Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 25.11.1962, Qupperneq 2

Sunnudagsblaðið - 25.11.1962, Qupperneq 2
P Þannig var tízkan nm 1925, blúndur og leggingar, flatur barmur og perlufestar niður á r maga. Dúfan á myndinni tiiheyrir ekki beinlínis tízkunni, en vel mætti ímynda sér, að hún væri þarna til að friðmælast við heiminn vegna tízknnnar (Sbr, friðardúfu Picassos og Krústjovs). Það skyldi þó ekki eíga fyrir okkur að liggja að svipuð tizka verði alls ráðandi í heimi kvenna á ný. leg áhrif á mig. Svo varanleg, að þegar ég röskum þremur árum síðar byggði mér hús, hér austur á landi, þá byggði ég einlyft steinhús með steyptri plötu, sem er mun þykkari en húsameistarar telja nauðsynlegt og hafði risið yfir henni þar að auki svo lágt.að það er ekki manngengt. Mikið var ég búinn að vorkenna þessu kærustupari, þá fátækt, að eiga aðeins eina plötu á fóninn sinn og ekkert nema mín krónisku blankheit, kom í veg fyrir að ég keypti aðra plötu, til að gefa því til íilbreytingar. Mér datt þetta í hug hérna um kvöldið, þegar ég heyrði „lagið“ leikið í útvarpið undir titlinum gömul vinsæl lög, og ekk- ert, nema mín krónisku blankheit, kom f veg fyrir að ég tæki mig til og bryti út- varpið mitt. Það er nefnilega dýrt að fá sér nýtt útvarpstæki. Ég varð því að sleppa því að fremja þennan hetjuskap. Það hafa ekki allir efni á því að drýgja hetjudáðir, ekki einu sinni í þessu róm- aða góðæri. Ég veit það nú, að auðvitað hefur par- ið átt fleiri plötur, sjálfsagt 50 eða 100 og mikið hefði það hlegið og mikið hefði það vorkennt mór, hefði ég komið ljómandi af mannkærleika arkandi með nýja plötu, til að gefa því, af því að það a?tti bara eina, — því það var bara þessl eina plata, sem var í tízku þennan vetur, og aðeins öðrum megin. .• Svona vitkast maður með aldrinum. Sigurður Ó. Pálsson. fylgjast með þróun þessarar endurreisn- arstefnu næstu misserin. Þegar ég var í skóla hér fyrir nokkrum árum suður í hcnni Reykjavík, bjó ég einu sinni í herbergi, er svo var ástatt um, að kærustupar bjó í herberginu fyrir ofan. Þetta kærustupar átti grammófón og eina plötu, sem það snéri aldrei við. Um það leyti, sem ég kom heim síðari hluta dagsins, eftir að hafa setið á ein- liverju kaffihúsanna frá því um nón, ásamt skólafélögum mínum og verið gáf- aður í andlitinu við að bjarga heims- menningunni, — kom parið lieim úr vinnu sinni, setti plötuna sína á fóninn, fór að spila lagið sitt og stappa í gólfið í lakt við lagið. Þegar ég fór í mat rétt fyrir kl. 7, var parið að spila lagið sitt og stappa í gólfið. Þegar ég kom úr mat, var parið að spila lagið sitt og stappa í gólfið. Þetta var í gömlu timburhúsi. Þegar ég fór út síðla kvölds, til að bjarga meiru af heimsmenningunni á ein- hverju kaffihúsanna, var parið að spila lagið sitt og stappa í gólfið. Og þegar ég kom heim um miðnættið, til að draga sængina upp fyrir höfuð, var parið enn að spila lagið sitt og stappa í gólfið. Ég vissi aldrei hvenær það hætti, ég var sofnaður áðui'. Svona gekk það allan veturir.n. Þetta spilverk hafði mjög varan- frá Hvíladal) var í tízku um það leyti, sem kreppulánasjóður var í blóma. Nú or þaö sungið í sífellu. Svo segja menn að unga fólkið beri ekki virðingu fyrir þjóðlegri arfleifð. Það verður væntanlega fróðlegt að Kæri Högni! Þessa dagana skellur bókaflóðið yfir Tandið, og finnst sumum nóg um. Satt er Jpað, að ýmsar bækurnar eiga kannski í.ítinn rétt á sér, en sannarlega fer vel á Jpví, að við höfum fremur of mikið en of lítið af þeim á boðstólum. Iðulega er Ktaðhæft, að bækurnar á jólamarkaðinum séu eins konar húsgögn. Þetta stafar af því, að fjórar af hverjum fimm bókum )nunu keyptar til gjafa. En ekki rýrir það gildi bókanna. Og mér finnst vel við eiga, að islendingar séu mesta bókagjafaþjóð í heimi á grundvelli höfðatölureglunnar. )Það met eigum við skilyrðislaust. Og svo eru íslenzkar bækur orðnar svo fagrír og góðir gripir, að undrum sætir. Bókagerðinni hefur fleygt fram hér á landi síðustu árin. Þá er átt við hlut prent- smiðjarma og bókbandsvinnustofanna. — Framíarirnar á því sviði eru óumdeil- anlegar og íslenzkar bækur orðnar sam- Reppnisfærar við erlendar bækur um jprentun, bókband og annan ytri búning. )En útgefendur og höfundar vanda sig ekki alltaf eins og skyldi. Stundum er því lík- ast, aö gleymst hafi að lesa prófarkir af bókum, sem eru gullfallegar að ytra út- liti og seijast dýru verði. Astæðan mun oft sú, að höfundurinn hafi raunveru- lega aldrei lokið verki sínu. Samt eru framfarirnar á þessu sviði greinilegar frá því sem áður var, þó að þetta sé svartur blettur á íslenzkri bóka- útgáfu og þurfi endilega að hverfa. Akki- lesarhæll hennar er hins vegar þýðing- arnar. Þær eru yfirleitt til skammar. endur og þýðendur, sem auðga íslenzk- ar bókmenntir að fallegum barnabókum á heimsmælikvarða göfgandi listar. Sömu- leiðis væri nokkurt íhugunarefni að sýna einhverja opinbera viðurkenningu þeim islenzkum höfundum, sem frumsemja snjallar barnabækur. Oft er talað um þýðingu skólanna fyrir æsku landsins og framtíð þjóðarinnár^ Vissulega gegna þeir miklu hlutverki. En er ekki líka ástæða til að hyggja að þeim bókakosti, sem unga fólkinu er feng- inn í hendur, og reyna að tryggja, að hann verði gull í lófa? , j Með beztu kveðju. Helgi Sæmundsson. Orsök þess ófremdarástands er eink- um sú, að íslenzkir útgefendur tíma ekki að borga sæmileg verkalaun fyrir þýð- ingar. Þess vegna fást helzt til þýðinganna andlegir jarðvöðlar, sem afkasta ein- hverjum ósköpum á kostnað gæðanna. Nú mega það kallast stórtíðindi, þó að við beri, að einhver úrvalsrit heimsbókmennt- anna komizt fyrir sjónir íslenzkra les- enda í viðunandi þýðingum. Þá eiga í hlut þýðendur, sem vinna af öðrum á- stæðum en launanna vegna, eða útgef- endur gleyma nízkunni einstaka sinnum. Voðalegastar eru þýðingar barnabók- anna, sem hrúgast upp á jólamarkaðin- um ár hvert. Þar er eklcert hirt um mál og stíl af flestum þeim, sem telja sig þess umkomna að sjá æsku landsins fyrir skemmtilegu, þroskandi og fróðlegu lcsefni. Og þýðendurnir og útgefendurn- ir vita upp á sig skömmina. Þýðenda er sjaldnast getið að þessum barnabókum. Mennirnir vHja ekki láta á sig sannast, að þeir hafi unnið verkið. Eg er yfirleitt ekki fylgjandi því, að stjórnarvöldin láti íslenzka bókaútgef- endur lúta boði og banni, en hér er um undantekningu að ræða. Mér virðist sjálf sagt mál, að lögskipa eigi og verði, að þýðenda allra bóka sé getið og útgef- endur látnir sæta þungum viðurlögum, ef út af er brugðið í því efni. Jafnframt er rík ástæða til að verðlauna þá útgef- LAUN DYGGÐARiNNAR ERU VANÞAKKLÆTI ÞAÐ var einu sinni ungur rit- stjóri, sem vildi endilega auka upplag dagblaðsins síns. „Við verð um að ná til æskunnar", sagði hann við ritstjórnarfulltrúann sinn. Hvað er það nú, sem æskan hefur lielzt áhuga fyrir? Ritstjórnarfulltrúinn horfði feimnislega yfir til einkaritara ritstjórans, sem var lögulegasta hnáta. Svo beygði hann sig að rit- stjóranum og livíslaði einhverju í eyra hans. „Auðvitað, — að sjálfsögðu — það er auðvitáð deginum ljósara“, sagði ritstjórinn og lyftist allur í stólnum. Svo bætti hann við og varð kankvís á svip: „Það hafa allir áhuga fyrir því, — bæði ung- ir og gamlir, ha, ha, — en þér liaf- ið alveg á réttu að standa, svo sannarlega, það er alltaf forsíðu- efni“. Svo varð mikil breyting á blað- inu. Ungir menn á ströndinni, myndarlegir menn í fallcgum bif reiðum, stúlkur í Bikini-baðfötum, nektardansmeyjar og fegurðar- drottningar, gengu ljósum logum í blaðinu. Og sögur þeirra fylgdu með. Ungfrú fyrirsæta, sem hafði konungleg laun, vegna síns fagra yfirborðs, í stað þess að vera við afgreiðslu í búð. Hún Anna, sem hafði lagt Litlu-Asíu að fótum sér, vegna síns fagra ljósa hárs. Nektardansmærin, — Sú eina í heimi, sem jafnframt var magist- er í samanburðarmálfræði. Elsku litli rokksöngvarinn, sem allar skrifstofustúlkur urðu vitlausar í o. s. írv. Upplag blaðsins jókst að mun. Ritstjórinn varð kampakátur. Dótt ir hans, sem var 17 ára og á leið út í lífið, breytti algjörlega áætl- unum sínum. „Hvað ætlar þú að taka þér fyrir hendur?" spurði pabbi henn ar. Frh. á 11. síðu. g SUNNUDAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIÖ

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.