NT - 29.10.1984, Page 2
Milljónagjöf
Öldruð hjón gefa aleigu sína
■ „Og ég afbið mér allar orðu-
veitingar og heiðursborgara-
titla,“ sagði Stefán Ásmundur
Guðjónsson, aldraður verka-
maður, sem á laugardag gaf
ásamt konu sinni Valgerði f>ór-
arinsdóttur, Kópavogskaupstað
veglega hljómplötugjöf - 35
lengdarmetra, eða ef menn vilja
frekar mæla í kassavís, 83
pappakassa af plötum.
Safnið hefur ekki verið skráð,
en mun ekki vera undir 7-8000
hljómplötur, allt klassisk músik,
og að sögn bæjarstjórai' Kópa-
vogs, Kristjáns Guðmundsson-
ar, margt ófáanlegra verka og
dýrgripa sem vart verða metnir
til fjár.
Stefán sagði blaðamanni NT
á laugardag að tónlist hefði
verið hans eina áhugamál alla
ævi. Hann fékk fyrst áhuga á
tónlist er hann lagðist á sjúkra-
hús fimmtán ára gamall og
hlustaði þá mikið á útvarp.
Stefán sagði að plötusöfnun
hans hefði komið niður á efna-
hag þeirra hjóna, en bætti við
að hann hvorki reykti né drykki.
„Tónlistin er hvíld frá raun-
veruleikanum, hugarheimur
sem maður flýr til að flýja
hversdagsleikann.“
Fram kom í máli bæjarstjóra
við afhendinguna, sem fram fór
í Félagsheimili Kópavogs á
laugardag, að þau hjón væru í
raun að gefa aleigu sína.
Safnið verður varðveitt í
bókasafni Kópavogs og verður
fólki gefinn kostur á að hlusta á
hljómplöturnar, en útlán eru
bönnuð samkvæmt gjafabréfi
hjónanna.
Yfirbókavörður Hrafn Harð-
arson sagði í ávarpi við athöfn-
ina að gjöfin gerði hljómplötu-
deild bókasafns Kópavogs að
glæsilegasta hljómplötusafni á
landinu.
f>au hjón gefa safnið til
minningar um son sinn, Þórar-
in Guðjón Stefánsson, f. 29.
janúar 1959, d. 13. ágúst 1959
og dótturson sinn, Albert
Gunnarsson, f. 7. júlí 1983, d.
5. október 1983.
Mánudagur 29. okt. 1984 2
Hjónin Stefán og Valgerður.
NT-mynd: Árni Bjama.
—
Samstilling
endurlífguð
■ Söng- og skemmtifé-
lagið Samstilling er að
vakna til lífsins aftur og
hefst vetrarstarfið mánu-
dagskvöldið 29. október.
Komið verður saman á
efstu hæð að Hverfisgötu
105, kl. 20.30.
Helsta markmið félags-
ins er að fólk komi saman
til að syngja og skemmta
sér á frjálsan hátt, og mun
starfsemin að mestu
byggjast á virkni félags-
manna.-
Meinatæknar
til Alberts
■ Skerjaver í Skerjafirði. Kaupmaðurinn þar lokar nú í
vikunni vegna vöruskorts og hugsanlega munu fleiri smærri
verslanir landsmanna fylgja í kjölfarið. nt myad: Ámi Bj«m«
„Selur ekki tómar
landbúnaðarvörur“
- segir kaupmaður Skerfirðinga sem
senn verður að loka sókum vöruskorts
■ „Það þýðir ekkert fyrir mig
að halda opinni verslun og selja
tómar landbúnaðarvörur. Það
lifir enginn af því“, sagði Kaj
Jörgensen kaupmaður í Skerja-
veri í samtali við NT. Kaj hefur
nú tilkynnt viðskiptavinum sín-
um í Skerjafirðinum frá því að
haldi verkfall BSRB áfram geti
hann ekki haldið verslun sinni
opinni lengur en fram í miðja
þessa viku.
„Hveiti, sykur, laukur, ávext-
ir, - þetta er allt búið og yfirleitt
allt að klárast. Það eru ekki
nema þessir stóru sem hafa
stórar kæligeymslur. Við tökum
þetta bara eftir hendinni og nú
er allt að verða búið“, sagði
Kaj. Hann kvaðst vita til þess
að líkt væri komið fyrir mörgum
öðrum smákaupmönnum.
„Maður lokar ekki neraa í neyð
og alls ekki meðan einhverjar
vörur eru til handa fólkinu,"
sagði Kaj að lokum en hann er
eini matvörukaupmaður Sker-
firðinga og er næsta matvöru-
verslun í vel kílómetrafjarlægð
á horni Suðurgötu og Ly nghaga.
Foreldrar sameinast
kennurum í baráttunni
■ Stjórn Sambands foreldra- og
kennarafélaga hefur samþykkt
ályktun þar sem segir að ekki
verði lengur orða bundist „eftir
þá' hatrömmu og órökstuddu árás
sem kennarastéttin varð fyrir á
Alþingi 11. þ.m.“ Þá þykir stjórn
sambandsins einsýnt að engin von
sé til viðunandi lausnar á kjara-
Þessir fræðingar
■ Fyrst komu fuglafræðingar
og fuglategundunum fækkaði
ískyggilega
Þeim fylgdu fiskifræðingar
og fiskurinn hvarf óðum úr
sjónum...
Svo komu hagfræðingar og
peningar þjóðarinnar urðu að
engu...
...og nú eru komnir mann-
fræðingar...
Engan forrétt-
indaklúbb takk
■ Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur, var krafinn
sagna í húsakynnum BSRB af
hverju hann væri meðlimur
BSRB en ekki BHM. Ragnar
sagði: „Jú sjáðu til. Ég vil vera
í verkalýðsfélagi - ekki forrétt-
indaklúbb. Stéttar,félag sem
ekki hefur verkfallsrétt er ekk-
ert verkalýðsfélag heldur
klúbbur.“
málum kennara nema að fram fari
faglegt mat á störfum og starfsað-
stöðu grunnskólakennara og að
þeir fái laun í samræmi við nýtt
starfsmat.
Þá hefur stjóm Foreldrafélags
Laugamesskóla lýst yfir stuðningi
við kjarabaráttu kennara og
Ragnar hefur staðið sig vel í
verkfallsvörslu - og víst er að
það þyrfti hugaðan verkfalls-
brjót til að leggja í garpinn.
Bakað í 150 ár
■ Annarsstaðar í blaðinu
sögðum við frá því að hvað úr
hverju verði hvergi nokkurs-
staðar hægt að fá brauð vegna
skorts á hveiti og korni. Leysist
verkfallið ekki í næstu viku
verður hér hið versta ástand í
þessum málum.
Þá muna kannski einhverjir
eftir sýningu sem hér var hald-
in fyrstu verkfallshelgina, 6. til
7. þessa mánaðar. Hún bar
nafnið „Bakað í 150 ár“ og
meðal sýningargripa var
stærsta brauð sem bakað hefur
verið hérlendis, - svo stórt að
hér verður höfundum lista-
verksins hlíft við því að við
skýrum brauðsvöngum almúg-
anum frá því. Eða hver át það
brauð?
Annars verður það kannski
„harmað skilningsleysi stjórnvalda
á kjörum þeirra, sem ráðamenn
hafa sýnt bæði í orði og verki." Þá
eru samningsaðilar hvattir til að
leysa þessa kjaradeilu hið fyrsta
„á mannsæmandi hátt, þannig að
börnin okkar fái notið kennslu
vellaunaðra og ánægðra kennara.
hér eins og í Danaveldi forðum
að lýðurinn þyrpist að múr
valdhafa og heimti brauð. Þá
spyr hinn bláeygi valdhafi ráð-
gjafa sinn* „Ur því það á
ekkert brauð, afhverju borðar
það þá ekki bara kökur“.
Og sími þar
■ Nákvæmni lögreglunnar á
þessum verkfallstímum er
mikil. Til þess að sýna mikil-
vægi sitt og það mikla álag sem
hvílir á störfum hennar hafa
ýmsir verðir laganna tamið sér
meiri vandvirkni í starfi en
áður hefur þekkst.
Þjóðkunnur maður utan af
landi lenti fyrir skemmstu í
lítilsháttar umferðaróhappi
þar sem bifreið hans var kysst
af annarri við gatnamót. Enn
hefur ekki verið skrúfað fyrir
þá þjónustu að lögreglan at-
hugi slík óhöpp og því var
strax tekin skýrsla af atburðin-
um. Umræddur sveitamaður
sem af öllum sólarmerkjum að
■ Á aðalfundi sínum í fyrri
viku skoraði Meinatæknafé-
lag íslands á fjármálaráð-
herra að hraða samningum
og borga opinberum starfs-
mönnum mannsæmandi
laun. Pá segir í ályktun fé-
lagsins að það styðji verkfall
og sanngjarnar kröfur
BSRB.
dæma hefur verið í rétti var
fyrst spurður um lögheimili og
símanúmer þar. Um leið og
ökumaður skýrði samvisku-
samlega frá því gat hann þess
að erfitt væri að ná í sig þar,
þess í stað kæmi aðsetur á
höfuðborgarsvæðinu. - Nei
fyrir slíkt voru engin pláss á
opinberum pappírum. Næsta
spurning: „Hvar ertu fæddur“?
Sem svarað var samviskusam-
lega enda maðurinn vel að sér.
„Og sími þar“? En þar þraut
þö gáfur viðkomandi enda
langt síðan að umrædd fæðing
átti sér stað og óvíst að þá hafi
verið símar í norðlenskum
dölum.
Ertu búinn að tryggja
þér eintak?
Á NÆSTA
blaösölustað!
Tryggðu þér eintök í tíma!
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
28028.
Landið í
þurrkví
- og rólegt hjá lögreglu
■ Áberandi minni ölvun var um allt
land þessa helgi en vanalegt er um
helgar. Sem dæmi þá nefndi
Reykjavíkurlögregla að aðeins fimm
menn hefðu gist fangageymslur lögregl-
unnar í fyrrinótt en yfirleitt eru þar á
þriðja tug manna. Rólegt var hjá
lögreglu í öllum nágrannabæjum. Á
landsbyggðinni varð víðast vínþurrð
snemma í verkfallinu en hana hefur
ekki mátt merkja í höfuðborginni fyrr
en nú um helgina.
Þrátt fyrir litla drykkju voru nokkrir
teknir ölvaðir við akstur og sagði
Reykjavíkurlögregla þá tölu háa miðað
við hvað lítið bar á drykkju að öðru
leyti. Virðist svo vera sem ökumenn
taki „verkfall“ lögreglu um of hátíðlega.
Bændur
vara við
smygli
■ Á fundi sínum í fyrri
viku varði stjórn Stétta-
sambands bænaa við hættu
á ólöglegum innflutningi á
matvælum og dýrum. Bent
var á að með óeðlilegu tolleft-
irliti í verkfalli opinberra
starfsmanna hafi hætta á því
að til landsins berist sjúk-
dómar með varningi stór-
aukist.