24 stundir - 05.01.2008, Side 55
HÆTTU Í ALVÖRU MEÐ NICOBLOC
Þú setur NicoBloc í filter sígarettanna sem þú
reykir. Það hindrar nikótínið og tjöruna í filternum
og þú byrjar að venjast af nikótíninu. Um leið minnkar
þú reykingar þínar smám saman, eftir sex vikur drepur þú í
sígarettunni og sleppur við venjulegu fráhvarfseinkennin. Flestir
sem nota Nicobloc til að hætta, byrja ekki aftur að reykja.*
Nicobloc er gert úr 100% náttúrulegum efnum, það er ekki lyf
og inniheldur ekki nikótín, þannig skiptir þú ekki sígarettufíkn
út fyrir aðra fíkn.
*Skv. rannsóknum sem skoða má á www.nicobloc.is
Skynsöm leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða.
NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum.
Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í.
24stundir LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 55
Lindsay Lohan hefur hingað til
ekki þótt á flæðiskeri stödd þegar
kemur að fjármunum, en hjólin
hafa heldur betur snúist stjörn-
unni í óhag. Að sögn heimildar-
manna hefur hún leitað á náðir
vina sinna um peningalán og við-
urkennt að lítið sé í buddunni, en
þetta er væntanlega vegna mik-
illar eyðslu leikkonunnar á síð-
asta ári. Má í því sambandi nefna
milljón dollara reikning fyrir
hótelgistingu… hþ
Lindsay biður
vini um lán
Stúlkurnar í Spice Girls segjast
allar leita á náðir Mel B þegar
þær þurfa að ræða sérstaklega
kynlífsmál sín og maka sinna.
Mel B, eða Scary Spice eins og
hún er gjarnan kölluð, hefur allt-
af haft það orð á sér að vera hin
villtasta í rekkjunni og er hún
sögð leggja vinkonum sínum lífs-
reglurnar í þessum efnum eins
oft og færi gefst. hþ
Kynlífsráðgjaf-
inn Mel B
eru eins konar samsuða nútíma In-
diana Jones-ævintýris, með góðum
skammti af Da Vinci lyklinum,
nema nú er fjallað um bandaríska
menningarsögu og Nicolas Cage er
enginn Harrison Ford. Helstu
kennileitin eru Frelsisstyttan, Hvíta
húsið og Rushmore-fjall sem spila
öll rullu í myndinni, líkt og Lo-
uvre-safnið, Móna Lísa og Síðasta
kvöldmáltíðin gera í Da Vinci lykl-
inum. Auk þess eru soðnar saman
nokkrar samsæriskenningar og til-
gátur, bætt við orðrómi og skáld-
skap til þess að gera myndina enn
æsilegri. En þrátt fyrir prýðisgóða
og áhugaverða hugmynd að hand-
riti er útfærslan á því of yfirdrifin
og yfirborðskennd til þess að mað-
Ævintýramyndin National
Treasure: Book of Secrets, eða
Þjóðarfjársjóður: Bók leyndarmál-
anna, er framhald myndarinnar
National Treasure, sem kom út ár-
ið 2004. Ben Gates (Cage) er til-
neyddur til að hreinsa nafn for-
föður síns sem sakaður er um að
vera hugsuðurinn á bak við morð-
ið á Abraham Lincoln árið 1865.
Sú ásökun er byggð á blaðsíðu úr
dagbók forföður Gates þar sem
nafn hans er ritað ásamt nöfnum
annarra samsærismanna. Þegar
Ben Gates finnur dulmál á blaðsíð-
unni upphefst leit að einum mesta
fjársjóði allra tíma, sjálfri Gullborg
frumbyggja Ameríku, Cíbola.
National Treasure-myndirnar
ur geti notið myndarinnar til fulln-
ustu. Samtölin eru kjánalega ein-
föld og allar tilraunir til hnyttni
falla um sjálfar sig. Notkun drama-
tískra fiðla í sumum áhrifamiklum
og stígandi atriðum er allt að því
hlægileg og álíka auðgandi og
karamellupoppkorn. En þó svo að
myndin flokkist sem ævintýra-
mynd er ekki hægt að ætlast til
þess af áhorfendum að þeir sætti
sig við vísindin, verkfræðina og að-
ferðafræðina í mörgum atriðum
myndarinnar, því þau eru hrein-
lega of ótrúleg. Auk þess verður að
segjast að ásýnd og tilburðir Nicol-
as Cage á hvíta tjaldinu verða sífellt
þreyttari og virðist leikarinn, sem
gerði annars ágæta hluti í Raising
Arizona, 8mm og Lord of War,
hafa misst þann snefil af leikhæfi-
leikum sem hann hugsanlega ein-
hvern tímann hafði.
Súr blanda af Indiana Jones og Da Vinci lyklinum
Glataður Nicolas
Cage er ekki upp á
marga fiska.
National Treasure:
Bíó: Sambíóin Kringlunni,
Álfabakka, Akureyri og
Keflavík og Laugarásbíó.
Leik stjóri: Jon
Turteltaub.
Að al hlut verk:
Nicholas Cage,
Ed Harris, Diane
Kruger og Justin
Bartha.
Eft ir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
BÍÓ
Söngkonan Britney Spears var
flutt á sjúkrahús í gær eftir að
hafa neytt óþekktra lyfja, eftir því
sem fram kemur hjá talsmanni
lögreglunnar í Los Angeles sem
kom á staðinn. Britney mun hafa
verið með börnin sín tvö á heim-
ilnu og hafði lögreglan skömmu
áður verið kvödd til hennar vegna
forræðisdeilu hennar og Kevin
Federline, en að sögn heimildar-
manna stóð Britney ekki við
samningsskilmála um að skila
sonum sínum til Federline. hþ
Britney Spears
flutt á spítala