Morgunblaðið - 20.10.2004, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 B 3
BRYNJAR Björn Gunnarsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
meiddist í upphitun, aðeins 10 mín-
útum áður en leikur Watford og
Sunderland í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu hófst í gærkvöld.
Brynjar Björn tognaði í nára og
varð að hætta við þátttöku í leikn-
um. „Þetta kom upp úr þurru, ef-
laust vegna leikjaálagsins að und-
anförnu. Ég veit ekki fyrr en á
morgun hversu slæmt þetta er,
meiðslin gætu kostað mig næsta
leik liðsins en vonandi er þetta ekki
alvarlegt,“ sagði Brynjar Björn við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Leikurinn endaði 1:1 og átti
Heiðar Helguson þátt í marki Wat-
ford snemma leiks en hann lék all-
an leikinn. Watford er í 11. sæti
deildarinnar.
Ívar Ingimarsson lék allan leik-
inn með Reading sem gerði jafn-
tefli, 1:1, við Leeds á heimavelli og
er áfram í öðru sæti 1. deildar.
Jóhannes Karl Guðjónsson kom
inn á sem varamaður á 56. mínútu
hjá Leicester sem gerði jafntefli,
2:2, við Ipswich.
Bjarni Guðjónsson var ekki í
leikmannahópi Coventry sem gerði
jafntefli, 2:2, við Burnley.
Ólafur Gottskálksson var í
fyrsta skipti í tapliði með Torquay
sem beið lægri hlut á heimavelli,
1:2, fyrir Bournemouth í 2. deild.
Brynjar Björn meiddist tíu
mínútum fyrir leikinn
AGANEFND HSÍ úrskurðaði tvo
leikmenn í meistaraflokki í eins leiks
bann á fundi sínum í gær. Haraldur
Þorvarðarson frá Selfossi fær einn
leik í bann vegna útilokunar í leik við
Víking og Elísa Ósk Viðarsdóttir,
Fram, fyrir útilokun í leik við Hauka.
ALEXANDROS Kaklamanos,
grískur knattspyrnumaður, hefur
verið rekinn frá Standard Liege í
Belgíu þar sem hann féll á lyfjaprófi.
Kaklamanos, sem er þrítugur, hafði
neytt kókaíns og hann á tveggja ára
bann yfir höfði sér. Hann skoraði 8
mörk í 33 leikjum fyrir Standard en
hann lék með liðinu í rúmt ár.
ÓLAFUR Ingi Skúlason lék með
varaliði Arsenal, sem gerði jafntefli
við Southampton á St. Mary’s leik-
vellinum í Southampton í gærkvöldi,
2:2.
STIGAMÓT Lýsingar í borðtennis
fór fram í TBR-húsinu um síðustu
helgi. Í opnum flokki karla léku til
úrslita bræðurnir Matthías Stephen-
sen, Víkingi, og Íslandsmeistarinn
Guðmundur E. Stephensen, Vík-
ingi. Guðmundur sigraði 4:0 (11:4,
11:2, 11:7, 12:10). Í opnum flokki
kvenna léku til úrslita Halldóra
Ólafs, Víkingi, og Kristín Hjálmars-
dótttir, KR. Halldóra sigraði, 4:2
(11:8, 11:8, 11:9, 8:11, 9:11 og 11.7).
HSV HAMBURG hélt áfram sig-
urgöngu sinni í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld og lagði þá
meistarana frá Flensburg að velli á
sannfærandi hátt, 28:22. Torsten
Jansen skoraði 6 mörk fyrir Ham-
burg og Guillaume Gille 5 en Lars
Christiansen skoraði 7 mörk fyrir
Flensburg og Marcin Lijewski 6.
Hamburg er með 15 stig eftir 8 leiki,
þremur stigum á undan Magdeburg
og Kiel.
FÓLK
ver-
-
ef-
-
m
inn
nn
k-
f-
ú-
ug-
nn
ð
ki
g
ð
t-
fær
d
ð
að
n
Liverpool varð að sætta sig viðmarkalaust jafntefli í gær er lið-
ið tók á móti Deportivo. Heimamenn
sóttu mun meira og fengu nokkur fín
færi en tókst ekki að skora. Eftir hlé
einbeittu Spánverjar sér að því að
halda stiginu og það tókst.
„Ég er ekki ánægður með úrslitin,
en ég er ánægður með hvernig liðið
lék. Þetta er besti leikur liðsins síðan
ég tók við því,“ sagði Benitez, stjóri
Liverpool eftir leikinn.
Í hinum leik riðilsins lagði Mónakó
lið Olympiakos í skemmtilegum og
opnum leik. Mónakó komst yfir strax
í upphafi með flottu marki Saviloa
sem lék vörn Grikkja illa. Eftir tíu
mínútur var staðan orðin 2:0.
Owen tryggði Real sigur
Þrátt fyrir að leikmönnum Liver-
pool tækist ekki að skora á heima-
velli tókst fyrrverandi leikmanni
liðsins að gera það. Michael Owen
gerði eina mark leiksins þegar Real
Madrid lagði Dinamo Kiev í B-riðl-
inum. Sá riðill er eins spennandi og
hægt er að hugsa sér því Leverkusen
lagði Roma 3:1 og eru Ítalir án stiga í
riðlinum en hin þrjú liðin með 6 stig.
Leikur Real og Dinamo var spenn-
andi og skemmtilegur og fullt af fær-
um og geta Spánverjar þakkað Iker
Casillas, markverði sínum, stigin
þrjú, og slakri nýtingu gestanna.
„Ég er ósáttur, hefði viljað fá tvær
vítaspyrnur,“ sagði Joszef Szabo,
þjálfari Dinamo.
Leverkusen var sterkara liðið en
Rómverjar komust þó yfir með
marki frá Totti. Þannig var staðan í
hálfleik en í þeim síðari gerðu heima-
menn þrjú mörk.
Juventus stendur vel að vígi
Juventus lagði Bayern München
með marki Nedved á 75. mínútu.
„Sendingin frá Ibrahimovic var full-
komin,“ sagði Nedved um sendingu
Svíans sem skóp markið. „Þetta var
jafn leikur og erfiður, en þetta tókst
sem betur fer,“ bætti hann við.
Ajax vann sinn fyrsta sigur í riðl-
inum og það sannfærandi gegn
Maccabi Tel-Aviv. Hollendingar
gerðu þrjú mörk á þrjátíu mínútna
kafla í fyrri hálfleik og þar við sat.
Lyon upp fyrir United
Pierre-Alain Frau tryggði Lyon
góðan 3:1-sigur á Fenerbahce í Hol-
landi, en hann gerði þriðja mark liðs-
ins tveimur mínútum eftir að hann
kom inn á sem varamaður. Eftir
markalausan fyrri hálfleik fóru leik-
menn franska liðsins í gang og unnu
sanngjarnan sigur og fóru með því í
efsta sæti D-riðils.
United getur vel við unað að fá eitt
stig í Prag. „Það er ekki slæmt að fá
eitt stig á útivelli. Þeir léku ágætlega
og áttu sín færi vegna mistaka í vörn
okkar og ég er ekki ánægður með
þau. En lið mitt lék ágætlega og ég
er í heildina sáttur þó svo ég hefði
viljað að við næðum að skora,“ sagði
Alex Ferguson, stjóri United eftir
markalaust jafntefli.
Reuters
Svíinn Zlatan Ibrahimovic einbeittur á svip, en hann átti stóran þátt í sigurmarki Juventus.
Juventus og Lyon
í góðum málum
ÁTTA leikir voru í fjórum riðlum í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi
og voru skoruð 16 mörk í þeim. Mörk sáust í öllum leikjunum nema
hjá ensku liðunum, Liverpool gerði markalaust jafntefli við Deport-
ivo la Coruna og Manchester United sömuleiðis við Spörtu í Prag.
Juventus og Lyon eru í góðum málum í sínum riðlum þegar riðla-
keppnin er hálfnuð.
Félögin hafa náð lendingu umskiptin og nú eiga Svíarnir bara
eftir að ná samkomulagi við leik-
manninn sjálfan. Ég hef ekki trú á að
það verði neitt mál,“ sagði Róbert
Agnarsson, varaformaður knatt-
spyrnudeildar Víkings, við Morgun-
blaðið í gær.
Skrifi Kári undir samning við
Djurgården, eins og flest bendir til,
verður hann annar leikmaður Vík-
ings sem semur við sænska liðið á
stuttum tíma en varnarmaðurinn
Sölvi Geir Ottesen gerði fjögurra og
hálfs árs samning við Djurgården í
júlímánuði.
„Þetta eru strákar sem Víkingar
hafa framleitt og við erum mjög
stoltir að því að það starf sem menn
hafa unnið í barna- og unglingamál-
um félagsins er að skila sér,“ sagði
Róbert.
Kári, sem er 22 ára gamall, stóð
sig afar vel með Víkingsliðinu í sum-
ar en hann lék 15 leiki með því í úr-
valsdeildinni og var valinn í 22
manna landsliðshóp fyrir leikina
gegn Ítalíu og Búlgaríu í sumar.
Tilboð í Kára samþykkt
VÍKINGUR hefur samþykkt tilboð frá sænska meistaraliðinu Djur-
gården í miðjumanninn Kára Árnason. Kári var til reynslu hjá Djur-
gården á dögunum ásamt Grindvíkingnum Grétari Ólafi Hjartarsyni
og í kjölfarið gerðu forráðamenn sænska liðsins Víkingum tilboð í
Kára. Svíarnir hafa hins vegar ekki sett sig í samband við Grindvík-
inga varðandi Grétar að sögn Jónasar Þórhallssonar, formanns
knattspyrnudeildar Grindavíkur.
TINDASTÓLL hefur samið
við bandaríska leikmanninn
Ron Robinson en hann kom til
landsins í gær. Robinson er 2
metrar á hæð og 24 ára en
hann lék með Central Conn-
ecticut-háskólanum í NCAA-
deildinni í Bandaríkjunum.
Tímabilið 2003–2004 lék
Robinson 27 leiki með há-
skólaliðinu og skoraði 18 stig
að meðaltali, tók 10 fráköst og
átti 2,4 stoðsendingar í leik.
Robinson mun leika með liðinu
á fimmtudaginn gegn KFÍ. Sl.
fimmtudag lék Bethuel
Fletcher fyrsta leik sinn með
Tindastóli á útivelli gegn
Haukum.
Robinson
á Krókinn
TROY Wiley, leikmaður úr-
valsdeildarliðs Njarðvíkur í
körfuknattleik, fór af landi
brott í gærdag. Ástæða brott-
hvarfsins var að faðir hans
lenti í slysi heima fyrir. Einar
Árni Jóhannsson, þjálfari
Njarðvíkur, sagði að Troy
hefði viljað koma aftur. „En
við erum bara í þannig stöðu
að við vitum ekki hvað hann
yrði lengi úti þannig að það er
hafin leit að eftirmanni hans.
Það eru engin nöfn komin í
pottinn hjá okkur og við ætl-
um að flýta okkur hægt í þeim
efnum,“ sagði Einar Árni við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Troy Wiley
farinn
heim