NT


NT - 29.10.1984, Síða 11

NT - 29.10.1984, Síða 11
Mánudagur 29. okt. 1984 11 GD Utlönd Nígeríumenn leita samkomulags við skuldunauta sína London-Rcuter ■ Nígeríumenn, sem nú skulda rúmlega 22 milljarða dollara erlendis, hafa boðið helstu skuldunautum sínum á Vesturlöndum að greiða gjald- fallna vexti af ríkistryggðum lánum við upphaf næsta árs. Umræddir vextir nema um 220 milljón dollurum og áttu að greiðast 1. janúar á þessu ári. Vestræn ríki hafa hingað til sett það skilyrði fyrir skuldbreyting- um að Nígeríumenn komist að samkomulagi við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn um efnahagsbreyt- ingar. Nígeríumenn hafa rætt við sjóðinn en neitað að faliast á ýmsar kröfur hans sem fela m.a. í sér 60 prósent gengisfeli- ingu á naira sem er gjaldmiðill Nígeríu. Nígeríumenn 'vilja nú vinna sér tíma með því að semja um greiðslur á þeim vöxtum sem þegar hafa gjaldfallið um leið og þeir fái greiðslufrest á þeim vöxtum eru í þann mund að gjaldfalla. Skuldunautar Níger- íumanna hafa sýnt tillögum þeirra nokkurn áhuga þótt þeir hafi enn ekki vikið frá þeirri kröfu sinni að Nígeríumenn semji beint við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn um skuldbreyting- ar. í seinustu viku lækkuðu Níg- eríumenn verð á olíu sem þeir flytja út og er helsta tekjulind þeirra. Petta gerðu þeir til að tryggja sölu olíunnar þar sem þeir verða að fá eins mikið af erlendum gjaldeyri og mögulegt er til að greiða skuldir sínar. Þeir geta því ekki dregið úr olíuframleiðslu sinni eins og sum önnur olíuríki þegar verð- fall verður á olíu. Bandalagsríki þeirra í OPEC hafa lagt hart að Nígenumönnum að hækka aftur olíuverð sitt til þess að sporna við verðlækkun olíu á heimsmörkuðum en slíkt myndi þýða dræmari sölu á Nígeríu- olíunni og hafa Nígeríumenn því ekki enn látið undan þrýst- ingi frá öðrum olíuframleiðslu- ríkjum. ■ Katalónska borgin Barcelona er ein þeirra stórborga, sem sækir það fast að fá að halda sumarólympíuleikana árið 1992. Meðal annarra borga sem hafa verið orðaðar við leikana það árið er sjálf París. Fyrir helgina var þessi gríðarmikla súkkulaðikaka á alþjóðlegri matvælasýningu í Barcelona. Hún er bökuð og mótuð eftir hugmyndum um það hvernig Olympíuþorpið í Barcelona gæti litið út. Símamynd-POLFOTO Sovétríkin: Stórhuga áveituhugmyndir Moskva-Reuter ■ Árlegur uppskerubrestur í Sovétríkjunum hefur neytt stjórnvöld þar til að íhuga ræki- lega hvernig hægt verði að tryggja framleiðsluaukningu í landbúnaði í framtíðinni. Af fundi miðstjórnar Kommúnista- flokks Sovétríkjanna fyrr í þess- ari viku voru meðal annars ræddar hugmyndir um gífurleg- ar áveituframkvæmdir sem hugsanlega eiga eftir að breyta vistkerfi norðlægra landa. Áveituframkvæmdirnar fel- ast m.a. í því að vatni úr stórfljótunum Ob og Irtysh í Síberíu verður veitt um skurð til suðurs til Aral-vatns um 2.550 km vegalengd. Sem stend- ur renna þessi stórfljót liins vegar til norðurs. Skurði þess- um hefur þegar verði gefið nafn- ið Sibaral. Fullgerður verður hann meðal mestu mannvirkja heims ef ekki það mesta. Sovétmenn hafa nú um nokk- urt skeið velt fyrir sér vistfræði- legum áhrifum slíkrar áveitu. Ýmsir hafa talið að hún geti breytt veðurfarinu á norðlægum slóðum við það að vatnsstreymi til norðurs minnkar. En nú virðist sem yfirvöld í Sovétríkj- unum hafi ákveðið að gera al- vöru úr Sibaral. Forsætisráð- herra Sovétríkjanna, Nikolai Tikhonov, minntist lauslega á þessar hugmyndir í ræðu á miðstjórnarfundinum fyrr í vik- unni í sömu andrá og hann reifaði hugmyndir um nær tvö- földun nýræktar fyrir árið 2000. Almennt er talið að slíkt sé ómögulegt nema vatni verði veitt um Sibaral. Sovésk blöð ug tímarit hafa líka farið mjög jákvæðum orð- um um þessar hugmyndir að undanförnu sem þykir einnig benda til þess að Sovétmenn hyggist hefja framkvæmdir við gerð Sibaral-skurðarins á næstu arum. Um tveggja ára skeið hefur verið starfandi nefnd sem á að leggja fram áætlanir um skurðargerðina. Hún mun skila niðurstöðum sínum eftir tæp tvö ár. Formaður nefndarinnar Grigory Voropayev sagði í við- tali við dagblað t Moskvu að gerð skurðarins væri eina leiðin til að tryggja nægjanlegt vatn í Mið-Asíuhéruðum Sovétríkj- anna þar sem fólki fjölgar nú mjög ört. Hann heldur því frarn að Sibaral muni hafa hverfandi áhrif á veðurfar enda verði að- eins um sjö til átta prósent af vatnsmagni Ob og lrtysh veitt um skurðinn. Sibaral-nefndin mun skila niðurstöðum sínum eftir tæp tvö ár. Ef þá verður ákveðið að hefja framkvæmdirviðskurðinn ætti hann að vera tilbúinn fyrir næstu aldamót þar sem áætlað er að gerð hans taki um 12 ár. V-þýskur stálrisi í fæðingu Dusseldorf-Reuler ■ Tvær af stærstu stálsamsteypum Vest- ur-Pýskalands, Krupp og Klöckner, hafa ákveðið að sameinast og mynda nýtt stórfyrir- tæki ásamt áströlsku námusamsteypunni CRA. Þetta nýja fyrirtæki, sem er skammstafað SKK (Stahlwerek Krupp Klöckner), verður önnur stærsta stálsamsteypa Vestur- Þýskalands eftir sam- runann. Það mun fram- leiða um níu milljón tonna af stáli árlega. Markmið samrunans er sögð vera aukin hag- ræðing sem muni skila auknum hagnaði. En við samrunann mun heildarframleiðslugeta fyrirtækjanna minnka um milljón tonn á ári og um 3000 verkanienn missa vinnu sína. Með samvinnunni við ástr- alska fyrirtækið CRA, sem mun eiga 35% í hinu nýja fyrirtæki, hef- ur hið nýja fyrirtæki mótað þá langtíma- stefnu að auka umsvif sín á Kyrrahafssvæð- inu. Talsmenn fyrir- tækisins telja að stál- notkun og eftirspurn eftir stáli á því svæði eigi eftir að aukast mik- ið á komandi árum. S Aðgangur að neyðarsíma á Islandi. Komi upp neyðartilfelli hjá korthafa, býðst honum að hringja í síma 685542, hvar sem hann er staddur og hvenœr sem er. Kostnaðurinn vegna símtalsins fœrist á reikning korthafa. Aðeins kostar 300 krónur árlega að hafa Eurocard kreditkort og ekki hóti meir þótt t.d. hjón hafi tvö kort með sama númeri. Fyrir þessar 300 krónur fást hin almennu hlunnindi korthafa, en auk þess: Neyðarsími Gylmir Ferðatrygging örkuð, en þó mjög gagnleg ferðatrygging korthafa og fjölskyldu hans á ferð innanlands og utan. Bœtur nema allt að USD 100.000.- (rúmum þrem milljónum króna). KORTIÐ SCM GILDIR

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.