Morgunblaðið - 05.11.2004, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ ER alveg rétt hjá Þórólfi
borgarstjóra að hann ber ekki
sjálfur ýtrustu ábyrgð á glæp-
samlegu framferði olíufélaganna.
Hins vegar gerðist hann sekur um
ófyrirleitnar lygar hvað eftir ann-
að, þegar hann var inntur eftir
sínu hlutverki. Ég man vel eftir
engilhreinum sakleysissvipnum
þegar hann þvertók fyrir að hafa
komið nálægt verðsamráði, en lýsti
því með dramatísku látbragði fyrir
fjölmiðlamönnum hvernig hann fór
smám saman að gruna að ekki
væri kannski allt með felldu.
Þessar lygar voru reyndar auð-
sæjar hverjum manni þá, og þær
eru auðsæjar núna, þegar fyrir
liggur að hann var potturinn og
pannan í olíusamráðinu og skrifaði
meira að segja fundargerðirnar,
þar sem hinar ólögmætu aðgerðir
voru ráðgerðar. Svona maður get-
ur staðið sig vel í viðskiptalífinu en
hann á ekki að koma nálægt
stjórnmálum. Þórólfur er dugn-
aðarmaður, fokríkur, vinmargur og
á sjálfsagt eftir að koma víða við
sögu, en það er svívirða að hann
skyldi fara í pólitík. Og það er með
ólíkindum að borgarfulltrúar R-
listans skyldu misbjóða almenningi
jafn lengi og raun er orðin.
Hvers vegna þegja þeir núna,
Illugi Jökulsson, Guðmundur
Andri Thorsson og allir hinir sem
gengu berserksgang fyrir Þórólf
og kölluðu málið allt svívirðilega
aðför að heiðvirðum dreng? Og
hvers vegna þegja þau núna, Lúð-
vík Bergvinsson, Jóhanna Sigurð-
ardóttir og allt það lið sem enda-
laust er með kjaftinn uppi um
ávirðingar annarra, spillingu og
hraksmánarlegt athæfi út um víð-
an völl?
Er það ekki að sannast eina
ferðina enn að alltaf skulu þeir
fitja mest upp á trýnið sem eru þó
sjálfir í skítugustu brókinni?
BALDUR HERMANNSSON,
Fagrahvammi 11,
Kópavogi.
Vinstri menn í vondri brók
Frá Baldri Hermannssyni:
MINNINGAR
✝ Guðný ÁsdísHilmarsdóttir
fæddist í Tungu í
Fljótum í Skagafirði
4. maí 1936. Hún lést
á heimili sínu í
Reykjavík 28. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Hilmar Jóns-
son frá Tungu í
Fljótum, f. 1914, d.
1954, og Magnea
Þorláksdóttir frá
Gautastöðum í Fljót-
um, f. 1913, d. 1975.
Albræður Guðnýjar
eru Jónmundur og Magnús Þor-
mar. Hálfsystkini hennar, sam-
feðra, eru Hilmar og Sigurlína.
Guðný giftist 28. janúar 1956
Gunnari Þórðarsyni símaverk-
stjóra, f. 16. desember 1934, d. 26.
Björgvinsdóttur og eiga þau
Gunnar Dan. Þórður á fyrir synina
Alexander og Adam.
Guðný hóf sambúð 1975 með
Sveini S. Pálmasyni frá Reykja-
völlum í Skagafirði, f. 27. júní
1933, og innsigluðu sambúð sína
síðar með hjónabandi. Guðný og
Sveinn bjuggu lengst af í Lerkihlíð
í Reykjavík en fluttu í maí sl. í
Hvassaleiti 58. Guðný fluttist barn
til Siglufjarðar og bjó þar til 1972.
Þá fluttist hún með börnum sínum
til Reykjavíkur. Guðný lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Siglufjarðar. Hún var í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur. Ásamt
húsmóðurstörfum starfaði hún við
ýmis verslunarstörf og sem ritari á
læknastofum og á Borgarspítalan-
um um árabil. Guðný tók virkan
þátt í söng og kórastarfi alla tíð,
bæði á Siglufirði, með Skagfirsku
söngsveitinni og Drangey, kór
eldri félaga Skagfirsku söngsveit-
arinnar.
Guðný verður jarðsungin frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
nóvember 1970. Þau
eignuðust fjögur börn
en þau eru: 1) Sigríð-
ur, f. 18. nóv. 1955, d.
20. nóv. 1955. 2) Hilm-
ar Magni, f. 28. feb.
1958, kona hans er
Freyja Kristjánsdótt-
ir, börn þeirra eru: a)
Jón Gunnar, sambýlis-
kona Elísabet Guð-
mundsdóttir og eiga
þau nýfæddan son.
Hilmar á einnig son,
Magnús Gylfa. b)
Bylgja, sambýlismað-
ur Jónas Hlíðar Vil-
helmsson. c) Darri. d) Jara. 3)
Guðný Sigríður, f. 7. maí 1963,
sambýlismaður Marteinn Valdi-
marsson, börn Guðnýjar Sigríðar
eru Ingólfur og Auður. 4) Þórður,
f. 12. febr. 1967, kvæntur Erlu
Elsku mamma og amma.
Í dag er komið að kveðjustund. Það
er svo óraunverulegt að þú sért farin
frá okkur. Minningarnar um þig
sækja á okkur. Þú varst okkur svo
góð og blíð, svo yndisleg mamma og
amma. Þú varst alltaf með opinn
faðminn fyrir okkur og það var svo
gott að koma til þín.
Ég man þegar ég var lítil og var að
alast upp á Siglufirði, allan sönginn,
hljóðfæraleikinn, leiklistina og
gleðina sem var í kringum þig. Þú
varst gleðigjafi á mörgum sviðum.
Sérstakar stundir eru fastar í minn-
inu eins og þegar þú settist upp á eld-
húsborð á Hverfisgötunni á Siglufirði
með gítarinn og söngst og spilaðir
„slatta af súkkulaði að sleikja um
sinn, slatta af kolum í ofninn minn …“
þá var gaman að lifa.
Ég man einnig sterklega þegar ég
fékk að fara með þér á leiklistaræf-
ingar hjá leikfélaginu á Siglufirði og
þú varst að leika Slettirekuna. Þá var
líf í tuskunum. Þú stóðst þig frábær-
lega vel og ég var svo stolt, af því að
þú varst mamma mín. Sama er að
segja þegar þú söngst með blönduð-
um kvartett frá Siglufirði inn á hljóm-
plötu og við heyrðum þig syngja í út-
varpinu.
Eftir að pabbi dó og við fluttum til
Reykjavíkur hélstu áfram að syngja í
kórum og spila á píanóið og gítarinn.
Og áfram hélt söngurinn þegar þú
kynntist Sveini og þið fóruð að búa
saman.
Elsku mamma og amma, við sökn-
um þín mikið og viljum að lokum
þakka þér fyrir með eftirfarandi orð-
um:
Ég fæ þér aldrei fullþakkað
fyrir að vera hjá mér,
þú stóðst með mér,
hvattir mig til dáða,
en hélst þó í tauminn.
Þú reistir mig við
og styrktir mig.
Ég er minnisvarði
hugsana þinna og umhyggju.
Þakka þér fyrir.
(Höf. ókunnur.)
Minningin um þig mun lifa með
okkur.
Þín
Guðný Sigríður,
Ingólfur og Auður.
Elsku Guðný amma.
Þér líður örugglega betur hjá guði
þegar veikindin eru farin. Nú getur
þú ekki kennt okkur á gítar og spilað
á píanóið lengur en það er bara allt í
lagi. Nú ertu farinn upp til Gunnars
afa sem við hittum aldrei.
Við hugsum alltaf fallega til þín og
munum aldrei gleyma þér.
Adam og Alexander
Þórðarsynir.
Kær æskuvinkona er látin. Í 63 ár
höfum við verið vinir og sambandið
aldrei slitnað.
Við viljum minnast ljúfrar stelpu í
barnaskóla, yndislegs unglings og
glæsilegrar ungrar konu, sem alltaf
var hrókur alls fagnaðar, einkum
vegna ljúfrar framkomu og sérstæðs
tónlistarhæfileika.
Á árunum 1945 til 1953 voru oft
langir og snjóamiklir vetur á Siglu-
firði. Frítíminn á daginn var þá oft
notaður í sleða- og skíðaiðkun en á
kvöldin var stundum komið saman á
heimili þar sem orgel var til staðar og
þá færðist fjör yfir vinahópinn. Okkur
fannst enginn spila eins vel og Guðný,
hvort það var píanó, orgel, gítar eða
harmonikka, allt lék í hennar höndum
og ekki var söngurinn síðri. Hún gat
djassað, trommað og spilað á gítarinn
en slíkt höfðum við ekki heyrt áður.
Oft dunaði danstónlistin glatt. Á
skólaárum okkar á kirkjuloftinu í
Siglufjarðarkirkju fóru flestar frímín-
úturnar í að æfa dans, þá spilaði
Gunnsa ávallt undir á gamla kirkju-
orgelið. Guðný æfði og stjórnaði telp-
GUÐNÝ ÁSDÍS
HILMARSDÓTTIR
ATHYGLISVERT tónverk Hauks
Tómassonar er um það bil að fá
hin árlegu verðlaun Norð-
urlandaráðs og mjög að verð-
leikum. Lengi hefur vakið undrun
að verkið skuli á íslensku nefnt
„Fjórði söngur Guðrúnar“ en ekki
„Guðrúnarkviða fjórða“. Á dönsku
mun það nefnt „Blodets dronning
Gudrun“.
Fjögur eddukvæði eru kennd við
Guðrúnu Gjúkadóttur og þrjú hin
fyrstu venjulega kölluð ‘Guðrún-
arkviða I, II og III’. Hið fjórða er
„Guðrúnarhvöt“ þar sem Guðrún
rekur harma sína. Efnið í óperunni
er sótt í þessi kvæði ásamt Snorra
Eddu. Orðið „kviða“ er á dönsku
ýmist þýtt sem „kvad“ eða „sang“
og á sænsku „kväde“ eða „sång“,
en mun tilkomuminna er að notast
hér við orðið „söngur“ á íslensku.
ÁRNI BJÖRNSSON,
Bræðraborgarstíg 4,
101 Reykjavík.
Guðrúnarkviða fjórða
Frá Árna Björnssyni:
Í UMRÆÐUNNI um verð- og
markaðssamráð olíufélaganna
hafa mörg orð fallið. Sum virðast
mér frekar látin falla af hörku
og innibirgðri reiði en yfirvegun,
réttsýni og skynsemi. Þá verða
ýmis aukaatriði að aðalatriðum
svo menn missa sjónar á því er
mestu máli skiptir, sem er að
velta því fyrir sér hvernig við
getum komið í veg fyrir sam-
ráðs- og einokunartilhneigingu
stórfyrirtækjanna í landinu og
hvernig hægt er að bæta þeim
sem hafa orðið fyrir skaða vegna
samráðsins, bæði beint og
óbeint.
En heimskulegast og illgjar-
nast í allri umræðunni hefur mér
þó fundist þegar menn taka sig
til og ræða um „prestssoninn“ úr
Kópavogi, þegar borgarstjórann
okkar ber á góma. Slíkt var gert
um daginn á annarri sjónvarps-
stöðinni og í gær hjá þeim ágæta
manni Sveini Andra Sveinssyni
hæstaréttarlögmanni í Mbl. Er
það venjan hjá lögmönnum í
réttarsölum að tiltaka hvað for-
eldrar ásakaðra, grunaðra eða
afbrotamanna gera? Hvað kem-
ur það málinu við hvað faðir Þór-
ólfs borgarstjóra gerir. Á borg-
arstjorinn ekki móður líka?
Ég tek undir með forystu-
grein Morgunblaðisins í gær.
Það er smekklaust og ósæmandi,
að minni hyggju, þegar verið er
að draga nánustu aðstandendur
fólks, sem verður fyrir þungum
ásökunum, inn í þau mál. Nóg
held ég þau líði samt vegna að-
stæðna sinna elskuðu. Aðgát
skal höfð í nærveru sálar.
Karl V. Matthíasson
Aðgát skal höfð
Höfundur er prestur.
Smáralind • sími 553 6622 • www hjortur is
Jólaskeið
Ernu
kr. 6.700
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Landsins
mesta úrval
Silfurbúnaður
Strjál eru laufin
í loftsölum trjánna,
blika, hrapa
í haustkaldri ró.
Virðist þó skammt
síðan við mér skein
græn angan
á opnu brumi.
(Snorri Hjartarson.)
Með söknuði og sorg kveðjum við
okkar ágæta nágranna, Ásgeir Guð-
mundsson. Frá því að við kynntumst
fyrir rúmum sextán árum höfum við
ætíð átt góð samskipti við þau hjón,
hann og Jóhönnu Þorsteinsdóttur.
Góðir nágrannar eru ómetanlegir og
það hafa þau svo sannarlega verið að
öllu leyti. Garðurinn hjá þeim og allt
þeirra umhverfi hefur borið vitni um
alúð þeirra og umhyggju og þau
nutu lífsins saman til hinstu stundar.
Hennar er missirinn mestur. Ásgeir
var glaðsinna og hressilegur og
ávallt vakinn og sofinn yfir velferð
fjölskyldunnar sem var honum svo
kær.
Ekki fór heldur framhjá okkur
hvað börn þeirra og fjölskyldur
ÁSGEIR
GUÐMUNDSSON
✝ Ásgeir Guð-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 19.
febrúar 1926. Hann
lést 22. október síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Frí-
kirkjunni 4. nóvem-
ber.
sóttu mikið til þeirra
og sú samheldni sem
þar hefur myndast ger-
ir þau að sterkum ein-
staklingum og hjálpar
þeim við að takast á við
lífið nú þegar Ásgeirs
nýtur ekki lengur við.
Á þessum erfiðu tíma-
mótum mun Jóhanna
njóta umhyggju síns
fólks og við vonum
innilega að henni takist
að búa sér gott líf við
breyttar aðstæður. Við
biðjum henni og þeim
öllum blessunar. Minn-
ingin um mætan mann lifir.
Ragnhildur Karlsdóttir og
Guðmundur M. Sigurðsson.
Elsku afi. Ég á svo margar góðar
minningar um þig að ég veit ekki
hverjar ég á að velja úr til að setja í
þessa minningargrein. Það vita allir
sem þekktu þig hvað þú varst ynd-
islega góður maður, svo hress og
kátur. Ég get bara ekki ímyndað
mér betri afa en þig. Þú hafðir ein-
stakan hæfileika sem var kímnigáf-
an þín. Þú gast fengið alla til að
hlusta og hlæja, sama á hvaða aldri
þeir voru, og þú fékkst mig allavega
mjög oft til að hlæja. Ég hef alltaf
verið stolt af þér og skrifaði ritgerð
um þig í grunnskóla þegar ég var
beðin um að skrifa um merkilega
persónu. Þetta þótti þér nú svolítið
skrítið, en þú hefur bara alltaf átt
sérstakan stað í hjarta mínu. Ég átti
yndislega tíma með þér í sumar þeg-
ar ég var ein heima í mánuð og var
hjá ykkur ömmu í mat. Við horfðum
á held ég bara hvern einasta leik í
heimsmeistarakeppninni. Þó að ég
hafi nú engan sérstakan áhuga á fót-
bolta þá var svo gaman að horfa með
þér því að þú lýstir öllu svo
skemmtilega og sást hlutina oft á
undan dómaranum, þó að sjónin þín
væri ekki sem best. Þú tókst Hödda
mínum svo vel, eins og hann hefði
alltaf verið í fjölskyldunni. Hann
saknar þín sárt eins og við öll. Ég á
eftir að sakna þess að heyra sögur
frá því þú varst yngri, en þær voru
alveg ótrúlegar. Þú sagðir líka svo
skemmtilega frá að maður datt al-
veg inn í þær. Rétt áður en þú fórst
til Kaupmannahafnar sagðirðu mér
einmitt frá því þegar þú fórst með
vinum þínum í Tívolíið í Kaup-
mannahöfn þegar þú varst ungur og
hvað var gaman í rússíbananum og
draugahúsinu. Þið vinirnir voruð í
draugahúsinu þegar einhver starfs-
maður greip víst í lærið á vini þínum
og hann varð svo hræddur að hann
öskraði og kastaði sér á þig þannig
að þú varðst hræddur. Þessari sögu
fylgdu náttúrlega leikrænir tilburðir
sem ég sé fyrir mér þegar ég skrifa
þetta. Þú átt eftir að lifa með mér í
minningunni. Ég veit að ég á eftir að
geyma þig hjá mér að eilífu og segja
börnunum mínum frá þér, en það er
nú eitt á leiðinni sem þú varst viss
um að væri stelpa. Við sjáum til með
það en barnið á eftir að fá að vita um
þig og allt sem þú hefur gefið fjöl-
skyldunni og hversu frábær þú
varst. Ég elska þig, elsku afi minn,
og ég bið fyrir þér.
Þín
Jóhanna Vilhjálmsdóttir.