og banda-
rísku þjóðina.
Enn er ekki fullsamið um,
hvort þeir Reagan og Mondale
heyja aðeins eitt sjónvarpsein-
vígi eða fleiri. Mondale vill
hafa þau sex og láta hvert
þeirra snúast um ákveðinn
málaflokk. Repúblikanar hafa
enn ekki fallist á nema eitt, en
hafa þó ekki útilokað, að þau
geti orðið fleiri.
Fá er nokkurn veginn ákveð-
ið að þau Bush varaforseti og
Ferraro heyi sjónvarpseinvígi.
Vafalaust myndi það styrkja
Ferraro, ef hún komi vel út úr
þeirri raun.
Flestir spádómar virðast á
þá leið, að ekkert nema krafta-
verk geti tryggt Mondale sigur,
eins og málin standa nú. Það
þurfi meira til en vel skipu-
lagða sókn af hans hendi og
flokksbræðra hans. Það er
næstum eins og engin vopn bíti
á Reagan. Hann getur látið sér
fara um munn mestu fjarstæð-
ur, án þess að það veiki stöðu
hans.
Nýlega var náinn ráðunaut-
ur hans í öryggismálum,
Thomas C. Reed, uppvís að
fjársvikum. Það hefði vafa-
laust veikt Mondale, ef slíkt
hefði komið fyrir náinn sam-
verkamann hans, en það bítur
ekki á Reagan.
Útlönd
Föstudagur 7. september 1984 27
■ SAMKVÆMT venju hófst
kosningabaráttan í Bandaríkj-
unum formlega síðastliðinn
mánudag, en þá var hinn svo-
nefndi verkalýðsdagur (Labor
Day), sem er eins konar hátíð-
isdagur í Bandaríkjunum. Sá
siður hefur haldist lengi, að
forsetaefnin hefji þá formlega
kosningabaráttuna og hún
standi látlaust síðan fram til
kosningadagsins, eða frá fyrsta
mánudegi í september til fyrsta
þriðjudags í nóvember.
Raunar má segja að kosn-
ingabaráttan í sambandi við
forsetakosningarnar hefjist
miklu fyrr og byrji með fyrstu
prófkjörunum, sem fara fram
í febrúar. Eftir að landsfundir
stóru flokkanna hafa valið
forsetaefnin verður hins vegar
nokkurt hlé og þau hvíla sig
um stund fyrir aðalhríðina,
sem hefst á degi verkalýðsins.
Ef dæma ætti eftir skoðana-
könnunum, þarf Mondale að
halda vel á spöðunum þær níu
vikur, sem eftir eru til kosning-
anna. Reagan hefur haft mikla
yfirburði í þeim öllum, en þó
mesta samkvæmt könnun Los
Angeles Times, sem birt var
um helgina. Þá sögðust 60%
þeirra, sem spúrðir voru, ætla
snemma morguns eða nokkru
áður en hin venjulega aðalganga
þar hófst, og var því heldur
fátt í göngu þeirra og áhorf-
endur á gangstéttum ekki
margir. Þau þurftu hins vegar
að hafa hraðann á, því að
ætlun þeirra var að mæta einn-
ig þennan sama dag á fundum
á tveimur stöðum öðrum.
Annar staðurinn var Merrill
í Wisconsin, sem er miðstöð
sveitaverslunar, og var þar
margt manna til að fagna þeim.
Þaðan var svo haldið til
Long Beach í Kaliforníu, þar
sem keppinautar Mondales í
prófkjörunum, Gary Hart og
Alan Cranston, tóku á móti
þeim, og þau hlutu mjög góðar
móttökur.
Þriðji keppinautur Mon-
dales, Jesse Jackson, hóf sama
dag baráttu til stuðnings
Mondale á fundi í New York.
í ræðum sínum héldu þau
Mondale og Ferraro uppi
hörðum árásum á Reagan.
Ferraro gerði samanburð á
ferli þeirra Reagans og
Mondales, sem fékk góðar
undirtektir. Meðan Reagan
var að leika í kvikmyndum og
annaðist sölumennsku fyrir
General Electric Corporation,
■ Ferraro og Mondale hófu kosningabaráttuna með göngu á Fifth Avenue, ásamt Cuomo 8 Reagan kominn í kosninga
ríkisstjóra fötin
New York-Reuter
■ Prédikarinn frægi, Billy
Graham, mun leggja upp í
fyrstu krossferð sína um Sovét-
ríkin á sunnudaginn, að sögn
talsmanns Grahams.
Þar mun hann prédika í kirkj-
um betrumskírenda og grísk-
kaþólskra í fjórum borgum,
Moskvu, Leníngrad, Tallin í
Eistlandi og í Novosibirsk. Ekki
munu ráðgerðar neinar fjölda-
samkomur með Graham á borð
við þá sem hann hélt með mill-
jón áheyrendum á flugvelli í
Suður-Kóreu um árið. Er talið
að sovésk stjórnvöld hafi ekki
getað fellt sig við slíkan mann-
söfnuð.
Það er ráð evangelískra bapt-
ista og rússneskra rétttrúnaðar-
kirkja sem bjóða Graham til
Sovétríkjanna í þetta sinn, en
þetta er þriðja heimsókn hans
þangað, en í hvorugt skiptið
hefur hann prédikað. Ekki er
vitað hvort Graham mun eiga
fundi með sovéskum ráða-
mönnum.
■ Þessi sjö alda gamla kirkja brann til kaldra kola í Mafra á
mánudaginn en Mafra er í um 40 km fjarlægð frá Lissabon.
Kirkjan var byggð árið 1255 og Portúgalir höfðu lýst hana
þjóðardýrgrip. Nú standa aðeins veggirnir eftir.
Símamynd-POLFOTO
Rússar byggja
sólarrafstöð til
almenningsnota
■ Sovétmenn eru nú að
byggja fyrstu sólarrafstöð sína
sem mun framleiða rafmagn
til almenningsnota. Stöðinni
hefur verið valinn staður á
Azov-sjávarströndinni í Krím.
Fullgerð verður afkastageta
þessarar rafstöðvar um 5mw
sem er álíka mikið og afkasta
geta fyrstu kjarnorkuvers
Sovétmanna í Obninsk. Azov-
ströndin var valin til byggingar
sólarrafstöðvarinnar þar sem
hún er ákaflega sólrík. Þar
mælast árlega um 2.300 sól-
skinsstundir, þar af 1.900
stundir þar sem ekki sést ský á
himni.
í stöðinni verða 1.600 sól-
speglar sem varpa geislum sól-
arinnar að turni þar sem vatn
er hitað og breytt í gufu.
Speglarnir snúast eftir því sem
sólin hækkar á lofti þannig að
turninn er ávallt í brennidepli.
Gufuafl er notað til að fram-
leiða rafmagn í gufuhverflum
en gufuþrýstingurinn getur
orðið allt að 40 sinnum meiri
en meðalloftþrýstingur (40 at-
mospher).
Þórarínn Þórarinsson,
rítstjórí, skrífar
Billy Graham til
Sovétríkjanna