Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 4
Þeir voru ekki upplitsdjarfir leik-menn Grindavíkurliðsins í körfuknattleik sem gengu af leikvelli eftir að hafa fengið ÍR-inga í heimsókn í gærkvöldi. ÍR-ingar léku sér að heima- mönnum eins og köttur að mús og fögnuðu stórsigri í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Int- ersportdeildinni, 103:66. Strax í byrjun náðu leikmenn ÍR- liðsins frumkvæðinu og voru þeir sterkari á öllum sviðum körfuknatt- leiksins. Áberandi var hve áköf vörn- in þeirra var og viljinn til að fara í öll fráköst var mikill. Áhorfendur, sem reiknuðu með því að Páll Axel Vil- bergsson væri í leikbanni – svo var ekki, sáu leikmenn Grindavíkurliðs- ins eiga einn lélegasta leik í mörg ár. ÍR-ingar voru fremri á öllum sviðum og að Grindvíkingar skoruðu ekki nema 19 stig í seinni hálfleik segir meira en öll orð um leik þeirra. ÍR- ingar fóru á kostum. Bestur hjá ÍR- ingum var Theo Dixon, en hjá heima- mönnum var Terrel Taylor bestur. Þetta var kærkomið fyrir okkurenda ekki á hverjum degi sem Grótta/KR vinnur ÍR í Breiðholtinu. Þó okkur hafi ekki tekist að tryggja okkur sæti í a-deild- inni þá vorum við staðráðnir í því að klára leikina eins og menn,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/ KR. „Við vorum einungis með ellefu leikmenn í kvöld vegna meiðsla en menn voru tilbúnir til þess að berjast fyrir stigunum. Mörkin dreifðust vel hjá okkur og allir fundu sig vel í mínu liði. Við erum í undanúrslitum í bik- arkeppninni og það heldur mönnum jafnframt á tánum, auk þess sem það verður krefjandi verkefni að leika í B-deildinni, sem verður að mínu mati sterkari en á síðustu leiktíð,“ sagði Ágúst ennfremur. Leikur liðanna var daufur lengst af enda ekki að miklu að keppa í þetta sinn. Heimamenn byrjuðu á sannfærandi hátt og náðu snemma þriggja marka forskoti en gestirnir komust inn í leikinn og höfðu yfir í hálfleik 15:13. Eftir frem- ur bragðdaufar 45 mínútur fór blóðið loks að renna í leikmönnum síðasta stundarfjórðunginn og meira líf færðist í tuskurnar. Í stöðunni 23:21 fyrir ÍR virtist toppliðið ætla að klára dæmið að venju en þá komu fjögur mörk í röð frá Gróttu/KR sem lét tækifærið sér ekki úr greipum ganga og landaði sætum sigri, 29:27. Leik- menn Gróttu/KR voru vel stemmdir í leiknum og meiri yfirvegun var yfir sóknarleik þeirra en fyrr í vetur. Brynjar Hreinsson sýndi sitt rétta andlit eftir brösuga tíð vegna meiðsla og var bestur gestanna. Einnig átti Kristinn Björgúlfsson góða spretti ásamt Herði Gylfasyni sem sýndi sjaldséð tilþrif í sókninni. Hjá ÍR var Fannar Þorbjörnsson bestur í vörn og sókn, Ólafur Sigurjónsson kom með nýja vídd í sóknina er hann kom inná, auk þess sem Ólafur Gíslason skilaði sínu þokkalega í markinu, varði til að mynda tvö vítaköst. En heilt yfir var ekki hátt risið á lyk- ilmönnum ÍR-inga og virtust þeir Ingimundur Ingimundarson, Hann- es Jónsson og Bjarni Fritzon vera full pirraðir til þess að ná almenni- legri einbeitingu. Leikmenn Gróttu/ KR virtust hafa meiri áhuga á verk- efninu og því fór sem fór. Dramatík í Eyjum Það var sannarlega dramatík í leikÍBV og Vals, sem Eyjamenn unnu 24:23. Bæði lið voru örugg upp í úrvalsdeild eftir ára- mót og var þetta því barátta um stigin sem liðin taka með sér. Eyjamenn byrj- uðu leikinn mun betur og komust þremur mörkum yfir þegar tíu mín- útur voru liðnar. Þá kom góður leik- kafli Valsmanna og þeir jöfnuðu á næstu fimm mínútum. Eftir það höfðu gestirnir frumkvæðið og þrátt fyrir stórleik Rolands Eradze í Eyja- markinu sem varði 17 skot í fyrri hálfleik leiddu Valsmenn með fjórum þegar liðin gengu til búningsher- bergja. Valsmenn hreinlega lokuðu vörninni hjá sér og komust heima- menn ekkert áleiðis. Aðeins Roland kom í veg fyrir að munurinn væri meiri. Í síðari hálfleik snerist þetta við, Eyjamenn voru mun ákveðnari og Roland hélt áfram að verja. Þeim tókst að jafna þegar tólf mínútur voru til leiksloka, 19:19, þá kom aftur frábær kafli Valsmanna varnarlega séð og Eyjamenn skoruðu ekki næstu sjö mínútur. Valsmönnum tókst að setja þrjú og þegar fimm mínútur voru eftir leiddu Valsmenn með þremur. Næstu tvö mörk voru Eyjamanna, fyrst Sigurður Ari Stef- ánsson og síðan Robert Bognar áður en Fannar Friðgeirsson skoraði 23. mark Vals. Robert Bognar skoraði aftur fyrir Eyjamenn og Valsmönn- um tókst ekki að nýta sína sókn. Eyjamenn fengu vítakast og Samúel Í. Árnason jafnaði leikinn þegar rétt um mínúta var eftir. Valsmenn misstu mann af velli og einum færri lögðu þeir af stað í lokasókn sína. Heimir Ö. Árnason komst í gegn en skot hans fór yfir en Valsmenn vildu meina að brotið hafi verið á honum. Eyjamenn tóku leikhlé þegar tutt- ugu sekúndur voru eftir og staðan jöfn. Þeir spiluðu svo sín á milli þar til þrjár sekúndur voru eftir að Tite Kalandanze stökk upp og þrumaði knettinum í stöngina og inn. Leiktím- inn rann út og Eyjamenn fögnuðu gríðarlega. Gestirnir gengu hnípnir af leikvelli og ósáttir við dómgæsluna á lokamínútunum. Það er ekki hægt að ljúka skrifum um þennan leik án þess að minnast sérstaklega á þátt Rolands Eradze. Hann sýndi sann- kallaðan stórleik gegn sínum fyrri fé- lögum og varði 29 skot og mörg þeirra voru úr sannkölluðum dauða- færum og sýndi að enginn er betri í markinu um þessar mundir. Þetta er það sem áhorfendur vilja Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var í skýjunum í leikslok. „Þetta var nauðsynlegt stig fyrir okkur og það sýndi sig í restina að við vildum þetta meira. Við náðum okkur ekki á strik sóknarlega í fyrri hálfleik en það lagaðist í þeim síðari. Það voru áherslubreytingar, Davíð kom inn með hraða og kraft og menn létu boltann ganga. Ég viðurkenni það að þetta var algjör stuldur en ég segi þá að nú er jafnt á milli liðanna því ég vil meina að þeir hafi stolið sigrinum af okkur fyrr í vetur þegar við mætt- umst á Hlíðarenda.“ Erlingur glotti þegar dramatíkin í lokin var borin undir hann. „Jú, þetta var drama- tískt en mér heyrðist þetta vera það sem áhorfendur vildu.“ Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var mjög ósáttur í leikslok og þá sérstaklega með seinni hálfleikinn hjá sínum mönnum. „Roland er að verja allt of mikið. Það gefur augaleið að hann er besti markvörður okkar í dag en þetta var bara rugl. Við áttum að vera átta mörkum yfir í hálfleik en síðan er annar dómari leiksins hræði- legur í seinni hálfleik. Af hverju fékk Heimir ekki fríkast hérna undir lok leiksins? Það var ekkert samræmi í þessu en ég segi, til hamingju, Eyjamenn. Þeir eru með mjög gott lið, það besta í mörg ár sem kemur frá Eyjum. Úr- valsdeildin er byrjuð og nú verðum við að sigra ÍR í lokaumferðinni,“ sagði Óskar, en hann fékk að líta rauða spjaldið eftir að leikurinn var búinn fyrir hávær mótmæli við dóm- ara leiksins. Pirraðir ÍR- ingar töpuðu Morgunblaðið/Þorkell Brynjar Hreinsson átti góðan leik með Gróttu/KR gegn ÍR í Austurbergi og skoraði fimm mörk. GRÓTTA/KR vann óvæntan sigur á ÍR, 29:27, í suðurriðli Íslandsmótsins í handknattleik karla, DHL-deildinni, er liðin mættust í Austurbergi í gær- kvöldi. Þrátt fyrir sigurinn nær Grótta/KR ekki að tryggja sér sæti í úrvalsdeild eftir áramót. Eyjamenn lögðu Valsmenn að velli í fjörugum leik í Eyjum, 24:23, og Víkingar unnu á Sel- fossi, 24.23. Kristján Jónsson skrifar Sigursveinn Þórðarson skrifar  BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylf- ingur úr GKG, er úr leik á Dunhill mótinu í S-Afríku en hann lék í gær á 2 höggum yfir pari og samtals á 5 yf- ir pari á 36 holum. Birgir var 3 yfir pari í gær að loknum fyrri 9 holun- um, fékk skramba (+2) á 2. braut og skolla (+1) á 6. braut. Hann lék síð- ari 9 holurnar á 1 undir pari, fékk skolla (+1) á 11. og 17., en fugla (-1) á 12., 14 og 18. Samtals 74 högg í gær en hann var á 75 höggum í fyrradag. Á mótinu fékk Birgir 21 par, 6 fugla, 7 skolla og 2 skramba.  ÍSLENSKA sveitin í 4x50 metra skriðsundi kvenna bætti 17 ára gam- alt Íslandsmet þegar hún synti á 1.46,97 mínútum á EM í sundi í Vín í gær. Það dugði þó skammt því sveit- in rak lestina af fjórtán sveitum.  METSVEITINA skipuðu að þessu sinni þær Kolbrún Ýr Kristjánsdótt- ir, Erla Dögg Haraldsdóttir, Eva Hannesdóttir og Anja Ríkey Jak- obsdóttir.  AUK sveitarinnar varð Kolbrún Ýr í 31. sæti af 43 keppendum í 50 m baksundi og Erla Dögg Haralds- dóttir hafnaði í 26. sæti í 200 m bringusundi af 31 keppanda á mótinu í gær. Kolbrún synti á 28,23 sek., en Íslandsmet hennar er 27,54. Erla Dögg var einnig nokkuð frá sínu besta, synti á 2.35,62 mínútum.  GORDON Gund eigandi NBA- liðsins Cleveland Cavaliers er alvar- lega að íhuga að selja liðið en hefur átt í óformlegum viðræðum við hugs- anlega kaupendur að undanförnu. Hagnaður félagsins á undanförnu ári var gríðarlegur enda hefur verið uppselt á alla heimaleiki liðsins frá því að liðið fékk LeBron James í ný- liðavali NBA-deildarinnar.  TRACY McGrady, leikmaður Houston Rockets, tryggði liðinu sig- ur með 3ja stiga körfu gegn San Ant- onio Spurs í NBA-deildinni aðfara- nótt föstudags, 81:80, er 1,7 sek., voru eftir af leiknum. En Rockets var 10 stigum undir er ein mínúta var eftir og skoraði McGrady 13 stig á 35 sekúndum. Flestir af rúmlega 16.000 áhorfendum á leiknum í Hou- ston voru farnir að yfirgefa keppn- ishöllina er skammt var til leiksloka.  TILÞRIF McGrady þóttu minna á afrek Reggie Miller, leikmanns Indi- ana Pacers, sem skoraði 8 stig í röð á 8,9 sekúndum gegn New York Knicks í undanúrslitum Austur- deildar árið 1995. Miller tryggði Pacers sigur 107:105 í þeim leik. FÓLK ATLI Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu, er einn þeirra sem koma til greina í þjálfara- starfið hjá Keflvíkingum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa forráðamenn Keflavíkurliðsins átt lauslegar viðræður við Atla og er hann einn þriggja þjálfara sem eru inni í myndinni hjá Suður- nesjaliðinu eftir því sem Morg- unblaðið kemst næst. Keflvík- ingar hafa enn ekki gefið Guðjón Þórðarson upp á bát- inn en hann hefur verið efstur á óskalista bikarmeistaranna. Stjórnarmaður í knattspyrnu- deild Keflavíkur sagði við Morgunblaðið í gær að við- ræðum við Guðjón hefði ekki verið slitið og meðan svo væri væri hann enn inni í myndinni. Keflavík hefur rætt við Atla Stórsigur hjá ÍR Garðar Páll Vignisson skrifar MILAN Stefán Jankovic er tekinn við sem þjálfari Grindavíkurliðsins í knattspyrnu, efstu deild, Lands- bankadeildinni. Hann skrifaði í gærkvöldi undir fimm ára samn- ing við knattspyrnudeild Grinda- víkur. „Við erum afar ánægðir með að þessi mál skuli loksins vera komin í höfn. Milan var næstbesti kost- urinn en við þekkjum vel til hans og erum mjög ánægðir með að fá hann til starfa að nýju. Næsta skrefið er að styrkja leik- mannahópinn fyrir átökin næsta sumar og þá vonumst við til þess að bæjaryfirvöld í Grindavík komi okkur til aðstoðar með því að bæta aðstöðu okkar knattspyrnu- manna en hún er ekki góð yfir vetrarmánuðina,“ sagði Jónas Þór- hallsson, formaður knatt- spyrnudeildar Grindavíkur, við Morgunblaðið í gærkvöld. Grindvíkingar hafa verið á hött- unum eftir Guðjóni Þórðarsyni síð- ustu mánuðina og voru búnir að ganga frá því að Milan Stefán yrði honum til aðstoðar en eftir að Guðjón hóf viðræður við Keflvík- inga þrýstu Grindvíkingar á Milan að taka við starfinu. Milan Stefán hefur þjálfað lið Keflavíkur síð- ustu tvö árin en var þrjú ár við stjórnvölinn hjá Grindavík, 1999– 2001. Milan samdi við Grindavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.