Morgunblaðið - 10.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.2004, Blaðsíða 1
2004  MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KEFLVÍKINGAR TRÚA AÐ ÞEIR GETI NÁÐ LANGT/ C4 HELGI Bragason, körfuknattleiksdómari, hef- ur ákveðið að leggja flautuna á hilluna en frá þessu var greint á heimasíðu Körfuknattleiks- sambands Íslands í gær. Helgi er einn af reynd- ustu dómurum landsins. Helgi hóf ferilinn sem dómari haustið 1987 en fyrsti leikur hans í úr- valsdeild var viðureign Breiðabliks gegn Val í Digranesi 22. janúar árið 1988. Fyrir keppn- istímabilið hafði Helgi dæmt 301 leik í efstu deild á Íslandi. FIBA prófið tók Helgi árið 1992 í Osló í Nor- egi. Fyrsta FIBA verkefnið var Evrópukeppni drengjalandsliða sem fram fór í Belgíu í júní 1992. Í desember sama ár voru svo fyrstu leik- irnir í Evrópukeppnum félagsliða í Frakklands með Englendingnum Trevor Pountain. FIBA ferlinum lauk hjá Helga síðastliðið vor og hefur hann nú ákveðið að hætta alveg að dæma. Helgi leggur flautuna á hilluna Rúnar Arnarson, formaður knatt-spyrnudeildar Keflavíkur, sagði við Morgunblaðið í gær að vissulega hefði nafn Guðjóns verið nefnt í sambandi við þjálfarastarfið eins og fleiri þjálfara en bætti því við að Guðjóni hefði ekki verið gert til- boð. „Það er ekkert launungarmál að Guðjón hefur komið til tals hjá okkur og ef svo fer að hann gefi það frá sér að komast að erlendis þá munum við skoða málin,“ sagði Rúnar við Morg- unblaðið. Forráðamenn Grindvíkinga hafa hins vegar ítrekað beðið eftir svörum frá Guðjóni og farið er að gæta vax- andi óþolinmæði í röðum þeirra. Eins og fram hefur komið hætti Mil- an Stefán Jankovic hjá Keflvíkingum eftir tímabilið og réð sig sem aðstoð- arþjálfari hjá Grindavík með það fyr- ir augum að starfa undir stjórn Guð- jóns. Á dögunum gaf Lúkas Kostic Grindvíkingum afsvar en Grindvík- ingar leituðu til hans ef svo færi að Guðjón tæki ekki tilboði þeirra. „Ég bíð enn og ég trúi ekki öðru en að Grindavík sé kostur númer eitt hjá Guðjóni, fari svo að hann fái ekki starf erlendis. Ef Guðjón ákveður að fara til Keflavíkur þá er hann að ganga á bak orða sinna gagnvart mér og ég mun tafarlaust segja af mér og hætta öllum afskiptum af knattspyrnu,“ sagði Jónas Þórhalls- son formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur við Morgunblaðið í gær- kvöld. Morgunblaðið náði tali af Guðjóni í gærköldi en hann var þá nýlentur í London eftir stutt stopp heima á Fróni. Guðjón sagðist eiga fund í dag með formanni félags á Englandi en vildi ekki gefa upp frá hvaða félagi hann væri. Aðspurður hvort hann væri að taka við Keflavíkurliðinu sagði Guð- jón: „Það er ekkert að frétta af mér. Ég veit ekki til þess að Keflavík sé búin að ráða þjálfara og þess vegna eru kannski þessar vangaveltur sprottnar upp. Ég talaði við Grinda- vík fyrir nokkru síðan en staðan er óbreytt. Ég er að skoða mál hér ytra og á fund með formanni eins félags á morgun sem ég hef áður rætt við,“ sagði Guðjón. Um þá staðreynd að Grindvíkingar væru orðnir óþreyju- fullir eftir svari sagði Guðjón: ,,Ég skil það ósköp vel en ég hef ekki tekið neina ákvörðun um hvað ég tek mér fyrir hendur. Ég er ekk- ert að fara á taugum yfir þessu og menn verða bara að bíða.“ Morgunblaðið/RAX Guðjón inni í mynd- inni hjá Keflavík ÍTALSKA knattspyrnufélagið Torino og franska félagið St. Et- ienne hafa boði Grími Birni Grímssyni, 17 ára KR-ingi, til æf- inga hjá sér eftir áramótin. Grím- ur Björn æfði með unglingaliði ítalska félagsins Empoli í lok október og lék þar æfingaleik, og eftir hann kom ósk frá Torino um að hann kæmi til félagsins sem fyrst. Grímur Björn, sem hefur leikið 11 leiki með drengjalandsliði Ís- lands undanfarin tvö ár, dvaldi einnig um skeið hjá Heerenveen í Hollandi í síðasta mánuði og lék þar æfingaleik með unglingalið- inu. Tveir hjá Heerenveen Með Heerenveen leika tveir af samherjum hans úr drengjalands- liðinu, Ari Freyr Skúlason úr Val sem hefur leikið þar í hálft annað ár og Arnór Smárason frá Akra- nesi sem gerði fimm ára samning við Heerenveen á þessu ári. Grímur til Torino og St. Etienne HEIÐAR Helguson hélt upp- teknum hætti með liði Watford í ensku knattspyrnunni í gær. Heiðar skoraði eitt af mörkum Watford sem burstaði Southamp- ton í 3. umferð deildabikarkeppn- innar, 5:2. Þar með hefur Heiðar skorað sjö mörk í síðustu sjö leikjum en markið skoraði Heiðar með glæsilegu viðstöðulausu skoti úr teignum eftir sendingu frá landa sínum, Brynjari Birni Gunnarssyni. Sprækt unglingalið Arsenal hafði betur gegn Everton, 3:1, á Highbury en gestirnir stilltu upp sínu sterkasta liði. Thomas Gravesen kom Everton yfir á 8. mínútu en Quincy Owusu-Abeyie jafnaði metin á 25. mínútu og hinn 17 ára gamli Ítali Arturu Lupoli bætti tveimur mörkum við fyrir Arsenal í seinni hálfleik og þar við sat en Arsene Wenger gerði ellefu breytingar á liði sínu sem gerði jafntefli við Crystal Palace um síðustu helgi. Tottenham átti ekki í vandræð- um með að leggja Burnley að velli. Robbie Keane skoraði tví- vegis og félagi hans í framlínunni Jarone Dafoe skoraði eitt. Heiðar með sjö mörk í sjö leikjum ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu verður í sviðs- ljósinu síðdegis í dag er leikið verður gegn Norðmönnum í fyrri rimmu liðanna í umspili Evrópumótsins. Leikurinn fer fram í Egils- höll í Grafarvogi kl. 17 í dag en síðari leikurinn verður í Valhöll í á laugardag. Helena Ólafsdóttir lands- liðsþjálfari valdi byrj- unarliðið í gær og er það þannig skipað: Þóra B. Helgadóttir er markvörður. Varnarmenn: Íris Andr- ésdóttir, Erla Hendriks- dóttir, Guðlaug Jónsdóttir og Ásta Árnadóttir. Á miðjunni Margrét Lára Viðarsdóttir, Edda Garð- arsdóttir, Laufey Ólafsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Hólm- fríður Magnúsdóttir og Olga Færseth verður ein í fremstu víglínu. Hér á myndinni fyrir ofan má sjá íslenska landsliðið á æfingu í Egilshöll í gær. Íslenska liðið hvergi bangið ■ Höfum engu að.../C3 GUÐJÓN Þórðarson er nú sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá bikarmeistaraliði Keflavíkur en eins og fram hefur komið gerðu Grindvíkingar Guðjóni tilboð fyrir nokkrum vikum en bíða enn eftir svari við því tilboði. Heimildir Morgunblaðsins herma að vænt- anlegir bakhjarlar Keflavíkurliðsins, sem kynntir verða til sögunnar á aukaaðalafundi knattspyrnudeildar Keflavíkur annað kvöld, hafi verið í viðræðum við Guðjón á undanförnum dögum og þá hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að stjórnarmenn Keflavíkurliðsins hafi viðrað þessa hugmynd við Guðjón fyrir nokkrum vikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.