NT - 05.10.1985, Blaðsíða 13

NT - 05.10.1985, Blaðsíða 13
5. október 1985 13 Hlýtt, bjart og gott að búa í - íbúar einingahúss teknir tali inu vera til fyrirmyndar, sérstaklega erum við ánægð með panelklæðninguna í loftinu, en húsið er líka að öllu leyti hlýtt og ■ Helga Stefánsdóttir ásamt sonunum Guðmundi, Stefáni og Magnúsi í nýju eldhúsinu. NT-myndir: Kóbeirt. ■ „Við erum afskaplega ánægð með allan frágang á húsinu, og hefur það raunar farið fram úr bestu vonum, bæði að útliti og að búa í því,“ sögðu hjónin Sveinn Kjartans- son og Helga Stefánsdóttir en þau fluttu í byrjun júlí inn í hús í Grafarvoginum frá Húseiningum á Siglufirði, en í Grafarvoginum hefur nú á skömmum tíma sprottið upp mikill fjöldi einingahúsa af mörgum gerðum. „Þegar við ákváðum að fá okkur einingahús vildum við eindregið hafa það á einni hæð, en samt vel rúmt. Þannig teiknuðu þeir hjá Ein- ingahúsum þetta hús eiginlega sér- staklega fyrir okkur en þetta er það stærsta sem þeir hafa sett upp hing- að til á einni hæð, 201 fm eða nokkuö á þriðja hundrað fermetra eins og við segjum stundum í gríni. Það tók um fjóra mánuði að reisa húsið, og hefði getað tekið skemmri tíma, en það gekk bara ekki nógu vel að selja húsnæðið sem við vorum að flytja úr. Þá sýndu Húseiningar hf. mikinn sveigjanleika, fannst okkur, bæði með greiðslur og fleira. Það kostaði um 1.550 þús að setja upp húsið en það bættust bara við 50 þúsund þegar bílskúrinn var byggður. Að fá bílskúr á 50 þúsund krónur finnst okkur It'ka býsna gott verð. Síðan lagðist auðvitað á annar kostnaður, eins og lóðarverð, vinna við sökkul, innréttingar og hita og ratlagnir en þrátt fyrir það teljum við okkur hafa fengið þetta á sérlega góðu verði. Þar skiptir tíminn kannski mestu, húsið var komið upp á svo skömmum tíma að við losnuðum við að lenda í skuldafeni, sem fólk lendir oft í þegar það er í rnörg ár að byggja sér þak yfir höfuðið, af því að það er svo seinleg og dýr vinna. Varðandi einangrun á húsinu, þá er hún alveg til fyrirmyndar. Húsið er hlýtt og þétt, og við höfum a.m.k. ekki hingað til þurft að eiga við vandamál eins og leka. Viðurinn í því er líka gagnfúavarinn, þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að timbrið fúni á komandi árum. Okkur finnst líka einkar þægilegt að búa í timburhúsi, það má segja að þau andi með íbúunum, en það gera steinhús hins vegar ekki. í stuttu máli teljum við að það sé langþægilegasti byggingarmátinn í dag, að fá sér einingahús, það er fljótlegt, ódýrt og traust. Okkar reynsla af þeim er a.m.k. einstök. Iljónir króna en þegar lóðaverð, rafmagns- og hitalagnir °g innréttingar bætast við

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.