NT - 15.05.1985, Blaðsíða 8
áfengs ols i *»
VJm 600 þi
bárust inn í
Fríhöfnina á
ári, .
viU hækka upph
tckjum ríkisins
Miðvikudagur 15. maí 1985 8
eiórneysía 15-20 Mnr
á'&endingæ
- samt et bannað að se'ia
álengt 61 í landmu _
. Bjómeysla á hve^n s eno-
íslMiskuin löguin heimiló
in komt
nema 1
meirihiuta
'"h'iu hafi hlotiö samþykki
Æ mkvæða í þjððarat-
sem
fram tan
þessu
kvæöagreiðslu a pessu
eÍ^ S oaKr"st n HaUctórsdóttir
• 0g Kristm^^ ;(f skaU
Nokkur orð um ölóra
■ Hinn 7. dag maímánaðar
standa þessi orð á forsíðu Ns
Ts:
„Spurningin sem alþingis-
menn velta nú fyrir sér þessa
dagana er hvort búa eigi við
óbreytt ástand í bjórmálum
þjóöarinnar eða leyfa sölu
áfengs öls í verslunum
ÁTVR."
Hér er sagan hálfsögð. Það
er um fleira að ræða en þessar
tvær leiðir. Þingmenn hljóta
að hugleiða hvort ekki eigi að
stöðva bjórsöluna í Fríhöfn-
inni. Hún er hvort eð er ekki í
samræmi við gildandi lög.
Blaðið segir að 600 þúsund
lítrar öls hafi borist inn í landið
um Fríhöfnina á síðasta ári.
Þann straum geta þingmenn
stöðvað.
Þá segir blaðið að fram hafi
komið í máli Gunnars Schrams
að smyglað öl á síðasta ári liafi
numið 10 lítrum að meðaltali á
hvern landsmann „að áliti sér-
fræðinga".
Blaðinu láist að geta þess
hverjir þessir sérfræðingar í
smygli eða smyglmálum eru.
Sjálfur er Gunnar Schram sér-
fræðingur í þjóðarrétti.
Sumir þingmenn a.m.k.
muna það að hjá hæstvirtri
ríkisstjórn liggja tillögur
stjórnskipaðrar nefndar sam-
kvæmt þingsályktun um mótun
á stefnu í áfengismálum, og sú
stefna á að miða að minni
drykkjuskap. Til eru alþm.
sem vilja að því máli sé fylgt
eftir. Hér er um fleira en
tvennt að velja.
Þá finnst mér ástæða til að
rita fáein orð í tilefni af grein
S. Alb. 8. maí. Honum finnst
óhæfa að hafa lög sem al-
menningur virði ekki. Sam-
kvæmt því ættum við hvorki að
hafa umferðarlög né landhelg-
islög neitt í líkingu við það sem
er að ekki sé nú minnst á
skattalög. Hvernig ætlar S.
Alb. að komast af með þau lög
ein sem enginn vill brjóta?
Og hvað á að segja um lög
sem banna gripdeildir, meið-
ingar og ofbeldi? Fer S. Alb.
ekki að efast um réttmæti
þeirra?
Þetta kjaftæði um lög sem
ekki njóta virðingar er siðfræði
bófa og vanmetakinda ýmis-
konar.
Skyldi S. Alb. hafa heyrt
þess getið að brennivíni og
nánast óblönduðum vínanda
væri smyglað til þessa lands?
Skyldi hann hafa frétt um ein-
hverjar tilraunir til að koma
öðrum vörum inn í landið
framhjá tollgæslunni? Hvar
hefur maðurinn verið, hvað
hefur hann heyrt og lesið ef allt
slíkt hefur farið framhjá
honum?
Ekki mun ég þræta við S.
Alb. um það hvort allir kunni
fótum sínum forráð, en sé svo
þurfum við varla umferðarlög.
Ég mun heldur ekki leggja hér
dóm á það hvort nokkurn tíma
sé þörf á að hafa vit fyrir
mönnum en á mörgum sviðum
er það reynt. Heilbrigðis-
stjórnin skipar að bólusetja
fólk, og enn rekum við okkur
á umferðarlögin.
Um skoðanakannanir er
það að segja að ekki er nóg að
vita svörin, heldur hvernig var
spurt. Ég veit ekki hvað meiri-
hluti þjóðar vill í bjórmálum
en þar eru margar leiðir að
velja. Hins vegar trúi ég því að
bjórmenn hafi um skeið verið
í sókn á liðnum misserum en
sú sókn hafi verið stöðvuð. Þar
hygg ég að mestu hafi ráðið
rökstuðningur manna sem
byggja varnaðarorð sín á
reynslu og þekkingu. Ég held
að þeir hafi snúið vörn í sókn.
Um mynd þá sem birtist
með ritgerð S. Alb. fjölyrði ég
ekki. Ber að skilja hana svo að
blaðstjórnin sé að múta mönn-
um með bjór eða bjórlíki?
Textann skal rifja upp. Hann
var þessi: „Strákar, NT splæsti
nokkrum kollum á ykkur, nú
er að standa sig".
Hræddur er ég um að svona
myndbirting og ummæli sé
næsta framarlega í röð þess
sem gert er Alþingi og alþing-
ismönnum til svívirðingar á
almannafæri. Oft er þörf að
vara sig á vinum sínum.
Halldór Kristjánsson.
Svar uin hæl:
Nokkur orð vegna bréfs
Halldórs Kristjánssonar
■ Það er að sönnu ánægju-
legt að lesa bréf það sem
Halldór hefur ritað vegna um-
fjöllunar NT um „bjórmálið"
svokallaða. Halldór hefur fast-
mótaðar skoðanir á áfengis-
málum og hefur aldrei verið
feiminn við að koma þeim á
framfæri, og er slíkt virðingar-
vert. í bréfi sínu bendir hann á
nokkur atriði sem honum
finnst eitthvað athugavert við í
grein er ég ritaði í NT undir
yfirskriftinni „Eigum við að
virða lögin ef löggjafinn virðir
okkur ekki".
í grein minni lýsti ég þeirri
skoðun minni að lög sern þorri
almennings virti ekki væru,
slæm lög og að þeim bæri að
Skrifíd til:
NT
Lesendasíðan
Síðumúla 15108 Reykjavík
...eða hringið í síma 686300
millikl.1l3og 14
Af sviplegum dauðdaga
- kattar sem var heldur spenntur
Fra freturitar.
breyta. Athugasemd Halldórs
er sú að þá eigi að afnema
umferðarlög, landheigislög,
skattalög og lög um ofbeldi,
gripdeildir og meiðingar.
Þessari athugasemd er eigin-
lega óþarft að svara. Öll ofan-
greind lög njóta mun meiri
virðingar en „bjórbannið" svo
kallaða. Næsta fátítt mun að
einhver neiti sér um bjór vegna
þess að hann sé bannaður,
heldur ræður smekkur eða
efnahagur þar meira um.
Ég leyfi mér að fullyrða að
þrátt fyrir að ýmsir liðir um-
ferðalaga séu þráfallt brotnir,
þá eru umferðarlög lagabálkur
sem allur þorri almennings
virðir og er svo einnig um aðra
þá lagabálka sem Halldór
nefnir. í því sambandi má
minna Halldór á að brot á
landhelgislögum eru allsjald-
gæf orðin.
Hvort það lýsir siðfræði bófa
og vanmáttakinda að halda því
fram að lög sem brjóta í bága
við siðferðiskennd alls almenn-
ings eigi að afnema, veit ég
ekki, en ef það er vanmáttar-
kennd og bófaháttur að trúa því
að í lýðræðisríki eigi „lýður-
inn" að hafa nokkur áhrif á
lagasetningu, þá er greinilegt
að ég hef misskilið allhrapa-
lega grundvallarhugsun lýð-
ræðis.
Halldór spyr hvar ég hafi
verið meðan öllum þessum
áfenga bjór hafi verið smyglað
til landsins. Svarið er einfalt,
ég hef verið hér, og veit að
„allt þetta öl“ hefur selst og
veit þess vegna að fólk ber
mjög takmarkaða virðingu fyr-
ir því bjórbanni sem hér ríkir.
Vera má að myndartexti sá
er Halldór gerir að umtalsefni
geti orkað tvímælis og valdið
misskilningi, en myndin var
tekin er NT fékk flutnings-
menn bjórfrumvarpsins til
skrafs á bjórstofum borgarinn-
ar, og bauð þeim þar upp á
veitingar.
Ég þakka Halldóri tilskrif
hans og vona að þessi orða-
skipti okkar verði til þess að
halda umræðu um áfengismál
á lofti og hvetji almenning til
að taka afstöðu í þeim deilum
sem fara fram í þingsölum.
S.AIb.
. N*] á t.RÍItóloðom. Þórfwlli Pál.syni
biíun. „
Af kettinum Högna
í Háspennugerði
Til Dísu á Höfn.
■ Undirritaður hefur ekki
lagt það fyrir sig að rita minn-
ingargreinar. Það urðu því sár
vonbrigði að fyrsta viðleitni
mín í þá átt skyldi fara fyrir
brjóstið á þér, Dísa mín, svo
að þú sæir þig tilknúna að gera
athugasemd í lesendadálki NT
1. maí s.l. Vegna þess að
Grétar Jónsson rafveitustjóri
hefur, að nokkru leyti ómak-
lega, orðið fyrir ásökunum
þínum um framsetningu frétt-
arinnar um andlát Högna, vil
ég að eftirfarandi komi fram:
Grétar sagði mér og Þórhalli
Pálssyni fréttaritara NT á Eg-
ilsstöðum frá afdrifum Högna,
nokkurn veginn orðrétt eins
og fram kemur í fréttinni, og
klykkti út með tveim fyrstu
línum vísunnar, sem ég bætti
síðan við og birtist á forsíðu
NT 23. apríl s.l. með stórgóðri
mynd Þórhalls, en við höfum
báðir farið á vettvang eins og
góðum fréttamönnum sæmir í
fylgd Grétars. Að myndatöku
lokinni og undir þeim áhrifum,
sem ég varð fyrir við að sjá
verksummerki á slysstað, varð
svo minningarkvæðið til.
Það er ekki rétt hjá þér,
Dísa mín, að tala um tilfinn-
ingaleysi í sambandi við birt-
ingu myndarinnar af honum
Högna og erfiljóðið. Ég get
fullvissað þig um að greyskinn-
ið a’tarna kvaldist ekkert á
banastundu. Hins vegar getur
hvorugt okkar sagt til um það,
hve oft honum var búið að líða
verulega illa þá mánuði eða ár,
sem hann hafði borið titilinn
útileguköttur, (eins og reynt er
að benda á í 3.-6. línu marg-
nefnds erfiljóðs).
Ekki efa ég, Dísa mín, að þú
ert dýravinur. Ég þekki marga,
sem titla sig svo. Það hefur þó
hent suma þeirra að missa frá
sér, eða hrekja fallegustu kisu-
skinn út á vergang og í útlegð,
í stað þess að búa þeim gott
heimili. Er illt til þess að vita
að dýr, sem í eðli sínu kunna
best við sig í hlýju og notalegu
umhverfi og líður aldrei betur
en þegar þeim er strokið af
vinahöndum, telja það skársta
kostinn að leggjast út. Eitt-
hvað hlýtur að vera bogið við
uppeldið á slíkum bæjum.
Gætum við, Dísa mín, ekki
orðið sammála um það að
leyfa okkur að vona, að mynd-
in og fréttin af ævilokum
Högna verði stórt skref í þá átt
að bæta réttarstöðu katta og
auka góðan viðurgjörning við
þá. E.t.v. fyndist honum
Högna heitnum, að hann hefði
þá ekki fórnað '/9 hluta af
lífakvóta sínum til einskis.
Þinn einlægur
Björn Hafþór Guömundsson,
3521-7606
Heiðmörk 3,
755 - Stöðvarfirði.
E.S.
Grétar Jónsson hefur beðið
mig að koma eftirfarandi á
framfæri:
Til Dtsu.
Sumt fer miður hérna megin
grafar
sem má ekki leggjast þungt á
sinnið
sagt ég get þér eitt án minnstu
tafar
sama var mér ekki um „kisa“-
skinnið
Enginn vildi eiga þessa rýju
út var borinn. agnarlítið peð
eflaust þráði alla daga hlýju
og að vera öðrum skepnum
með.
Er við „Dísa" yfir móðu förum
og þá máske finnum Högna
þinn
skal ég gjarnan sitja fyrir
svörum
er syndareikning jafnað hefi
minn.
Þinn einlægur
G.Jónsson.
E.e.s.
Annar kunningi minn, sem
vegna starfs síns hefur oft feng-
ið í sig rafmagnsstraum, biður
fyrir svohljóðandi kveðju
Trúlega Dísa teldist góð
þá töltir burt af hnettinum,
ef hún fengi erfiijóð
eitthvað svipað kettinum.
B.j.H.G.