Frjáls þjóð - 05.10.1967, Page 6
Sjávarútvegurinn
Frh. af bls. 8.
stöðugt með puttana í þeim
málum, sem undir sjávar-
útvegsmálaráðherra heyra,
og hann komist ekki upp
með moðreyk, svo sem
þann, að leggja afvelta út-
vegi likn með þraut.
Fróðlegt verður að fylgj-
ast með því, hver viðbrögð
ríkisstjórnarinnar verða við
því neyðarópi, sem frá
fundi útvegsmanna barst
nú á dögunum. Öllum ætti
að vera ljóst, hverjar afleið-
ingar það hefur, ef hvorki
tekst að koma línu eða neti
í sjó. Kann þá svo að fara,
að leifarnar af gjaldeyris-
varasjóðnum verði fljótar
að hverfa. Er hætt við, að
slíkt hafi sín áhrif á toll-
tekjur ríkissjóðs. Hætt er
jafnvel við, að þess verði
þá ekki langt að bíða að
óskabörn ríkisstjórnarinn-
ar, heildsalarnir, verði að
sætta sig við að flytja inn
færri sjónvarpstæki, lægri
kexhlaða og snautlegri
tertubotna en verið hefur
nú um skeið.
En vafalaust verður þá
nóg rými fyrir atvinnurekst
ur erlendra auðhringa. En
þeir eru víst það sem koma
skal, samkvæmt boðskap
doktors Bjarna Benedikts-
sonar.
Leiðrétting
Það sló dálítið út í fyrir
okkur 1 síðasta blaði, þegar
sagt var, að liðin væru 450
ár frá siðaskiptunum á ís-
landi. Að sjálfsögðu er
þetta ekki rétt, heldur er
31. október í ár 450 ára af-
mæli uppreisnar Lúthers
gegn kaþólsku kirkjunni.
Við biðjum lesendur afsök-
unar á mistökunum og þökk
um þeim, sem hafa bent
okkur á þessa skys^u.
Aðvörun
Að marggefnu tilefni er fólk varað við að kaupa og
taka sér fasta búsetu í sumarbústöðum í lögsagn-
arumdæmi Kópavogs. þar sem gera má ráð fyrir
að bústaðir þessir verði fjarlægðir þegar henta
þykir.
Kópavogi 29. september 1967.
Byggingafulltrúinn.
Tilkynnlng
Vér viljum vekja athygli heiðraða viðskiptavina
vorra á því, að vörur, sem liggja í vörugeymslum
vorum, eru ekki tryggðar af oss gegn bruna, frostum
eða öðrum skemmdum og liggja því á ábyrgð vöru-
eigenda. \
* 'i ■ ■ w* ■ • •*■
H.f. Eimskipafélag íslands
ANDRÉS
auglýsir
. , ; ’ N
Herradeild uppi (II. hæð).
Karlmannaföt Verð frá kr. 1.590.—
Svört samkvæmisföt Verð án vestis kr.2.700,—
Verð með vesti kr. 3.200,—
Stakir karlmannajakkar Verð frá kr. 875,—
Svampfóðraðir terylenefrakkar á kr. 975,—
Vetrarfrakkar frá kr. 1.675,—
Drengja- og unglingabuxur úr teryleneefnum
(köflóttar) á kr. 550,—
Dömudeiid (Götuhæð)
Drengjaföt (með spælum) Verð frá kr. 1.250,—
D^engjajakkar 'Verð tfrá kr. 500,—
Rýmingarsalan á kvenfatnaði heldur áfram.
Kápur á allt að hálfvirði.
Einnig mikill afsláttur á öðrum vörum deildarinnar
vegna flutnings.
Herradeild niðri (Götuhæð)
Skyrtur — peysur — vesti — hanzkar — bindi og
sokkar — ásamt herrasnyrtivörum og ýmsum öðr-
um smávarningi.
Gerið góð Kaup fyrir skólatímann og veturinn.
Ungmennafélagið
félög og þannig er það ein-
X mitt á NorSurlöndum, eink-
um í Finnlandi og Dan-
mörku.
Félögin vertSa a8 eiga aS-
gang að íþróttasjóði, og er
einmitt gert ráð fyrir því {
hinni nýju æskulýðslöggjöf,
sem liggur fyrir Alþingi.
Ungmennafélagar vinna
að landgræcSslu og skóg-
rækt, þau hafa haldiS til-
þrifamikil mót víSs vegar
um land í sumar og lengi
mætti telja upp verk þeirra.
Þannig halda þau upp á 60
ára afmæli UMFÍ.
ViSreisn í Þrastaskógí og
væntanlegt landsmót á EiS-
um næsta sumar eru og
merk viSfangsefni.
Ræktum enn land og lýS.
„BúiS sólskært sumar undir
sérhvern hug og gróSur-
blett“.
Islandi allt!“
Lesiö
Frjálsa þjóð
HAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS VANGEFINNA
- EITT GLÆSILEGASTA HAPPDRÆTTI ARSINS -
Vinningar 3 fólksbifreiðir. Happdrættismiðar fást hjá umboðsmónnum um land allt og á skrifstofu félagsins
Laufásvegi 11, Reykjavík
Miðinn kostar aðeins kr. 50.00
\
6
Frjáls þjóð — fimmtudagur 5. október 1967