Morgunblaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Þökkum ótrúlegar viðtökur. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanarí- eyja í 2 vikur á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí. Þú bókar ferðina og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Á Kanarí nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Bókaðu strax á www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Kanarí 11. janúar aðeins kr. 49.990 Verð kr. 49.990 Verð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó. Innifalið flug, gisting í 14 nætur og skattar. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800 Tryggðu þér ferð til Kanarí á lægsta verðinu 11. janúar - 2 vikur SKIPT verður um brú, ýmis tæki og búnað í varðskipinu Ægi á næsta ári auk þess sem vistarverur áhafnar verða endurnýjaðar. Þá verður dráttarvinda endurnýjuð og vél- arrúm gert mannlaust. Ári síðar verða síðan gerðar sams konar breytingar á varðskipinu Tý. Í útboði sem Landhelgisgæslan hefur auglýst kemur fram að samningstími vegna breytinga á Ægi sé frá miðjum apríl og fram til miðs ágústs 2005 og sama tímabil vegna breytinga á Tý árið 2006. Verður varðskipið Óðinn notað á meðan hin varðskipin eru í slipp. Ægir kominn vel á fertugsaldurinn Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslu Ís- lands, segir þetta vera miklar breytingar sem gerðar verði á varðskipunum. Hann segir vistarverur skipverja hafa verið farnar að gefa sig eftir langa notkun, Ægir sé orðinn 36 ára gamall og Týr verði 30 ára á næsta ári og ljóst hafi verið að gera þurfti við þær. „Þetta er úr sér gengið og á þeim tíma sem þetta var gert voru auðvitað aðrar kröfur gerðar til vistarvera um borð í skipum. Við erum að færa þetta í þann búning sem gerðar eru kröfur um í dag.“ Spurður um brúna í Ægi segir Hafsteinn að komið hafi í ljós tæring í henni og niðurstaðan hafi síðan verið sú að það myndi frekar borga sig að skipta um brúna í heilu lagi og nota þá tækifærið og stækka hana dálítið í leiðinni. Þá verði rýmra um tól og tæki og mannskapinn líka. Hafsteinn segir að með því að bjóða út breytingarnar í bæði varðskipin í einu eigi menn að fá miklu betra verð en ella; varðskipin séu systurskip og afskaplega lítið sem skilji þau að og það sé því mikið hagræði fyrir alla aðila. Hafsteinn segir kostnaðaráætlun vitaskuld vera trúnaðar- mál, breytingarnar séu kostnaðarsamar en þó ekki eins og halda mætti enda hagræði að því að vera með tvö eins skip. Skipt um brú í varð- skipunum Ægi og Tý Morgunblaðið/Golli Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Gæslunnar. HJÁ stóru leikhúsunum tveimur í borginni er svo sann- arlega allt á fullu við undirbúning og æfingar á einhverjum viðamestu sýningum vetrarins sem frumsýndar verða nú um jólin og í byrjun næsta árs. Í Þjóðleikhúsinu er verið að leggja lokahönd á jóla- frumsýninguna sem er leikgerð Hilmars Jónssonar á skáld- sögu Ólafs Gunnarssonar Öxinni og jörðinni í leikstjórn Hilmars. Í verkinu er eitt mesta átakatímabil Íslandssögunnar til skoðunar, þ.e. siðaskiptin. Það er Arnar Jónsson sem fer með hlutverk Jóns Arasonar Hólabiskups. „Við erum í stríðinu miðju og erum vonandi að fara að vinna þessa orrustu,“ segir Arnar aðspurður hvernig æfing- ar gangi. „Á þessum síðustu dögum fyrir frumsýningu er allt undir og fyrstu rennslin eru að bresta á. Þegar verið er að setja svona stóra og flókna sýningu saman er auðvitað að mörgu að huga og það eru allir á tánum. Menn bara gera sitt besta.“ Aðspurður jánkar Arnar því að lítið fari fyrir jólaund- irbúningi þegar hugurinn er bundinn við leikhúsið. „Við hjónin erum náttúrlega bæði á kafi við að undirbúa upp- setningar, ég hér í Þjóðleikhúsinu og Þórhildur í Borgar- leikhúsinu. Ætli það verði ekki bara litlu jólin hjá okkur þetta árið,“ segir Arnar kíminn og bætir við að leiklistin sé ekki alltaf mjög fjölskylduvæn atvinnugrein. Ferðalag í eiginlegri og óeiginlegri merkingu Í Borgarleikhúsinu leikstýrir Þórhildur Þorleifsdóttir Hí- býlum vindanna, leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vestur- farasögum Böðvars Guðmundssonar. Spurð hvernig gangi og hvernig stemningin sé segist Þórhildur ekki kvarta. „Ég held að ég geti sagt með sanni að ég hafi aldrei fundið annan eins stuðning hjá leikhópi við verkefni og þá er þeirra innlegg auðvitað þeim mun meira. En þetta er langt ferðalag, það eru mörg þúsund mílur í áfangastað og það er líka mörg þúsund mílur eitt æfingaferli þar sem reynt er að ná áfangastað. Þannig að við erum í miklu ferðalagi í óeiginlegri og eiginlegri merkingu,“ segir Þór- hildur. Nokkur hópur ungra krakka tekur þátt í sýningunni, þeirra á meðal er Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson sem er sjö ára. Hann er að taka þátt í sinni fyrstu uppfærslu og segir það afar skemmtilega reynslu. Aðspurður segist hann lítið stress finna þegar hann stígur á leiksviðið, en segist þess fullviss að hann muni finna fyrir smáfiðrildum í maganum þegar kemur að sjálfri frumsýningunni. Frumsýningar undirbúnar Morgunblaðið/RAX Arnar Jónsson verður í hlutverki Jóns Arasonar Hólabiskups í Þjóðleikhúsinu um jólin. Saumakonurnar á saumastofu Þjóðleikhússins leggja nótt við dag til þess að klára búningana í tæka tíð fyrir frumsýningu. Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson ásamt Mána Magnúsarsyni, Helenu Kjartansdóttur, Þorbjörgu Ernu Mímisdóttur, Árna Beinteini Árnasyni og Ívari Elís Schweitz Jakobssyni er öll leika í Híbýlum vindanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.