NT - 29.01.1985, Blaðsíða 20
T II Þriðjudagur 29. janúar 1985 20
út 1 öncfl
írska lýðveldið:
Smokkar valda
flokkadráttum
Duhlin-Keuter
■ Miklai dcilur eru nú
um þaö í írska lýöveldinu
hvort leyfa eigi sölu á getn-
aðarverjum til allra sem
náð hafa 18 ára aldri eða
aðeins til giftra einstakl-
inga eins og lögin eru
núna.
Þegar núverandi sam-
steypustjórn var mynduð
undir forsæti Garret Fitz-
geralds fyrir tveim árum.
lofaði stjórnin því að setja
ný lög scm lcyföu öllum
einstaklingum yfir 18 ára
aldri aðgang að þeim verj-
um sem ckki teldust til
lyfja. En kaþólska kirkjan
á Irlandi er mjög ákveðiö
andsnúin slíkri tilstöknn á
þeim reglum sem nú eru í
gildi.
Allt frá því 1935 til árs-
ins 1973 voru í gildi lög á
írlandi sem bönnuöu allan
innflutning og sölu á getn-
aðarverjum. Það var ekki
fyrr en hæstiréttur úr-
skurðaði árið I973aðsam-
kvæmt stjórnarskrá allir
skyldu hafa aðgang að
verjum, að smokkar fá
lagalegan tilverurctt á Ir-
landi. Sala á verjum var
að vísu ennþá bönnuð, og
þær mátti ekki auglýsa, en
ýmsir aðilar fundu fljót-
lega ráð við því og stofn-
uðu fjöiskylduáætlunar-
miöstöðvar sem gáfu cin-
staklingum vcrjur gegn
ákveðnum framlögum til
starfseminnar.
Bann við vcrjusölu er
samt enn í gildi og fyrir
tæpum tveimur árum var
læknir í Dublin dæmdur
til að greiða 500 írsk pund
(20.000 ísl. kr.) í sekt fyrir
að selja nágranna sínum
tíu smokka.
Bannið við sölu á verj-
um kemur sérstaklega nið-
ur á fólki sem býr á af-
skekktum stöðum í sveit-
um en borgarbúar geta
yfirlcitt orðið sér úti um
þær cftir ólöglcgum leið-
um. Athygli manna beind-
ist sérstaklega að þessu
viðkvæma máli í fyrraeftir
að sextán ára gömul stúlka
lést af barnsförum í þorps-
kirkjugarði þar sem hún
ætlaði að ala óskilgetið
barn.
Irska stjórnin segist
staðráðin í því að gefa
getnaðarvarnir að mestu
frjálsar þrátt fyrir and-
stöðu kirkjunnarsem tckk
því t.d. framgengt fyrir
skömmu að bann viö fóst-
urcyðingum hefur verið
sett inn í stjórnarskrána.
Stjórnvoíd höfðu sagt slíkt
óþarft þar sem nóg væri að
banna fóstureyðingar með
lögum þótt þær væru ekki
sérstaklega bannaðar í
stjórnarskránni.
Deilan um getnaðar-
verjur stendur ekki hvað
síst um þaö hvcr áhrif
kaþólsku kirkjunnar eigi
að vera á stjórnarfar í
Irlandi. Stjórnvöld í írska
lýðveldinu hefur lengi
dreymt um sameiningu Ir-
lands en mótmælendur í
norðurhluta landsins hafa
margoft bent á hin miklu
áhrif kaþólsku kirkjunnar
í írska lýðveldinu sem eina
helstu ástæðuna fyrir því
að þeireru mótfallnirsam-
einingu Irlands.
Portúgal:
NATO-skipfyrirárás
Lissabon-Reuter
■ Borgarskæruliðar í Portúgal
stóðu fyrir sprengjuárás á hcrskip
frá NATO í gær. Árásin í ga‘r er
sögð tcngjast herferð borgar-
skæruliða gegn NATO í Evrópu.
Talsmaöur portúgalska sjóhers-
ins sagði að þremur sprengjum
hafi verið skotið að herskipum úr
Atlantshafsflota NATO þar sem
þau lágu við akkcri í höfninni í
Lissabon. Sprengjunum varskotið
úr byssu í nærliggjandi húsagarði.
Sprengjurnar féllu í sjó 100
metra frá skipunum cn enginn
skaði hlaust af þeim.
Skæruliöasamtökin FP-25 hafa
lýst ábyrgð á sprengjutilræðinu á
hendur sér en samtök þessi eru
kennd við portúgölsku byltingúna
25. apríl 1974.
FP-25 sögðust bera ábyrgð á
sprengjuárás á aðalstöðvar NATO
í Íbcríu í síðasta mánuði.
t
Móðir okkar
Svanhildur Árnadóttir
Lelfsgötu 25
lést í Landakotsspítala sunnudaginn 27. janúar
Börn hinnar látnu.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hjörtur Ögmundsson
fyrrum bóndi í Álfatröðum,
andaðist að heimili sínu Höröalandi 8, Reykjavík að kvöldi
sunnudags 27. janúar.
Ása Hjartardóttir
Ragnheiður Hjartardóttir
Erla Hjartardóttir, Gunnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Vígbúnaðarviðræðurnar:
Er USA treystandi?
- spyr fréttaskýrandi TASS
Moskva-Reuter:
■ Sovéska fréttastofan
TASS geröi í gær athuga-
semdir við ummæli banda-
rískra embættismanna og
dró í efa vilja Bandaríkja-
manna til að standa við
samkomulag Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna um
vígbúnaðarviðræður 12.
mars n.k.
Vladimir Chernyshow,
fréttaskýrandi TASS, lýsti
yfir áhyggjum sínum vegna
þeirra ummæla bandarískra
embættismanna að að-
greina umræðurnar um þær
þrjár megintegundir víg-
búnaðar sem fjallað verður
um, þ.e. meðaldrægar
kjarnorkueldflaugar, lang-
drægar kjarnorkueldflaug-
ar og geimvopn.
Bandaríkjamenn féllust á
að geimvopn yrðu tekin
með í viðræðunum en sögð-
ust eftir sem áður ekki
kvika frá áformum sínum
um rannsóknir á eld-
flaugavarnakerfum í
geimnum.
Chernyshov sagði að
„það hafi verið skýrt tekið
fram, að öll vandamál varð-
andi geim- og kjarnorku-
vopn yrðu athuguð og um
þau teknar ákvarðanir í
órofa samhengi“.
„Sú spurning hlýtur að
vakna hvort Bandaríkja-
menn ætli sér í raun og veru
að standa við samkomulag-
iö“.
Chernyshow sagði að
risaveldin tvö gætu ekki
náð samkomulagi um tak-
mörkun kjarnorkuvopna á
sjó og landi meðan annað
þeirra væri að þróa geim-
vopn. Gagnaðilinn yrði þá
að skapa sér þennan mögu-
leika líka en það hlyti að
leiða til vígbúnaðarkapp-
hlaups í geimnum, sagði
Chernyshow.
Fílar deyja íDanmörku
■ Tveir fílar í dýragarðinum í Óðinsvéum létust um helgina
eftir að gufa streymdi úr bilaðri hitalögn að sögn starfsmanna
dýrargarðsins.
Fílarnir, sem létust, voru af indversku ætterni. Þeir voru
fímmtán ára gamlir og nýorðnir kynþroska. Forráðamenn
dýragarðsins ætluðu að hleypa þeim til nú í sumar.
Myndin er af fílunum sem létust í Óðinsvéum nú um helgina,
þegar klefí þeirra ofhitnaði eftir að hitalögn sprakk. Að sögn
var dauðdagi þeirra ekki mjög sáraukafullur þótt dauðastríðið
væri langdregið. Simamind'P01 FOTO
■ 200 verkfallsmenn
voru handteknir í átökum
við lögreglu í höfuðborg
Filipseyja, Manilla, í gær.
Lögreglan réðst að mót-
mælagöngu verkfalls-
manna með bareflum og
táragasi. Atburðirnir
gerðust á fyrsta degi alls-
herjarverkfalis flutninga-
verkafólks.
Líbanon:
Þriggja ára
stúlka deyr
j skotárás
ísraels-
manna
Sidon-Kcutcr
■ ísraelsher meinaði
í gær fréttamönnum,
sem hafa aðsetur í
Beirút, að ferðast um
Suður-Líbanon. Frétt-
ir höfðu borist af skot-
/
árás Israelsmanna á bíl
sem í voru átta börn.
í skotárásinni dó
þriggja ára stúlku-
barn.
Auk stúlkunnar dóu
þrír í fyrrinótt og
gærmorgun. Átta
særðust, þar á meðal
faðir stúlkunnar. ísra-
elskir hermenn urðu
fyrir fjórum árásum í
gær og munu þrír her-
menn hafa fallið.
ísraelsmenn undir-
búa að yfirgefa Sídon
fyrir 18. febrúar n.k.,
en það verður fyrsta
skrefið af þrernur í
brottför þeirra frá Lí-
banon í sumar. ísraels-
menn hafa alls orðið
fyrir 92 árásum í jan-
úarmánuði í Suður-Lí-
banon.
Mjög viðkvæmt á-
stand er nú á þessum
slóðum og skiptast
herflokkar stöðugt á
skotum.