NT - 07.09.1984, Qupperneq 28
Föstudagur 7. september 1984 28
Portúgal:
Mengunarvandamál
á baðströndunum
- ferðamannaiðnaðurinn í hættu?
■ Eins og komið hefur fram í fréttum hefur fjöldi
sænskra ferðamanna átt við ýmsa magakvilla að stríða,
suma ógóða, eftir dvöl sína í sumar á portúgölskum
baðströndum og nú hefur landlæknir hér á íslandi varað
fólk, einkum það heilsuveila, gamalmenni og börn, við því
að leggja leið sína á hinar frægu baðstrendur í Portúgal.
Portúgalar eru sér vel meðvit- aði Fransisco Sousa Tavares,
aðir um hvílíkt vandamál meng- ráðherra lífsgæða og velferðar í
un a sólríkum baðströndum
landsins er, og telja þeir að hinn
blómstrandi ferðamannaiðnað-
ur í Portúgal sé jafnvel í stór-
hættu. Ferðamannaiðnaðurinn
er nú ein drýgsta tekjulind
Portúgala, og voru tekjurnar af
honum um 800 milljónir dala á
síðasta ári og búist er við að þær
muni hækka um 11 prósent af
þeim 10 milljón túristum, sem
ráðgert er að komi til Portúgal í
ár.
Fyrir nokkrum dögum varp-
Portúgal, mikilli sprengju á
portúgalska ferðamannaiðnað-
inn, er hann sagði í útvarpsvið-
tali að strendurnar vinsælu í
grennd við Lissabon (Costa do
Sol) væru hættulega mengaðar
og þeim ætti að loka. Auk þess
bætti hann við að einnig væru
hættuleg merki mengunar í Al-
garve í suðri, þangað sem
streyma ferðamenn frá Bret-
landi, Þýskalandi, Norðurlönd-
unum - og íslandi. Hann sagði
að þegar hefði orðið vart við
Mestu heræfingar í
sögu Suður-Afríku
magasjúkdóma á ströndunum í
Algarve, en portúgölsk heil-
brigðisyfirvöld vöruðu fólk ný-
lega við því að leggja sér til
munns, sjávarfæðu og ostrur
sem koma úr sjónum á Faro-
svæðinu í Algarve.
Forsvarsmenn ferðamanna-
iðnaðarins og baðstrandanna
hafa reynt að lægja gagnrýnis-
öldurnar, en hafa þó ekki getað
neitað ásökunum um vaxándi
mengun og hafa einnig hvatt
stjórnvöld og sveitarfélög til að
beita sér fyrir meiri háttar hrein-
gerningu á ströndum landsins.
En það er dýrt fyrirtæki -
Sousa Tavares mun hafa látið
hafa eftir sér að hreinsunin á
vinsælustu ströndunum í grennd
við Lissabon mundi ekki kosta
minna en 60 milljón dali, og þá
er ekki minnst á strendurnar í
Algarve. En Portúgalir eiga í
gríðarlegum efnahagsörðug-
leikum og mega síst við því að
missa þá spóna úr aski sínum
sem ferðamenn eru.
(Byggt á Reuter og öðrum
heimildum)
Lífshættulegt sjúkrahús
■ Stanley Royd geðsjúkrahúsið í WakeGel, Englandi. Eins og NT skýrði frá í gær hafa 18
maiins látist á undanförnum dögum úr matareitrun í þessu sjúkrahúsi. Rannsókn hefur leitt í
Ijós að 387 af 900 sjúklingum geðsjúkrahússins veiktust vegna þess að salmenella-bakteríur
komust í mat þeirra. Enn er samt ekki Ijóst hvernig þessar bakteríur komust í matinn.
SímamjTid-POLOTO
Morðið á Aquino:
Stjórnin skipulagði,
herinn f ramkvæmdi
Manila-Reutcr
■ Raúl Gonzales, forseti Hl-
ippínskra lögfræðingasamtaka,
hefur sagt að einstaklingar á
Johannesburg, Masire, Sharpeville-Reuter
■ Mestu heræfíngar í sögu
Suður-Afríku hefjast í dag undir
nafninu „Þrumuvagninn“.
Mörg þúsund hermenn munu
taka þátt í æfíngunum sem
verða haldnar norðarlega í
Cape-fylki.
Suður-Afríkumenn birta
sjálfír engar tölur um herafla
sinn en alþjóðlegar stofnanir
áætla að þar séu um 82.400
atvinnuhermenn og 404.500
manns sem gegni tímabundinni
herþjónustu.
Mörg nágrannaríki Suður-
Afríku hafaáhyggjurafmiklum
hernaðarmætti Suður-Afríku-
manna og ásaka þá fyrir hótanir
um að beita herafla sínum gegn
ísrael:
Samsteypu-
stjórn
í sjónmáli
Tel Aviv-Reuter
■ Shimon Peres og Yitz-
hak Shamir, leiðtogar
tveggja stærstu flokkanna
í Israel, eru nú loksins
sammála um að þeir geti
stofnað samsteypustjórn
eftir að hafa rætt saman í
fjórar vikur.
Þeir ætla að hittast aftur
á sunnudaginn til að ganga
frá endanlegum forms-
atriðum eins og skiptingu
nokkurra ráðuneyta. Nú-
verandi forseti, Shamir
sem jafnframt er formaður
Likud-bandalagsins mun
hafa fallist á að Peres,
formaður Verkalýðsflokks-
ins, verði fyrsti for-
sætisráðherra í stjórninni
en Likud-bandalagið fái
forsætisráðherraembættið
síðar. Flest mikilvæg ráðu-
neyti hafa þegar verið
ákveðin eins og varnarmála-
ráðuneytið, utanríkis-
ráðuneytið og fjármála-
ráðuneytið en flokkarnir
hafa enn ekki gengið frá
þeim ráðuneytum sem
ekki eru talin skipta eins
miklu máli.
þeim. Quett Masire, forseti
Botswana kvartaði yfir því í
viðtali við Reuter í gær að stjórn
Suður-Afríku væri að reyna að
þvinga Botswana stjórn til að
undirrita vináttusamning sem
feli í sér um að hvorugur aðilinn
ráðist á landsvæði hins. Masire
sagði enga ástæðu til að undir-
rita slíkan samning þar sem
Botswana og Suður-Afríka eigi
ekki í neinum stírðsátökum.
Annað nágrannaríki Suður-
Afríku, Lesotho, hefur einnig
kvartað yfir þrýstingi frá suður-
afrískum stjórnvöldum.
En mikill hernaðarmáttur
hvítu minnihlutastjórnarinnar í
Suður-Afríku dugar ekki til að
tryggja henni frið. Kynþátta-
óeirðir undanfarinna daga sýna
óánægju svarta meirihlutans
sem krefst aukinna réttinda.
Seinast í gær neyddust nokkrir
ráðherrar í stjórn Suður-Afríku
til að hörfa undan mannfjölda í
Sharpeville, þar sem mestu
óeirðirnar urðu. Að minnsta
kosti 31 maður hefur látið lífið
í þessum óeirðum.
Arne Treholt:
„Eg fæ uppreisn“
■ „Ég fæ uppreisn" kallaði
Arne Treholt á leið sinni frá
sakadómaranum síðastliðinn
mánudag þegar gæsluvarð-
haldið yfir honum var fram-
lengt um átta vikur. Það er
margt sem bendir til þess að
þetta séu orð að sönnu eftir
því sem fram kemur í dag-
blöðum hér í Noregi í dag.
Arbetterblaðið telur sig
hafa áreiðanlegar heimildir
fyrir því að eftir sjö mánaða
rannsóknir og yfirheyrslur
telji rannsóknarlögreglan
sannað að Treholt hafi enga
möguleika haft á að komast í
skjöl hjá utanríkisráðuneyt-
inu sem hefðu skaðað öryggi
Noregs ef þau kæmust í
hendur Sovétmanna. Það
þykir einnig sannað að Tre-
holt hafi ekki starfað í þágu
Sovétríkjanna með áróðri og
undirróðurstarfsemi.
Treholt verður heldurekki
kærður fyrir njósnir fyrir ír-
aka þar sem engar haldbærar
sannanir eru fyrir því að
hann hafi njósnað fyrir þá.
Sem stendur virðist einna
helst sem hægt verði að kæra
Arne Treholt fyrir misbeit-
ingu á stöðu sinni til að verða
sér úti um upplýsingar sem
hann hafði ekki leyfilegan
Arnþrúður
Karlsdóttir
fréttaritari
NT í Noregi
aðgang að og fyrir að taka á
móti peningum með ólög-
legum hætti.
Þetta stærsta njósnamál
Norðmanna er þannig að fá
á sig nýjan blæ eftir að stað-
reyndir málsins verða betur
kunnar. Sakargiftirnar virð-
ast ekki eins alvarlegar og
upphaflega var gefið í skyn.
æðstu stöðum í Filipseyjastjórn
hefðu fyrirskipað morðið á
stjórnarandstöðuleiðtoganum
Benigno Aquino í fyrra og að
herínn hefði séð um fram-
kvæmdina.
Gonzales, sem er einn fimm
manna í nefnd sem rannsakar
morðið á Aquino, sagði að einn
eða tveir af fylgdarmönnum
Aquinos er hann lenti í Manila
í ágústmánuði í fyrra hefðu séð
um framkvæmd morðsins. Þá
var Aquino að snúa heim úr
þriggja ára útlegð í Bandaríkj-
unum, en var myrtur á leiðinni
frá flugvellinum.
Herinn hefur haldið því fram
að Aquino hafi verið myrtur af
Rolando Galman, þekktum
kommúnistaskæruliða, sem síð-
an hafi verið drepinn af her-
mönnum sem áttu að gæta
Aquinos.
„Það er niðurstaða okkar að
samsæri hafi verið um það á
æðstu stöðum í stjórninni að
myrða Aquino þingmann, og að
herinn hafi séð um framkvæmd-
ina,“ segir í greinargerð sem
Gonzales afhenti blaða-
mönnum.
Búist er við því að fimm
manna nefndin birti niðurstöður
sínar síðar í þessum mánuði.
_ Hjm t * _ ^ i’a . : ' f | ÍKafbátur Itil SÁlll
nt - = 1 \ * i'wmimi iiitm- ^ ‘ mlP t ^ i » iv
Reagan forseti þakkar
guðlegum máttarvöldum
■ Langi einhvern til að útvega sér kafbát þá gefst honum tækifæri til þess í næstu viku. Þá ætlar
danski sjóherinn að selja 25 ára gamlan kafbát á uppboði í Kaupmannahöfn. Kafbáturinn er í þokkalegu
ásigkomulagi enda yngrí en kafbáturinn sem Rússar sigldu í strand í Svíþjóð hér um árið. Mynd þessi
var tekin af bátnum þar sem hann lá bundinn við bryggju í Kaupmannahöfn fyrr í þessri viku.
Símamynd-POLFOTO
■ Ljóst er að trúmál ætla að
verða eitt heitasta deiluefni
forsetakosninganna í Banda-
ríkjunum og fyrr í þessari viku
þakkaði Reagan forseti guð-
legum máttarvöldum forsjá og
handieiðslu á embættisferli
sínum.
Þetta mun hafa komið fram á
fundi sem Reagan, sem nú
biðlar mjög til hinna margklofnu
kristnu trúfélaga í Bandaríkjun-
um, hélt með fyrirmönnum
Kirkju Krists hinna síðari daga
heilögu - eða mormóna - í
Utha-fyiki.
Reagan sagði að ekki væri
hægt að gegna svo ábyrgðar-
miklustarfi sem forsetaembætti
Bandaríkjanna án guðlegrar
forsjár. Talsmaður Hvíta
hússins, Larry Speakes, svaraði
því síðar að þarna ætti forsetinn
einkum við banatilræðið sem
honum var sýnt í marsmánuði
1981, en þá þótti með ólíkindum
að Reagan skyldi ekki hafa
særst alvarlegar en raun varð á.
Andstæðingar Reagans hafa
mjög ásakað hann fyrir að mis-
nota trúarbrögðin í eiginhags-
munaskyni, og rugla þannig
stjórnarskrárbundnum aðskiln-
aði ntilli ríkis og kirkju í Banda-
ríkjunum.