Morgunblaðið - 07.10.2004, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir, SH, og Hjörtur Már
Reynisson, KR, hefja í dag þátttöku í heimsmeist-
aramótinu í sundi í 25 metra laug sem haldið er í
Indianapolis í Bandaríkjunum. Ragnheiður keppir í
50 metra bringusundi í dag en hún er skráð með 30
besta tímann af 39 keppendum. Ragnheiður
tekur að auki þátt í 100 metra bringusundi, 50 og
100 metra skriðsundi og 100 m fjórsundi.
Hjörtur Már keppir í 100 metra flugsundi í dag en
hann er með 27. besta tímann af 69 keppendum.
Hjörtur tekur þátt í tveimur öðrum greinum, 50 og
200 metra flugsundi.
Flest besta sundfólks heims er skráð til leiks, þar
á meðal Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps sem
vann til sex gullverðlauna á Ólympíuleikunum í
Aþenu í ágúst. Phelps keppir í sex greinum á
mótinu og ef að líkum lætur kemur þessi 19 ára
gamli sundmaður til með að setja heimsmet en 22
heimsmet féllu á síðasta heimsmeistaramóti í 25
metra laug.
Hjörtur og Ragn-
heiður á HM í dag
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu er í frjálsu falli á
styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Á
nýjum lista, sem gefinn var út í gær, er Ísland í 88. sæti og
hefur fallið niður um átta sæti frá því í byrjun september
og um hvorki meira né minna um 30 sæti frá áramótum.
Íslendingar hafa tapað báðum leikjum sínum í und-
ankeppni HM, gegn Búlgörum og Ungverjum, en fá tæki-
færi til að rétta sinn hlut á listanum en Íslendingar sækja
Möltu heim á laugardaginn og taka á móti Svíum á mið-
vikudaginn.
Af þjóðunum sem leika í riðli með Íslendingum í und-
ankeppni HM eru Svíar efstir en þeir skipa 22. sæti, Króat-
ar eru í 23. sæti, Búlgarir í 41. sæti, Ungverjar í 68. sæti og
Möltumenn eru í 133. sæti á listanum.
Heimsmeistarar Brasilíumanna eru sem fyrr í efsta sæt-
inu, Frakkar eru í öðru, Argentínumenn fara upp um eitt
sæti og skipa þriðja sæti, Spánverjar eru í fjórða sæti, Hol-
lendingar í fimmta, Tékkar í sjötta, Englendingar í sjö-
unda, Portúgalar og Ítalir eru jafnir í 8.–9. sæti og
Mexíkóar eru í tíunda sæti.
Ísland í 88. sæti
á FIFA-listanum
HANDKNATTLEIKUR
Haukar – Fram 31:25
Ásvellir, Íslandsmót karla, norðurriðill,
miðvikudagur 6. október 2004.
Gangur leiksins: 0:1, :2, 5:2, 8:5, 11:6, 11:8,
14:11, 17:11, 17:12, 19:12, 23:17, 25:18,
25:20, 27:23, 29:25, 31:25.
Mörk Hauka: Andri Stefan 8, Ásgeir Örn
Hallgrímsson 8/5, Vignir Svavarsson 6,
Gísli Jón Þórisson 4, Jón Karl Björnsson 2,
Þórir Ólafsson 1, Gunnar Ingi Jóhannsson
1, Halldór Ingólfsson 1/1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 19/1
(þaraf 5 til mótherja).
Utan vallar: 14 mínútur og þar af fékk
Magnús Magnússon rautt spjald fyrir að
reka hönd í höfuð mótherja.
Mörk Fram: Jóhann G. Einarsson 10/5,
Guðjón Drengsson 5, Sigfús Sigfússon 4,
Arnar Sæþórsson 3, Hjálmar Vilhjálmsson
2, Guðmundur Ö. Arnarson 1.
Varin skot: Egidijus Petkevicius20/2 (þar
af 6/1 til mótherja)
Utan vallar: 18 mín., þar af Guðlaugur Arn-
arsson rautt við þrjár brottvísanir.
Áhorfendur: Ríflega 300.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Haraldsson. Strangir við brottvísanir.
Staðan, norðurriðill:
Haukar 5 4 0 1 156:132 8
Fram 4 3 0 1 118:106 6
HK 3 2 0 1 94:89 4
KA 4 2 0 2 127:133 4
Þór 4 1 1 2 105:108 3
FH 3 0 1 2 81:93 1
Afturelding 3 0 0 3 68:88 0
Þýskaland
Göppingen – Kiel .................................. 31:30
Nordhorn – Flensburg......................... 27:27
HSV Hamburg – Lemgo...................... 34:23
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
Grindavík – KR.................................... 65:55
Gangur leiksins: 10:6, 12:11, 14:15, 16:21,
22:25, 24:28, 32:30, 41:33, 45:41, 57:45,
64:50, 65:55.
Stig Grindavíkur: Erla Þorsteinsdóttir 21,
Erla Reynisdóttir 13, Ólöf Pálsdóttir 11,
Sólveig Gunnlaugsdóttir 9, Svandís Sigurð-
ardóttir 5, Erna Magnúsdóttir 2, Petrún-
ella Skúladóttir 2, Jovana Stefánsdóttir 2.
Fráköst: 18 í vörn - 11 í sókn.
Stig KR: Katie Wolfe 15, Georgia Kristi-
anssen 11, Halla Jóhannesdóttir 10, Gréta
Grétarsdóttir 7, Helga Þorvaldsdóttir 6,
Hanna Kjartansdóttir 4, Lilja Oddsdóttir 2.
Fráköst: 25 í vörn – 9 í sókn.
Villur: Grindavík 16, KR 21.
Dómarar: Þröstur Ástþórsson og Jón Guð-
mundsson.
Áhorfendur: Um 150.
Njarðvík – Keflavík............................. 49:81
Stig Njarðvíkur: Jaime Woudstra 17,
Helga Jónasdóttir 9, Ingibjörg Vilbergs-
dóttir 9, Díana Jónsdóttir 5, Sigurlaug Guð-
mundsdóttir 4, Margrét K. Sturludóttir 3,
Erla M. Guðmundsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Reshea Bristol 24, Rann-
veig Randversdóttir 13, María Ben Er-
lingsdóttir 10, Bára Bragadóttir 8, Bryndís
Guðmundsdóttir 7, Anna María Sveinsdótt-
ir 6, Marín Karlsdóttir 5, Halldóra Andr-
ésdóttir 5, Svava Ósk Stefánsdóttir 3.
ÚRSLIT
Real Madrid á flesta leikmenn afþeim sem koma til greina, alls
sjö talsins, en flestir sparkspekingar
spá því að Thierry Henry, framherji
Arsenal, hreppi hnossið.
Leikmennirnir 35 sem koma til
greina eru:
Adriano (Brasilía), Roberto Ayala
(Argentína), Michal Ballack (Þýska-
land), Milan Baros (Tékkland), Dav-
id Beckham (England), Gianluigi
Buffon (Ítalía), Cafu (Brasilía), Cris-
tiano Ronaldo (Portúgal), Deco
(Portúgal), Didier Drogba (Fíla-
beinsströndin), Samuel Eto’o (Kam-
erún), Steven Gerrard (England),
Luis Figo (Portúgal), Ryan Giggs
(Wales), Thierry Henry (Frakk-
land), Zlatan Ibrahimovic (Svíþjóð),
Oliver Kahn (Þýskaland), Kaka
(Brasilía), Frank Lampard (Eng-
land), Henrik Larsson (Svíþjóð),
Roy Makaay (Holland), Paolo
Maldini (Ítalía), Pavel Nedved
(Tékkland), Alessandro Nesta
(Ítalía), Michael Owen (England),
Robert Pires (Frakkland), Raúl
(Spánn), Roberto Carlos (Brasilía),
Ronaldinho (Brasilía), Ronaldo
(Brasilía), Wayne Rooney (Eng-
land), Andriy Shevchenko (Úkr-
aína), Ruud van Nistelrooy (Hol-
land), Theodoros Zagorakis (Grikk-
land), Zinedine Zidane (Frakkland).
SÉRSTÖK nefnd á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA,
hefur valið 35 leikmenn sem koma til greina í kjöri á knattspyrnu-
manni ársins en kjörinu verður lýst í óperuhúsinu í Zürich í Sviss hinn
20. desember. Landsliðsþjálfarar víðs vegar um heiminn greiða at-
kvæði í kjörinu og nöfn þriggja efstu verða birt í næsta mánuði en
þetta verður í 14. sinn sem FIFA stendur fyrir kjöri á leikmanni ársins.
Sjö útnefndir frá
Real Madrid
Stabæk á eftir að mæta tveimurefstu liðunum, Rosenborg og
Vålerenga, á útivelli og Molde á
heimavelli svo staðan lítur ekki beint
út fyrir Veigar og félaga.
„Ég tel þokkalegar líkur á að við
höldum okkur uppi. Stabæk hefur
haft mjög góð tök á Rosenborg og ef
okkur tekst að vinna meistarana og
Molde þá tel ég líklegt að við björg-
um okkur,“ sagði Veigar við Morg-
unblaðið.
Ef illa fer hjá ykkur, varla ert þú
þá tilbúinn að spila með Stabæk í
norsku 1. deildinni?
„Eiginlega ekki en svo er ég ekki
alveg sáttur vegna stöðu minnar í
liðinu. Ég hef fengið fá tækifæri í
byrjunarliðinu en persónulega finnst
mér ég eiga að vera í liðinu. Ef Sta-
bæk fellur og klásúla er í samningi
mínum um að ég get losnað þá mun
ég örugglega nýta mér það. Ég hef
hins vegar ekkert verið að spái í
þessi mál heldur hugsa ég bara um
að við reynum að halda sæti okkar. “
Veigar hefur tekið þátt í 15 leikj-
um Stabæk af 23 í deildinni og skor-
að tvö mörk en hann hefur aðeins
verið níu sinnum í byrjunarliðinu.
Veigar Páll ekki
sáttur hjá Stabæk
Reuters
Þessir þrír leikmenn Real Madrid koma til greina sem leik-
maður ársins – David Beckham, Ronaldo og Luis Figo.
VEIGAR Páll Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem er á
mála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Stabæk, segist ekki hafa kynnt
sér til hlítar hvort í samningi hans séu ákvæði um að hann verði
frjáls ferða sinna fari svo að Stabæk falli úr deildinni. Þegar þremur
umferðum er ólokið eru Veigar og félagar hans í fallsæti. Stabæk er
næstneðst með 24 stig eins og Molde, Fredrikdstad og Bodö/Glimt
hafa 26 stig en Sogndal er neðst með 18 stig.
Það var greinilegt á leik KR-ingaað þær söknuðu Hildar Sigurð-
ardóttur en sóknarleikur þeirra var
bágur lengstum í
leiknum. Bæði lið
spiluðu fína vörn
lengstum og það var
ekki oft sem einhver
fékk frítt skot. Grindvíkingar
mættu með mikið af nýjum leik-
mönnum í fyrsta leik Íslandsmóts-
ins og er ekki annað hægt að segja
en þær hafi allar staðið sig með
ágætum. Það má segja að úrslitin
hafi ráðist í upphafi á síðasta leik-
hlutanum þar sem bestu menn vall-
arins fóru fyrir Grindvíkinga – þær
Ólöf Helga Pálsdóttir og Erla Þor-
steinsdóttir sem afgreiddu gestina
með stórleik í fjórða leikhluta og
reyndar í þeim þriðja líka. KR-ingar
réðu illa við Erlu í sókninni og Ólöf
sá um að loka á Katie Wolfe sem
átti erfitt uppdráttar allan tímann.
Best í liði KR var Halla Jóhann-
esdóttir en hún hitti vel og spilaði
fína vörn í fyrri hálfleik á Erlu Þor-
steins en lenti í villuvandræðum í
þeim seinni.
„Ég er mjög ánægður með sig-
urinn og það er alltaf gott að byrja
á sigri. Við sýndum fínan karakter
eftir að hafa átt slakan fyrri hálf-
leik. Vörnin vann leikinn fyrir okkur
en við spiluðum frábæra vörn, sér-
staklega í seinni hálfleik.
Þetta er jöfn deild þannig að það
er enginn leikur gefinn fyrir fram.
Vendipunktur í þessum leik var
byrjunin á seinni hálfleik. Það var
erfitt fyrir þær að ráða við Erlu
Þorsteins inn í teig í þessum leik.
Liðið á eftir að slípast betur saman
og stelpurnar geta bara orðið betri.
Ég er sérlega ánægður með barátt-
una í leiknum,“ sagði Örvar Krist-
jánsson, þjálfari Grindavíkur.
Keflavík vann auðveldan sigur í
Njarðvík, 81:49, eftir 47:29 í hálf-
leik. Njarðvík minnkaði muninn í
tvö stig um tíma í öðrum leikhluta
en síðan dró í sundur með liðunum á
ný.
Reshea Bristol skoraði 24 stig
fyrir Keflavík og Jaime Woudstra,
systir Brandons sem lék með karla-
liði Njarðvíkur í fyrra, gerði 17 fyrir
Njarðvík.
„Spiluðum
frábæra vörn“
GRINDAVÍK vann öruggan sigur á KR, 65:55, í fyrstu umferð 1.
deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöld en leikurinn fór fram í
Grindavík. KR yfir í hálfleik, 28:24, en Grindvíkingar náðu undirtök-
unum strax í byrjun síðari hálfleiks og létu þau ekki af hendi.
Guðlaugur Arnarsson, fyrirliði Fram, fær hér mikið högg á nefið
Garðar
Vignisson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Borgarnes: Skallagrímur – ÍR.............19.15
Grafarvogur: Fjölnir – Haukar............19.15
Selfoss. Hamar/Selfoss – KR ...............19.15
Njarðvík: Njarðvík – KFÍ ....................19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík...19.15
1. deild kvenna:
Ásvellir: Haukar – ÍS ............................19.15
Í KVÖLD
ÚRSL
sæti í
knatt
leiku
dagin
í Osló
úr þe
fram
Þa
íslens
verið
L
S
UN
19
un
gæ
Hj
og
þrj
lei
sn
se
me
lið