Morgunblaðið - 29.11.2004, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2004 B 5
EVERTON sýndi styrk sinn á ný er liðið náði 1:1
jafntefli gegn Newcastle United á sunnudag.
Craig Bellamy kom heimamönnum yfir strax í
upphafi leiksins en írski landsliðsmaðurinn Lee
Carsley jafnaði í síðari hálfleik með skoti beint
úr aukaspyrnu. Everton er í þriðja sæti deild-
arinnar, 6 stigum á eftir Chelsea, sem er í efsta
sæti. En Newcastle er í 10. sæti. Undir lok leiks-
ins sóttu leikmenn Newcastle hart að marki
Everton og ítalski varnarmaðurinn Alessandro
Pistone bjargaði nánast á marklínu skoti frá Bel-
lamy.
Jermain Defoe og Frederick Kanoute skor-
uðu mörk Tottenham sem lagði Middlesbrough í
gær á White Hart Lane en Tottenham hafði tap-
að sex deildarleikjum í röð fyrir leikinn. Middles-
brough hafði hinsvegar ekki tapað í síðustu sex
leikjum sínum í deildinni. Franck Queudrue varn-
armanni Middlesbrough var vísað af leikvelli rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks.
Everton sótti stig
á St. James Park
ALLT bendir til þess að enski landsliðsmaðurinn Sol
Campbell muni skrifa undir nýjan samning við Arsenal
en undanfarin misseri hefur leikmaðurinn verið sagður
á förum til stórliða á meginlandi Evrópu. Samkvæmt
enskum fjölmiðlum eru viðræður Arsenal og leikmanns-
ins á lokastigi en núgildandi samningur hans rennur út
næsta sumar en Campbell er þrítugur að aldri.
„Það er eitthvað sem dregur mig að þessu félagi,
ákveðnir töfrar, sem skína í gegn allt frá öllum aðilum
félagsins. Stjórninni, knattspyrnustjóranum, leik-
mönnum og sérstaklega frá stuðningsmönnum liðsins.
Ég elska þetta félag og hvers vegna ætti ég að fara
eitthvað annað?,“ segir Campbell við News of the
World. „Samningaviðræður okkar ganga mjög vel, góð-
ir hlutir gerast hægt og ég er mjög ánægður hjá félag-
inu.“
Campbell kom til Arsenal í júlí árið 2001 og hefur
verið kjölfesta í vörn liðsins, sérstaklega eftir að Tony
Adams hætti að leika með liðinu. Allt bendir því til þess
að Campbell verði í herbúðum Arsenal til loka ferilsins.
Sol Campbell
vill semja
Reuters
ri Guðjohnsen fagnar marki sínu gegn Charlton.
r
, 3
ms-
ik.
-
..11
....9
....8
....7
....6
....6
....6
... 6
... 6
....6
....6
....5
....5
....5
....5
ð
k
Benitez, knattspyrnustjóri Liver-pool, hrósaði leikmönnum liðs-
ins í hástert í leikslok.
„Þetta var góður leikur af okkar
hálfu en við þurftum að leggja okkur
fram í 90 mínútur. Uppskeran var líka
ríkuleg og við getum verið stoltir af
árangri okkar. Ég er ánægður með
Mellor, hann átti í höggi við tvo varn-
armenn frá upphafi til enda. En hann
hætti aldrei að reyna að skora mark
og það tókst honum. Ég ákvað að vera
aðeins með einn framherja og Harry
Kewell, Steven Gerrard og Florent
Sinama-Pongolle studdu vel við bakið
á Mellor. Gerrard lék sérstaklega vel í
því hlutverki sem hann hafði að þessu
sinni. Það eru margir meiddir í okkar
liði og menn þurfa að taka að sér ný
og krefjandi verkefni. Markmiðið var
að setja pressu á leikmenn Arsenal
frá upphafi. Þeir náðu aldrei tökum á
leiknum og það gekk flest allt upp í
okkar leikaðferð,“ sagði Benitez.
Arsene Wenger knattspyrnustjóri
Arsenal var ekki sáttur við tapið og
sagði liðið vera í lægð.
Patrick Vieira fékk að líta gula
spjaldið í leiknum og missir því af leik
liðsins gegn Chelsea í deildinni.
„Ég hef ekki sérstakar áhyggjur af
því hvað Chelsea er að gera. Ég hef
meiri áhyggjur af gengi okkar. Núna
verðum við að snúa bökum saman og
finna lausnir á vandamálum okkar,“
sagði Wenger sem aðeins hefur upp-
lifað tap í deildinni tvívegis í síðustu
55 leikjum, en þetta er annað tap liðs-
ins í síðustu 6 leikjum í úrvalsdeild-
inni.
Mellor hetja
Liverpool
RAFAEL Benitez hafði ástæðu til þess að gleðjast í gær er Liverpool
lagði meistaralið Arsenal að velli, 2:1, en það var Neil Mellor sem
skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok. Xabi Alonso skoraði fyrra
mark Liverpool en Patrick Vieira jafnaði fyrir Arsenal sem er nú 5
stigum á eftir Chelsea.
BAYERN München er í efsta sæti
þýsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu eftir 4:2 sigur liðsins gegn
nýliðum Mainz. Bayern München
endurheimti efsta sætið um síðustu
helgi eftir 18 mánaða bið. „Ég er að
sjálfsögðu ánægður með sigurinn en
við áttum í erfiðleikum áður en við
skoruðum fyrsta markið. Og í síðari
hálfleik náðum við góðum köflum en
við erum enn ekki búnir að ná þeim
stöðugleika sem við viljum í leik
okkar,“ sagði Felix Magath þjálfari
Bayern.
RALF Rangnick knattspyrnu-
stjóri Schalke heldur áfram að ná
því besta út úr liðinu en Schalke
hefur náð 24 stigum af 27 mögu-
legum, en um helgina vann liðið
Arminia Bielefeld 2:1. Og að sjálf-
sögðu voru rúmlega 60.000 áhorf-
endur á heimavelli Schalke.
FYRIR ári var Werder Bremen
efst þegar blásið var til fimm vikna
vetrarleyfis í þýsku deildinni. Og
það hefur verið venjan að það lið
sem er efst fyrir vetrarfrí nái að
halda þeirri stöðu þegar keppni lýk-
ur í maí. Það eru tvær umferðir eftir
af þýsku deildinni fram að vetrar-
fríi.
HERNAN Crespo skoraði fjórða
mark sitt á átta dögum fyrir AC Mil-
an en Crespo tryggði liðinu 1:0 sig-
ur gegn Chievo á sunnudag. Crespo
tók sæti Andrei Shevchenko í byrj-
unarliðinu en Shevchenko er meidd-
ur. Þetta var fyrsta deildarmark
Crespo á leiktíðinni en hann er á
láni frá enska úrvalsdeildarliðinu
Chelsea.
CAGLIARI vann Lazio á útivelli
3:2 og er í fjórða sæti deildarinnar.
Það var fyrrum leikmaður Chelsea
sem tryggði Cagliari sigur. Gian-
franco Zola, skoraði þriðja mark
sinna manna á 70. mínútu.
RÓMA skoraði fjögur mörk á úti-
velli gegn Siena og skoraði Vinc-
enzo Montella tvívegis og Fran-
cesco Totti skoraði einnig tvö mörk.
KYLFINGURINN Stephen Dodd
frá Wales sigraði á atvinnumanna-
móti sem fram fór í Kína og var
upphaf keppnistímabilsins á Evr-
ópumótaröðinni. Þetta er í fyrsta
sinn sem hinn 38 ára gamli Dodd
sigrar á atvinnumannamóti en ann-
ar varð Daninn Thomas Björn,
þremur höggum á eftir Dodd sem
lék á samtals 12 undir pari.
ARRON Oberholser frá Banda-
ríkjunum vann Shinhan-golfmótið
sem fram fór í S-Kóreu en Miguel
Angel Jimenez frá Spáni og heima-
maðurinn Kevin Na voru jafnir í
öðru sæti. Oberholser endaði á 4
undir pari, tveimur höggum betri en
næstu menn. Padraig Harrington
frá Írlandi endaði í 11. sæti á
mótinu.
FÓLK
Hendrie var að leika á ný meðVilla eftir að hafa tekið út leik-
bann en hann lenti í útistöðum við
Danny Mills, bakvörð City, og virtist
Hendrie skalla Mills. Var Riley ekki í
vafa um brotið en sjónvarpsupptökur
sýna að Hendrie snerti Mills aldrei.
„Mike Riley er góður dómari og ég
hvet hann til þess að skoða atvikið og
senda skýrslu um málið. Ég vona
einnig að hann hafi hugrekki til þess
að segja að hann hafi haft rangt fyrir
sér,“ sagði O’Leary, en enskir fjöl-
miðlar greina frá því að hann hafi
sagt ýmislegt við Danny Mills á leið
þeirra í búningsherbergin eftir leik-
inn en Mills lék undir stjórn O’Lear-
ys er þeir voru hjá Leeds United
„Leikmenn á borð við Danny Mills
og Lee Hendrie eru þannig gerðir að
þeir vilja vera þar sem átökin eiga sér
stað á vellinum. En það var engin
snerting í þessu tilfelli og ef Riley
ætlar að fara dæma það sem hann
heldur að hafi gerst þá verða ekki
margir leikmenn eftir inni á vellinum
í leikslok. Ég er vissulega ekki
ánægður með hvernig Lee brást við
en ég stend samt sem áður við bakið á
honum og tel að hann hafi ekki átt að
fá rautt spjald.“
Shaun Wright-Phillips fór á kost-
um í leiknum í liði City og skoraði síð-
ara markið af um 20 metra færi. „Ég
á varla til lýsingarorð til þess að lýsa
honum,“ sagði Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri City, eftir leikinn.
„Hann hefur líklega æft þetta í laumi
frá því á föstudag því ég hef aldrei
séð hann skjóta með vinstra fæti með
þessum hætti. Hann var gagnrýndur
í fyrra fyrir að skora ekki nóg af
mörkum og núna hefur hann bætt sig
á því sviði. Það eru ekki margir leik-
menn í heiminum sem eru betri en
hann í því að brjóta upp varnir með
einstaklingsframtaki. Að mínu mati
er það aðeins tímaspursmál hvenær
hann kemst í byrjunarlið enska
landsliðsins og þegar hann verður
kominn þangað tekst engum að bola
honum úr því sæti. Hann á eftir að
verða enn betri.“
Það var Jon Macken sem skoraði
fyrra mark City og var þetta fyrsta
markið í ensku úrvalsdeildinni sem
hann skorar. City hefur nú unnið tvo
leiki í röð en það hefur ekki gerst frá
því í apríl árið 2003.
David James varði vítaspyrnu frá
Juan Pablo Angel og fékk Angel
tækifæri til þess að skora á ný er
hann náði frákastinu en hann skaut
yfir markið af stuttu færi.
O’Leary
ósáttur við
Mike Riley
AP
Mike Riley er hér búinn að vísa Lee Hendrie af leikvelli gegn
Manchester í gær. Hann og Gavin McCann mótmæla.
DÓMARINN Mike Riley er ekki
efstur á jólakortalista Davids
O’Learys, knattspyrnustjóra
Aston Villa, eftir 2:0-tap liðsins
gegn Manchester City á laug-
ardag en O’Leary telur að Riley
hafi gert afdrifarík mistök í
leiknum er hann vísaði Lee
Hendrie af velli.