NT - 22.09.1985, Side 18

NT - 22.09.1985, Side 18
,1.9 Sunnudacjur 22. septembQr NT „Eg hef á mér glæsilegt o Rætt við Jón Þ. Árnason sem aldrei hefur legið á skoðunum sínum og lokið hefur 106. greininni um „Lífríki og lífshætti“ ■ „Ég hef alltaf haft ákaflega mik- inn áhuga á stjórnmálum og þjóðfé- lagsmálum," segir Jón t>. Arnason í upphafi máls síns. „Og ef ég á að segja þér frá hvernig áhugi minn á umhverfismálum og náttúruvernd kviknaði, sem barni, þá má vera að það sé dálítið broslegt eftir svo mörg ár. Ég er fæddur á Karlskála við Reyðarfjörð, en er alinn upp á Eski- firði frá tveggja ára aldri. A Eskifirði. var bátur sem hét Sæfari og geröur út' þaðan. Skipstjóri var Friörik Steins- son. Svo var það eitt vorið að bátur- inn, sem var línuveiðari, kom að> landi með áttatíu skippund af fiski, sem var skipað upp á bryggjuna, og hver maður sem vettlingi fékk valdið fór í aðgerð. Það var brakandi sólskin og reið á að koma fiskinum sem fyrst í salt. Meðal þeirra sem að þessu unnu var faðir minn og cg sem lítill pjakkur, átta ára, fór að færa honum kaffi. Um kvöldið var aðgerðin búin og ég ásamt fleiri drengjum var að sniglast úti á bryggjunni og við urðum mönnum samferða heim. Þeir voru að hæla þessu mikla fiskiríi og ég vogaði mér að grípa fram í: „En pabbi, verður fiskurinn í sjónum aldrei búinn?“ Það var alveg skelli- hlegið að mér, ég var alveg hleginn niður. En pabbi sagði: „Nei, Nonni minn. Það er víst ekki hætta á því, en að vísu geta konúð þannig veður og straumar að minna veiðist af honum þetta árið en hitt." En ég fékk þetta ekki úr kollinum og fannst að ef það veiddist nú gríðarmikið, gæti komið að því að fiskurinn yrði búinn. Annað var það líka þarna á Eski- firði, að þar var mjög bratt fyrir ofan þorpið og í gegn um það renna einar fjórar ár, sem við kölluðum svo. Að minnsta kosti verða þær eins og stórfljót í miklum rigningum og ryðja niður aur og grjóti. Þær eyðileggja þá bæði hús, upphleðslur og garða og annað slíkt. Mest var þetta fyrir það að ekki var hugsað um að ryðja árfarvegina, þegar lítið var í ánum. Ég var alltaf að hugsa um hvaða slóðaskapur og eskimóaháttur það væri að karlmennirnir skyldu ekki ganga í það í sjálfboðavinnu að ryðja farvegina ofan úr fjalli og niður í fjöru. Eitthvað var ég að hnýta í menn fyrir þetta, en ekkert var gert. Svo komu snjóflóð og skriðuföll, en ekkert var reynt að gera við neinu af þessu. Svo kom nú að skólagöngu og ég fór að læra um sögu og landafræði og eitt það fyrsta sem ég heyrði um mannfjölda á jörðinni var það að íbúarnir væru um tveir milljarðar (þetta var 1930) og að þar af væru Kínverjar fjögur hundruð milljónir og Indverjar þrjú hundruð milljónir. Kennarinn sagði okkur að þessum þjóðum fjölgaði meira en okkur hvítu mönnunum. Þarna var enn ekki kom- in til sögu önnur trú en sú að hvíti kynþátturinn ætti og ætti alltaf að eiga jörðina. Ég varð ansi áhyggju- fullur út af þessu, - að þessum þjóðum mundi nú vaxa fiskur um hrygg, - en kennararnir hughreystu okkur með því að sem betur færi væri það nú ekki fjöldinn sem réði úrslitum um heimsyfirráðin hcldur væri það krafturinn og klókindin til þess að ná völdunum og halda. Evrópuþjóðirnar væru nú það sterkar enn að ekki væri þetta sérstakt áhyggjuefni. En aldrei hvarflaði þetta nú frá manni. Nú, svo kemur fasisminn upp í Evrópu og alltaf er einmitt náttúru- verndin ofarlega í þeirra málflutningi. Og eftir því sem ég best veit er Hitlers-stjórnin fyrsta ríkisstjórn í heiminum sem skipulega tekur að beita sér fyrir náttúruvernd. Árið 1937 kom hingað til lands Þjóðverji og hafði hér viðdvöl og ég fór með hann um, til þess að sýna honum það helsta í bænum, en ég var þá í Verslunarskólanum. Þetta var náttúrufræðingur og hafði áhuga á öllu, þar á meðal byggingum og skipulagi bæjarins. Ég fór með hann inn að Elliðaám, til þess að sýna honum Rafstöðina, og þar var í Sogamýrinni verið að grafa fyrir húsi eða öðru mannvirki. Þar voru verka- menn sem mokuðu moldinni upp á bíla, sem svo óku henni burtu. „Hvað er gert við þessa mold?“ spurði Þjóð- verjinn. Og ég svaraði eins og ég best vissi að henni væri bara ekið í sjónn eða upp á hauga og látin vera þar. Þjóðverjinn var alveg hissa og spurði hvort ekki væri látið gera grein fyrir hvað gert væri við moldina! Ég spurði þá auðvitað aftur hvað gert væri við mold íÞýskalandi. Þeirvoru þáfarnir að leggja hraðbrautirnar og ég hugs-. aði með mér að þaðan hlyti að koma mikill uppgröftur. Hann sagði mér þá j að allir sem fengjust við byggingar eða mannvirkjagerð yrðu að gera grein fyrir hverri steinvölu og hverri torfu, sem ekki mætti ráðstafa nema samkvmt þeim reglugerðum sem þeir höfðu sett. Þetta þótti mér einkar athyglisvert og fór að hugsa um eins og á Eskifiröi að einhvern tíma gæti orðið skortur á jafnvel þessu líka." Ekki síst á íslandi, þar sem svo áríðandi er að halda utan um sín efni og varla er nóg af neinu nema ef til vill grjótinu ennþá. Ég fór því að kynna mér þetta betur og kornst að því að í Þýskalandi voru til miklir lagabálkar sem snertu náttúruvernd. bæði í tengslum við þeirra miklu landbúnaðarframkvæmdir og nýrækt alls konar. Enn í dag veit ég til dæmis ekki annað en að dýraverndunarlög Himmlers séu í gildi, en þau voru sett 1935. Ég lield að hin lögin séu það líka með endurbótum og viðaukum, enda er ekki vanþörf á því nú, þegar allir skógar eru í hættu þar í landi og stóreyðilagðir. Já, þetta var sem sagt kveikjan að mínum náttúruverndaráhuga og síð- an hef ég reynt að komast að eins, miklu og ég hef getað um þessi efni og á seinni árum, einkum eftir að „Club of Rome“ gaf út sína fyrstu skýrslu, „Takmörk vaxtar,“ sem ég held að hafi komið út á íslensku. Þá áleit ég að ef þetta væri ekki komið á ystu nöf, þá væri það að komast það. Ég hef viðað að mér miklu magni af ritum og sérstaklega haft áhuga á að vita hvort ég fyndi ekki einhvern fræðimann sem gæti leitt rök að því að hægt væri að komast út úr þessu. En þrátt fyrir lestur tuga bóka og hundruða tímaritagreina, þá hef ég ekki rekist á neitt sem gæti kveikt þá trú með mér. Ef ég ætti að dæma út frá mínu leikmannsviti og þeirri þekk- ingu sem ég hef á þessu, þá tel ég að þessu sé ekki við bjargandi. Þetta má kalla svartsýni, en ég kalla þetta raunsýni. Eftir að vítissprengjumar komu til sögunnar hefur þetta svój magnast um allan helming. Ég er á sömu skoðun og bróðir forseta V- Þýskalands, Carl Friedrich Weizsáck-1 er, sem er mjög þekktur vísindamað- ur, - að það sé ekki aðeins tíma- spursmál hvenær þessu verði dembt yfir, enda hnigi öll söguleg rök að því að svo muni fara. Ekki veit ég hvað; er skelfilegt, ef ekki þetta. Nú er ekki vitað hvort einhvers staðar í geimnum er til byggt ból eða M Þegar þetta er skrifaó hefur hann nýlega gengið frá hundruðustu og sjöttu grein sinni með nafninu „Lífríki og lífshættir" handa Morgunblaðinu og hann notarsér tölvu við skriftirnarsem á vel við hann. Með nútímatækninniá hann hægara með að ná fram þannig frágangi á handriti að hvergi sér misfellu, hvað þá stafabrengl eða útstrikanir. Prófarkalesarar og setjarar eru samdóma um að snyrtilegri plögg berist ekki í prentsmiðju. Slík alúð í vinnubrögðum kemur raunar vel heim við persónu hans að öðru leyti, því meira prúðmennis og hatursmanns hvers kyns ófágunar getur varla. En ýmsir hafa samt hrokkið við þegar farið er að rýna í textann. Þar koma fram sjónarmið sem mörgum þykja ekkert minna en öldungis blöskranleg og hvorki sparar hann hvöss orð né háð. En hvað sem mönnum þykir um skrif hans þarf mikinn vilja til þess að neita því að pennanum kann hann að beita og þá er hann hvassastur þegar hann dregur upp myndina af því hjákátlega og neyðarlega. „Fasisti", segja margir og yppa öxlum og stekkur síður en svo bros. En Jón Þ. Árnason kippist nú ekki við þótt hann heyri þannig nokkuð og skrifar ótrauður áfram. Sjónarmið hans eru honum ekki meira launungarmál nú á sjötugsaldri, en þegar hann átján ára stóð í ræðustóli við Miðbæjarskólann á fundum Þjóðernissinna. Af hillunni ofan við skrifborðið horfir brjóstmynd af Adolf Hitler fjarrænum augum yfir vinnustofuna. Hér þekja hillur veggi, hlaðnar uppsláttarritum, ævisögum, ritum af heimspeki- legum toga og um sagnfræði, og ef til vill er síðasttaldi flokkurinn viðamestur. En Jón þarf líka á góðum bókakosti að halda, því greinar sínar geirneglir hann með ívitnunum og sögulegum staðreyndum. Já, hann gaf raunar á sínum tíma út blað með því nafni, - „Staðreyndir“. Hann leggur nefnilega höfuðáherslu á að fara ekki rangt með í samræmi við þann ástetning að standa við hvert orð. Það hefur hann líka gert. Við fórum fram á viðtal við þennan umdeilda mann og því varð hann við, - að vísu eftir nokkra umhugsun. En þegar hann á annað borð hafði á það fallist var ekki töluð nein tæpitunga né svarað út og suður. Það hefði heldur ekki verið neinn Jón Þ. Árnason. Hann er einn hinn einarðasti af öllum umhverfisverndarmönnum og það var að þessu áhugamáli sem viðbáðum hann að víkja fyrst. líf nema hér, þótt ótrúlegt sé að svo sé ekki. En ef manneskjan ætlar að gjöreyðileggja þetta allt saman, hvað þá. Eg hugsa aldrei fram yfir atóm- stríðið." Hvernig líst þér þá á herstöðvarnar hér? „Strax og það komst á dagskrá 1950 að hér yrðu Bandaríkjamenn . með herstöð, þá var ég einn af þeim fáu, held ég, sem var alveg ákveðinn með því. Afstaða mín til herstöðva- málsins er nefnilega nokkuð óvenju- leg og ég hef aldrei verið grunaður urn neina aðdáun á Bandaríkjamönn- um eða vinsemd í þeirra garð, eftir að Roosevelt komst til valda. Eg er þó mjög hrifinn af mörgu í bandarískri sögu fyrir þann tíma. En ég var með herstöðinni. Var ég orðinn Kanasleikja, eða hvað? Ég held nú síður. En ég sagði: „Ef engar hervarnir eru hér, þá er hugsanlegt að við sleppum lifandi, þegar atómstyrj- öldin skellur á. En ef herstöðin er hér, þá lifir enginn íslendingur at- ómstríð af, - og það er það sem ég' vil. Mér er ekki svo illa við nokkurn mann að ég óski honum þess að hann lifi af atómstyrjöld. Þetta er mitt viðhorf. Nú veit ég að það viðhorf er uppi að með því að hafa herstöðina hér aukist líkurnar á að við lifum af því að það tryggi friðinn. Égskal ekki dæma um það. Ég held að það spilli friðarlíkunum ekki neitt, en auki þær ekkert heldur.“ Þú hefur viðrað þín sjónarniið í Morgunblaðsgreinum þínum og ekki hafa allir verið þér sammála? „Já, ég fór þess á leit við þá ritstjóra Morgunblaðsins að ég fengi að birta greinarnar „Lífríki og lífs- hættir“ þar og þeim fannst þetta það áhugavert að þeir féllust á það, þrátt fyrir mína fortríð, en ég hef á mér glæsilegt orð fyrir illyrmislegan fas- isma, sem ég ætla síst að bera af mér né gera lítið úr. Já, hundraðasta og sjötta greinin kemur næst. Já, ég var í Þjóðernissinnaflokki íslands og tel mér heiður að, enda held ég að allt sem gérst hefur síðan hafi staðfest þao-sem við vorum að segja. Þetta var ágætur félagsskapur og ég hef haldið sambandi við þessa menn síðan, þótt bílaplágan geri það að verkum að menn sjást sjaldnar. En ég veit ekki um neinn sem hefur snúist hugur. Þótt þetta hafi nú verið kallað nasistaskríllinn á sínum tíma, þá er það nú ekki meiri skríll heldur en það að þessir menn hafa allir komist ákaflega vel áfram. Eitt kjör- tímabil voru fjórir menn á þingi sem voru félagar í Félagi ungra þjóðern- issinna, sem ég var formaður í. Þeir voru á þingi fyrirþrjá flokka. Einn er hæstaréttardómari. Einn er seðla- bankastjóri og tveir eru ambassador- ar. Ég veit um sjö sýslumenn og þrjá bæjarfógeta. Tvo lögreglustjóra höf- um við haft og yfirflugmálastjórinn, Bogi Þorsteinsson er nýbúinn að segja af sér. Agnar Kofoed Hansen var fyrsti fánaliðsforingi hreyfingar- innar. Guttormur Erlendsson og Sig- urjón Sigurðsson voru fyrir stúdent- unum og þarna voru tveir yfirlæknar, dr. Bjarni Jónsson og dr. Snorri, Hallgrímsson. Já þarna var fjöldi' manna sem urðu læknar, því í hreyf- ingunni voru held ég enn fleiri úr læknadeild en úr lögfræðideild. Þeir gáfu út Mjölni." Þú hefur li'ka haft ákveðnar skoðanir á trúmálum? „Já, og það á einnig rætur að rekja til minnar bernsku á Eskifirði. Ég fékk þá strax andúð á kristindómi. Mér fannst þetta strax vera einhvers' konar kommúnismi eða jafnaðar- mennska, einhver smælingjatil- beiðsla. Ekki síður vegna þess hve mér fannst það koma greinilega fram að maðurinn hefði ótakmarkaðan rétt til þess að níðast á náttúruríkinu. Það er eins og Guð hafi skapað öll dýr jarðarinnar. allan gróðurog allt, bara til þess að maðurinn gæti grætt á því peninga. Enda er lang mest áhersla lögð á það í öllum predikunum krist- innar kirkju að biðja! Það er alltaf verið að biðja Guð að gera hitt og þetta fyrir sig, eins og hann sé ein- hverskonar húsþjónn! En það er minna hirt urn að þakka honum, - þetta á allt að vera sjálfsagt. Þetta fannst mér sérlega fráhrindandi og þegar átti að fara að ferma mig, þá neitaði ég því. Og ég hef styrkst í þessu síðan. Eins og ég sagði fékk ég mjög snemma áhuga á pólitík og fannst sjálfsagt að vera sjálfstæðis- maður og var það frá því ég var barn. Þar af leiddi að maður hataði náttúru- lega kommúnisma. Ég tók snemma að óttast það að kommúnisminn og kristindómurinn mundu ná saman, því ég leit alltaf á þetta sem tvær greinar á sama stofni. Þó með þeim reginmun að kristnir eru það greindari að þeir lofa okkur himnaríki eftir dauðann, en kommúnistar fyrir dauð- ann. Sko, kristnir menn hafa alltaf útgöngudyrnar þarna, - þótt okkur líði illa núna þá er það ekkert, okkur líður bara svo vel seinna. En komm- únistarnir verða að sýna það strax og þeir ná völdum og þeir hafa nú gert það með þeim árangri sem við þekkjunt. Ég hef þá trú að menn búi ákaflega lengi að fyrstu gerð og ég hef ekki mikla trú á þessum afturbata komm- únistum. Þeir sjá aðeins gjaldþrot stefnunnar og bregða sér þá í aðra flokka, þar sem þeir hrærast saman við frjálslynda, sem alltaf eru með kápuna á báðum öxlum, annað hvort til leigu eða sölu." Hvernig lá leið þín til fylgis við fíokk Þjóðernissinna? „Ég varð formaður í Félagi ungra sjálfstæðismanna á Eskifirði, þegar

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.