Morgunblaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2004 45
DAGBÓK
Útilíf
20% afsláttur af Puma skóm, fótboltaskóm,
hlaupaskóm, handboltaskóm, barnaskóm, götuskóm.
Carat
15% endurgrei›sla af öllum keyptum vörum í nóv.
ESSO
10 rósir í búnti 990 kr. fullt ver› 1.490 kr.
Pizza Hut
Tilbo›smáltí› fyrir 2 á 1.190 kr. Tvær litlar pönnupizzur
me› 2 áleggstegundum og 1 lítri af Pepsí. Gildir í
„Take away“.
Sony Center
Sony Harddisk Walkman 20 GB á tilbo›i 53.995 kr.
fullt ver› 65.995 kr.
Hagkaup
40% afsláttur af Nóa konfekti
20% afsláttur af Freschetta
20% afsláttur af barnakuldaskóm
15% afsláttur af herrabolum
20% afsláttur af KEEL böngsum
20% afsláttur af Pictionary og Scrabble.
BT
HP stafræn myndavél, tilbo› 19.990 kr. fullt ver›
27.990 kr.
Apóteki› bar, grill
Glæsilegur villibrá›amatse›ill, 10% endurgrei›sla
af öllu í nóvember.
TOPSHOP
20% afsláttur af skóm og 20% afsláttur af skyrtum.
Dorothy Perkins
20% afsláttur af úlpum í nóvember.
Kjóll og hvítt
20% endurgrei›sla af allri fljónustu í nóvember.
Búsáhöld, Kringlunni
10% endurgrei›sla af öllum vörum í nóvember.
Heimilistæki
Whirlpool 1400 snúninga flvottavél, tilbo›sver› fyrir
e-korthafa 59.995 kr. fullt ver› 79.995 kr.
Nóvembertilbo› 2004
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
0
9
9
2
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Kátir karlar koma og
syngja við undirleik og stjórn Sigrún-
ar Þórsteinsdóttur í kaffitímanum
eftir Bingó sem hefst kl. 14.
Árskógar 4, | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–12, smíði, útskurður kl.13–
16.30. Vetrarfagnaður laugardaginn
6. nóvember kl. 19.
Borgfirðingafélagið í Reykjavík |
spiluð félagsvist laugardaginn 16.
nóvember kl. 14 í Síðumúla 37, 3.
hæð.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, félagsvist.
Félag eldri borgara í Kópavogi, |
Bingó í Gullsmára kl. 14. Félagsvist í
Gjábakka kl. 20.30. Skvettuball í Gull-
smára 13 laugardaginn 6. nóv. kl. 20.
Brids í Gjábakka kl. 13.15.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Fé-
lagsvist í Garðabergi kl. 13 á vegum
Félags eldri borgara. Slökunarjóga og
teygjur kl. 10.30 og 11.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband eftir
hádegi. Kl. 10.30 gönguferð. Frá há-
degi spilasalur opinn. Kl. 16. opnuð
listmunasýning. S. 575 7720.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun,
kl. 14.15 verður Aðalheiður Þorsteins-
dóttir við píanóið fram að kaffi kl. 15.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður og
hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12
hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 15,
kaffi. Árlegi basarinn verður laug-
ardaginn 6. nóvember.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu. Böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf,
listasmiðja, myndlist, hárgreiðslu-
stofa s. 568 3139, gönuhlaup kl.
9.30, bridge kl. 13.30. Skráning í há-
degisverð alla daga. Edith Piaf í há-
deginu á föstudag, saltkjöt og baunir.
S. 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9–12 myndlist, kl.10 boccia, kl. 14 leik-
fimi, kl.15 kaffi.
Seyðfirðingafélagið | Vinafagnaður
Seyðfirðingafélagsins verður haldinn í
Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi,
laugardaginn 6. nóvember kl. 19.
Skaftfellingabúð | Fyrsta mynda-
kvöld vetrarins kl. 20.30 í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi 178. Magnús
Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræð-
ingur fjallar um ástand og horfur í
Kötlu í máli og myndum. Aðgangur er
ókeypis.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30, hann-
yrðir, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl.
13.30–14.30 sungið v/flygilinn, kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar, kl. 14.30–
16 dansað í Aðalsal, við lagaval Hall-
dóru, gott með kaffinu.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
leirmótun, hárgreiðsla, morgunstund,
fótsnyrting, leikfimi og bingó kl.
13.30. Jólamarkaðstorg verður á
Vitatorgi fimmtudaginn 11. nóvember
kl. 13.00 til 17.00.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
alla föstudaga kl. 10. Kaffi og spjall.
Sögustund fyrir börnin. Kl. 10–11.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum þriðjudaga og föstudaga kl. 11.
Súpa, leikfimi, kaffi og spjall. Kl. 11–14.
Kvenfélags Langholtssóknar | Hinn
árlegi basar og happdrætti Kven-
félags Langholtssóknar í Reykjavík
verður í safnaðarheimili kirkjunnar á
morgun, laugardaginn 6. nóvember,
og hefst kl. 14. Mikið úrval verður af
heimagerðum jólavörum, tertum og
kökum. Eigulegar bækur fást í kaup-
bæti í anddyri safnaðarheimilisins.
Tilvalin fjölskylduskemmtun. Allur
ágóði rennur í gluggasjóð kirkjunnar.
ÓL í Istanbúl.
Norður
♠732
♥KG5
♦754
♣KG106
Vestur Austur
♠G5 ♠ÁD1084
♥1092 ♥D743
♦KG62 ♦983
♣9832 ♣5
Suður
♠K96
♥Á86
♦ÁD10
♣ÁD74
Ítalska ofursveitin spilar vel útfært
og nútímalegt kerfi, en þegar grannt
er skoðað kemur í ljós að styrkur liðs-
ins liggur ekki í sögnum fyrst og
fremst – miklu fremur í góðri vörn og
úrspili. Spilið að ofan er ágætt dæmi,
en það er frá átta liða úrslitum ÓL úr
leik Ítala og Pakistana.
Þrjú grönd voru spiluð á báðum
borðum og hafði austur komið spað-
anum að í sögnum.
Vestur hóf vörnina með spaðagosa.
Áður en lengra er haldið – hvort
myndi lesandinn veðja á vörnina eða
sóknina?
Byrjum í lokaða salnum þar sem
Ítalinn Bocchi var í suður gegn Fazli
og Allanda. Bocchi dúkkaði spaðgos-
ann og vestur spilaði spaða áfram,
sem austur tók og spilaði þriðja spað-
anum (tíunni), en vestur henti tígli.
Bocchi átti slaginn á spaðakóng og fór
inn á blindan á lauf til að spila tígli á
tíuna.
Vestur drap á gosann og skipti yfir í
hjartatíu (spaðatía austurs áður var
augljóst kall í hjarta). Bocchi prófaði
hjartagosann og drap svo drottningu
austurs með ás.
Hann tók næst alla laufslagina, en
spilaði svo hjartakóng og meira
hjarta. Vestur lenti inni á hjartaníu og
varð að spila frá tígulkóng í lokin upp í
ÁD. Níu slagir.
Þetta er vandað, en engin sérstök
snilld. Á hinu borðinu fékk sagnhafi
hins vegar ekkert tækifæri til að sýna
sínar bestu hliðar. Útspilið var líka
spaðagosi, en þar yfirdrap Versace í
austur með drottningunni! Sagnhafi
dúkkaði réttilega, en frekar en spila
spaða áfram, skipti Versace yfir í tíg-
ul.
Sagnhafi svínaði tíunni, sem Lauria
í vestur drap með gosa og spilaði
spaða. Versace tók með ás og spilaði
enn tígli.
Sagnhafi svínaði aftur og enn mis-
heppnaðist svíningin. Lauria fríaði tíg-
ulinn og nú var hjartagosinn eini
möguleiki sagnhafa á níunda slagnum.
En svíningin misheppnaðist – einn
niður og 10 stig til Ítala.
Það er erfitt að eiga við svona
menn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
BORGARKVARTETTINN verður
á faraldsfæti í vetur og ætlar að
halda tónleika víða um land. Ferð-
in hefst á þrennum tónleikum á
Snæfellsnesi nú um helgina.
Fyrstu tónleikarnir verða í Ólafs-
víkurkirkju kl. 20 í kvöld. Á laug-
ardag munu þeir síðan syngja í
Stykkishólmskirkju kl. 16. Frá
Stykkishólmi verður síðan ekið til
Grundarfjarðar þar sem loka-
tónleikarnir verða haldnir á veit-
ingastaðnum Krákunni kl. 22 um
kvöldið.
Borgarkvartettinn er karlakv-
artett, skipaður þeim Þorvaldi
Halldórssyni, Þorvaldi Þorvalds-
syni, Atla Guðlaugssyni og Ásgeiri
Páli Ágústssyni. Þeir hafa sungið
saman um nokkurra ára skeið
ýmsa tegund tónlistar. Í fyrstu
lögðu þeir rækt við „barbershop“
lög og negrasálma, en smásaman
hefur breiddin í lagavali aukist svo
nú kennir þar ýmissa grasa og
flytja þeir nú allt frá gömlum
klassískum perlum upp í nútíma
dægurlög.
Kvartettinn hefur ekki síst vakið
athygli fyrir nýja útsetningu á lag-
inu Á sjó sem Þorvaldur Hall-
dórsson gerði vinsælt á árum áður
með hljómsveit Ingimars Eydal. Á
tónleikunum á Snæfellsnesinu
verða auk kvartettsöngsins flutt
einsöngslög og dúettar en allir
hafa meðlimirnir getið sér gott
orð sem einsöngvarar.
Morgunblaðið/Golli
Kvartettinn æfir með undirleikaranum Árna Heiðari Karlssyni.
Borgarkvartettinn
heldur á Snæfellsnes
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.borgarkvartett.is
UM þessar mundir er öld frá fæðingu Sím-
onar Jóhannesar Ágústssonar, en hann
var mikilvirkur rithöfundur og vís-
indamaður á sviði heimspeki, uppeld-
isfræði og sálarfræði og meðal brautryðj-
enda í kennslu í þeim greinum á Íslandi.
Símon var prófessor í Háskóla Íslands um
áratuga skeið.
Í tilefni af aldarafmæli Símonar verður
efnt til dagskrár í Hátíðarsal Háskóla Ís-
lands á morgun milli klukkan 15 og 17. Þar
munu nokkrir fræðimenn í þeim greinum
sem Símon lét sig varða flytja stutt er-
indi, þau Páll Skúlason, Sigurjón Björns-
son, Tómas Helgason, Jörgen Pind, Anna
Þorbjörg Ingólfsdóttir, Guðný Guðbjörns-
dóttir, Jón Torfi Jónasson og Þorbjörn
Broddason.
Milli erinda flytja Marta Guðrún Halldórs-
dóttir söngkona og Örn Magnússon píanó-
leikari lög eftir íslensk tónskáld við nokkr-
ar vísur úr Vísnabókinni sem Símon
ritstýrði á sínum tíma.
Símonar Jóhannesar
Ágústssonar minnst í HÍ