Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Side 2

Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Side 2
 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagurinn 13. júlí 1953 veglega búð á Þingvöllusn Helgasti sögustaður Islands í niðurníðslu ar hjá þjóð, sem auglýsir sig menningarþjóð við hvert hugsanlegt tækifæri. Eins og áður hefur verið getið hér í blaðinu, hafa mörg bréf borizt varðandi þá liugmynd að byggja búð á gamla búðastæðinu á I'ingvöllum. Bréf þessu eru birt hér á þessari síðu og eins og menn sjá eru bréf- ritarar mjög lilyntir þess- ari liugmynd. Eins og allir heilvita menn sjá, er gjörsamlega ómögu- Iegt fyrir allan Jtorra inanna, sem heimsækja þennan sögustað olíkar að gera sér í hugarlund hvern- ig allar aðstæður voru meðan þing var haldið á ÞingvöIIum, hvorki á-síðari árum né á fyrstu ánun Al- þingis. Ótal ritgerðlT. Ótal ritgerðir má finna í íslenzkum bókmenntum um búðirnar gömlu. Sagnfræð- ingar og fornleyfafræðing- ar vorir hafa bæði staðsett búðirnar og gert tilraunir til að lýsa innviðum þeirra, með hliðsjón af fornritun- um. Steinar ení í tóftunum á Þingvöllum, sem skýra frá því, að þessi og þessi búð hafi staðið þar og eru m. a. nafngreindar búð Snorra goða, Njálsbúð og enn fíeirí. Svo er að sjá og liggur enda í augum uppi að búðir á síðari tímum liafi verið all miklu minni cn búðir manna skömmu efíir að Alþingi var stofn- sett og á tímum Sturlunga. Landkynning. Daglega má sjá í blöðum bæjarins að ísland hafi ver- ið kynnt erlendis sem sögu- eyjan með tilheyrandi Iofs- yrðum um landslag, fossa, gjár, hveri og svo f ramveg- is. Útvarp og blöð auglýsa nær daglega ferðir á Þing- velli. Útlendingar, sem hing að koma, eru umsvifa- laust teymdir til Þingvalla „og sýndir sögustaðir." Ekkert tækifæri er látið ó- notað til þess að skýra er- lendum gestum og ferða- mönnum frá helgi sögu þessa staðar, enda á stað- urinn fáa sína líka fj-ótt víða sé til jafnað. Óglagsileg aðkoma. Hpgsum okkur nú komu útlendingsins á [ænnan f rægá og heiga stað. Mynd- in er langt frá því giæsileg. Strax og gesturinn hefur notið ágætra veitinga Grön dals veitingamanns í Val- höll er hann boðaður til þess að hlusta á túlk eða vísindamann í íslenzkum fræðum af lögréttu. Hann horfir á sögumanninn benda á hina ýmsu staði og segja: Þarna bjó Snorri, þama börðust Gunnlaugur og Hrafn, liérna kynntist Gimnar Hallgerði og hér reyndú liöfðingjar að hleypa upp dómum þegar þeim þótti óvænlega horfa í deihun, og svona halda Svæðið ekki friðað nema að nafninu til Friðun hins eiginlega sögusvæðis á Þingvöllum er ekki f yrir hendi. Kýr Þing- vallabæjarins vom til skamms tíma þar á beitinn- au um búðirnar og skilja ó- spart eftir sína óhjákvæmi- legu mykju. Islenzkir ferða langar, uppfullir af þeirri Þetta er I stuttu máli á- standið eins og það er í dag og tjájir ekki á móti að mæla. Þarf skjótra umbóta Hér þarf skjótra bóta við Ef landsmenn ætla ekki að gera helgasta sögustað þjóðarinnar að skítahaug ómenningarinnar, þá þurfa allir að sameinast um að þrífa staðinn og gera hann boðlegan íslenzkum jafnt sem erlendum gestum. Vegleg búð Á búðarstæðinu á Þing- völlum þarf að rísa upp Mánudagsblaðinu hafa borizt mörg bréf varðandi Þingvelli, og byggingu þingbúðar þar í lík- ingu við það sem sagnfræðingar hafa komizt næst, að þær hafi litið út. Hér fara á eftir nokkur þeirra bréia, en bréfritarar eru beðnir velvirðingar á því, að aðeins sá hluti úr bréfum þeirra, sem mest skiptir máli, er birtur. „. . . en það verður að hafa í huga, að hér koma margir ferðamenn til þess eins að sjá þennan sögustað og vilja taka með sér einhverja hugmynd xím hvernig elzía lýðveldið vann þingverk sín. Þessu verð- ur ekki bjargaö nema búð rísi upp á rústum hinna gömlu . .“ Finnur. , f- Hr. ritstjori. „Churchill gamli, sagði einu sinni (á stríðsárunum) eitt- hvað á þá leið, að nú tækjust höndum elzta lýðveldi heims og stærsta lýðveldi hcimsins. Þetta var rétt. En ólíkt sýna Bretar meiri umhyggju fyrir gömlum minjum en íslending- ar. Okkur ber skylda til að passa betur, vernda og halda við öílu því gamla, sem enn er til í Iandinu. Þingvellir eiga það skilið að búð rísi upp úr rústum hinna gömlu. Búð, sem gefur íslendingum hugmynd um þingstað okkar og híbýli þingmanna. Eg þekki fáa, sem hafa nokkra hugmynd um það jafnvel þó þeir hafi oft komið austur til Þingvalla . . .” Hr. ritstjóri. „ . . . Trúlegt er að ef grafið væri í gömlu rústirnar mætti finna margt frá eldri tímum. Ef ekki frá fornöld, þá frá seinni tímuin, meðan þing var háð fyrir austan. Látum ekki orð sbáldsins sannast á okkar kynslóð — „Nú er hún Snorra- búð stekkur." — Eeztu kveðj- ur.“ G. J. Árnason. Mánudagsblaðið. „ . . . og við erum allir Is- lendingar sammála um það, að búðarbygging á Þingvöllum er sjálfsögð . . .“ Leikari. Ritstjóri. + : „Það er miklu betra að halda þeim stöðum við, sem enn eru standandi og snúa sér síðan að byggja upp. Þó er liugmynd bréfritara mjög góð . . íslendingur. Hr. ritstjóri. „Eg hef með niiklum áhugá lésið þau bréf með uppá- stungu um að endurreisa forna búð á Þingvöllum. Þetta finnst mér ágæt hugmynd, en mér sýnist að þar að auki ætti að setja á viðeigandi stað í AI- mannagjá líkan af þeim stað þar sem búðirnar voru, og búð- irnar reistar á réttum stöðum ættu þar aff auki aff hafa númer, svo hægt væri að lesa á töflu hver átti búðirnar. Líkanið verður að standa á stöpli, aff minnsta kosti tveggja metra löngum. Vera má að gera megi hann úr sements- steypu, en þó verða kunnáttu- menn að ákveða hvaða efni er hentugast og hri'.dbezt. Yfir vetrarmánuðina ættu líkönin að vera vernduð gegn óveðrum og vindi, með því að hafa vatnsþétta kassa yfir sér. Fyrir almennt fólks, sem ekki hefur óvenjumikið ímynd unarafl eða kynnt sér sögu staðarins, er erfitt nú á dögum að gera sér ljósa grein fyrir þeirri miklu þýðingu sem Þing völlur hafði í fornöld. En ég er sannfærður um að endur- myndun staðarins í líkani mundi blátt áfram gera söguna lifandi og færa hana nær þeim, sem staðinn skoða — ekki sízt íslendingum, og það mundi verða auðveldara fyrir þá að skilja ástandið í fyrri daga og að hugsa sér mannf jöldann og mafgvíslegt líf þar um þing- tímann. Gunnar Róbert Hansen." skýringamar áfram enda- laust. Óþrifalegar tóftir Og gesturinn lítur í kring um sig. Jú, þarna mótar fyr ir búðartóftum — þarna, sem tóma ávaxtadósin er. Þetta cr búð Njáls á Berg- þórshvoli — rétt hjá brotnu brennivínsflösk- unni. Og þaraa hófst hið örlagaríka samband þeirra Hlíðarendahjóna — rétt hjá ryðguðu sardínudós- inni. En er gesturinn nokkru nær? Þarf hann að fara alla leið til Þingvalla til þess að sjá það, sem sjá má á hverjum sveitabæ, þar sem fjárhús eða hrútakof- ar eru í rústum? Sannar- lega ekki. Þessi Iandkynn- ing er nákvæmlega einskis virði. Og meira en það. Hún i er til háborinnar skamm-_ dásamlegu hugsun „að éta undir beru lofti“, opna þar mali sína og matast á tóft- arveggjunum og skilja svo umbúðimar eftir eins og hráviði. Eftirliísmaður hef- ur ekki sést þar svo Iengi sem annálar muna. vegleg búð. Búð sem byggð er eftir því sem menn næst geta ímyndaö sér búðir á dögum Sturlunga. Búðin þarf að vera vegleg, sterli svo að hún þoli vetrarveður — því þetta er sýningar- gripur, en ekki skýli sem notast á um stuttan þing- tíma. Vetrarmánuðina þarf hún að njóta skýlis, en sumarmánuðina á hún að standa opin öllum, íslenzk- um, sem öðrum, sem stað- inn sækja heim. Þama þarf að vera launaður vörður, sem hefur það eitt starf ao sjá mn búðina, kunna að lýsa henni fyrir gestum og gefa þeim yfirlit yfir þá at- burði og þá sögu, sem þarna skapaðist. Sjálf búð- in verður svo aúðvitað tjölduð, vopn á veggjum, öndvegi, drylíkjarhorn, húðföt og allt það annað, sem vitað var að forfeður vorir notuðu yfir þingtím- ann. Það er ekki nauðsynlegt að byggja búðina á þeim stað, sem vitað er að búð einhvers forföðurs okkar hefur staðið, því suníir kunna að lialda því fram, að slíkt væri vanhelgi á staðnum, þó ekki verði í skjótu bragði séð hvers- vegna. En búðin verður að standa á svæðinu sjálfu. Það er líka ekki minni nauðsyn til þess að umgang ur á þessu sv'æði sé þrifleg- ur. Eins og stendur er hann óþolandi. Það verður að banna f ólki að opna matar- pinkla sína og að vín sé haf t um hönd á svæðinu sjálfu. Það má éta og dreklia víða á Þingvöllum, þótt þessi staður sé undanþeginn. Afgirt svæði Sögusvæðið á Þingvöll- um á að vera afgirt. Þessi litii reitur á fslandi v'erður að vera friðhelgur fyrir bú- peningi og ágangi manna, seni haga sér lítt skár en skynlausar skepnur. fsland á fátt sögulegra menja. Mikill hluti þeirra hefur verið gefinn útlend- um drottnum ella seldur ferðamönnum. Sú öld er þó liðih. Nú er lialdið á öllu sem finnst og fornar rúst- ir friðhelgar. En það er ekki nóg. Við verðum að lilú betur að þessum stöðum. Sýna, að jiótt v'ið séum framfara- þjóð, þá kimnum við líka að meta forna menningu. Við getum værið stoltir af Framhald á 3. síðu. / Vér leyfum oss að vekja athygli yðar á þessum nýju tryggingum, sem öllum eru nauðsynlegar, atvinnurekendum sem og einstaklingum. Allar upplýsingar um iðgjöld og skilmála eru yður veittar góðfúslega, án nokkurra skuldbindinga. Almennar tryggingar h.f. Austurstræti 10 — Sími 7700 — Reykjavík.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.