Morgunblaðið - 22.12.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.12.2004, Qupperneq 1
2004  MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KSÍ LEITAR AÐ VERKEFNUM FYRIR KNATTSPYRNULANDSLIÐIÐ / C2 ÞÝSKA landsliðskonan Birgit Prinz var útnefnd leikmaður ársins annað árið í röð í kjöri alþjóða knattspyrnu- sambandsins, FIFA. Prinz, sem er sjúkraþjálfari, leikur með 1. FFC Frankfurt í Þýskalandi. Hún er 27 ára miðherji, sem hefur leikið 118 landsleiki og skorað 73 mörk í þeim. Þetta var í fjórða skipti sem leikmaður ársins hjá konum er útnefnd hjá FIFA. Bandaríska stúlkan Mia Hamm var valinn leikmaður ársins 2001 og 2002, og síðan var hún í öðru sæti á eftir Prinz í fyrra, 2003, og einnig í ár, 2004. Lið ársins hjá FIFA var valið karlalandslið Brasilíu og það lið sem tók mestum framförum á árinu var landslið Kína. Birgit Prinz Birgit Prinz best annað árið í röð Hópurinn nú er í stórum dráttum sá hinn sami ogViggó valdi fyrir heimsbikarmótið í Svíþjóð í síðasta mánuði. Af þeim sautján mönnum sem hann valdi þá eru fjórtán með nú, út falla Ásgeir Örn Hall- grímsson vegna meiðsla og Snorri Steinn Guðjóns- son og Þórir Ólafsson. Inn koma Alexander Peters- son og Ólafur Stefánsson. „Ég mótaði hugmyndir mínar um valið fyrir heimsbikarmótið og á því fékk ég staðfestingu á því að ég væri nokkurn veginn með rétta hópinn í höndunum,“ sagði Viggó. Eini nýliðinni er Alexander Petersson, leikmaður HSG Düsseldorf. Hann er fæddur í Lettlandi en fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum. Al- exander verður löglegur með íslenska landsliðinu 22. janúar, degi áður en HM hefst, en þá eru þrjú ár liðin frá því hann lék síðast með landsliði Letta. „Ég sá Al- exander leika í Þýskalandi í haust og hann stóð sig mjög vel. Ég er því alveg óhræddur við að velja hann. Alexander getur bæði leikið sem skytta og í hægra horninu auk þess sem hann er sterkur varnarmað- ur,“ segir Viggó. Þrátt fyrir að aðeins einn nýliði sé í landsliðinu þá eru fleiri í hópnum sem ekki hafa mikla reynslu. Helmingur hópsins, átta leikmenn, hefur aldrei tekið þátt í stórmóti og einn til viðbótar, Birkir Ívar Guð- mundsson, á aðeins eitt stórmót að baki, HM í Frakklandi fyrir tæpum fjórum árum. Aðeins sjö af þeim leikmönnum sem tóku þátt í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í sumar eru í hópnum nú og einungis sex þeirra sem nú eru valdir voru með í Evrópukeppninni í Slóveníu í byrjun þessa árs, Dagur Sigurðsson, Einar Örn Jónsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Jaliesky Garcia, Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson. Þeir tveir leikmenn sem Viggó segir að hafi ekki geta svarað kalli hans eru Sigfús Sigurðsson og Pat- rekur Jóhannesson. Báðir glíma þeir við meiðsli. „Ég gerði mér ákveðnar vonir með Patrek en því miður þá urðu þær að engu, hann þarf lengri tíma til að vera klár í slaginn,“ sagði Viggó Sigurðsson. Viggó Sigurðsson gerir róttækar breytingar á landsliðinu frá Ólympíuleikunum í Aþenu Helmingurinn aldrei spilað á stórmóti „ALLIR þeir sem ég óskaði eftir svöruðu kalli mínu að tveimur mönnum undanskildum sem eru meiddir og geta þar af leiðandi ekki verið með. Þessi hópur sem ég hef valið er sá sterk- asti sem ég tel vera völ á um þessar mundir,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, þegar hann tilkynnti í gær HM-hópinn sinn, landslið 16-leikmanna sem hann hyggst tefla fram á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem hefst í Túnis 23. janúar. Óhætt er að segja að Viggó hafi gert róttækar breytingar á landsliðinu síðan hann tók við í haust, aðeins sjö þeirra sem nú eru valdir voru með á Ólympíuleikunum í sumar. Morgunblaðið/Golli Alexander Petersson, fyrrverandi leikmaður með Gróttu/KR, sem leikur nú með Düsseldorf í Þýskalandi, er nýliði í landsliðshópi Viggós Sigurðssonar. ■ HM-hópurinn/C2 RÓBERT Sighvatsson, handknattleiksmaður, hefur ákveðið að leika með þýska liðinu D/M Wetzlar til vorsins 2007, en núverandi samn- ingur hans við félagið rennur út í vor. Róbert hefur leikið með Wetzlar frá haustinu 2002 og verður því búinn að vera hjá félaginu í fimm ár þegar nýi samningurinn rennur út. Þá verður Róbert 35 ára og búinn að vera at- vinnumaður í handknattleik í Þýkalandi í 11 ár. Róbert fór út árið 1996 eftir að hafa leikið með Aftureldingu og Víkingi hér heima. Hann lék í eitt ár með Schutterwald áður en hann gekk til liðs við Bayer Dormagen 1997 hvar hann var fram á sumarið 2001. Þá lék hann eina leiktíð með HSG Düsseldorf áður en hann gekk til liðs við Wetzlar í Dutenhofen. Róbert fingurbrotnaði í síðasta mánuði og leikur ekki með liði sínu fyrr en keppni hefst að nýju í þýsku 1. deildinni í febrúar eftir að rúmlega mánaðarlangt hlé hefur verið gert vegna heimsmeistaramótsins í Túnis. Wetzlar er um þessar mundir í 13. sæti af 18 liðum í 1. deildinni með 12 stig. Róbert áfram hjá Wetzlar KR teflir fram nýjum Bandaríkja- manni í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á nýju ári. KR-ingar hafa samið við Aaron Harper og leysir hann landa sinn, Damon Garris, af hólmi en samningi hans við KR var sagt upp í síðustu viku. Harper er 23 ára skotbakvörð- ur, 2 metrar á hæð, sem leikið hefur á Ítalíu í haust. Hann lék með Ole Miss-háskólaliðinu í fyrra og var stigahæsti leikmaður liðs- ins með 16,5 stig að jafnaði í leik. Harper er ætlað að rétta gengi KR-liðsins við en vesturbæjarliðið situr í tíunda sæti úrvalsdeild- arinnar. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað sjö. Harper í raðir KR-inga ÍSLAND er í 93. sæti á heimslista karlalandsliða í tennis sem gefinn var út á dögunum. Alls eru 145 þjóðir á listanum, þar af 47 Evr- ópuþjóðir, og er Ísland í fertug- asta sæti af þeim. Evrópuþjóðir fyrir aftan Ísland eru Moldavía, Bosnía, San Marino, Aserbaíd- sjan, Andorra, Malta og Liechten- stein. Spánverjar eru efstir á listan- um og næstu þjóðir eru Frakk- land, Ástralía, Bandaríkin, Rúss- land, Argentína, Sviss, Hvíta-Rússland, Svíþjóð og Hol- land. Finnar eru númer tvö af Norð- urlandaþjóðunum en þeir eru í 36. sæti. Norðmenn eru í 48. sæti og Danir í 52. sæti. Ísland í 93. sæti í tennis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.