NT - 04.02.1985, Blaðsíða 13
Mánudagur 4. febrúar 1985 13
bar í Glyfada við Aþenu í gær.
tlinna særðu. Simamvnd POLFOTO
Aþenu:
irískir
særast
eglunnar sögðu að sprengjan
lafi verið heimatilbúin tíma-
prengja enda fundust Ieifar af
;lukku sem tilheyrðu sprengj-
mni.
7 slösuðust alvarlega en 15
oru fluttir á sjúkrahús.
Enginn hefur lýst sig ábyrgan
. sprengjutilræðinu en ýmsir
;eta sér til um að andstæðingar
1ATO hafi verið að verki, aðrir
;runa eigendur öldurhúsa í ná-
;renninu enda frjáls samkeppni
lörð á þessum slóðum.
Svíþjóð:
Utanríkisráðherrann
segi af sér embætti
Sagður hafa fullyrt að engir kafbátar hafi rofið sænska landhelgi síðan 1982
Frá Guðrúnu Garðarsdóttur - Stokkhólmi:
■ Allt bendir til þess að viðtal
sænska utanríkisráðherrans
Lennart Bodström og blaða-
mannaþriggja helstu dagblaða
Svía nú um helgina muni hafa
mikil áhrif á stjórnmálaum-
ræðuna í Svíþjóð. Viðtalið er af
mörgum talið reginhneyksli.
Blaðamennirnir fullyrða að
Bodström hafi sagt að engir
kafbátar hafi rofið landhelgi
Svíþjóðar síðan haustið 1982. í
gær þverneitaði hann að hafa
gefið slíka yfirlýsingu og sagði
umsögn blaðamannanna
byggða á misskilningi.
Bodström sagði í sjónvarps-
viðtali að hann hafi aldrei neitað
að kafbátar hafi gerst sekir um
að sigla inn í sænska landhelgi.
Hann segist aðeins hafa sagt að
engar sannanir væru fyrir því
frá hvaða landi þeir væru.
Herinn hefur ekki veitt ríkis-
stjórninni upplýsingar um
þjóðerni kafbáta sem grunaðir
eru um ólöglegt athæfi við
strendur Svíþjóðar. Herinn hef-
ur aðeins veitt upplýsingar um
að óyggjandi er að erlendir
kafbátar stunda njósnir í land-
helgi Svíþjóðar.
Ríkisstjórnin getur hins vegar
ekki sakað neitt ákveðið land
eða lönd fyrir að eiga hlut að
máli meðan sænski herinn hefur
ekki staðfest uppruna kafbát-
anna.
Bodström sagðist í gær aldrei
hafa verið í vafa um yfirgang
erlendra kafbáta í landhelginni
en hann sagðist líta alvarlegum
augum, að því sé haldið fram
að ríkisstjórninni sé kunnugt
um að rússneskir kafbátar
stundi njósnir í sænskri land-
helgi og að ríkisstjórnin láti
það viðgangast.
Borgaraflokkarnir telja yfir-
lýsingu Bodström um að engir
erlendir kafbátar hafi verið að
störfum í landhelginni síðan
1982 sé reginhneyksli. Borgara-
flokkarnir þrír telja að yfirlýsing
Bodström sýni að utanríkisráð-
herrann virði ekki niðurstöður
hernaðaryfirvalda.
Leiðtogar hægriflokksins,
Moderaterna, hafa sagt Bod-
ström óhæfan til að gegna em-
bætti sínu. Þeir krefjast þess aö
Bodström segi af sér. Kosninga-
slagurinn er hér með hafinn í
Svíþjóð.
Lennart Bodström.
Brak sovésku eldflaugarinnar
■ Finnskir sprengjusérfræðingar standa hér er myndin var tekin í gær, við afturenda sovésku
eldflaugarinnar sem rauf lofthelgi Finnlands og Noregs í desember s.l. Sovéskir herflugmenn
skutu flaugina niður en hún lenti á vatni í Lapplandi í Norður Finnlandi. Símamynd Polfoto.
;lar
má
:mt
um
um
m“
na-
ing
SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS,
ÞESSI MEÐ HÁU VEXTIN A,
FÁST NÚ Á PÓSTHÚSUM UM LAND ALLT.
Auk þeirra eru sölustaðir:
Seðlabanki íslands, viðskiptabankarnir, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS