Morgunblaðið - 18.11.2004, Page 2
2 C FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÚR VERINU Úr verinu Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang verid@mbl.is Útgefandi
Árvakur hf. Umsjón Hjörtur Gíslason, fréttastjóri hjgi@mbl.is Auglýsingar sími
5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
!"
#
$
%
&
$
#
'
(
)
*
*
+,
-.
!
(
(!
*#
/
0
&!
1
1
/#
-
*
#
2
*
#
3
#
0
! "
"# $%&'
!
"
#
$
R
afræn skráning
afladagbóka er
til mikils hag-
ræðis fyrir
skipstjórnar-
menn og Fiski-
stofu og veitir
útgerðum jafn-
framt aukna yfirsýn yfir staðsetn-
ingu og afla skipa sinna. Hugbún-
aðarfyrirtækið SeaData ehf. hefur
nú þróað heildarlausn til að fylgjast
með og skrá afla um borð í fiskiskip-
um.
Afladagbókin leysir af hólmi
pappírsbækur Fiskistofu. Skráning-
in verður þannig rafræn en fram til
þessa hefur þurft að handskrifa
aflafærslur í bækurnar. Rafræna
afladagbókin er samþykkt og vottuð
fyrir allar tegundir veiðafæra og
skipa af Fiskistofu.
Rauntímaupplýsingar
Til að útgerðir í landi geti fylgst
með ferðum og afrakstri skipa
sinna, hefur SeaData hannað hug-
búnaðinn Útgerðarstjóra. Útgerðar-
stjóri tekur á móti gögnum frá Afla-
dagbók og greinir þau í smáatriði.
Búnaðurinn safnar einnig saman
gögnum frá skipum útgerðar þannig
að með tímanum verður gagna-
grunnurinn nákvæmari.
Sigurður Rúnarsson, markaðs-
stjóri og einn af eigendum SeaData,
segir að hagræðið af rafrænni
skráningu sé augljóst og verulegt.
Skipstjórnarmenn hafi þurft að
handskrifa færslur í afladagbæk-
urnar og senda Fiskistofu, ýmist á
faxi eða í pósti. Þar þurfi síðan að
slá færslurnar inn í gagnagrunn
sem ségeysilega tíma- og mannafla-
frekt, enda um mikið magn upplýs-
inga að ræða í hverri færslu. Þannig
komi fram í hverri færslu aflamagn,
fiskitegund, veiðarfæri, staðsetning,
dýpi, hitastig, veður og margt fleira.
Með því að slá þessar upplýsingar
inn rafrænt séu skipstjórnarmenn
um leið að byggja upp sinn eigin
gagngrunn, þar sem finna megi
hverskonar upplýsingar með skil-
yrtri leit. Afrit úr Afladagbókinni er
sent Fiskistofu að lokinni hverri
veiðiferð en útgerð skipsins fær
upplýsingarnar jafnan daglega. „Út-
gerðin getur þannig fylgst með skipi
sínu í rauntíma. Þetta hefur fallið
sérlega vel í kramið hjá útgerðar-
stjórum sem geta til dæmis fylgst
með samsetningu aflans og gert
ráðstafanir til að vinna hann eða
selja. Eins fær útgerðin góða yf-
irsýn yfir afla og staðsetningu skipa
sinna á auðveldan hátt, sem hún áð-
ur þurfti að afla með símtölum um
borð.“
Gögnin sem send eru til Fiski-
stofu fara sjálfvirkt inn í gagna-
grunn stofunnar en skip sem senda
afladagbókina rafrænt geta jafn-
framt sótt eldri upplýsingar í
gagnagrunninn, allt að 15 árum aft-
ur í tímann. „Fiskistofu berst skilj-
anlega gríðarlegt magn afrita úr
afladagbókum. Það er tímafrekt að
færa þessar upplýsingar inn í
gagnagrunninn, þær vilja hrannast
upp og stundum er verið að slá inn
allt að sex vikna gamlar upplýsing-
ar. Með því að færa þær rafrænt er
verið að búa til rauntímaupplýsing-
ar, og þannig verður gagnagrunn-
urinn áreiðanlegri þegar verið er að
Pappírsvin
SeaData hefur þróað heildarlausn fyrir rafræna aflaskráning
Með því að skila afriti
úr afladagbók á raf-
rænan hátt geta skip-
stjórnarmenn um leið
byggt upp gagna-
grunn um veiðar
sínar, með aðstoð
búnaðar frá hugbún-
aðarfyrirtækinu Sea-
Data. Helgi Mar
Árnason tók hús á fyr-
irtækinu og forvitn-
aðist um eiginleika
búnaðarins.
Morgunblaðið/Sverrir
Frumkvöðlar Garðar Rafn Eyjólfsson, framkvæmdastjóri SeaData ehf.,
ásamt Þorsteini Ágústssyni, starfsmanni fyrirtækisins.
SENDIHERRA Íslands í
Moskvu, Benedikt Jónsson, hefur
skrifað undir samstarfssamning
við Alþjóðalánastofnunina, sem er
hluti af Alþjóðabankanum, um út-
tekt á viðskiptatækifærum í sjáv-
arútvegi í Rússlandi. Fjögur ís-
lensk fyrirtæki, Landsbankinn,
Marel, Ísfell og Sæplast, koma að
verkefninu auk utanríkisráðuneyt-
isins, sjávarútvegsráðuneytisins og
Útflutningsráðs Íslands.
Verkefnið í Rússlandi er fyrsta
samstarfsverkefni íslenskra
stjórnvalda og einkafyrirtækja á
Íslandi við Alþjóðalánastofnunina
(International Finance Corpora-
tion - IFC) af þessu tagi og því er
um tilraun að ræða. Vonir standa
til þess að með verkefninu verði
hægt að afla upplýsinga, gagna og
tengsla í því skyni að byggja upp
frekari viðskipti í Rússlandi, sem
að öðru jöfnu gæti reynst ill-
mögulegt fyrir einstök fyrirtæki á
Íslandi á eigin vegum. Frá þessu
er greint í vefriti viðskiptaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, Stikl-
um.
Auka fjárfestingar
Framkvæmdastjóri IFC fyrir Mið-
og Austur-Evrópu, Edward Nass-
im, undirritaði samninginn fyrir
hönd Alþjóðabankans, en IFC
starfar með einkafyrirtækjum á
áhættusömum mörkuðum þar sem
erfitt getur reynst að fjármagna
viðskipti á hefðbundinn hátt. Ut-
anríkisráðuneytið og sjávarútvegs-
ráðuneytið eru bæði aðilar að
samningnum við IFC, en auk þess
koma að fjármögnun verkefnisins
íslensk fyrirtæki sem öll hafa lagt
sig fram við að skoða viðskipta-
tækifæri í Rússlandi.
Verkefnið fellur undir svokall-
aða PEP-áætlun (Private Enter-
prise Partnership) á vegum IFC
sem stofnað var árið 2000 fyrir
fyrrum aðildarríki Sovétríkjanna í
því augnamiði að aðstoða yfirvöld
og einkafyrirtæki við að: auka
beinar fjárfestingar í löndunum,
stuðla að vexti lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja, og bæta við-
skiptaumhverfi landanna.
Tækifæri í flóknu umhverfi
„Samskipti Íslands og Rússlands á
sviði sjávarútvegs eiga sér langa
sögu. Þær miklu breytingar sem
hafa átt sér stað í efnahagsmálum
Rússlands á undanförnum misser-
um hafa vakið áhuga íslenskra við-
skiptaaðila á sviði sjávarútvegs og
fiskiðnaðar enda hafa þeir löngum
verið meðvitaðir um þá miklu
möguleika sem í boði eru. Hins-
vegar hefur flókið umhverfi og
skortur á upplýsingum, sem snerta
núverandi stöðu sjávarútvegsmála
í Rússlandi og framtíðarhorfur
greinarinnar, verið hindrun í vegi
uppbyggingar frekari viðskipta ís-
lenskra aðila á þessu sviði. Það er
því mjög ánægjulegt og hvetjandi
að íslensk stjórnvöld og einkafyr-
irtæki hafi nú tekið höndum saman
við IFC um að gera úttekt á fisk-
iðnaðinum í Rússlandi“, segir
Benedikt Jónsson, sendiherra Ís-
lands í Moskvu í vefritinu.
Edward Nassim, framkvæmda-
stjóri IFC, tekur í sama streng.
„Það eru stór tækifæri í rússnesk-
um fiskiðnaði.
Hinsvegar er í raun mjög lítið
vitað um umfang fiskiðnaðarins í
Rússlandi og við vonumst til að
þessi úttekt komi til með að gefa
gagnleg svör við mörgum spurn-
ingum og leggi þannig grunninn að
því að unnt verði að skapa ný við-
skiptatækifæri.“
Framhald af rammasamningi
Fyrir fjórum árum var undirrit-
aður rammasamningur milli Ís-
lands og Rússlands um sjávarút-
vegsmál þar sem ríkin tvö
skuldbundu sig meðal annars til að
Ný sókn hafin á R
Íslensk fyrirtæki og stjórnvöld í samstarfsverkefni í sjávarútv
OPTIMAR Ísland ehf. hefur gert
samning við York Fishery um að
Optimar Ísland ehf. muni framleiða
allar ísþykknivélar handa York
samsteypunni.
York er, í gegnum York – Inham
B.V., einn af frumkvöðlunum í
hönnun og sölu á ísþykknivélum.
Eru ísþykknivélar frá þeim m.a. í
íslenskum skipum. Hugmyndin að
samvinnu þessara félaga er að
York nýti sér framleiðsluþekkingu
og reynslu Optimar Íslands og að
Optimar Ísland nýti sér hið yf-
irgripsmikla sölukerfi, reynslu og
markaðsþekkingu risans á kæli-
markaðnum. York er eitt af
Fortune 500 félögum í USA, þar
sem höfuðstöðvar þeirra eru. Hjá
fyrirtækinu starfa um 23.000
manns og eru þeir með eigin útibú í
125 löndum. Innan York samsteyp-
unnar eru m.a. sameinuð hin heims-
þekktu fyrirtæki SABROE, FRICK
og GRAM.
„Við erum mjög hreyknir af því
að York skyldi hafa áhuga á því að
starfa með okkur. Þetta er búin að
vera löng lota, en liðið er meira en
eitt ár síðan þeir komu hér fyrst í
heimsókn, og síðan hefur tekið við
langt tímabil funda og prófanna.
Þeir hafa þrælprófað okkar vélar
og við höfum staðist prófin og kröf-
ur þeirra. Samningurinn gengur út
á það að við framleiðum fyrir þá ís-
þykknivélar sem merktar verða
með sameiginlegu vörumerki okk-
ar beggja, SABROE Optim-Ice, en
vörumerkið SABROE er heims-
þekkt í kælibransanum. Margir
kannast við ísbjörninn í Sabroe
merkinu.
Við höldum áfram að markaðs-
setja undir okkar vörumerki líka,
en einbeitum okkur að þeim lönd-
um þar sem við höfum verið að
selja, en látum nýja markaði í
þeirra sölukerfi. Við getum því ekki
annað en verið bjartsýnir á framtíð
okkar fyrirtækis,“ segir Guð-
mundur Jón Matthíasson fram-
kvæmdastjóri hjá Optimar Ísland
ehf.
Framleiðir ísþykknivélar
fyrir York Fishery
VIÐSKIPTADEILD Við-
skiptaháskólans á Bifröst og
Menntafélagið hafa skrifað undir
samning um nám á háskólastigi í
rekstri og stjórnun fyrir skip-
stjórnendur.
Markmið þessa náms er að
bjóða upp á fjarnám á há-
skólastigi samhliða starfi í
rekstri og stjórnun sem gefur
nýja möguleika á að byggja ofan
á fyrri þekkingu og eykur mögu-
leika á starfsvali og starfsum-
hverfi. Nám sem nýtist þátttak-
endum hvort heldur er í
núverandi starfi eða til áfram-
haldandi starfsþróunar. Námið er
ætlað skipstjórnar- og vélstjórn-
armönnum sem hafa lokið námi
úr vélskóla, stýrimannaskóla eða
sambærilegum skólum sem og
mönnum með sambærilega
menntun sem uppfylla skilyrði
fyrir þátttöku í háskólanámi.
Námið er alls 30 háskólaein-
ingar. Þeir sem ljúka þessu námi
fá það metið sem áfanga til BS-
gráðu í viðskiptafræði við við-
skiptadeild Viðskiptaháskólans á
Bifröst og geta lokið því námi í
staðnámi við deildina.
Stjórnendum
skipanna
býðst nám
í háskóla