NT - 02.04.1985, Qupperneq 19
flokksstarf
Aðalfundur fulltrúaráðs í
Reykjavík (kjördæmisþing)
Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík
verður haldinn laugardaginn 13. apríl I Hótel Hofi við
Rauðarárstíg.
Dagskrá:
10:00 Skýrsla stjórnar
a) formanns
b) gjaldkera .
10:30 Umræður
11:00 Stjórnmálaviðhorfið
11:30 Borgarmál
11:45 Samvinnuhreyfing - þýðing hennar og hlutverk í
framtíðinni
12:00 Matarhlé
13:00 Hópstarf
a) landsmál
b) borgarmál
c) samvinnumál
15:00 Skýrslur starfshópa
15:30 Umræður- ályktanir
17:30 Lagabreytingar
18:00 Kosningar
19:00 Fundi slitið.
Sauðárkrókur
Fundur verður i Framsóknarhúsinu miðvikudaginn
3. apríl kl. 20.30
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson
koma á fundinn.
Allir velkomnir
Stjórnin
fundir
Aðalfundur
Aðalfundur útgerðarfélags Skagfirðinga Sauðár-
króki fyrir árið 1984 verður haldinn miðvikudaginn
10. apríl n.k. kl. 20.30 í starfsmannasal Fiskiðju
Sauðárkróks Eyrarvegi 18
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
3. Önnur mál.
Útgerðarfélag Skagfirðinga h.f.
Sauðárkróki
tilkynningar
Einbýlishúsalóðir
Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir í Set-
bergi. Um er að ræða allt að 30 lóðir einkum fyrir
einbýlishús. Lóðirnar verða byggingahæfar á
sumrinu 1985. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa
bæjarverkfræðings Strandgötu 6 þar með talið
um gatnagerðargjöld, upptökugjöld, bygginga-
skilmála og fleira. Umsóknum skal skila á þar til
gerðum eyðublöðum sem þar fást eigi síðar en
15. apríl n.k.
Bæjarverkfræðingur
Húsafriðunarnefnd auglýsir hér með eftir um-
sóknum til húsafriðunarsjóðs, sem stofnaður var
með lögum nr. 42/1975 til að styrkja viðhald og
endurbætur húsa, húshluta og annarra mann-
virkja, sem hafa menningarsögulegt eða listrænt
gildi.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. september n.k. til
Húsafriðunarnefndar, Þjóðminjasafni íslands,
Box 1439, Reykjavík á eyðublöðum, sem þar fást.
Húsafriðunarnefnd
Þriðjudagur 2. apríl 1985 19
Utlönd
Liósmyndafyrirsætur
Lelöbeini og þjálfa fyrirsætur fyrir einstök
verkefni.
Tek einnig byrjendur til þjálfunar. Útbý Ijós-
myndamöppur (portfólio) fyrir fyrirsætur.
Sími53835.
Innilegar þakkir færi ég sveitungum mínum,
ættingjum og öðrum vinum, sem glöddu mig
með heimsóknum, góðum gjöfum og kveðjum
á sjötugsafmæli mínu 18. mars síðastliðinn.
Einnig færi ég Búnaðarfélagi Stafholtstungna
og Stafholtssókn alúðarþakkir af sama tilefni.
Sigurður K. Þorbjarnarson,
Neðra-Nesi
SJÁUMST
MED ENDURSKHMI
yUMFERÐAR
RÁÐ
t
Móðir okkar
Kristín Pálmadóttir
Fellsmúla 2
fyrrum húsfreyja í Hnausum Húnavatnssýslu lést á
Landspítalanum 31. mars.
Börnin
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma
Sigríður Lóa Þorvaldsdóttir,
Sigluvík, Vestur-Landeyjum,
sem andaðist 29. mars verður jarðsungin frá Akureyjarkirkju
laugardaginn 6. apríl kl. 14. Bílferð verður frá Umferðamið-
stöðinni kl. 12.
Ágúst Jónsson,
Hildur Ágústsdóttir, Rúnar Guðjónsson
Jón Ágústsson, Hrefna Magnúsdóttir,
Eiríkur Ágústsson, Guðríður Andrésdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma
Guðrún Sigurðardóttir,
Ljósheimum 6, Reykjavfk
fyrrum húsfreyja á Þóroddsstööum
í Ólafsfirði,
lést á heimili sínu 28. mars.
Kveðjuathöfn fer fram i Langholtskirkju þriðjudaginn 9. apríl
kl. 13.30. Jarðsett verður frá Ólafsfjarðarkirkju miðvikudaginn
10. aprílkl. 14.00.
Þórður Jónsson,
Jón Þórðarson, Jóhanna Sveinsdóttir,
Sigurður H. Þórðarson, Guðrún Tómasdóttir,
Ármann Þórðarson, Þórgunnur Rögnvaldsdóttir,
Sigríður Þórðardóttir,
Eysteinn G. Þórðarson, Pamela Þórðarson,
Svanberg Þórðarson, Anna Halldórsdóttir
og barnabörn.
Svíþjóð:
Nýtt meðal gegn
næturþvaglátum?
■ Sænska lvfjafyrirtækið Ferr-
ing AB hefur hafið framleiðslu
á lyfi sem á að lækna næturþvag-
lát barna. Hið nýja lyf, sem
kallast Minirin, er nú selt gegn
lyfseðlum í Svíþjóð. Fullorðnir
sem þjást af óeðlilega miklum
þorsta, og þvagframleiðslu í
kjölfar þess, geta einnig notað
þetta meðal.
Hið virka efni í Minirini,
demopressin, er lilbúin lilið-
stæða hormónsins arginin-vaso-
pressin sem dregur úr þvagláti.
Minirini er sprautað upp í nef
barna áður eii þau fara að sofa.
Við það dregur vérulega úr
þvagframleiðslu næstu 8-12
klukkustundirnar. Ekki hafa
komið í ljós neinar skaðlegar
aukaverkanir, að sögn Iyfja-
fyrirtækisins.
Því er haldið frarn að Minirin
sé einkum hentugt í skamm-
tímameðferð, þar eð áhrifin
hverfa venjulega þegar með-
ferðinni lýkur. Meðalið þykir
því hentugt við sérstakar að-
stæður, eins og skólaferðalög,
dvöl í sumarbúðum o.s.frv. Þá
getur einnig verið gott að nota
það sem hvíld frá annars konar
meðferð og einnig til þess áð
auka sjálfsálit barnsins.
Auðvelt er að kenna börnum
að nota meðalið upp á eigin
spýtur en foreldrum er ráðlagt
að draga úr vökvaneyslu barn-
anna nokkrum tímum eftir að
þau hafa tekið lyfið.
Ekki er talið ráðlegt að gefa
börnum undir fimm ára aldri
þetta meðal.
Næturþvaglát eru algengt
vandamál meðal barna. Um 5-
10% sjö ára barna þjást sökum
þessa en 1-2% fimmtán ára
unglinga eiga einnig við það að
stríða og er það alger.gara á
meðal stráka en stelpna.
Skoðanakönnun í Sovét:
Nauðsynlegt að vita
hvað þjóðin hugsar
Moskva-Rcuter
■ Lesendur flokksblaðs kom-
múnista í suður-sovéska lýð-
veldinu Georgíu eru nú til-
raunadýr í tilraun sem táknar
mini-byltingu á þarlendan mæli-
kvarða eða skoðanakönnun.
„Dragið hring um númer þess
svars sem samræmist skoðun
þinni. Ef ekkert þeira samræm-
ist skoðun þinni skrifaðu þá
þína eigin. Þú þarf hvorki að
skrifa nafn né heimilisfang,“
segir í leiðbeiningum blaðsins.
Þessi aðferð lætur kunnug-
lega í eyrum vesturlandabúa,
sem eru vanir skoðanakönnun-
um um allt mögulegt, frá stjórn-
málum til kynlífs, en íbúum
sovét-lýðveldisins er hún ný
reynsla.
f þessari fyrstu skoðanakönn-
un georgíska blaðsins er fólk
beðið um að tjá sig um afstöðu
sína til einkareksturs fyrirtækja.
„Hve mikil hætta stafar samfé-
lagi okkar af þessari tilhneigingu?
Mikil, talsverð, lítil, engin, erf-
itt að segja?“ spyr blaðið lesend-
ur sína.
„Hvað er það sem heldur
fólki frá slíku?“ og svörin fela í
sér: „rík siðferðiskennd, vit-
neskja um óhjákvæmilega refs-
ingu og skortur á viðskiptahæfi-
leikurn."
Möguleikarnir sem blaðið
gefur lesendum sínum eru mjög
víðtækir en endurspegla um leið
raunverulegt líf í Sovétríkjun-
um og óvenjulegan vilja til að
ræða það.
Á sjöunda áratugnum varð
ráðamönnum í Sovétríkjunum
Ijóst mikilvægi þess að fylgjast
með vilja þjóðarinnar, en þá
var Krútsjoff við völd. Á
Bresneff-tímanum dró úr þeim
áhuga en Andropof gagnrýndi
aftur á móti iðnaðarforkólfana
fyrir það að framleiða vörur
sem sátu kyrrar á hillum versl-
ana á meða skortur var á öðrum
og kenndi hann um ófullnægj-
andi markaðsrannsóknum.
En skoðanakönnun af því tæi
sem hér að ofan greinir er nýtt
fyrirbæri í sovésku þjóðlífi.
Shevarnadze, flokksleiðtogi í
Gerorgíu sem stendur fyrir
þessari könnun og talinn er eiga
framtíðina fyrir sér í skjóli Gor-
basjofs, hefur ítrekað látið
hafa eftir sér að það sé nauðsyn-
legt að vita hvað þjóðin sé.að
hugsa.
Gorbasjov kapítal-
isti og kerfiskarl
- að sögn albanskra kommúnista
Vín-Reuter
■ í grein í albaínska dagblað-
inu Zeri 1 Popullit er Mikhail
Gorbasjov kallaður kerfiskarl
sem sé afsprengi þess kapítalska
skipulags sem nú hafi að fullu
verið endurreist í Sovétríkjun-
um.
Albanskir kommúnistar hafa
verið í andstöðu við stjórnvöld
í Sovétríkjunum allt frá því á
sjöunda áratugnum. Þeir hafa
haldið uppi stöðugum árásum á
Sovétríkin fyrir „endurskoðun-
arstefnu og sósíalheimsvalda-
stefnu“. Sjálfir telja þeir sig
fylgja ómengaðri stefnu marx-
lenínismans og Albínu eina
sanna kommúnistaríkið.
Sovétmenn hafa að undan-
förnu hvatt Albani til bættra
samskipta við önnur sósílísk
ríki en Albaniar hafa látið allar
slíkar umleitanir sem vind um
eyrun þjóta og túlka þær sem
tilraunir til að draga þá inn í net
sósíalheimsvaldastefnunnar.
Albanir spá því að stefna
Sovétríkjanna breytist í engu
þrátt fyrir hinn nýja leiðtoga og
mannabreytingar sem sé ætlað
að „hylja mistök hinnar heims-
valdasinnuðu árásargjörnu
gagnbyltingarsinnuðu andmar-
xísku stefnu“.