NT - 07.09.1984, Qupperneq 31
Föstudagur 7. september 1984 31
Gunnar Einarsson byrjar vel í norska handboltanum:
íslenskt „Show“
í Fredriksborg
Frá Arnþrúði Karlsdóttur
fréttamanni NT í Noregi:
■ Þetta var mikið léttara en
ég hafði búist við og ég er
spenntur að sjá hvert fram-
haldið verður sagði hinn sterki
handknattleiksmaður Gunnar
Einarsson í gær eftir fyrsta leik
sinn með norska fyrstudeildar-
liðinu Fredriksborg-Sky í
fyrrakvöld. Norska fyrsta
deildin í handknattleik er nú
hafin og hefur Gunnar svo
sannarlega vakið athygli.
í fyrrakvöld sigraði lið
Gunnars, Fredriksborg-Sky
Stavanger 24-22 eftir hörku-
leik. Gunnar gjörsamlega stal
senunni, og tók bæði með-og
mótspilara í kennslustund.
Gunnar skoraði samtals 8
mörk, og sýndi mjög góð
tilþrif, skoraði flest mörkin
með gegnumbrotum á miðj-
unni. Gunnar var síðan tekinn
úr umferð í byrjun seinni hálf-
leiks, og var honum þá skipt
útaf það sem eftir var leiksins.
Norska Dagblaðið skrifar
um leikinn, að Gunnar hafi
haft slíka yfirburði, að hann
hefði getað gert hvað sem
hann vildi, enda hafi hann
verið með fjölbreytta efnis-
skrá fyrir alla viðstadda, og
áhorfendur hafi skemmt sér
frábærlega. í sama blaði er
farið mörgum lofsamlegum
orðum um hæfni Gunnars og
hann kallaður atvinnumaður-
inn frá íslandi „hinn eini sanni
lykilmaður".
■ Gunnar Einarsson - sýndi
Norðmönnum handbolta.
■ Hilrnar Sighvatsson, besti maður vallarins í leik Fram og Vals,
sýnir hér leikræna tilburði ásamt Val Valssyni í baráttu við
Guðmund Baldursson markvörð Fram.
Hörkuspennandi
barátta í rigningu
2. deild, Njarðvík-FH:
Grimmdarharka
- rautt spjald
■ Rigningin hefur aldeiiis elt
leiki Fram og Vals í 1. deildinni
í knattspyrnu. í fyrri leik lið-
anna á Valsvelli í júní var
nánast skýfall, og einnig rigndi
í leik liðanna í Laugarda! í
gærkvöld. Jafntefli varð, 1-1. í
fjörugum og spennandi leik
sem einkenndist af þörf beggja
til að ná í þrjú stig, og erfiðum
aðstæðum.
Valsmenn léku undan vindi í
fyrri hálfleik, og voru þá tals-
vert aðgangsharðari í sóknum
sínum en Framarar. Strax á 5.
mínútu skaut Hilmar Sighvats-
son þrumuskoti af 20 metra
færi sem Guðmundur Baldurs-
son varði glæsilega. Skot Hilm-
ars kom eftir glæsisendingu
Guðmundar Þorbjörnssonar,
sem sendi fleiri slíkar í
Einkunnagjöf NT:
FRAM:
Guðmundur Baldursson . 2
Þorstelnn Þorstelnsson .. 4
Trausti Haraldsson....5
Hafþór Sveinjónsson .... 5
Þorsteinn Vilhjálmsson .. 3
Sverrir Einarsson.....2
Kristinn Jónsson ......3
Viðar Þorkelsson ......5
Ómar Jóhannsson .......4
Guðmundur Steinsson... 3
Guðmundur Torfason ... 3
Skiptingar: Örn Valdimars-
son fyrir Ómar á 69. mín og
Steinn Guðjónsson fyrir Haf-
þórá 75. mín.
VALUR:
Stefán Arnarson........2
Grímur Sæmundsen......4
Þorgrímur Þráinsson .... 2
Guðmundur Kjartansson . 3
Guðni Bergsson.........5
Ingvar Guðmundsson ... 4
Guðmundur Þorbjörns. .. 2
Bergþór Magnússon .... 4
Valur Valsson..........3
Hilmar Sighvatsson ...1
Skiptingar: Engar, Grímur
Sæmundsen rekinn út af á
60. mín.
leiknum. En fyrsta mark leiks-
ins, sem var Valsara á 18.
mínútu, kom ekki eftir neina
glæsisendingu. Valsmenn voru,
að því er virtist í hættulítilli
sókn, þegar laus skalli lenti í
hendi Þorsteins Vilhjálmssonar
sem stóð utarlega í vítateign-
um. Þóroddur Hjaltalín dæmdi
umsvifalaust víti, sem Hilmar
Sighvatsson skoraði, 1-0.
Framarar létu þó ekki við
svo búið standa, og jöfnuðu
þremur mínútum síðar. Guð-
mundur Torfason og lék inn í
vítateig Vals yst í horninu, og
virtist þar ekki líklegur til stór-
afreka, gegn tveimur varnar-
mönnum. En Guðni Bergsson
Valsmaður var of bráður á sér,
renndi sér aftan í Guðmund,
felldi hann og Þóroddur dæmdi
strax annað víti. Úr því jafnaði
Guðmundur Steinsson örugg-
lega 1-1.
Það sem eftir lifði hálfleiks
sóttu Valsmenn, en tókst ekki
að skora þrátt fyrir mjög góð
færi. Valur skaut framhjá úr
upplögðu færi eftir góðan
undirbúning Bergþórs og Guð-
mundar Þorbjörns á 24. mín.
Hilmar skallaði rétt framhjá á
34. mínútu, og Guðmundur
skallaði rétt framhjá á 37. mín-
HNOT*
SKURN
■ Skemmtilegur og vel leik-
inn leikur þrátt fyrir erfiðar
aðstæður, rigningu og tals-
verðan vind, og ágæt af-
þreying fyrir að líkindum
kalda áhorfendur. Valsmenn
sterkari í báðum hálfleikjum,
en lið sem nýtir ekki dauða-
færi á ekki skilið meira en
jafntefli. Mark Vais: Hilmar
Sighvatsson viti á 18. min,
mark Fram: Guðmundur
Steinsson víti á 21. mín.
Áhorfendur um 400.
útu. Öll þessi færi hefðu getað
gefið mörk, en gerðu ekki.
t sfðari hálfleik jókst harkan.
Hafþór braut mjög illa á Grími
Sæmundsen á 60. mínútu, og
Grímur lét skapið hlaupa með
sig í gönur og danglaði í
Hafþór. Þóroddur rak Grím
útaf og gaf Hafþóri gula
spjaldið. Þar hefði hann mátt
sýna Hafþóri einnig rautt, brot-
ið á Grími nægði eitt til þess,
en að auki hefði Hafþór átt að
fá gula spjaldið mun fyrr. Synd
að svo góður knattspyrnumað-
ur sem Hafþór skuli leika svo
gróft sem hann gerir.
En Valsmenn þjöppuðu sér
saman og sóttu áfram. Hilmar
Sighvatsson fór á kostum, hans
langbesti leikur í langan tíma,
byggði upp sóknir og lauk við
þær sjálfur, en ekki gekk. Það
gekk ekki Frömurum heldur,
sem áttu skyndisóknir. Að auki
áttif báðir markverðirnir snilld-
arleik, svo og Sverrir Einarsson
miðvörður Fram. Dómgæsla
Þórodds Hjaltalín var upp og
niður. Hann var ekki hræddur
við að dæma víti, og sleppti
fáum brotum, var smámuna-
samur á köflum. Svo missti
hann stærri brot, þar sem gul
spjöld hefðu komið til greina.
Loks týndi hann hagnaðarregl-
unni í lokin.
Frá Eiríki Hermannssyni Iréttamanni
N1 á Suðurnesjum:
■ FH-ingar gerðu endan-
lega út um allar vonir
Njarðvíkinga um sæti í 1.
deild að ári í Njarðvík í
gærkvöldi. FH sigraði í
viðureign liðanna í 2. deild-
inni í knattspyrnu 3-2 í
miklum hörkuleik. Þegar
yfir lauk höfðu tveir leik-
menn Njarðvíkinga verið
fluttir á sjúkrahús og einum
verið vikið af leikvelli.
Skúli Rósantsson fékk
slæmt spark fyrir neðan
hné á 71. mínútu og verður
frá keppni um sinn. Jóni
Halldórssyni var vikið af
leikvelli fyrir leikaratakta
Jóns Erlings Ragnarsson-
ar, og á 81. mínútu kom
Jón Erling aftur við sögu er
hann gaf markveðri Njarð-
víkinga Erni Bjarnasyni
slíkt högg í andlitið að
hann var borinn af velli
meðvitundarlaus, en komst
þó fljótt til meðvitundar að
nýju. Jón Erling fékk
hvorki gult né rautt spjald
fyrir framlag sitt til „knatt-
spyrnunnar," hann hlýtur
að kalla það guðdómlegt
kraftaverk, en við dauðleg-
ir menn köllum það
hneyksli.
Annars var leikurinn
ekki eftirminnilegur að
öðru leyti. FH tók forystu
á tuttugustu sekúndu leiks-
ins með marki Karls
Hjálmarssonar, þegar Örn
markvörður missti tökin á
knettinum á afar klaufaleg-
an hátt. Njarðvíkingar létu
það lítið á sig fá og jöfnuðu
á 15. mínútu með marki
Kristins Guðbjartssonar og
þannig var staðan í leik-
hléi.
Á 52. mínútu tóku
Njarðvíkingar svo forystu
með góðu skallamarki
Hauks Jóhannssonar, og
skömmu síðar gat Haukur
gert út um leikinn, en fast
skot hans small í stöng. Og
nú færðist harkan verulega
í aukana. Dómarinn missti
öll tök á leik sem reyndar
var aldrei auðdæmdur
vegna vallarskilyrða og
rigningar. Með þá Skúla og
Jón úr leik misstu Njarð-
víkingar tökin á leiknum
og FH-ingar pressuðu
allstíft. Á 84. mínútu jafn-
aði Ingi Björn fyrir FH
með skalla eftir horn-
spyrnu, og á 90. mínútu
skoraði síðan Hörður
Magnússon lokamarkið,
þegar varamarkverði
Njarðvíkinga mistókst
útspark. Sannarlega grát-
legur endir fyrir Njarðvík-
inga, sem munu væntan-
lega eiga í erfiðleikum með
að manna lið sitt í síðasta
leik mótsins um næstu
helgi.
Breiðablik-KA í kvöld:
Fallslagur!
■ Mjög mikilvægur leikur er
á dagskrá 1. deildarinnar í
knattspyrnu í kvöld, en þá
leika Breiðablik og KA á Kópa-
vogsvelli. Báðum liðum er
mjög mikilvægt að tryggja sér
þrjú stig, er hitt liðið svo gott
sem er fallið í 2. deild. Blikun-
um hefur ekki gengið sem best
á heimavelli sínum í sumar,
hafa aðeins unnið þar einn leik.
í fyrri umferðinni í sumar fóru
Blikarnir með þrjú stig úr
viðureign sinni við KA á Akur-
eyri og munu KA menn vafa-
laust reyna að hefna þeirra
úrslita í kvöld.
STAÐAN 11. DEILD:
Heima
Uti
Samtals
Leikir Unnið Jatnt Tapað Mörk Stig Lcikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U J T M St.
ÍA 8 6 0 2 15-8 18 8 5 2 1 14-8 17 16 11 2 3 29-16 35
IBK 8 5 1 2 12-8 16 8 3 2 3 7-8 11 16 8 3 5 19-17 27
Valur 8 2 5 1 11-8 11 9 4 2 3 12-9 14 17 6 7 4 23-17 25
Þór 8 2 2 4 11-12 8 8 4 1 3 13-11 13 16 6 3 7 24-23 21
Vfkinqur 8 2 4 2 13-12 10 8 3 1 4 12-15 10 16 5 5 6 25-27 20
Þróttur 9 3 3 3 13-11 12 7 1 4 2 4-6 7 16 4 7 5 17-17 19
KR 8 3 3 2 9-12 11 8 1 4 3 7-12 7 16 4 7 5 16-23 19
Fram 9 3 3 3 9-8 12 8 2 1 5 10-14 7 17 2 4 8 19-22 19
UBK 8 1 3 4 9-11 6 8 2 5 1 7-6 11 16 3 8 5 16-17 17
KA 7 2 1 4 11-14 7 9 2 3 4 12-20 9 16 4 4 8 24-34 16