Morgunblaðið - 27.10.2004, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 17
MINNSTAÐUR
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn-
ast í beinu flugi frá Íslandi. Kraká er fyrrum höfuðborg Póllands og
því höfðu konungar þar aðsetur sitt og ber borgin þess ennþá merki
enda ótrúlega margar minjar frá
þeim tímum
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kraká
1. nóvember í 3 nætur
frá kr. 14.990
Verð kr. 14.990
Flugsæti til Kraká,
1.nóv, m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Netverð..
Netverð. Símabókunargjald
er kr. 1.500. á mann.
Góð hótel í boði frá 2.900 kr.
per mann per nótt.
Síðustu sætinMENNINGIN fyllti margar kirkjur
á Suðurnesjum um helgina þegar
Ferðamálasamtök Suðurnesja og
söfnuðirnir á svæðinu efndu til
Menningardags í kirkjum í annað
sinn. Alls komu um 1.100 manns í
kirkjurnar, samkvæmt upplýsingum
Kristjáns Pálssonar, formanns
Ferðamálasamtakanna, og er það
fleira en á síðasta ári.
Dagurinn var eftirminnilegur og
hafa komið fram áskoranir um að
efna til þriðju hátíðarinnar að ári.
Ýmislegt athyglisvert kom fram að
því er fram kemur í samantekt Krist-
jáns eftir daginn. Ómar Smári Ár-
mannsson talaði í Kálfatjarnarkirkju
og sagði frá næstum því öllum leynd-
armálum selstúlknanna í Heiðinni.
Jón Böðvarsson sagði í Njarðvík-
urkirkju að Sveinbjörn Egilsson
skáld og rektor hefði verið mesti
málamaður sem Ísland hefði alið og
taldi hann pereat MR-inga mikið
hneyksli. Magnús Þór Sigmundsson,
tónlistarmaðurinn frá Höskuldarkoti,
söng fyrir Gunnar Dal heimspeking í
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þá kom Rún-
ar Júlíusson fram sem leynigestur
með kór Keflavíkurkirkju og söng til
móður sinnar í Keflavíkurkirkju.
Séra Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup í Skálholti talaði í Útskála-
kirkju í Garði og sagði frá fyrstu
kynnum sínum af draugum en það
var í Útskálum. Matthías Johann-
essen skáld náði sambandi við séra
Hallgrím Pétursson sálmaskáld í
Hvalsneskirkju. Bjarni Ara fyllti
Kirkjuvogskirkju upp í rjáfur og
hjörtu gesta með Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni. Séra Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir kom íþróttafólki í sam-
band við Guð við athöfn í Grinda-
víkurkirkju.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Fjölmenni Hvalsneskirkja var full á menningardegi. Á fremsta bekk sitja Matthías Johannessen, Hanna Johannessen,
Gunnar Kristjánsson prófastur, Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtakanna, og Sóley Halla Þórhallsdóttir.
Menningin fyllti kirkjurnar
Vogar | KS-verktakar áttu lægsta tilboð í viðbyggingu Stóru-Vogaskóla í
Vogum í útboði Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. Fyrirtækið býðst til að
byggja fyrir liðlega 194 milljónir kr. sem er tæplega 2% yfir kostnaðar-
áætlun sem hljóðaði upp á 191 milljón.
Vegna örrar fólksfjölgunar í Vogum á undanförnum árum hefur starf-
semi skólans sprengt utan af sér húsnæðið þannig að erfiðleikar hafa skap-
ast. Kristján Baldursson, tækni- og umhverfisstjóri Vatnsleysustrandar-
hrepps, segir að nauðsynlegt hafi verið að stækka skólann vegna þessa og
til þess að fjölgunin geti haldið áfram. Þessi áfangi viðbyggingarinnar er
tæplega 1.300 fermetrar að stærð en auk þess skal verktaki vinna tilteknar
breytingar á eldra húsnæðinu. Bætast við sjö nýjar skólastofur og auk þess
fjölnota salur og mötuneyti. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist fljót-
lega, eða strax að lokinni athugun á tilboðum og samningum við verktaka,
en þeim á að vera lokið fyrir upphaf skóla næsta haust.
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. fékk fjögur tilboð og voru öll yfir kostn-
aðaráætlun. Keflavíkurverktakar áttu næstlægsta tilboðið, tæpar 200
milljónir.
Öll tilboð yfir áætlun
SUÐURNES
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjavík | Foreldrar barna
sem búa við Kleppsveg og í ná-
grenni hans eru margir hverjir
óánægðir með verslun með
hjálpartæki ástarlífsins sem
opnaði nýverið á Kleppsvegi
150, þar sem áður var mynd-
bandaleiga.
„Ég hef heyrt af óánægju for-
eldra hér í hverfinu, þetta er
auðvitað íbúða- og fjölskyldu-
hverfi. […] Þeir foreldrar sem
ég hef heyrt í eru ekki ánægðir
með þetta og fyndist eðlilegt að
þessi starfsemi væri annars
staðar heldur en í íbúðahverfi,“
segir Jón Daníelsson, formaður
foreldraráðs Langholtsskóla.
Þegar Jón er spurður hvað
það sé sem veki óánægjuna seg-
ir hann að foreldrum finnist
óþarfi að vekja athygli ungra
barna og unglinga á hjálpar-
tækjum ástarlífsins. Ekki sé um
það að ræða að fólk vilji ekki að
svona verslanir séu til heldur
finnist því að þessi verslun
mætti vera annars staðar. Jón
segir dæmi um að ung börn hafi
spurt um þessa verslun og ung-
ir drengir sérstaklega reynt að
komast þar inn.
„Ég hef heyrt óánægjuradd-
ir, en hef svo sem ekki orðið var
við að það sjóði upp úr ennþá.
Þetta er náttúrulega nýkomið
og fólk er að átta sig á þessu. Ég
hef ekki heyrt í neinum foreldr-
um sem hafa lýst yfir neinni
ánægju með þetta. Þeir foreldr-
ar sem ég hef talað við hafa ver-
ið frekar óhressir út af þessu.
Fólk er að bræða það með sér
hversu mikil óánægjan sé og
hversu útbreidd hún sé,“ segir
Jón.
Rætt á fundi foreldraráðs
Jón segir að minnst hafi verið
á þetta mál á síðasta fundi for-
eldraráðs Langholtsskóla, og á
hann von á að rætt verði um
málið á næsta fundi ráðsins sem
verður 16. nóvember. Hann
segir að rætt hafi verið um að
halda hverfisfund með íbúum
vegna málsins, en það hafi ekki
verið gert enn. Foreldrarnir
hafa ekki kannað hvaða laga-
legu úrræða sé hægt að skír-
skota til, en Jón segir að ef fjöl-
mennur íbúafundur álykti um
málið, eða ef safnað verði miklu
magni undirskrifta geti það
hugsanlega haft einhver áhrif.
„Það er hugsanlegt að borg-
aryfirvöld myndu taka eitthvert
mark á því, en ég þekki ekki
þeirra lagalegu úrræði úr því
sem komið er. Það má kannski
segja að það hefði mátt kynna
þetta fyrir íbúunum áður en
þessi starfsemi var leyfð, ég
geri ráð fyrir því að hún hafi
verið leyfð, án þess að ég viti
það heldur hvort það þarf annað
leyfi en verslunarleyfi fyrir
svona rekstur,“ segir Jón.
Foreldrar óánægðir með verslun
með hjálpartæki ástarlífsins
Ætti ekki
að vera í
íbúðahverfi
ÚTFARARTÍMI í kirkjum Reykjavíkurprófastsdæma – í Reykjavík, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi – breytist frá og með næstu mánaðamótum, og verður jarðað kl. 11, 13 og 15 frá
1. nóvember.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, segir að þessi
breyting hafi verið talsvert lengi í farvatninu, og sé tilkomin vegna óska aðstandenda og út-
fararstofa. Rætt hefur verið um að gera þessar breytingar í einhver ár, en nú hefur ákvörð-
un loks verið tekin. „Það er meiningin að jafna tímann á milli þessara útfarartíma þannig að
það verði léttara fyrir einstaklinga og þá sem starfa við útfarir að geta verið við tvær útfar-
ir sama daginn, sem reyndar kemur oft upp,“ segir Þórsteinn.
Fram til þessa hafa útfarir farið fram kl. 10:30, 13:30 og 15, og segir Þórsteinn að sér-
staklega hafi verið erfitt að komast á milli útfara á seinni tímunum. Auk þess segir hann að
aðstandendur hafi kvartað talsvert vegna vandræða sem stundum hafi orðið þegar athöfn
sem hófst kl. 13:30 dróst á langinn og aðstandendur og gestir sem ætluðu að vera við athöfn
kl. 15 voru farnir að bíða.
„Mörgum þótti líka hálfellefu tíminn drungalegur yfir vetrartímann, þegar verið var að
safnast saman í kirkjuna í myrkri. Þetta er þó snöggtum skárra klukkan 11, þótt það sé
ekki nema hálftími,“ segir Þórsteinn.
Ekki hefur tíðkast að jarða á laugardögum í Reykjavík eins og algengt er á landsbyggð-
inni, og segir Þórsteinn að því verði væntanlega ekki breytt í bili. „Hér hafa prestarnir
lagst alfarið gegn því,“ segir Þórsteinn, og segir hann presta vilja hafa laugardaginn til að
undirbúa messu á sunnudögum, auk þess sem mikið sé um giftingar á laugardögum.
Breyta útfarartíma í Reykjavíkurprófastsdæmum
Útfarartíma breytt Aðstandendur og starfsmenn hjá útfararstofum hafa rýmri tíma til að komast í tvær útfarir sama daginn.
Tíminn milli
athafna jafnaður KIRKJUR í Kjalarnesprófastsdæmimunu væntanlega ekki fylgja for-
dæmi Reykjavíkurprófastsdæma
með útfarartíma, enda hafa tíma-
setningarnar ekki verið samræmdar
hingað til, segir sr. Gunnar Krist-
jánsson, prófastur í Kjalarnespró-
fastsdæmi.
„Við lögum okkur að því sem er
gert hjá Kirkjugörðum Reykjavík-
urprófastsdæma þegar útfarir fara
fram þar, en þegar þetta er í sóknar-
kirkjunum er þetta bara á hefð-
bundnum tímum.
Tímasetningarnar fara eftir ýmsu,
og oft er jarðað á laugardögum á
minni stöðum,“ segir Gunnar.
„Það er mjög algengt að það sé
jarðað klukkan hálftvö, og ég sé ekki
fram á að því verði breytt. Það eru
allt önnur lögmál sem gilda á minni
stöðum og í dreifbýlinu. Við höfum
aldrei haft neina samræmda stefnu í
því í prófastsdæminu.“
Hafa ekki
samræmt tíma