NT - 12.09.1985, Page 1
NEWS SUMMARYINENGUSH SEEP. 7
árekstur
-mikid eignatjón
■ Tjón varö á fimm bílum, og
einn ökumaður var fluttur á
slysadeild í gærmorgun, eftir
harðan árekstur á mótum Fram-
nesvegar og Holtsgötu. Árekst-
urinn varð með þeim hætti að
pallbifreið var ekið . norður
Framnesveg og fólksbifreið
vestur Holtsgötu. Bílarnir
skullu harkalega saman á gatna-
mótunum. Eftir áreksturinn
köstuðust þeir hvor í sína áttina
og lentu á þremur kyrrstæðum
bifreiðum. Fjarlægja varð tvo
bílana með kranabifreið. Annar
ökumaðurinn skarst í andliti og
var fluttur á slysadeild. Eigna-
tjón varð mikið.
Samkomulag um
nýtingarbónus
- en ósamið um önnur atriði
■ Á bónussamningafundi í
gær mun að mestu hafa náðst
samkomulag um framkvæmd
nýtingarbónusins. þ.e. að taka
upp fasta nýtingu, með því
skilyrði þó að samkomulag ná-
ist um önnur atriði, sem enn er
ósamið um. Samkvæmt heim-
ildum NT mun gert ráð fyrir að
fullur nýtingarbónus náist við
93% borðanýtingu, svipað og
tíðkast hefur á Húsavík. Út-
færsla og útreikningar eru þó
nokkuð frábrugðnir að öðru
leyti. Reiknað mun með að hið
nýja kerfi verði til reynslu í 6
mánuði.
i Hitt stóra málið - 30 krónu
bónusálagið - er enn óleyst.
Samninganefnd Verkamanna-
sambandsins breytti þeirri
kröfu sinni að vísu í gær - að
afloknum framkvæmdastjórn-
arfundi Verkamannasam-
bandsins - þannig að nú er
farið fram á hækkun bónus-
grunnsins, sem ekki hefur verið
gert áður, en bónusálagið skuli
lækkað á móti.
Eftir að þessi krafa kom
fram var fundi frestað fyrir
kvöldmat, en síðan átti að
halda fundi áfram fram eftir
kvöldi. Samninganefndarmenn
sögðu stöðuna mjög tvísýna.
Ýmislegt benti til að samningar
geti náðst áður en langt um
líður, en einnig sé fyrir hendi
sú hætta að allt geti farið í
miklu verri hnút en nú er.
Elstu Ijósmyndir sem vitað er um frá íslandi fundnar í Frakklandi:
NT bíla-
markað-
urá4
síðum
ídag
-sjá opnu
Selfoss:
Vélhjóla-
slys
- unglingur fótbrotnar
■ Unglingspiltur á léttu bif-
hjóli fótbrotnaði í gær eftir að
hafa lent í árekstri við fólks-
bifreið á gatnamótum Eyrar-
vegs og Engjavegs á Selfossi um
kl. 18.00 í gærkvöldi. Ekki er
vitað hver tildrögin að slysinu
voru nema að pilturinn keyrði á
bifreið og kastaðist síðan á aðra
nærliggjandi bifreið. Var piltur-
inn flultur á slysadeild.
Hugsanlega elstu varðveittu
Ijósmyndir frá Norðurlöndum
kom hingað til lands árið 1847
með jarðfræðileiðangri og
dvaldist hér í 9 mánuði. Að
sögn ívars pissurarsonar
framkvæindastjóra safnsins
eru þetta elstu ljósmyndir sem
vitað er til að teknar hafi
verið hérlendis og hugsanlega
elstu varðveittar ljósmyndir
frá Norðurlöndum. Myndirn-
ar eru í vinnslu hjá Ljós-
myndasafninu og verður
e.t.v. unnt að birta þær al-
menningi í næstu viku.
Ljósmyndasafnið hefur
haft nokkur tengsl við Frakk-
land undanfarin ár og í gegn-
um þau tengsl komst ívar
Gissurarson á snoðir um að
hugsanlega væru til gamlar
myndir frá íslandi í skjala-
safni einu í París. „En það
þegar íslenskir .safnamenn
tala um gamlar myndir þá
ímynda þeir sér að þær séu frá
tímabilinu 1880-1900,“ sagði
ívar í samtali við NT í gær.
Franskur ljósmyndari,
Christian Rogers, leitaði
myndirnar uppi og kom með
þær til Islands. „Vinur minn,
sem var að vinna að rannsókn-
um varðandi Egyptaland á
þessu safni, sagði mér, að hann
hefði rekist á ýmislegt sem
snerti ísland. Ég fór og kannaði
málið og þá fann ég þessar tvær
rnyndir," sagði Christian Rog-
ers í samtali við NT, en hann
dvelst á íslandi um þessar
mundir.
Gera má ráð fyrir að Desc-
loiseaux hafi tekið fleiri
myndir hérlendis en ógerlegt
er að segja um hvar þær eru
niðurkomnar. Vitað er að
Þjóðverjar tóku setur ættar
hans herskildi í seinni heim-
styrjöldinni og höfðu margt
muna á brott með sér og
hugsanlega prýða myndir frá
Reykjavík á árunum 1847 og
1848 myndaalbúm fyrrver-
andi þýskra hermanna.
Haldið verður áfram frek-
ari eftirgrennslunum og að
sögn ívars Gissurarsonar eru
væntanlegar frá Frakklandi ít-
arlegar upplýsingar um leið-
angurinn, sem Descloiseaux
kom með til íslands fyrir nærri
140 árum.
- sýna Kvosina og Grjótaþorpið árið 1848
■ Ljósmyndasafnið í Reykja tvær ljósmyndir sem teknar Hér er um að ræða yfirlits- þorpið og höfnina, teknar af
vík hefur nú undir höndum eru í Reyicjavík árið 1848. myndir yfir Kvosina, Grjóta- Descloiseaux nokkrum, sem
■ „Mér líst mjög vel á málverkið,“ sagði Halldór Laxness „og það
er þama geysileg orusta neðanmáls þar sem þeir eru í svona fínum
stígvélum og einn í matrósafötum.“ NT-myndír: Róbcrt.
og sýnir í Norræna húsinu
■ Listamaðurinn Erró, Auður og Halldór Laxness.
■ Erró er kominn til landsins
og opnar sýningu á olíumálverk-
um í Norræna húsinu á laugar-
dag. Það er alltaf meiriháttar
listviðburður þegar Erró-sýning
er haldin á íslandi enda er Erró
heimskunnur málari.
Á þessari sýningu eru 31 ol-
íumálverk sem unnin eru á sl.
þremur árum og eru allar mynd-
irnar til sölu. Auk þess mun
Erró árita plaköt sem verða til
sölu og vönduð sýningarskrá
verður á boðstólum. Á sýning-
unni eru aðallega 3 myndasyrp-
ur: Stúlkurnar frá Marokkó,
ljósmyndir frá Kína og 1002
nætur sem er framhald af mynda-
syrpunni 1001 nótt sem sýnd
var í Norræna húsinu 1982.
Málverk af Halldóri Laxness er
einnig á sýningunni en málarinn
hefur lofað Reykjavíkurborg
verkinu.
Erró kominn
til íslands