Morgunblaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 C 3
ÞORVALDUR Örlygsson gerði í
gær munnlegt samkomulag við
knattspyrnudeild KA um að þjálfa
liðið áfram á næsta keppnistímabili.
Það verður hans sjötta tímabil með
lið KA en hann hefur stýrt því frá
árinu 2000, fyrstu fjögur árin sem
spilandi þjálfari en hann lagði
skóna á hilluna sjálfur fyrir síðasta
tímabil.
KA féll úr úrvalsdeildinni í haust
og Þorvaldur sagði við Morgun-
blaðið í gær að farið hefði verið vel
yfir stöðuna. „Niðurstaðan varð sú
að halda okkar striki þó við værum
vissulega svekktir yfir því að hafa
misst sæti okkar í deildinni. Tíma-
bilið var ekki alslæmt, við komumst
í bikarúrslitin og það er enginn
heimsendir að falla um deild. Mér
líkar mjög vel hjá KA, þetta er fínt
félag að vinna fyrir og var því
ákveðinn í að halda áfram fyrst það
stóð til boða.“
Leikmannamálin eru ekki komin
á hreint hjá KA fyrir næsta tímabil.
Þorvaldur sagði að nokkrir leik-
menn væru með lausa samninga og
það ætti eftir að fara betur yfir þau
mál. Elmar Dan Sigþórsson er flutt-
ur til Reykjavíkur og genginn til
liðs við Víking og Dean Martin
samdi í gærkvöld við ÍA. „Eflaust
verða einhverjar breytingar. Ég á
síður von á að Ronni Hartvig verði
áfram vegna hans náms í Dan-
mörku en vona svo sannarlega að
Sándor Matus verði áfram í mark-
inu og veit að hann hefur áhuga á
því,“ sagði Þorvaldur Örlygsson.
Þorvaldur verður sitt
sjötta tímabil með KA
AÐSTOÐARMAÐUR Viggós Sig-
urðssonar á heimsbikarmótinu,
World Cup, er Hörður Harðarson
sem var aðstoðarmaður Viggós er
hann var þjálfari Hauka. Jóhannes
Marteinsson er sjúkraþjálfari ís-
lenska liðsins og læknir liðsins er að
þessu sinni Anna Stefánsdóttir.
KEPPNISHÖLLIN í Borlänge
heitir Masahallen og þar rúmast um
1.800 áhorfendur. Aðaltekjulind
skipuleggjanda riðlakeppninnar er
miðasala og var lagt mikið í kynn-
ingarstarfsemi fyrir leikina. Þrátt
fyrir það var mætingin ekki gríð-
arlega mikil á leik Íslands gegn
Þýskalands, um 400 áhorfendur er
leikmenn voru kynntir til leiks, en
þeim fjölgaði jafnt og þétt er á leið.
MIKIÐ var lagt í kynninguna.
Ljósasýning, tónlist og gengu ungir
handknattleiksiðkendur með leik-
mönnum beggja liða inn á völlinn.
Kynnir sá um að halda áhorfendum
upplýstum um gang mála og sagði
frá öllu sem gerðist í leiknum.
BENGT Johansson fyrrum lands-
liðsþjálfari Svía var heiðursgestur á
leiknum en hann sat við enda vara-
mannabekkjar þýska liðsins. Jo-
hansson sá um að opna heimsbik-
armótið með formlegum hætti.
Hann hélt tölu og klippti síðan á
borða til merkis um að riðlakeppnin
væri hafin á heimsbikarmótinu, sem
fram fer í 10. skiptið.
ÍSLENDINGAR sáu um að skrá
tölfræði leiksins, en þar voru að
verki Emma Andrésdóttir og Hauk-
ur Andrésson. Þau eru systkini,
börn Andrésar Kristjánssonar,
fyrrverandi landsliðsmanns í hand-
knattleik, sem er íslenska liðinu til
aðstoðar á meðan mótið stendur yf-
ir. Bróðir þeirra, Kristján, lék með
landsliðinu á ÓL í Aþenu í sumar.
Hann er leikmaður sænska liðsins
GUIF, en leikur ekki meira með lið-
inu í vetur vegna meiðsla.
FLORIAN Kehrmann var valinn
maður leiksins í þýska liðinu af sér-
stakri dómnefnd og Róbert Gunn-
arsson þótti skara framúr í íslenska
liðinu. Fengu þeir afhenta viður-
kenningu í leikslok.
ROBBIE Keane tryggði Írum sig-
ur á Króötum, 1:0, í vináttulandsleik
í knattspyrnu sem fram fór í Dublin
í gærkvöld. Eduardo da Silva var
rétt búinn að jafna fyrir Króata und-
ir lok leiksins en þá bjargaði Rich-
ard Dunne naumlega á marklínu
Íra. Íslendingar mæta Króötum tví-
vegis í undankeppni HM á næsta
ári.
GYLFI Þór Orrason dæmdi leik-
inn í Dublin og þetta var kveðju-
leikur hans sem FIFA-dómari en
Gylfi er kominn að aldursmörkun-
um fyrir milliríkjadómara, 45 ára
gamall. Hann komst vel frá leiknum
og þurfti aldrei að lyfta spjaldi.
FÓLK
VERANDI keppnisfyrirkomulag á Íslands-
inu í handknattleik karla verður að öllum
ndum lagt af frá með næsta keppnistímabili
amkvæmt heimildum Morgunblaðsins verð-
málið rætt á formannafundi HSÍ á næstunni.
pi eru hugmyndir um að 10 lið skipi efstu
d karla þar sem leikin verður tvöföld um-
og úrslitakeppnin lögð af í þeirri mynd
hún er í dag. Einnig hefur verið nefnt að
yta keppnisfyrirkomulagi bikarkeppninnar
að 8 liða úrslit bikarkeppninnar fari fram að
nu Íslandsmótinu. Rætt er um að hafa bikar-
pnina með þeim hætti að leikið verði á
ma- og útivelli en úrslitaleikurinn fari fram í
gardalshöll samkvæmt venju.
innig stendur til að reyna að koma upp allt
remur deildum í karlaflokki og yrðu b-lið
ra félaga sem nú taka þátt á Íslandsmótinu
í b-liða keppni í 2. deild. Einnig er horft til
s að koma upp svæðisbundinni deild sem
i þá 3. deild, og tæki við því hlutverki sem
ndeildin hefur þessa stundina.
að er mat þeirra sem standa að íslenskum
dknattleiksliðum að hinn almenni áhorf-
i hafi ekki áhuga á því keppnisfyrirkomu-
sem tekið var upp fyrir ári. Í dag er leikið í
mur riðlum og að þeirri keppni lokinni er
dinni skipt upp í tvær deildir og síðan tekur
úrslitakeppni átta liða. Afleit aðsókn hefur
ð á marga kappleiki það sem af er vetri og
ilji til þess að fara „þýsku leiðina“ en Þjóð-
ar lögðu úrslitakeppnina af eftir aðeins eitt
pnistímabil og leika nú tvöfalda umferð þar
úrslit allra leikja vetrarins eru talin er
ið er gert upp í lok leiktíðarinnar. Heimild-
aður Morgunblaðsins segir að þeir aðilar
hafi samþykkt núverandi mótafyrirkomu-
séu margir hverjir farnir að gagnrýna
rnig málunum sé háttað. Og því verði að
pa í taumana nú þegar.
Breytingar
á borðinu
hjá HSÍ
Jaliesky Garcia kom Íslendingumyfir með fyrsta marki leiksins
en eftir það náðu Þjóðverjar yfir-
höndinni sem þeir
héldu allt þar til að
Logi Geirsson kom
liðinu yfir, 21:20, er
um 15 mínútur voru
eftir af leiknum. Í kjölfarið kom
slæmur kafli hjá íslenska liðinu sem
missti knöttinn hvað eftir annað frá
sér og Evrópumeistararnir nýttu sér
tækifærið og komust í 23:26 er
skammt var til leiksloka. Þann mun
náði íslenska liðið ekki að brúa.
Það var hinsvegar margt jákvætt
við leik íslenska liðsins í gær. Varn-
arleikurinn hélt vatni, skytturnar
voru ógnandi fyrir utan og línumað-
urinn Róbert Gunnarsson fékk úr
nógu að moða.
En að sama skapi voru margir
kunnuglegir þættir sem gerðu ís-
lenska liðinu erfitt fyrir. Markverð-
irnir Roland Eradze og Birkir Ívar
Guðmundsson vörðu samtals 11
skot. Sem er einfaldlega allt of lítið í
alþjóðlegri keppni.
En markvarslan hefur oftar en
ekki verið akkilesarhæll íslenska
landsliðsins og standa þeir Roland,
Birkir Ívar og Hreiðar Guðmunds-
son, sem hvíldi að þessu sinni,
frammi fyrir ögrandi verkefni. Það
er þeirra hlutverk að taka við af Guð-
mundi Hrafnkelssyni, sem hefur
leikið sinn síðasta landsleik.
Það var að sjá á íslenska liðinu að
hraðaupphlaupin eiga aðeins eftir að
verða betri. Og ekki síst þegar Ólaf-
ur Stefánsson verður til taks. Enda
leikstjórnandi í fremstu röð í þessum
hluta leiksins. Leikmenn íslenska
liðsins nýttu sér ekki færin sem gáf-
ust og voru hreinlega ekki nógu
snöggir upp völlinn með knöttinn.
En það er bara gaman að vita að ís-
lenska liðið á slíkan leikmann uppi í
erminni, auk Sigfúsar Sigurðssonar
frá Magdeburg.
Hornamenn liðsins náðu sér ekki á
strik, Þórir Ólafsson skoraði tvívegis
úr hægra horninu en Einar Örn
Jónsson ekkert. Guðjón Valur Sig-
urðsson komst ekki á blað og munar
um minna en Logi Geirsson stimpl-
aði sig ágætlega inn í leiknum. En
það þarf að koma meira út úr horn-
unum hjá íslenska liðinu en það má
að mestu skrifa á slaka framkvæmd
á hraðaupphlaupum liðsins.
Róbert Gunnarsson var besti mað-
ur íslenska liðsins. Barðist eins og
ljón í vörn og var nánast óstöðvandi á
línunni er hann fékk boltann í hend-
urnar. Það verður gaman að fylgjast
með kappanum í næstu leikjum.
Vignir Svavarsson lék ekki mikið að
þessu sinni. Markús Máni Mich-
aelsson var öflugur í hlutverki hægri
skyttu, nýtti færin sín vel og skoraði
4 mörk. Sömu sögu er að segja af
Einari Hólmgeirssyni sem dúndraði
á markið ef færi gafst til þess. Hann
vakti athygli sænsku áhorfendanna í
Borlänge í gær sem kunnu vel að
meta þrumuskot hans.
Dagur Sigurðsson var maður með
sjálfstraust í gær. Hann stjórnaði
leiknum vel en hefði getað nýtt skot
sín betur. Líkt og fleiri leikmenn
liðsins. Snorri Steinn Guðjónsson,
Jaliesky Garcia, Guðjón Valur Sig-
urðsson og Einar Örn Jónsson virk-
uðu ekki eins frískir og aðrir leik-
menn liðsins. En þeir eiga eflaust
eftir að vakna til lífsins er á líður
keppnina.
Ljósmynd/Mattias Nääs
Anna Stefánsdóttir læknir og Jóhannes Marteinsson sjúkra-
þjálfari meðhöndla hér Guðjón Val Sigurðsson.
Þjóðverjar of stór
biti í Borlänge
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik náði ekki að leggja Evrópu-
meistaralið Þjóðverja að velli í upphafsleik heimsbikarmótsins,
World Cup, í Borlänge í Svíþjóð í gær. Viggó Sigurðsson stjórnaði
liðinu í fyrsta sinn frá því hann tók við sem landsliðsþjálfari. En liðið
sýndi lipra spretti, sérstaklega í vörninni, en of mörg tæknileg mis-
tök liðsins í sókn gerðu það að verkum að Þjóðverjar fóru með sigur
af hólmi, 29:28, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 15:13.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar frá
Borlänge
!
"
# $ %&
'('
)
Í LOKAHÓFI sænska knatt-
spyrnusambandsins voru það
sjónvarpsáhorfendur sem
völdu mark ársins og að þessu
sinni komu mörk úr efstu deild
karla og kvenna til greina. Að
mati sjónvarpsáhorfenda var
markið sem brasilíska lands-
liðskonan Marta skoraði gegn
Malmö fallegast en þar sýndi
hin 19 ára gamli landsliðs-
maður ýmsar tækniæfingar
gegn varnarmönnum liðsins
og plataði flesta varnarmenn
liðsins upp úr skónum. Marta
er þessa stundina að leika með
landsliði Brasilíu, skipað leik-
mönnum 19 ára og yngri, í úr-
slitum heimsmeistaramótsins
en hún leikur með Umeå.
Marta með
mark ársins
í Svíþjóð