NT - 29.10.1984, Page 21

NT - 29.10.1984, Page 21
udagur 29. okt. 1984 21 ítalska knattspyrnan: Hateley er markahæstur Verona efst í deildinni ■ Enski framherjinn Mark Hately er nú markahæsti leik- maður á ftalíu er hann bætti einu rnarki í safnið á sunnudag- inn. Mílanó sigraði þá erkifj- endurna Inter Mílanó, 2-1. Það voru 80 þúsund áhorfendur sem sáu þessa „Derby-viðureign“ og fengu þeir mikið fyrir aurana sína. Rummenigge skóp fyrsta mark leiksins fyrir Altobelli en Wilkins sá um að Iosa um Di Bartolomei sem jafnaði. Og svo skoraði Hateley sigurmarkið, með skalla að sjálfsögðu. Annar Englendingur var hetja síns liðs á Ítalíu. í>að var Trevor Francis sem skoraði jöfnunarmark Sampdoria á síð- ustu mínútu leiksins. Hér eru svo úrslit leikja á Ítalíu. Hér eru svo úrslit leikja á Ítalíu: Atalanta-Napoli ...............1-0 Avellino-Udinese ..............4-1 Como-Ascoli ...................1-0 Juventus-Roma..................1-1 Lazio-Cremonese ...............2-1 Milanó-Inter...................2-1 Sampdoría-Torino...............2-2 Verona-Fiorentina..............2-1 í leik Sampdoria skoraði Gra- eme Souness fyrra mark liðsins og brenndi svo af víti í seinni hálfleik. Junior skoraði annað mark Torino og lagði upp hitt. Staða efstu liða á ftalíu er nú þessi: Verona 7 12 Torino 7 10 Milanó 7 9 Juventus 7 8 Fiorentina 7 8 Inter Milanó 8 8 Pétur Heimir Hollenska knattspyrnan: Pétur skoraði Heimir lék fyrsta leikinn með Excelsior ■ Tíunda umferð hollensku úrvalsdeildarinnar var leikin um helgina, og vann Feyenoord meðal annars stórsigur. Pétur Pétursson var á markalista Feyenoord að þessu sinni. Heimir Karlsson lék sinn fyrsta leik með Excelsior. - Úrslitin voru: Haarlem-NAC .................1-3 PSV-PEC Zwolle ..............4-1 G.A. Eagles-AZ 67............5-1 RodaJC-MWW ..................2-2 Volendam-Twente..............1-1 Feyenoord-Sparta ............5-0 Utrecht-Excelsior ...........4-1 Groningen-Ajax ..............2-2 Den Bosch-Sittard............2-4 { upphafi léku liðsmenn Sparta mjög sterkan leik gegn Feyenoord og bjuggust allir við að þeir myndu skora fyrsta mark leiksins. Pað var því nokk- uð óvænt þegar Gullitt skoraði 1-0 eftir fyrirgjöf Hoekstra á 18. mín. Feyenoord komst á skrið eftir markið og á 27. mínútu léku þeir Gullitt og Hoekstra Pétur alveg frían og Pétur skall- aði inn 2-0. Hoekstra skoraði 3-0 skömmu síðar. Gullitt skor- aði 4-0, Mario Bein 5-0 á 72. mín. Heimir Karlsson lék sinn fyrsta leik með Excelsior í gær gegn Utrecht. Utrecht byrjaði af krafti og Ritvent Vercuyl og Van der Hooft skoruðu. Van der Patt skoraði eina mark Excels- ior úr víti. Heimir átti ágætan leik, en er greinilega nýr í liðinu og fékk ekki marga bolta að vinna úr. Ef hann heldur sæti sínu í liðinu á hann eftir að falla betur inn í það. Marco van Basten kom inn í hálfleik í leik Ajax og Groningen og var áber- andi bestur á vellinum, skoraði bæði mörk Ajax 2-2 jafntefli. PSV, efsta lið hollensRu deildarinnar átti ekki í neinum vandræðum með PEC Zwolle. Hallvar Thoresen skoraði þrennu og Hysen eitt. PSV er nú efst með 17 stig eftir 7 leiki, Ajax hefur 15 stig og á tvo leiki til góða. Volendam hefur 14 stig eftir 10 leiki og Feyenoord 13 stig keftir 9 leiki. ■ Ivar Webster skorar fyrir Hauka gegn Val í Hafnarfirði í gær. ívar, en það er nýja nafnið hans Decarsta Webster sem hann tók upp eftir að hann fékk íslenskan ríkisborgararétt, var Valsmönnum óþægur Ijár í þúfu í leiknum. NT-mynd: Árni Bjama Haukar á skrid í úrvalsdeildinni: Belgia: Sævar fékk gult spjald Frá Rcyni Finnbogasyni fréttamanni NT í Hollandi. ■ Sævar Jónsson fékk gult spjaid í leik Cercle Brugge og Antwerpen í belgísku úrvalsdeildinni í gær. Antwerpen sigraði í leiknum 1-0. Anderlecht vann Waterschei 3-1 á útivelli, en Arnór Guð- jónsen lék ekki með. Anderlecht er því enn efst í Belgíu, en nánar verður fjallað um leikina í Belgíu í gær í blaðinu á morgun. Rangers deildar- bikar- meistari ■ Rangers varð á sunuudaginn skoskur deildarbikarmeistari er liðið lagði Dundee Utd. að velli 1-0. Leikið var á Hampden Park í Glas- gow og var leikurinn í járnum allan tímann. Æsispennandi í lokin ■ Haukar sigruðu Val í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld með 83 stigum gegn 80. Leikið var í íþróttahúsinu í Hafnarfirði og var leikurinn æsispennandi undir lokin en Haukarnir sigruðu á lokamín- útunni. Pað var nokkur fjöldi fólks j sem lagði leið sína í Fjörðinn í gærkvöldi til að fylgjast með leiknum enda menn orðnir hungraðir eftir að sjá íþrótta- kappleik. Haukarnir byrjuðu mjög vel og lengi leit út fyrir að þeir myndu kafsigla Valsara. Ivar Webster skoraði nokkrar körf- ur þegar í upphafi og virtist sprækur en hann dalaði er á leikinn leið. Haukarnir komust þetta 10 stig yfir og leiddu í leikhlé 39-28. í síðari hálfleik komu Valsar- ar sterkir til leiks og svo virtist sem Haukaliðið ætlaði ekki að standast pressuna sem Valsarar settu á þá. Þeir léku ekki nogu yfirvegað og voru oft á tíðum hálfvandræðalegir. Valsmenn gengu á lagið og sérlega var Torfi drjúgur við að berjast. Þegar um 5. mín. voru eftir, þá höfðu Valsmenn saxað svo á forskot Haukanna að leikurinn leystist upp í að verða æsispennandi. Valsarar komust yfir 70-66 og síðan voru þeir yfir allt til 74-72 og var það mest fyrir tilstuðlan Tómasar Holton sem fór á kostum og var nærri búinn að vinna leikinn með þriggja stiga körfu frá Eyþóri og allt var á suðupunkti. Torfi óð inn að körfunni og ætlaði að skora og fiska villu, en fékk bara skotin sem hann hitti ekkiúr. Haukarinnsigluðu svo sigur sinn á lokasekúndun- um, 83-80. Hjá Haukunum var Pálmar einna bestur og gerði 18 stig en ívar W. var stigahæstur þeirra með 19 stig. Kristján skoraði mest fyrir Val eða 22 en Torfi var með 18. Tómas Holton gerði alls 14 stig í síðari hálf- leik. 2. deildin í handbolta: KA f ékk óskaby rjun - vann Fram í fyrsta leiknum - Fram vann Þór Frá Gylfa Krisljanssyni fréttamanni NT á Akureyri: ■ „Við verðum bara að sætta okkur við þetta, við komum hingað norður til þess að sækja þrjú stig, ætl- uðum okkur sigur gegn Þór og að minnsta kosti jafntefli gegn KA, svo við erum ekk- ert mjög óhressir að fara héðan með tvö stig“, sagði Framarinn Jón Árni Rúnars- son eftir að Fram hafði tapað 23-28 fyrir KA, í 2. deild í handbolta á Akureyri um helgina. KA, sem féll úr fyrstu deild síðastliðið vor fékk því óskabyrjun í sínum fyrsta leik í annarri deild. Sigur gegn Fram, en talið er að keppnin um sætin tvö í fyrstu deild komi til með að standa milli þessara liða og HK. Geysileg barátta ein- kenndi KA-liðið í þessum leik. Liðið, sem hefur endur- heimt þá Friðjón Jónsson og Erlend Hermannsson er til alls líklegt í vetur undir stjórn FH-ingsins Helga Ragnarssonar. Framarar komust yfir 1-0 og 2-1 eftir tvö mörk Óskars Þorsteinssonar, en síðan komst KA yfir og hafði for- ystu til loka leiksins. Staðan í hálfleik 14-12. Fram minnkaði muninn í eitt mark, 15-16 í seinni hálfleik, en KA bréytti stöðunni í 22-16 og úrslitin voru ráðin. KA-liðið var mjög jafnt í þessum leik og virkaði sem sterk heild. Logi Einarsson og Friðjón Jónsson voru markahæstir með 6 mörk. Varnarleikur Fram og mark- varsla voru léleg að þesssu sinni, en bestu menn liðsins voru Óskar Þorsteinsson sem skoraði 13 mörk og Jón . Árni Rúnarsson með 4. Þórsarar voru mjög seinir í gang og Framarar komust í 3-0 og síðan 7-1 á upphafs- mínútum leiksins. Þórsarar náðu síðan að minnka mun- inn í tvö mörk fyrir leikhlé, staðan þá 11-9 Fram í vil. í síðari hálfleik skoruðu Þórsarar ekki mark í 14 mín- útur, og Framarar gerðu út um leikinn, komust í 15-9. Lokatölur 22-18. Sigurður Þórarinsson markvörður var besti maður Fram, og varði um 20 skot í leiknum. Óskar Þorsteins- son var markahæstur með 7 mörk. Hjá Þór var Sigurður Pálsson markahæstur með 6 mörk. Jafnt hjá Þór og ÍBV Frá Gylfa Kristjánssyni fréttamanni NT á Akureyri: ■ Þór og ÍBV gerðu jafntefli í fyrstu deild kvenna í handknattleik á Akur- eyri um helgina. Úrslitin 14-14 eftir mjög spennandi viðureign. Staðan í hálfleik var 6-6 og liðin fylgdust að allan síðari hálfleikinn. Inga Huld Páisdóttir skoraði 5 mörk fyrir Þór, þar af 4 í síðari hálfleik. Hjá IBV var Ragna Birgisdóttir marka- hæst, skoraði 7 mörk og af þeim skoraði hún 6 í síðari hálfleik. Kakbóhmhf. DUGGUVOGI2,104 REYKJAVÍK SfMI: 91-84111 RADIAL - vetrargrip VÖRUBÍLAEIGENDUR! Kaidsóiuð dekk á vörubíia, sendibíia og Nú er rétti tíminn til að láta sóla fyrir veturinn Solnð Radial dekk fynr fólksbfla. jeppa. Snögg umfe,gun á stadnum Minnsti kostnaður pr. ekinn km. BANDAG er í fararbroddi..

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.