NT - 28.06.1985, Page 2
lít
Sjónvarp föstudag kí. 22.05:
Falla svona konur
karlmönnum í geð?
■ Föstudagsmyndin er
bandarísk sjónvarpsmynd,
gerð eftir kunnri smásgöu Dor-
othy Parker, „Big Blonde",
sem hefur verið gefið nafnið
Með Ijósa lokka á íslensku.
Sýning hennar hefst kl. 22.05.
Þó að atburðarrásin eigi að
gerast fyrir rúmum 60 árum,
gæti hún átt sér stað í dag. Þar
segir frá ungri Ijóshærðri fyrir-
sætu, ímynd þeirra kvenna sem
eiga allt sitt undir því að falla
karlmönnum í geð. Dorothy
Parker (1893-1967), sem bjó
ein mestan part ævinnar við
fjárhagslegt sjálfstæði, vclti
mikið vöngum yfir þessu fyrir-
bæri og þeim hörmungum sem
það getur haft í för með scr
fyrir konuria. Þessar vanga-
veltur koma fram í mörgum
sagna hennar.
Sally Kellerman leikur aðal-
persónuna og þá 2 menn sem
urðu mestir áhrifavaldar í lífi
hennar leika þeir John Lit-
hgow og George Coe. Peg
Murray leikur vinkonu
hennar, sem hefur til að bcra
þá hörku, sem Dorothy Parkcr
álítur bestu vörn sumra
kvenna. Leikstjóri er Kirk
Browning. tónlistina útsctti og
stjórnar Glenn Osser, en þar
er m.a. að finna yfir 30 lög frá
þeim tíma, þegar sagan á að
gerast.
Þýöandi er Kristrún Þórðar-
dóttir.
■ Aöalpcrsónun umkringd
aðdáenduin.
■ Vigfús Hallgrímsson við starf sitt í Gamla Kompaníinu.
NT-mynd: Sverrir
■ Vigfús Hallgrímsson er
fæddur 13. ágúst 1955 á Höfn
í Hornafirði. Hann fór fjög-
urra ára í Heyrnleysingjaskól-
ann og var þar við nám til 10
ára aldurs. Þá fór hann í
Barnaskóla Garðahrepps og
síðar í Gagnfræðaskólann í
Garðahreppi, en þangað flutt-
ist hann með foreldrunt sínum
5 ára.
Vigfús lauk iðnnámi frá lðn-
skólanum í Hafnarfirði 1978
og starfaði síðan í Trésmiðj-
unni Meið og lauk sveinsprófi
í húsgagnasmíði 1979. Hann
hefur stundað þá iðn síðan í
Meið og síðar í Gamla Komp-
aníinu.
Er við á NT hringdum í
Gamla Kompaníið til að spyrj-
ast fyrir um hvaða tími hentaði
til að senda þangað ljósmynd-
ara til að taka mynd af Vigfúsi,
kom í ljós, að þar vinna 3
heyrnarskertir húsgagnasmiðir
- sem allir hafa verið við
fréttflutning í táknmáli í sjón-
varpi - þeir Vigfús Hallgríms-
son, Jónas Jóhannsson og
Gunnar Amarson (Gunnar starf-
aði þar 1981-83). I viðtali við
fyrirtækið kom fram, að þessir
menn hafa, allir sem einn,
komið sér mjög vel þar, eru
samviskusamir og góðir verk-
menn og vinsælir á vinnustað.
Vigfús hóf að segja tákn-
málsfréttir í sjónvarpinu í febrú-
ar 1984.
Unnusta Vigfúsar er Edda
Björk Sigurðardóttir og þau
eiga eina dóttur, Arndísi Jónu,
sem er tveggja ára.
Helstu áhugamál Vigfúsar
eru íþróttir, einkum handbolti
Sjónvarp laugardag kl. 16.
Bein útsending:
Páfamessa í Péturskirkjunni
■ Ekki eiga allir þess kost að
sækja heim Péturskirkjuna, en
þar vildu margir sækja messu
hjá sjálfum páfanum, þó að
þeir séu ekki kaþólskir. Á
morgun gefst íslenskum sjón-
varpsáhorfendum væntanlega
kostur á að vera viðsiaddir
athötn þar, þegar Jóhannes
Páll II. páfi vígir biskupa og
erkibiskupa til embætta og flyt-
ur ræðu.
Við vígslumessuna flytur
Fílharmóníusveit Vínarborgar
ásamt tveimur kórum og ein-
söngvurum „Krýningarmessu“
eftir Wolfgang Ámadeus Moz-
art undir stjórn Herberts von
Karajan.
Ætlunin er að senda þessa
páfamessu beint um gervihnött
frá Vatíkaninu, Róm, en fáist
ekki gervihnattasamband
verður í staðinn hafinn íþrótta-
þáttur kl. 16.
■ Ef gervihnattasamband
næst verður sjónvarpað beint
frá páfamessu í Pétuskirkj-
Föstudagur 28. júní 1985 16
sem ekki fékk að
halda hér tónleika!
■ Sænska rokkhljómsveitin
Imperiet er íslendingum að
góðu kunn, enda hefur hún
lagt leið sína hingað til lands.
Hún lék hér á Norrokk-tón-
leikum 1984 og kom hér við á
leið sinni vestur um haf í vor,
um hvítasunnuna, og hugðist
þá halda hér aðra tónleika.
Ef margt fer öðru vísi en
ætlað er. Dvöl þeirra hér í vor
bar upp á laugardaginn fyrir
hvítasunnu og voru dregin
fram 60 ára gömul lög um
almannafrið á helgidögum
þjóðkirkjunnar, sem komu í
veg fyrir að af hljómleikunum
gæti orðið.
Hljómsveitin var í vetur á
löngu hljómleikaferðalagi um
Norðurlönd, þar sem hún hélt
alls 60 tónleika, alla fyrir fullu
húsi.Þeir sem kunnugir eru
segja að Bandaríkjaferð þeirra
hafi líka gengið mjög vel, enda
sé þessi vinsæla hljómsveit sí-
fellt á uppleið. Það er þess
vegna alveg vonlaust að fá
hana til að leika hér á næst-
unni, hún er bókuð langt fram
í tímann.
Annað kvöld kl. 22.30 verð-
ur sýnd í sjónvarpinu upptaka
sem gerð var á tónleikum
hljómsveitarinnar { ferðinni í
vetur, nánar tiltekið voru þess-
ir tónleikar haldnir í Noregi og
voru þeir 3. í röðinni af 60.
■ HI.
á ieið
hvítasi
leikah;
laga s<
tekin á
stað þt
Hann á f jölmörg á-
hugamál og flytur
fréttir á táknmáli
ogbadminton. Hann hefurlíka
mikinn áhuga á skák. Vigfús
hefur verið í íþróttafélagi
heyrnarlausra (nú varaformað-
ur þess) og í Skákfélagi heyrn-
arlausra. Hann var ritstjóri
Tímarits Heyrnarlausra árin
1977-1981.
Sjónvarp föstudag kl. 19.50:
Sjónvarp laugardag kl. 22.30:
Hljómsveitin
Imperiet
Föstudagur
28. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Sigurðar G. Tómassonar frá kvöld-
inu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Anna Maria Ögmundsdóttir, Flat-
eyri talar.
9.00 Fréttir
9.0r Morgunstund barnanna: „Litli
bróðir og Kalli á þakinu" eftir
Astrid Lindgren. Sigurður Benedikt
Björnsson les þýðingu Sigurðar
Gunnarssonar (9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
10.45 „Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þáttinn. RÚVAK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14,00 „Hákarlarnir“ eftir Jens
Björneboe Dagný Kristjánsdóttir
þýddi. Kristján Jóhann Jónsson
les (18).
14.30 Miðdegistónleikar a. „Silki-
stiginn", forleikur eftir Gioacchino
Rossini og b. Ungversk rapsódía
nr. 2 eftir Franz Liszt. Lamoureux-
hljómsveitin leikur; Roberto Benzi
stjórnar. c. Pianókonsert nr. 1 í
b-moll op. 32 eftir Xaver Schar-
wenka.
15.15 Léttlög
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Á sautjándu stundu Umsjón:
Sigríður Ó. Haraldsdóttir og Þor-
steinn J. Vilhjálmsson.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
17.35 Frá A til B Létt spjall um
umferðarmál. Umsjón: Björn M.
Björgvinsson og Tryggvi Jakobs-
son. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynning-
ar. Daglegt mál. Valdimar Gunn-
arsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. I miðju straum-
kastinu Helga Einarsdóttir lýkur
lestri æviminninga Helgu Níels-
dóttur úr bókinni „Fimm konur"
eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson. b.
Kórsöngur Karlakór Keflavikur
syngur undir stjórn Sigurðar
Demetz Franzsonar.
c. Hestamenn í Reykjavík og
reiðskjótar þeirra Baldur Pálma-
son les úr minningabók Daníels
Danielssonar Ijósmyndara.
21.30 Frá tónskáldum
22.00 Hestar Þáttur um hesta-
mennsku í umsjá Ernu Arnardótt-
ur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöidsins.
22.35 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. RÚVAK
23.15 Kammertónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands í Bústaða-
kirkju 31. janúar s.l. Stjórnandi og
einleikari: Jaime Laredo. a. Conc-
erto grosso i G-dúr op. 6 nr. 1 eftir
Hándel. b. „Poemi" fyrir fiðlu og
strengjasveit eftir Hafliða Hall-
grímsson. - Frumflutningur undir
stjórn tónskáldsins. c. Fiðlukonsert
í a-moll eftir Bach. d. Sinfónía í
c-moll (nr. IX) eftir Mendelssohn. -
Kynnir: Jón Múli Árnason. 0050.
Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp
frá Rás 2 til kl. 03.00.
Laugardagur
29. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.20 Leikfimi. Tónleikar.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Valdimars Gunnarssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð -
Torfi Ótafsson talar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga, frh.
11.00 Drög að dagbók vikunnar
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Ligga ligga lá Umsjónarmað-
ur: Sverrir Guðjónsson.
14.20 Listagrip Þáttur um listir og
menningarmál i umsjá Sigrúnar
Björnsdóttur.
15.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“
Umsjón: Sigurður Einarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Martha
Argerich leikur pianótónlist eftir
Frédéric Chopin. a. Sónata nr. 3 í
h-moll op. 58. b. Pólonesa nr. 7 í
As-dúr op. 61.
17.00 Fréttirá ensku
17.05 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
17.50 Síðdegis í garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Sumarástir Þáttur Signýjar
Pálsdóttur. RÚVAK.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
20.30 Útilegumenn Þáttur i umsjá
Erlings Sigurðarsonar. RÚVAK.
21.00 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
21.40 „Leyndarmál“, smásaga eftir
Bemard MacLaverty Erlingur E.
Halldórsson les þýðingu sína.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Náttfari - Gestur Einar Jónas-
son. RÚVAK.
23.35 Eldri dansarnir
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón Örn Marinósson
00.50. Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
30. júní
8.00 Morgunandakt Séra Ólafur
Skúlason dómprófastur flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
101-strengur leikur lög eftir Steph-
en Foster.
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður - Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Prestsvígsla i Dómkirkjunni
(Hljóðrituð 16. þ.m.). Biskup
Islands, herra Pétur Sigurgeirs-
son, vígir Helgu Soffíu Konráðs-
dóttur cand. theol. til aðstoðar-
prestsþjónustu í Fella- og Hóla-
sókn í Reykjavíkurprófastsdæmi
og Sigurð Ægisson cand. theol. til
Djúpavogsprestakalls í Austfjarða-
prófastdæmi. Vigsluvottar: Hólm-
fríður Pétursdóttir, sr. Hreinn Hjart-
arson, sr. Kristinn Hóseasson og
sr. Ólafur Skúlason. Séra Agnes
M. Sigurðardóttir þjónar fyrir altari.
Organleikari: Marteinn H. Friðriks-
son. Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Um garða og gróður Minnst
100 ára afmælis Garöyrkjufélags
íslands. Umsjón: Ágústa Björns-
dóttir.
14.30 Miðdegistónleikar Félagar i
Fílharmóniusveitinni í Berlín leika.
a. Oktett í Es-dúr op. 20 eftir Felix
Mendelssohn. b. Hymnus cp. 57
eftir Julius Klengel.
15.10 Milli fjalls og fjöru á Vest-
fjarðahringnum Umsjón Finnbogi
Hermannsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir
16.20 Leikrit „Raddir sem drepa“
eftir Poul Henrik Trampe fimmti
þáttur.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Síðdegistónleikar a. „II dolce
suono“, aría úr óperunni „Lucia de
Lammermoor" eftir Gaetano Don-
izetti. Edita Gruberova syngur. Sin-
fóniuhljómsveit Útvarpsins í
Munchen leikur; Gustav Kuhn
stjórnar. b. „Espana", rapsódía
eftir Emanuel Chabrier, og svíta
nr. 2 úr „Þríhyrnda hattinum" eftir
Manuel De Falla. Fíladelfíuhljóm-
sveitin leikur; Riccardo Muti
stjórnar. c. „Schéhérazade" eftir
Maurice Ravel. Elly Ameling
syngur. Sinfóníuhljómsveitin i San
Francisco leikur; Edo de Waart
stjórnar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.