Morgunblaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2004 35
MINNINGAR
nakvartett, söng dúett með Núru og
minnisstætt er atriði þar sem þær
tóku topp 10 þess tíma, lagið Com on
in my house, sem Rosmary Cloony
gerði frægt. Frábært atriði!
Á milli okkar skapaðist mikil vinátta
sem haldist hefur gegnum öll árin.
Gunni, góður og fallegur drengur,
var hennar allra besti vinur á æskuár-
unum og um 12 ára aldur voru þau far-
in að „ganga saman“. Seinna urðu þau
kærustupar, giftust og fóru að búa.
Þau upplifðu sorgir eins og gengur í
lífinu en eignuðust svo þrjú yndisleg
börn sem Guðný elskaði mjög heitt og
var stolt af. Gunnar lést af slysförum
langt um aldur fram. Seinni maður
Guðnýjar er Sveinn Pálmason.
Guðný mín, það er erfitt að hugsa til
þess að nú hætta heimsóknirnar til
þín, þar sem við töluðum um gamla
daga á Sigló. Þá var mikið hlegið að
stórum sem smáum atburðum.
Við sendum börnum Guðnýjar,
Sveini og öðrum aðstandendum okkur
dýpstu samúðarkveðjur, það er hugg-
un harmi gegn að nú bætist frábær
tónlistarmaður við á annað tilverusvið.
Guð blessi minningu Gunnsu okkar.
Heiðar, Sólrún (Núra) og Erla.
Kveðja frá
Söngsveitinni Drangey
Nótt að beði sígur senn,
sofnar gleði á vörum.
Samt við kveðjum eina enn,
áður en héðan förum.
(Jón Þorfinnsson.)
Góður félagi okkar, Guðný Ásdís
Hilmarsdóttir, hefur nú kvatt. Guð-
nýju var margt til lista lagt og fór
sönggyðjan ekki varhluta af því. Við
kórfélagar hennar í Söngsveitinni
Drangey eigum margs að minnast frá
skemmtilegum samverustundum með
henni. Alltaf sýndi hún af sér hlýtt við-
mót og notalegt bros hversu erfitt sem
lífshlaup hennar sjálfrar var á stund-
um.
Hugurinn reikar til baka til allra
þeirra ánægjustunda sem þessi sam-
stæði hópur átti á æfingum, á tónleik-
um, í kórferðalögum og mörgu fleiru.
Þátttaka í starfinu var henni mik-
ilvæg en stundum erfið á seinni árum.
Alltaf kom hún þó aftur um leið og
heilsan leyfði og var vel fagnað. Guðný
var glæsileg kona og hélt því allt til
enda. Við kórfélagarnir þökkum henni
ljúfar minningar í starfi og leik.
Erla Lúðvíksdóttir.
✝ Katrín Andrés-dóttir fæddist í
Núpstúni í Hruna-
mannahreppi í Ár-
nessýslu 21. ágúst
1901. Hún lést á
Landspítalanum
Hringbraut 23. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Kristín Stefánsdótt-
ir, f. 23. júní 1867, d.
7. mars 1937 og
Andrés Jónsson, f.
12. september 1861,
d. 15. ágúst 1920,
bændur í Núpstúni.
Katrín átti hálfsystur, Margréti,
samfeðra, f. 19. september 1886,
d. 29. nóvember 1983. Alsystkini
hennar eru Jón, f. 7. júlí 1898, d.
19. nóvember 1969,
Helga, f. 12. júní
1900, d. 28. mars
1945, Stefanía, f. 15.
júlí 1906, d. 31. des-
ember 1912. Krist-
ín, f. 22. júlí 1907.
Katrín var ógift
og barnlaus.
Hún fluttist ung
til Hafnarfjarðar og
þaðan 1930 til
Reykjavíkur, þar
sem hún bjó alla tíð
síðan. Katrín vann
við saumaskap
mestan hluta ævinn-
ar.
Útför Katrínar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Kallið er komið. Þegar við kveðj-
um elsku Kötu frænku þá hefur hún
lifað í 103 ár, það er býsna langur
tími en hver líðandi stund var henni
svo eðlileg.
Kata vann í fullu starfi til 80 ára
aldurs á saumastofu og þar af í 40 ár
hjá Saumastofunni Max. Hún bjó
alltaf með Stínu systur sinni og er
ekki hægt að minnast Kötu án Stínu
sem lifir systur sína. Við systkinin
nutum samveru við þær frá fæðingu
og áttum þar margar ánægjustundir
við spil, leik, nám og fróðleik, því
þær systur voru hafsjór fróðleiks.
Þær ferðuðust mikið bæði innan-
lands sem utan og festu í minni það
sem fyrir augu bar. Þær fylgdust vel
með þjóðmálum innanlands og einn-
ig öllum heimsviðburðum.
Eftir að við systkinin stofnuðum
eigin fjölskyldur, þá nutu börn okkar
og síðan barnabörn ástar þeirra og
umhyggju og ekki má gleyma ullar-
sokkunum góðu sem hafa haldið
hlýju á öllum í fjölskyldunni.
Við vottum Stínu okkar innileg-
ustu samúð og biðjum henni bless-
unar.
Við viljum þakka Kötu fyrir sam-
fylgdina og geymum í minni hin góðu
samskipti á lífsins leið. Þökk sé
henni. Við kveðjum Kötu með gælu-
orðinu sem hún notaði við okkur,
keipuklærnar þínar,
Þóra, Valdimar og Bryndís.
KATRÍN
ANDRÉSDÓTTIR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal
senda í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins: mbl.is (smellt á
reitinn Morgunblaðið í flip-
aröndinni – þá birtist valkost-
urinn „Senda inn minningar/af-
mæli“ ásamt frekari
upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður
hún að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skila-
frests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd Minningargreinar séu
ekki lengri en 2.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt
að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum
fylgir formáli, sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um hvar
og hvenær sá, sem fjallað er
um, fæddist, hvar og hvenær
hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks
hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst.
Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í
tilkynningu er hún sjálfkrafa
notuð með minningargrein
nema beðið sé um annað. Ef
nota á nýja mynd er ráðlegt að
senda hana á myndamóttöku:
pix@mbl.is og láta umsjónar-
menn minningargreina vita.
Minningar-
greinar
Ég þakka þann tíma
sem ég átti með henni
Dóru, að sitja hjá
henni í þögninni og
láta hugann reika til
þess tíma þegar ég var
barn. Minnast þess hve vel hún
hugsaði alltaf um mig og kenndi
mér svo margt fallegt.
Það var sárt að horfa upp á þessa
góðu frænku svo veika sem hún var
orðin. Þó kvartaði hún ekki og bar
sig alltaf vel. En nú er hún farin og
eftir lifir minning um konu sem
ekki talaði illa um nokkurn mann
en var svo auðsærð, ef að henni var
vegið. En þannig var hún, sem vildi
öllum svo vel.
Frá að ég man fyrst eftir mér
mátti ég ekki af henni sjá, svo
hænd var ég að henni. Hún var svo
mikið heima hjá foreldrum sínum á
sumrin og vann þar við bústörfin.
Alltaf man ég þegar hún fór að
vinna á Vegamótum, en það líkaði
mér ekki vel. Ég man hvað hún var
góð að leyfa mér að fara með sér ef
hún fór af bæ og þá var gjarnan
farið í Krossholt, gangandi eða á
hestum. Já, þær voru margar ferð-
irnar sem við fórum með henni, en
það nutu fleiri börn hennar gæða
og hændust að henni og tókum við
þátt í því sem Dóra var að gera
hverju sinni.
Þeir eru ofarlega í minningunni
þessir stóru kartöflugarðar sem
okkur fannst að mættu vera miklu
minni, en réttir og kartöflugarðar
tengjast í huga okkar því það varð
að vera búið að taka allt upp því
annars komumst við ekki í réttir.
Mikið var hún Dóra óþreytandi
að segja okkur sögur og hún sagði
líka svo vel frá, en hún var svo
minnug alla tíð. Hvað hún gat mun-
að afmælisdaga allra, ekki bara
HALLDÓRA
JÚLÍUSDÓTTIR
✝ Halldóra Júl-íusdóttir fæddist
í Hítarnesi 29. maí
1920. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 23. október
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Langholtskirkju
4. nóvember.
systkina sinna heldur
allra systkinabarna
sinna og þeirra barna.
Ekki brást það þeg-
ar aðventan gekk í
garð að þá kom Dóra
með jólastörnu og gaf
mér í afmælisgjöf en
hún gaf mér líka alltaf
jólagjöf.
Þær voru skemmti-
legar ferðirnar sem
við fórum í seinni tíð í
Borgarnes, Hítarnes,
á bæina þar í kring
eða í heimsókn til
Laufeyjar, Lóu og
Unnar. Þá var gjarnan farið í minn-
ingasjóð og sagt frá einhverju
skemmtilegu.
En er ég lít til baka finn ég að ég
fór samt alltof sjaldan til Dóru.
Þegar við Unnur sátum við
sjúkrarúmið hennar og sögðum
henni að Hafliði væri að koma heim
frá Þýskalandi svaraði hún svo
skýrt: „Það er gott, blessaður
drengurinn.“ Dóra var líka stolt af
honum og hans fjölskyldu. Hann
var mömmu sinni mjög góður og
vék varla frá sjúkrabeð hennar fyrr
er yfir lauk.
Elsku Dóra mín, ég þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig.
Guð geymi þig.
Kristín Stefánsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og bróðir,
GUÐJÓN JÓNSSON,
Núpi II,
Vestur-Eyjafjöllum,
verður jarðsunginn frá Ásólfsskálakirkju laugar-
daginn 6. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á reikning Kvenfélagsins Eyglóar
nr. 0182-05-690, kt.: 571188-1399.
Ásta Sveinbjörnsdóttir,
Jón Kristinn Guðjónsson, Linda Bára Finnbogadóttir,
Hanna Valdís Guðjónsdóttir,
Guðmundur Ingi Guðjónsson, Bryndís Hrund Brynjólfsdóttir,
Svanhildur Ósk Guðjónsdóttir,
systkini og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
bróðir,
STEFÁN AÐALSTEINSSON
kennari,
Víðilundi 2b,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 1. nóvember.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 13.30.
María Sigurbjörnsdóttir,
Stefán Þór Stefánsson, Guðrún Betsy Árnadóttir,
Þuríður Þórðardóttir, Björn Ragnarsson,
Ásþór Tryggvi Steinþórsson, Steinþór Kristinn Stefánsson,
Jón Aðalsteinsson,
Þór Aðalsteinsson,
Rósa Aðalsteinsdóttir.
Faðir okkar og afi,
RAGNAR BJARNASON,
Borg,
Skriðdal,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugar-
daginn 6. nóvember kl. 14.00.
Jarðsett verður í heimagrafreit að Borg.
Margrét Ragnarsdóttir,
Ingibjörg Ragnarsdóttir,
Ragnar Helgi Borgþórsson,
Kristrún Anna Borgþórsdóttir,
stjúpsynir og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HJÖRTUR ÓLAFSSON,
Fossheiði 32,
Selfossi,
áður til heimilis
á Efri-Brúnavöllum, Skeiðum,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands mánu-
daginn 1. nóvember.
Útför hans mun fara fram frá Selfosskirkju föstudaginn 12. nóvember
kl. 13.00.
Ásbjörg Fríða Lárusdóttir,
Lárus Hjartarson,
Ólöf Hjartardóttir, Rósar Aðalsteinsson,
Ólafur Már Hjartarson,
Jóhanna Sigríður Hjartardóttir, Bragi Hjartarson,
Einar Örn Rósarsson, Sóley Rós Rósarsdóttir,
Elma Rut Jónsdóttir,
Sölvi Már Birgisson, Arnór Ingi Birgisson.
Okkar ástkæri,
VILHJÁLMUR PÁLL GARÐARSSON,
Vanabyggð 19,
Akureyri,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
föstudaginn 29. október, verður jarðsunginn
frá Glerárkirkju þriðjudaginn 9. nóvember
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Sigurrós Jónsdóttir,
Hafdís, Sigurpáll, Elva Dögg
og fjölskyldur.