NT - 02.03.1985, Blaðsíða 4
ð »?Cð* íFsetn .C
Vissir þú...
...að lesendur ÞJÓÐVILJANS fó f hverri viku hátt á annan
tug sérstakra biaðhluta sem hver um sig fjallar um af-
markað efni, þar sem allir finna eltthvað við sitt hœfi.
...að ÞJÓÐVIUINN er frísklegt fréttablað þar sem saman
fara sívlrk fréttaöflun, öðruvísi fréttamat og lífleg framsetn-
ing?
... að ÞJÓÐVIUINN er eina stjórnarandstöðublaðið sem
eitthvað kveður að og nauðsynlegur öllum sem vilja fylgj-
astmeð?
... að SUNNUDAGSBLAÐIÐ er vandað, forvltnilegt og fjöl-
breytt? -Ómissandi helgariesefni!
... að þér býðst 2ja mánaða kynningaráskrift að
ÞJÓÐVIUANUMfyriraðeins460kr I? Velkominíört
vaxandí lesendahóp. Áskriftarsíminn er 813 33.
DJÓÐVILJINN
Öðruvísi blað!
" ■ j
Laugardagur 2. mars 1985 4
Slippstöðin á Akureyri:
Gerir tilboð í breytingar
á kanadískum fiskiskipum
■ Slippstöðin á Akureyri mun í næstu
viku leggja fram tillögur um aö gera
tilboð í breytingar á 9 fiskiskipum fyrir
kanadískt útgerðarfyrirtæki. Breyting-
ar eru fólgnar í lengingu skipanna til
þess að hægt sé að ísa fiskinn í kassa í
lestum þeirra. Kanadamennirnir hafa
verið að íhuga breytingar þar á um
nokkurt skeið. Ákvörðun um það hefur
þó enn ekki verið tekin.
„Við erum daglega að reyna að afla
okkur verkefna, ekki síst á þessum
síðustu og verstu tímum, þegar kjöl-
festuverkefnin, sem nýsmíðarnar voru,
eru ekki lengur fyrir hendi,“ sagði
Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðv-
arinnar, í samtali við NT.
Gunnar sagði, að hér væri um að
ræða gríðarlega mikil verkefni, ef
Slippstöðin hreppti hnossið, en það
hefði líka verið rætt um það við Kan-
adamennina, að fyrirtækið tæki að sér
hluta verksins og veitti jafnframt tækni-
lega þjónustu.
„Við höfum unnið svona verk undan-
farin ár og þekkjum þau mjög veþ“
Ef verkefni þetta kemur til Akureyr-
ar, er ekki útilokað að fiskkassarnir
verði keyptir þar af fyrirtækinu Plast-
einangrun.
Fyrsta útsending svæðisútvarps á Akureyri:
„Spennandi, mikið um að
vera og mjög gaman"
- sagði Jónas Jónasson
■ „Það var spennandi og sérkennileg-
ur andi ríkti í útvarpshúsinu í morgun,
mikið um að vera og mjög gaman. Stór
og fallegur blómvöndur var kominn frá
mömmu-radíóinu og viö vissum af því
að hlýlega væri hugsað til okkar,“ sagði
Jónas Jónasson, útvarpsstjóri Ríkisút-
varpsins á Akureyri er NT leitaði hjá
honum frétta af fyrstu útsendingu
landshlutaútvarps sem hófst þar nyrðra
kl. 7.30 til 8.00 í gærmorgun.
- Ætli það hafi ekki verið um 13
manns í stjórnherberginu og stúdíóinu
í morgun. Það voru sjónvarpsmenn að
festa upphafið á filmu, blaðamenn og
Ijósmyndarar og svo helstu starfs-
mennirnir sem hafa umsjón með þessu
svæðisútvarpi, eins og ég vil gjarnan
kalla það. Eðlilega varð töluverð trufl-
un af þessu, en tæknimennirnir tóku
öllu með stillingu og allt gekk óbrjálað,
að mestu a.m.k., sagði Jónas léttur í
máli.
Þótt útsendingin stæði aðeins í 30
mínútur kenndi margra grasa í dag-
skránni:
Þau voru með staðbundnar fréttir,
upplýsingar um veður, færð og flug.
Þau ræddu við ágætan mann í Mývatns-
sveit, Friðrik á Skútustöðum. Þau voru
með gest - Guðbjörgu Bjarnadóttur
strætisvagnastjóra hér á Akureyri, sem
ræddi m.a. um starf sitt. Þá fengum við
í fyrsta sinn afmælisbarn dagsins, einn
af helstu borgurum þessa bæjar Val
Arnþórsson, kaupfélagsstjóra, sem er
fimmtugur í dag. Hann var hér í
stúdíóinu hjá okkur og hafði gaman af.
Þá var þetta og í fyrsta skipti sem við
reynum að græða á orðinu - með
staðbundnum auglýsingum bæði lesn-
um og leiknum, sem er nýtt fyrir okkur
og var gaman af. Auk þess var svo
leikin tónlist fyrir alla aldursflokka,
jafnvel þannig að orð var á haft af ungu
fólki í bænum að farið hefði verið
skemmtilegt bil milli þeirra aldurs-
flokka sem hér lifa og dafna. Áferðin á
dagskránni var falleg og það er auðvit-
að von okkar að hún verði ætíð falleg -
til virðingar við hlustendur og til sóma
fyrir okkur, sagði Jónas.
I Varnir og
I öryggismál
I Noregs
| ■ Svenn Stray, utanríkisráð-
I herra Noregs, hefur framsögu á
I fundi Saintaka um vestræna
I samvinnu og Varðbergs mánu-
I daginn 4. mars á Hótel Sögu.
Er fundurinn ætlaður félags-
I mönnum og gestum. þeirra og
I stendur frá kl. 18-20. Umræðu-
I efnið verður: Stefna Norð-
I manna í varnar- og öryggismál-
I um.
Hvort öll útvarpstæki í grenndinni
hafi verið opin kvaðst Jónas ekki þora
að segja um hann vissi ekki hversu
Akureyringar eru nýjungagjarnir. Út-
sendingartímann - kl. 7.30 að morgni
- sagði hann valinn til reynslu eftir
miklar vangaveltur, þó í rauninni sé
þar rennt blint í sjóinn. Forsendan sé
sú, að flestir séu þá komnir úr volgum
rúmunum en þó ófarnir að heiman,
bæði í vinnu og skóla. í náinni framtíð
verði hægt að segja því fólki frá veðri
og vindum, vara við hættum ef ein-
■ Vinnslu í frystihúsunum á Sauðár-
króki lauk á fímmtudag og í gær
stöðvaðist einnig frystihúsið á Hofsósi.
Þar með hafa um 200 manns í Skagafírði
- sem vinna hjá þessum húsum - misst
atvinnuna. Sömu sögu er að segja af
fískvinnslunni á Siglufírði. Hráefni hjá
Þormóði ramma og ísafold þrýtur í dag
og munu þá allt að 100 manns á
Siglufirði verða atvinnulausir.
Útgerðarfélag Skagfirðinga gerir út
3 togara og hafa þeir verið í höfn síðan
flotinn sigldi inn á dögunum. Afli
togaranna skiptist milli frystihúsanna
þriggja, sem starfrækt eru, þ.e. Fisk-
iðjunnar og Skjaldar h.f. á Sauðárkróki
og frystihússins á Hofsósi. Að sögn
Marteins Friðrikssonar, stjórnarfor-
manns Útgerðarfélagsins kemur þessi
stöðvun nú sér mjög illa fyrir frystihús-
in, ekki síst þar sem nokkurt stopp varð
fyrri hluta janúar vegna stöðvunar
hverjar væru, t.d. hálkublettum eða
ófærð. Önnur 30 mínútna útsending
svæðisútvarps hefst svo kl. 18.00 síð-
degis.
- Þessir útsendingartímar og annað
verður svo allt tekið til athugunar í
kring um 1. júní. Þá setjumst við niður
og reynum að átta okkur á hvað helst
hefur farið aflaga, hvað við þurfum að
passa eða bætá og yfirleitt hvort við
getum kannski stæickað við okkur,
lengt útsendingartímann og hugsanlega
komið með helgarútvarp og kannski
næturútvarp - hver veit? Er ekki allt
hægt þegar þú ert ungur?
veiða um jól og áramót. Vinnsla í
frystihúsunum hófst þá um miðjan
janúar og hefur verið nokkuð stöðug
og jöfn síðan, enda afli togaranna verið
þokkalegur og talsvert betri en á sama
tíma í fyrra. Fiskvinnsla hjá frystihús-
unum mun tæpast hefjast fyrr en 7-10
dögum eftir að verkfalli sjómanna
lýkur.
íslenska hljómsveitin:
„Sveiflur“ í Borgarnesi
■ Islenska hljómsveitin endurtekur tón-
leika sína frá því á öskudag í íþróttahúsinu
á Borgarnesi kl. 15 í dag. Yfirskrift
tónleikanna er „Sveiflur" og verður létt
tónlist, dægurtónlist, djasstónlist, lög úr
söngleikjum á Broadway og fleira.
Einleikari verður Einar G. Sveinbjörns-
son fiðluleikari.
■ Algeng og raunaleg sjón fyrir atvinnulaust fískvinnslufólk og aðra bæjarbúa
hinna ýmsu útgerðarbæja landsins - öll fiskiskipin bundin við bryggju. Hér eru
það togarar Siglfirðinga: Siglfírðingur, Sigluvík og Stálvík, fjærst, sem ekki færa
fisk að landi fyrr en a.m.k. viku til 10 dögum eftir að sjómannaverkfallið leysist.
NT-mynd: Örn Þórarinsson.
Áhrif sjómannaverkfallsins:
Um 300Skagf irðingar
hafa nú misst vinnuna
Frá fréttaritara NT í Skagafíröi, Ö.Þ.: