24 stundir - 05.01.2008, Qupperneq 47
24stundir LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 47
MENNING
menning@24stundir.is
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt
sem Diddú, lofar frábærri skemmt-
un í Salnum í kvöld enda er hún
einlægur aðdáandi Irinu. „Irina
Romishevskaya er alveg hreint
magnaður messósópran sem ég
hitti fyrst þegar hún kom hingað til
lands í september á síðasta ári,“
segir Diddú.
Söngkonurnar tvær hittust svo
aftur í Moskvu stuttu seinna og þá
ákváðu þær að leiða saman hesta
sína á sviði. Diddú söng á árlegum
stórtónleikum Rotary í gærkvöldi,
ásamt Romishevskaya og Jónasi
Ingimundarsyni, en vegna mikillar
eftirspurnar verða tónleikarnir
endurfluttir í kvöld kl. 17 og gefst
því almenningi tækifæri til að
verða sér úti um miða.
„Irina er búin að vera hér síðan
stuttu fyrir áramót og við höfum
æft okkur af kappi fyrir tón-
leikana.“ Þær gáfu sér þó tíma til
þess að skemmta sér um áramótin
en þá var opið hús hjá Diddú og
Irina var hæstánægð með íslenska
gamlárskvöldið. „Það var lítið um
flugelda í ár vegna veðurs en við
skemmtum okkur konunglega
þrátt fyrir það. Irina fór í mat til
Jónasar Ingimundarsonar og fjöl-
skyldu hans en að því loknu komu
þau hingað og fögnuðu nýja
árinu.“
Diddú á ferð og flugi
Á efnisskrá tónleikanna eru
þekktar óperuaríur, dúettar og fjöl-
breytt sönglög. Auk þeirra þriggja
verður sérstakur leynigestur tón-
leikanna nýr styrkþegi Tónlistar-
sjóðs Rotary, en sjóðurinn er ein-
mitt afrakstur þessa árlega
tónleikahalds í Salnum.
Eftir tónleikana tekur við stíf
dagskrá hjá Diddú sem ferðast
heimshorna á milli án þess að
blikna. „Ég er á leiðinni til Strass-
borgar og fer því næst til Moskvu,
en það finnst mér sérstaklega
spennandi borg. Ferðalögin hjá
mér eru alltaf að aukast og ég mun
ferðast víða í ár. Gunnar Þórðarson
er að skrifa verk um þessar mundir
sem ég mun flytja í tengslum við
stóra listsýningu í Frakklandi. Ég er
einnig á leið í upptökur en þær
munu fara fram í Pétursborg og
þar mun ég hafa fjóra rússneska
hljóðfæraleikara mér til halds og
trausts. Það er heilmikil útrás í
gangi hjá mér.“
Stórtónleikar í Salnum í kvöld
Magnaður messósópran
Tónlistarunnendur fá
glaðning í Salnum í kvöld
þegar Diddú stígur á svið
ásamt Jónasi Ingimund-
arsyni og Irinu Romis-
hevskaya.
Glæsileg Diddu stígur á
svið í kvöld.
➤ Fyrst var veitt úr Tónlist-arsjóði Rotary í tilefni af 100
ára afmæli hreyfingarinnar í
janúar 2005.
➤ Fyrri styrkþegar eru þeir Vík-ingur Heiðar Ólafsson, Ari Þór
Vilhjálmsson og Bragi Berg-
þórsson.
TÓNLISTARSJÓÐURINN
Í grennd við nafnlaust þorp 600
kílómetra norður af Montréal
finnst lík að-
komumanns.
Þorpið er
sögusvið rit-
höfundarins
Lise Tremblay í
bókinni
Hegravarpið
sem kom út ár-
ið 2003 og
vakti mikla at-
hygli. Bókin er
nú komin út í
þýðingu Ásdís-
ar R. Magnúsdóttur, Davíðs
Steins Davíðssonar og Lindu
Arnarsdóttur.
Nafnlaust lík
í Kanada
Ghostigital og
Finnbogi Pét-
ursson halda tón-
leika í kvöld á
Sirkus á Klapp-
arstíg. Þetta eru
fyrstu tónleikar
Ghostigital og
Finnboga síðan
gefinn var út geisladiskurinn
Radium nú á
síðastliðnu hausti.
Ghostigital-félagar spila lög af
óútkominni plötu, en áður taka
þeir til hendinni með Finnboga.
Hörkutónleikar
á Sirkus
a
Það var lítið um flugelda í ár vegna
veðurs en við skemmtum okkur
konunglega þrátt fyrir það.
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is Kata@24stundir.is
Katrin s.510 3727
11.januar 2008
Serblad 24 stunda
namskeid