Morgunblaðið - 27.10.2004, Side 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Nefndin fái kynningu | Á fundi umhverf-
is- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur var
lagt fram minnisblað frá Umhverfis- og
heilbrigðisstofu varðandi fyrirhugaða raf-
skautaverksmiðju að Katanesi.
Tillaga Margrétar Sverrisdóttur,
áheyrnarfulltrúa F-lista, varðandi málið
var samþykkt en þar segir að eitt helsta
hlutverk umhverfis- og heilbrigðisstofu
væri heilbrigðis- og mengunareftirlit í lög-
sagnarumdæmi Reykjavíkur og því væri
brýnt að nefndin láti sig málið varða. „Full
þörf er á því að nefndin fái kynningu á nið-
urstöðum Skipulagsstofnunar, en samtökin
Landsvernd hafa kært þann úrskurð þar
sem starfsemi rafskautaverksmiðju veldur
mikilli losun svokallaðra PAH-efna (fjöl-
hringa kolefnasambanda), sem eru hættu-
leg, mengandi efni og talin geta valdið
krabbameini,“ segir í bókuninni. Samþykkt
var að beina því til umhverfisráðherra að
nefndin fái að taka þátt í úrskurðarferlinu
og tækifæri til að koma á framfæri at-
hugasemdum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Nítján sóttu um | Nítján umsóknir
bárust um starf við umsýslu- og skrif-
stofuvinnu hjá Fasteignum Ísafjarð-
arbæjar ehf. Stefnt er að því að ráða í
starfið í lok vikunnar að því er fram
kemur á vef Bæjarins besta. Birgir
Valdimarsson, sem um árabil gegndi
starfi húsnæðisfulltrúa Ísafjarðarbæjar
og unnið hefur með Fasteignum Ísafjarð-
arbæjar frá stofnun þeirra árið 2003,
mun láta af störfum um áramótin. Félag-
ið er einkahlutafélag í eigu Ísafjarðar-
bæjar og sér um 180 leiguíbúðir.
Sérbýli fyrir fatlaða | Á fundi bæjarráðs
Hornafjarðar var fjallað um sérbýli fyrir
fatlaða í sveitarfélaginu Félagsmálastjóri
kynnti á fundinum bréf frá Þroskahjálp
sem barst fyrir skömmu. Rætt var um vax-
andi þörf fyrir slíkt sérbýli og hugmynd
starfsmanna fræðslu- og félagssviðs um
staðsetningu þess. Bæjarráð fól starfs-
mönnum fræðslu- og félagssviðs að vinna
að málinu og óska eftir viðræðum við
Þroskahjálp um fjármögnun í þetta verk-
efni.
Rökkurdagar,menningarhátíðGrundfirðinga,
hófst með athöfn í Sögu-
smiðjunni í gærkvöldi og
verður fjölbreytt dag-
skrá til 16. nóvember.
Fræðslu- og menning-
arnefnd Grundarfjarð-
arbæjar stendur fyrir
Rökkurdögum.
Kvikmynd Daggar
Mósesdóttur, Sodade,
verður sýnd í Sögusmiðj-
unni í kvöld og á morg-
un verður opnuð sýning
á myndum leikskóla-
barna á Kaffi 59. Á
föstudagskvöldið verður
söngvakvöld með Árna
Johnsen á Krákunni.
Laugardagurinn verður
helgaður unga fólkinu.
Dagskrá fyrir það verð-
ur í Samkomuhúsinu,
meðal annars unglinga-
tónleikar. Á sunnudag
verða djasstónleikar á
Kaffi 59.
Síðan rekur hvert
dagskráratriðið annað
til 16. nóvember.
Rökkurdagar
Fimm bændur semstunda fjarnám viðbændadeild Land-
búnaðarháskólans á
Hvanneyri fóru á dög-
unum út í skóg til að æfa
skógarhögg. Svo vildi til
að í þessum hópi voru ein-
göngu konur. Æfingin fór
fram í næsta nágrenni við
Hvanneyri, í skógi Skóg-
ræktar ríkisins á Stálpa-
stöðum í Skorradal. Enda
óvíða betri aðstaða til úti-
kennslu í skógrækt segir á
vefnum skogur.is.
Landbúnaðarháskólinn
og Vesturlandsdeild Skóg-
ræktar ríkisins eiga með
sér samstarf um verklega
kennslu skógræktarnema
á báðum skólastigum skól-
ans. Leiðbeinendur voru
Friðrik Aspelund frá LBH
og Sævar Hreiðarsson frá
Skógræktinni.
Fjarnemarnir Kristrún Snorradóttir Laxeyri, Hildur
María Hilmarsdóttir Spóastöðum, Rósa Jósepsdóttir
Fjarðarhorni, Anna Berglind Halldórsdóttir Magn-
úsarskógum og Rebekka Eiríksdóttir Stað.
Æfðu skógarhögg
Einhverju sinni satBjörn Ingólfssonhéraðsfund Þing-
eyjarprófastsdæmis. Yf-
irlitsræða prófasts var
flutt sköruglega að aflok-
inni messu. Síðan tóku
safnaðarfulltrúar að
flytja skýrslur sínar. Með-
an kyrrðist yfir mann-
fólkinu tóku flugurnar að
bæra á sér, suða og vakna
til nokkurs lífs. Menn létu
þessi náttúruhljóð ekki á
sig fá – utan einn. Það var
séra Sighvatur Birgir
Emilsson. Þá orti Björn
Ingólfsson:
Andagiftin er himinhá
hér er í mönnum dugur.
Safnaðarfulltrúar segja frá,
Sighvatur drepur flugur.
Og Björn orti aðra vísu
um flugur sem á vel við
núna þegar fyrsti snjór-
inn er kominn og norð-
anhríð felur alla útsýn.
En þá var vor og flug-
urnar í gleði sinni farnar
að bera hver aðra á bak-
inu.
Vorið kemur, vaknar dugur,
víkur burtu snjór og krap.
Úti í glugga fiskiflugur
farnar að sýna dónaskap.
Afdrif flugna
pebl@mbl.is
Sauðárkrókur | Skagfirskt bændafólk stóð fyrir
kynningu á búvörum í Skagfirðingabúð á Sauðár-
króki um helgina, á svonefndum Bændadögum.
Bændakonurnar virtust ánægðar með árangurinn
en þær eru Íris Olga Lúðvíksdóttir, Klara Helga-
dóttir og Margrét Óladóttir.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Ánægðar með árangurinn
Bændadagar
Ísafjörður | Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hef-
ur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að
Atlantsolíu ehf. verði úthlutað lóð undir
bensínstöð á Skeiði skammt frá verslun
Bónuss. Jafnframt var lagt til að Olíuversl-
un Íslands hf. verði úthlutað lóð undir bens-
ínstöð á hafnarsvæðinu.
Með þessu er fallið frá þeirri ákvörðun
bæjarstjórnar að efna til útboðs á tveimur
lóðum undir bensínstöðvar. Í því útboði áttu
aðeins þau félög að geta tekið þátt sem ekki
væru í rekstri bensínstöðvar á Ísafirði.
Bensínstöðin á Ísafirði hefur verið rekin í
sameiningu af þremur olíufélögum og því
var ljóst frá upphafi að Atlantsolía yrði eina
olíufélagið sem tekið gæti þátt í útboðinu.
Á fundi bæjarráðs var lagt fram minn-
isblað frá bæjarstjóra þar sem gerð er grein
fyrir þessari stefnubreytingu meirihlutans.
Þar segir m.a. að sú aðferð sem bæjarstjórn
ákvað fyrr í þessum mánuði hafi við nánari
skoðun þótt erfið í framkvæmd, m.a. vegna
þess að útboðsskilmálar heimila varla öðr-
um en Atlantsolíu að taka þátt. „Það atriði
var ljóst í upphafi en hins vegar er hugs-
anlegt að þar sem félög á vegum olíufélag-
anna eru sérstök fyrirtæki verði ekki hægt
að meina þeim þátttöku. Það var aldrei ætl-
unin enda vill bæjarstjórn auka sam-
keppni,“ segir í minnisblaðinu. Eins er bent
á að ef útboð verður framkvæmt yrði erfitt
að víkja frá slíkri stefnu í framtíðinni t.d. „ef
úthluta þarf viðbótarlóð eða færa bensín-
stöð til eða ef eitthvað annað kemur upp á í
skipulagsmálum sem þarf að leysa.“
Tillaga fer nú til bæjarstjórnar sem í þrí-
gang hafði vísað til bæjarráðs tillögu bæj-
arfulltrúa Samfylkingarinnar um að Atl-
antsolíu yrði úthlutað lóðinni á Skeiði.
Atlantsolía
fái lóð á
Skeiði
Vestmannaeyjar | Hundur hrakti sex kind-
ur fyrir björg í Vestmannaeyjum um helgina.
Lentu þær í sjónum og drápust í fallinu.
Vitni var að atburðinum og kallaði lögregl-
una til. Vitað er hver hundurinn er og mun
eigandi hans væntanlega verða kallaður til
skýrslutöku vegna málsins.
Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum
átti atvikið sér stað ofan við Kaplagjótu, vest-
an við Herjólfsdal. Þar er mikið þverhnípi í
sjó, nokkurra tuga metra hátt og mun stað-
urinn hafa verið notaður til þess að drekkja
hestum fyrr á öldum.
Hrakti kindur
fram af þverhnípi
♦♦♦
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
10. flokkur, 26. október 2004
7177 B kr.26.500.000,-
7177 E kr. 5.300.000,-
7177 F kr. 5.300.000,-
7177 G kr. 5.300.000,-
7177 H kr. 5.300.000,-
utanlandsferðir
gildir nú í allar
MasterCard ferðaávísunin
kreditkort.is