Mánudagsblaðið - 12.10.1953, Page 1
Bleififyvir alla
argangwr
Mámidagurinn 12. okt. 1953
37. töIablaS
Algert öngþveiti í varnarmálunum
Verkfall yfirvcfandt á Keflavikurflugvelli
Skeíílng ríkjandi innan Framsóknar
Eins og; skírt hefur verið frá í dagblöðunum, hefur
komið til alvarlegs áreksturs á Keflavíkuiflugvelli.
. Hamiltonfélagið hefur sagt þar upp tveim mönnum og
er þvi haldið fram að uppsögnin sé ólögmæt. Annar mann-
ann.a er í sérstakri trúnaðarstöðu af hálfu verkalýðssamtak-
anna. Ennfremur hefur Böðvari Steinþórssyni matsveini
verið sagt upp en hann er trúnaðarmaður Alþýðusambands-
ins :og nýtur því sérstakrar verndar sem slíkur.
• Hefur Alþýðusambandið tekið mjög hart á máli þessu
<og krefst þess að mennimir verði teknir aftur að viðlögðu
verkfalli ef.ekki verður látið undan.
Er orðin mikil ólga út af máli þessu.
Sljórnieysi í vaifmáliímtm
Talið er að nú sé hið mesta stjórnleysisástand á málum
Keflavikurflugvallar og lætur það reyndar að líkum.
Varnarmálanefndin þar, sem í áttu sæti þeir Guðmundur
I. Guðmundsson, bæjarfógeti, Agnar Kofoed-Hansen, flug-
vallarstjóri og Hans Andersen, lögfræðingur, er nú dottin úr
sögunni, en ekkert sambærilegt faefur komið í staðinn.
Ennfremur er kaup og kjaranefnd sú, sem í áttu sæti
fulltrúar frá Félagsmálaráðuneytinu, Alþýðusambandinu
og Vinnuveitendasambandinu hætt eða um það bii að hætta
störfum.
Er því málunum svo komið í bili að þegar að meðtalin
eru mannaskiptin í stöðu utanríkisráðherra, þá eru allir þeir
menn hættir afskiptum af Keflavíkurmálunum, sem fjallað
hafa um þau undanfarið og þekktu þau af nokkurri reynslu
hvað sem segja má um störf þeirra að öðru leyti.
Hýxkipan — engin skipan
Það sem við hefur tekið, stappar nærri fullkomnu
stjórnleysi, sem leiðir sumpart af fullkominni vanþekkingu
þeirra, sem nú f jalla um þessa hluti. Tómas nokkur, (mun
vera Tómasson), frá Akureyri, frambjóðandi Framsóknar í
Eyjafirði við síðustu kosningar, mun eiga að vera skrif-
stofustjóri í svonefndri varnarmáladeild utanríkisráðuneyt-
isins, en hann mun vera álíka kunnugur á flugvellinum og
hans málum ,eins og landslaginu á einhverri f jarlægri reiki-
stjörnu.. Sú nýskipan, sem Tíminn boðaði í málum varnar-
liðsins sýnist, enn sem komið er, vera fólgin í því að á þeim
sé engin skipan og er þá ver farið en heima setið.
Ráðherrann sjáffur
Innan um alla hringiðu varnarmálanna er nú hinn nýji
utanríkismálaráðherra flæktur eins og fiskur í neti, og mun
nú einskis óska fremur en að hann verði dreginn á þurrt land
til ao stytta kvalimar. Mun honum nú vera ljóst að óvarlegt
vera að henda lóssinum fyrir borð áður en lagt var að.
Þá sem utan við standa furðar þó á því að ráðherrann
skyldi láta bjóða sér að verða að setja einhvern og einhvern
Fi-amsóknarsóknarungmenni í helztu ábyrgðarstöðu í varn-
armálunum, því fæstum dettur í hug að ráðherrann sjái ekki
sjálfur hvílíkt óráð slíkt er. En vafalaust hefur hann verið
knúinn t.il að halda þeim gamla Framsóknarsið að velja enga
menn til starfa aðra en dygga flokksþjóna, þó þeir hafi
ekkert vit á því, sem þeir eiga a'ð gera.
rrSkelfing og dsuói dvelja langar slundirrr
Sklefing hefur nú gripið um sig meðal valdamanna í
Framsókn út af því sem er að ske og hafa farið þar fram við-
töl. sem sagt er að ekki faafi gengið faljóðalaust af. Hefur
þar verið vikið að því að pólitísk dauðsföll gætu hlotizt af
vallarmálunum. Einkum mun Hermann Jónasson hafa fengið
að heyra það hjá utanríkisráðherranum, að flokkurinn hafi
látið ginnast sem þurs til að taka við varnarmálunum og
síðan skellt sér í embættið á ekki sem hreinustum forsendum.
Er utanrikisráðherranum af þessu hin mesta raun, sem von-
legt er, en þeir sem þekkja hann persónulega, munu telja
að hann eigi betra hlutskipti skilið.
Kabareíí Fegrunarfélagsins í 1)1!!-
F
!
Ðorothy Neal og Faul
Newington.
Jonný — býr í Austurbæjarbíó — borðar hjá ToIIa — fær
sér morgnkaffi. (Sjá grein á 8. síðu um Sjómanna
dagskabarettinn.
I kvöld, sunnudag, hefur
kabarett Fegrunarfél^gsins
frumsýningu.
Til landsins er komin Hall-
björg Bjarnadóttir, sem fram
kemur á kabarettinum og lík-
ir þar eftir ýmsum frægum
söngvurum, en hún hefur ný-
Iega lokið sýningum við
skemmtistaðinn Valencia x
Höfn, þar sem hún náði mikl-
iUfreð Andrésson kynnlr
um vinsældum.
Hraðteiknarinn Fini teikn-
ar á augabragði skemmtilegar
myndir, en auk þeirra koma
fram dansparið Dorothy Neal
og Paul Newington, sem sýna
geysilega listfimleika.
Alfreð Andrésson, leikari,
er kynnir sýningarinnar,
sem hefst, eins og fyrr getur
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld.