NT

Ulloq

NT - 27.11.1984, Qupperneq 12

NT - 27.11.1984, Qupperneq 12
Þriðjudagur 27. nóvember 1984 12 t Hluti af starfsfólki Vvrðlistans. Erla Wigelund stendur fremst á myndinni. Erla pakkar inn kápu sem pöntuð hefur verið út á iand. DEKRAÐ VID KUNNANA Pósturinn mjög traustur - Sendum pakka á hverjum degi út á land KM 100 1-12 bolla kaffivél. Vélina má festa á vegg. Sérstaklega vönduð og falleg vé Snúruna má hringa upp í festingu undir vélinni. Verð kr. 2.250.- WA 102 vöfflujárn með hitastilli. Verð kr. 3.950,- WA 602 án hitastillis kr. 2.950.- SP 9008 hitaplata. Hitnar á 6 mínútum. Heldur mat heitum í 1 klst. Festa má plötuna á vegg og er hún þá fallegt skraut. . Verð kr. 2.300,- GF 300 djúpsteikingarpottur 2,5 lítra með fitusíu. Hitastillir. Verð kr. 5.390,- WK 200 hraðsuðupottur, hitar vatn á örstuttri stund. Má sjóða í honum mat. 2 lítrar. Verð kr. 2.950.- EINAR FARESTVEIT & CO. HF. 'bERGSTAÐASTRÆTI I 0 A - SlMI 16995 PETRA heimilistækin eru vönduð v- þýsk tæki. Ars ábyrgö - Sendum gegn póstkröfu Greiðsluskilmálar ■ Póstkröfuverslun flokkast undir aukna þjónustu við viðskiptavini, og er hún ávallt vel metin. Það hljóta því að vera sérstakir við- skiptahættir, að ekki bara selja vöru gegn póstkröfu, heldur lána vöruna án skuldbind- ingar um að viðskiptavinurinn kaupi eitthvað. Við heyrðum um verslun sem hefur þennan háttinn á. Við fórum á stúfana og vildum fræðast um hvernig væri mögulegt að starf- rækja verslun með þessu fyrirkomulagi. Við hittum fyrir eigendur Verðlistans, þau heiðurshjón- in Erlu Wigelund og Kristján Kristjánsson sem hafa rekið Verðlistann í tæpan aldar- fjórðung. - Erla, hvernig er fyrir- komulagið á þessari póstversl- un hjá ykkur? „Jú yfirleitt hringir fólk og pantar hjá okkur kjóla, kápur, úlpur eða buxur. Við spyrjum um stærðina og sendum síðan til fólks. Sé fólk ekki öruggt um stærðina, litinn eða sniðið sem hentar því, þá einfaldlega sendum við þeim hinar ýmsu stærðir og gerðir, svo að öruggt er að viðkomandi fær eitthvað sem fellur honum í geð. Oft er það líka að heil félög halda samkundur í bæjum úti á landi, þá er mjög algengt að hringt sé í mig og ég beðin að senda nokkra kjóla. Konurnar líta á'þessi sýnishorn og senda til baka það sem ekki féll í kramið." - t>arf ekki stóran lager í svona fyrirtæki? „Mikil ósköp. Lagerinn er gríðarstór, og mikill hluti sem stöðugt er úti. Við sýnum okk- ar viðskiptavinum mikið traust, og það er hlutur sem íslendingar kunna vel að meta. Við höfum haft sömu við- skiptavini sem hringja reglu- lega í mig og biðja mig um að senda sér eitthvað smekklegt. Það er alveg furðulegt hversu vel gengur að hitta á hluti sem passa og falla í kramið. Það er þörf fyrir svona þjón- ustu skal ég segja þér. Kona sem búsett er á Austfjörðum getur með einu samtali við okkur hér í Verðlistanum spar- að sér flugfar í bæinn og önnur útgjöld tengd því, og samt fengið kjólinn sem hún var að hugsa um." - Hvernig fatnað leggið þið áherslu á? „Við erum með kjóla fyrir konur á öllum aldri og af öllum gerðum. Við leggjum áherslu á yfirstærðir þannig að við getum gert viðskiptavinum okkar jafn hátt undir höfði, hvort sem hann notar föt af stærðinni 36 eða 56, eða enn stærra. Við höfum einnig tískuföt fyrir ungar konur." - Sendið þið eingöngu með pósti? „Já og nei. Okkar skipti við póstinn eru mjög ánægjuleg og örugg og þeir menn sem þar vinna eiga þakkir skildar fyrir vel unnin störf. Á hverjum degi sendum við frá einum og upp í sex pakka með pósti til viðskiptavina út um allt land. Aðeins einu sinni man ég eftir að sending færi forgörðum. Þá blotnaði . pakki og varan skemmdist. Það kalla ég ekki mikil afföll á rúmum tuttugu árum. það hefur borið við að við notum flugið ef um mjög stuttan fyrirvara er að ræða.“ - Hvernig er með greiðslu- fyrirkomulag? „Viðskiptavinir okkar geta sent okkur póstávísun eða borgað inn á gíróreikning fyrir- tækisins. Viðsýnumokkarvið- skiptavinum traust og þeir kunna vel að meta það og svara í sömu mynt. Mig rekur ekki minni til að við höfum lent í alvarlegum erfiðleikum með innheimtu á greiðslu fyrir pöntun."

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.