NT - 29.10.1984, Side 24
■ Frá leiknum sem réði úrslitum í Norðurlandamóti karlalandsliða í handknattleik, Ísland-Danmörk.
Það er Bjarne Simonsen sem á skot að íslenska markinu, en Kristján Sigmundsson ver.
Símamynd POI.FOTO.
Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari:
„Mjög ánægður“
Nú er að undirbúa A-keppnina í Sviss 1986
■ „Ég er afskaplega ánægður
með árangur íslenska liðsins.
Við fórum á þetta Norðurlanda-
mót með það í huga að ná sem
bestum árangri og leika til sigurs
í hverjum einasta leik. Ég
renndi að vísu aðeins blint í
sjóinn með þetta lið, þar sem
allmiklar breytingar hafa orðið
á því síðan á Olympíuleikunum
í sumar. En þetta kom vel út,
hver einasti maður stóð sig
vel“, sagði Bogdan Kowalczky
landsliðsþjálfari í handknattleik
í samtali við NT í gær.
Landsliðsþjálfarinn sagði að
nú væri áframhaldandi undir-
búningur undir A-Heimsmeist-
arakeppnina í Sviss 1986 fram-
undan, og það yrði 20-25 manna
hópur sem undirbyggi sig undir
það.
í þeim leikjum sem framund-
an væru yrði ekki lagt eins
mikið upp úr úrslitunum sem
slíkum, þó að sjálfsögðu verði
farið í hvern leik með sigur í
huga. En markmiðið væri að
gefa yngri mönnum færi á að
leika, svo ljóst verði næsta haust
hvaða leikmenn það koma til
með að verða sem keppa fyrir
íslands hönd 1986 í Sviss.
Bogdan Kowalczyk.
íslendingar í 2. sæti
á Norðurlandamótinu
Danir urðu meistarar er þeir unnu Svía 24-21 í gær - „ísland og Danmörk með bestu liðin“
■ Danir urðu í gær Norður-
landameistarar í handknattleik
er þeir sigruðu Svía í síðasta
leik Norðurlandamótsins í
Finnlandi 24-21. íslendingar
urðu því í öðru sæti á mótinu,
ten lengi var haldið í þá von að
Svíar myndu sigra Dani í síðasta
leiknum, og þá hefðu Islending-
ar orðið Norðurlandameistarar
með betra markahlutfall en
Danir.
Þetta er besti árangur sem
íslenska landsliðið hefur náð á
Norðurlandamóti í handknatt-
leik. Grunninn lagði íslenska
liðið með góðum sigri á Svíum
á föstudag, 22-20, en lagði að
Handboltinn í V-Þýskalandi:
Essen efst
Sigurður hefur skorað 28 mörk í 4 leikjum
Fró Gudmundi Karlssyni fréttamanni NT í
V-Þýskalandi:
■ TUSEM Essen, lið Alfreðs
Gíslasonar í vestur-þýsku
Búndeslígunni í handknattleik
er enn efst í deildinni, hefur
fullt hús stiga eftir fjórar um-
ferðir.
Essen lék í gær gegn Scwab-
ing á heimavelli, og vann
nauman sigur 15-14, og kom á
óvart hve leikurinn var jafn.
Markvörður Schwabing var
Essen óþægur ljár í þúfu, og
varði m.a. 4 vítaköst af 9 sem
Essen fékk.
Kiel, liðið sem Jóhann Ingi
Gunnarsson þjálfar er um
miðja deild með 4 stig, en
hefur aðeins leikið tvo leiki í
keppninni, og er því taplaust.
Liðið lagði nú um helgina
Fuchse Berlin 32-29 á útivelli.
Lemgo, lið Sigurðar Sveins-
sonar er rétt fyrir neðan miðja
deild með 3 stig eftir fjóra
leiki. Sigurður hefur staðið sig
mjög vel að undanförnu, skor-
aði 7 mörk um helgina í 18-16
sigri Lemgo á Grosswallstadt.
Sigurður hefur skorað alls 28
mörk í fjórum leikjum og er á
meðal markahæstu leikmanna
deildarinnar.
Bergkamen, lið Atla Hilm-
arssonar er meðal neðstu liða
með 1 stig. Atli hefur staðið sig
ágætlega að undanförnu, og
hafa hin gríðarlegu uppstökk
hans vakið mikla athygli.
■ Sigurður Sveinsson
- 7 mörk að meðaltali
í leik.
auki Finna með miklum mun,
32-13, Norðmenn 20-19 en tap-
aði síðan fyrir Dönum á laugar-
dag 22-26.
Danir áttu Norðurlanda-
meistaratitilinn skilinn. Liðið
sigraði í öllum sínum leikjum,
og lagði Svía síðast að velli í gær
örugglega, höfðu ávallt tögl og
hagldir í leiknum og héldu Svíum
í hæfilegri fjarlægð allan
tímann.
Það var mál manna hér eftir
keppnina, að Danmörk og ís-
land hafi verið með langsterk-
ustu liðin í mótinu, og leikur
þeirra hafi verið hinn sanni
úrslitaleikur, sagði Guðjón
Guðmundsson liðsstjóri ís-
lenska liðsins eftir leik Svía og
Dana í gær í samtali við NT.
Norðmenn lentu í þriðja sæti
á mótinu, mættu með sitt al-
sterkasta lið til þessa, lögðu
Svía og svo Finna í gær 30-20.
Svíar urðu í fjórða sæti og
Finnar í fimmta.
Norðmenn
unnu Svía!
■ Norðmenn gerðu sér
lítið fyrir á laugardag og
sigruðu erkifjendur sína
Svía á Norðurlandamóti
karlalandsliða í hand-
knattleik í Helsinki.
Svíar, sem höfðu haft 7-8
marka forskot lengst af,
sofnuðu á verðinum.
Norömenn hjuggu for-
skotið niður og skoruðu
sigurmarkið alveg í leiks-
lok.
Þessi ósigur Svía gerði
það að verkum að þeir
áttu ekki lengur mögu-
leika á að vinna mótið.
Kostar hálfa
mílljón!
■ „Þessi ferð á Norður-
landamótið kostar okkur
hjá HSÍ um hálfa milljón
króna, þannig að það er
meira en að segja það að
komast hingað“, sagði
Jón Hjaltalín Magnússon
formaður HSÍ í samtali
við NT á laugardag. -
„Við ætlum okkur að
klára þetta dæmi“, sagði
Jón.
Leif Mikkelsen landsliðsþjálfari Dana:
„ísland hefur náð
miklum stöðugleika“
■ „íslendingar eru orðnir
mjög sterkir í handknattleik.
Þeir hafa reyndar alltaf verið
sterkir, en stöðugleiki liðsins
hefur aldrei verið nægur. Nú
hefur liðið náð mjög miklum
stöðugleika, og spilar stöðugt
góðan handbolta. Þessi breyt-
rng hefur átt sér stað síðan
Bogdan Kowalczyk tók við
þjálfun liðsins“, sagði Leit'
Mikkelsen landsliðsþjálfari
Dana, eftir leik íslendinga og
Dana í Finnlandi á laugardag.
„Liðið er komið á hærri
„standard" en nokkru sinni
áður, og spilar af fullum krafti,
jafnvel þó vanti 6-7 menn í
liðið. íslendingar eiga amk.
þrjá mjög sterka handknatt-
leiksmenn í V-Þýskalandi sem
hiklaust hefðu verið í aðalhlut-
verkum hér ef þeir hefðu verið
hér. Árangur liðsins án þeirra
sýnir hve miklum stöðugleika
liðið hefur náð“, sagði Leif
Mikkelsen.
Leif Mikkelsen.