Mánudagsblaðið - 12.10.1953, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagurinn 12. okt. 1953
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
BLAÐ FYRIR ALLA
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason.
Blaðið kemur út á mánudögum. — VerS 2 kr. í lausasólu.
AigreiSsla: Tjarnarg. 39. — Símar ritstj.: 3496 og 3975.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Ölík félagssamtök
Bluðamönmim var n;/lega boðið að Reykjalundi SÍBS
megna Berklavamadagsins.
I Yfimienn SÍBS, læknar og aðrir fulltrúar sýndu stað-
ínn, byggingar, vinnuverkstæði, híbýli dvalargesta og ræddu
iað þvi loknu framtíðaráform sín. Það er óþarfi að rekja
þau hér, en eitt af mörgum áformum þeirra mun hafa vakið
einna mesta athygli. Einn fulltrúi SÍBS komst einhvernveg-
ínn svo að orði: að, að því væri stefnt, að gera allan rekstur
ISÍBS, óháðan því opinbera og þessvegna vildu þeir fá fram-
leiðslutæki til handa þeim sjúklingum, sem þyrftu hjúkrunar
að einhverju leyti, en gætu samt unnið nýt störf.
p Þessi eftirtektarverða og göfuga hugsjón er sannar-
lega lofsverð og til eftirbreytni. Hér er hópur manna, sem
berst við „hvíta dauðann", en reynir þrátt fyrir allt, að
koma starfseminni á heilbrigðan grundvöll. Svona hugsjónir
rvilja allir styrkja, enda sýnir almenningur SlBS hug sinn í
hvert skipti og það þarfnast hjálpar.
I Eji hér á landi er annar félagsskapur, sem þykist berjast
fyrir göfugu málefni, en berst raunverulega fyrir byggingu
danshalla, fundarstaða og sumarhótela handa gæðingum
einum.
Rógui' og ósvifiai teaaiplara
' Þessi félagsskapur eru templarar. Forkólfar þessa fé-
lagsskapar hafa æ ofan í æ logið fé út úr almenningi, logið
fé út úr ríkissjoði, sníkt fé með happdrætti, haft í frammi
öll hugsanleg brögð og svik — í nafni málefnisins — en
raunverulega til þess eins að reka gróðafyrirtæki og auka
tekjur sjálfum sér til framdráttar, en engum til góðs eða
gagns. Þeir halda skattfrjálsar skemmtanir, flytja inn
skemmtikrafta og halda leiksýningar undir því falska yfir-
Bkini að þeir vinni mannúðai’verk.
I Blekkingarvefur templara er nú að flækja þá sjálfa. Al-
menningur sér i gegnum lygar þeirra, metur að engu yfir-
lýsingar þeirra og hefur megnustu óbeit á starfi þeirra og
nafninu templari, sem ísienzka grein alþjóðafélagsskaparins
hefur svívirt.
II Um þessar mundir eru útsendarar þeirra að sniglast um
sali Alþingis, hótandi þingmönnum öllu illu ef samþykkt
verður áfengisfrumvarp það, sem nú liggur frammi. I stað
þess að víkja þessum vesalingum úr þingsölum, þá virðist,
sem allmörgum af löggjöfum vorum standi ógn af þessum
iýð. Það er alveg óvíst hvort frumvarp þetta, sem er lítill
.vísir í menningarátt nái fram að ganga. Þingmannaliðið er
mun skárra nú en á síðasta þingi. Þar eru færri Framsóknar-
ínenn, þótt enn séu jjeir of margir.
Það væri ■sannarlega óskandi að núverandi þingmenn
sýndu það sjálfstæði að skella skollaeyrunum við rógi templ-
ara og kasta nú atkvæði sínu samkvæmt sannfæringu sinni;
sýna hversu lítt þeir meta lygi og áróður manna, sem sýi,
sína fjárhagslegu sæng upp reidda, ef ölmusan er af þeim
tekin. Það ástand og uppsteyt, sem skapazt hefur í kring
, Uffl áfengið, er bein afleiðing þeirra hafta, sem áróður og
liótanir templara háfa orsakað.
* iÞingaieaa, varpið templaralýðnum og skrumi hans út
BTRANDARKTRHTA
Um uppruna Strandarkirkju
eru sagnir mjög á reiki. Ein er
sú sögn, að Gissur hvíti hafi lent
í sjávarháska fyrir suðurströnd
landsins. Hafi hann þá látið heit
gera um að byggja kirkju þar,
sem hann næði landi heill á húfi.
Er sagt að Gissur hafi tekið land
að Strönd í Selvogi. Væri þeíta
sönn saga, ætti að • hafa verið
kirkja að Strönd frá fyrstu kristni
hér.
Þessi saga mun þó ekki sönn,
því fyrsta kirkja í Selvogi mun
hafa verið að Nesi, sem síðar
varð hálfkirkja, eftir að Strandar
kirkja kemur til sögunnar
Önnur saga
Önnur saga er til um uppruna
Strandarkirkju á þessa leið. Árni
hét maður. Hann var farmaður.
Komst hann í sjávarháska er
hann kom frá Noregi, undir suð-
urströnd landsins. Gerði hann
heit ^>ess efnis, að láta reisa
kirkju þar sem hann næði landi.
Tók hann land að Strönd í Sel-
vogi.
Sagnir herma, að þessi maður
hafi einmitt verið Árni biskup
Þorláksson (Staða-Árni). Hermir
sagan, að Selvogssjór hafi oltið
mjög, er skip Árna biskups nálg-
aðist land. Hafi hann þá látið
sigla skipi sínu inn Selvogssund
og þótzt sjá engil í hvítum klæð-
um í vfkinni, er benti honum
á innsiglinguna og nefnt hana
Engilvík. Hafi hann síðan látið
gera kirkju þar. Báðar eru sagn-
ir þessar óvissar.
Sagnir segja, að Árni biskup
hafi þekkt Selvogssund, sem ör-
uggan lendingarstað, enda hafi
þá þegar verið komin upp inn-
siglingarmerki fyrir Selvogssund.
Annað upp í heiði, en hitt niður
við sundið. Hafi Selvogssund, á
þeirri öld, verið svo öruggt, að
rétt lögðu skipi á sundið gæti
ekki hlekkst á og að afliðnu nóni
dags lægi sjóinn á sundinu vegna
sjávarfalla-
Litlar sagnir
í fornum fræðum eru litlar
sagnir um Selvog. Skráð er, að
Þórir haustmyrkur hafi numið
land í Selvogi. Selvogs er getið
í Sturlungu, en hún er skrifuð
á 13. öld eins og kunnugt er.
Strandasund í Selvogi var fram-
an af öldum talin öruggasta höfn-
in við suðurströnd landsins. En
á síðari öldum fylltist sund þetta
af sandi og lagðist niður.
Strönd i Selvogi var um marg-
ar aldir eitt af landsins mestu
höfuðbólum. Voru þar mikil
hlunnindi og gnægð fanga.
Bjuggu höfðingjaættir þar mann
fram af manni. Niðjar Erlendar
sterka Ólafssonar lögmanns
bjuggu þar óslitið í fullar fjórar
aldir, og líkt var fyrr, og'svipað
síðar.
)■
Girnileghöiuðból
HöfúðbóhhStröndogNes í Sel-
ar, er þar var. Þar var mikill reki.
selveiði, silungsveiði, fiskveiði og
hagabeit fyrir kvikfénað. Gerð-
ust bændur þessara höfuðbóla
uppgangsmenn.
Biskupar í Skálholti litu hýru
auga til þessara jarða og urðu
deilur milli þeirra og jarðeig-
endanna. Náði Skálholtsbiskup
ítökum undir kirkjuna á Strönd.
Snemma rák — Áheit — nytjar
Varð hún snemma á öldum rík
og átti lendur í Selvogi, rekanytj-
ar o. fl. Hvenær sú helgi komst á
Strandarkírkju að farið var að
heita á hana, til árs og friðar, er
með öllu óvíst. Hitt er vitað, að
það mun hafa verið árla alda eftir
að hún reis af grunni. Talið er að
um lok 17. aldar hafi áheit þessi
að mestu verið lögð niður. Hve
lengi þau hafa legið niðri eða
hvórt þau hafa nokkurntíma fall-
ið alveg niður er ekki fyllilega
Ijóst. Hitt er vitað, að sl. ca.
hundrað ár hefur til hennar
runnið geysimikið fé vegna á-
heita. Er hún ríkasta kirkja lands-
ins, enda mun fé hennar lánað til
kirkjubygginga vítt um land.
Sjálf nýtur Strandarkirkja lítills
af öllum þessum áheitum. Er hún
gamallt timburhús, lítil um sig.
lágreist og hrörlegt hof, standandi
á hól umkringdum ægissandi-
Lengi var vegur hennar ekki
meiri en svo, að henni fylgdi ekki
kirkgjugarður, en líkin grafin í
sandinn umhverfis hana og graf-
irnar merktar með steinhrúgum.
Má vera að nú fylgi henni kirkju-
garður.
Feikna fé
Til marks um það hvílíkt feikna
fé rennur til Strandarkirkju eru
Morgunblöðin, fimmtudaginn 24.
sept. 1953, en þar eru áheitatekjur
hennar birtar, sem nýfallnar til
hennar, samtals kr. 13 574,00 og
sama blað, þann 26. sept. 1953, en
þar eru nýinnkomnar áheitatekj-
ur samtals kr. 12.178.88 eða sam-
anlagt, kr. 25.752,88. Er þárna
ærnum peningi fleygt út í bláinn
áf vitleysu einni.
Furffuleg heimska
Er mikil furða, ef að er gætt.
hve þjóðin er enn mitt í mennt-
un og margvislegri þekkingu,
barmafull af hjátrú og hindur-
vitnum. Það þarf mikla heimsku
í mannanna brjósti -til að halda,
að þetta einstæða og steindauða
hús og niðurnídda af tímans tönn,
hafi áhrif á örlög manna, höpp'
og veraldargengi. Örlög þessarar
þjóðar, einstaklinga eða þjóðar-
innar í heild, verða ekki úr skorð
um færð með svo mikilli mann-
legri einfeldni, að biðja Strandar-
kirkju að afstýra misfellum. Allt,
sem Strandarkirkjar halar á,
•mundi hafa sinn sama gang, þótt
eigi væri á hana heitið.
Kjátrú og hindurv itni .
Það er aUt gott og blessaö 'imí
géfist fé: Hitt er annað verra,;að
þessar gjafir skuli gefnar vegna
þess að fólk hallist svo mjög að
jarðteiknum, hjátrú og liindpr-
vitnum, að gjafirnar séu gefnar
af einfaldlegri eigingirni og hé-
gómadýrð hálfvitans. :
Fyrir þremur til fjórum árum
komst Selvogur í vegasambatid,
er Krísuvegurinn varð akfjer.
Kynntust menn þá Strandar-
kirkju af eigin raun. Tóku pre.st-
ar upp pílagrímsferðir til kirkj-
unnar og fluttu messur þar ;og
ýmsir slæptust með. Gekk þetta
svo víst eitt til tvö, sumur. Féll
þetta svo niður, því Selvogsbænd
um fannst lítil búbót að þessum
tíða messulestri og afsögðu hann.
Þau kynni sem menn fengu þá; af
Strandakirkju var niðurnýðsla á
sjálfu húsinu,. botnlausum sand-
vaðli í kring'um kirkjuna og ;að
orgel kirkjunnar er eitt hið aum-
asta gargan, sem leikið er á við
messur í landinu.
Það er víst eitthvað annað gert
við fé það, sem kirkjunni áskotn-
ast, en að byggja hana upp-.og
hennaj' umhverfi. Sýnist þó sya,
að hún væri bezt að þessu . á-
heitafé komin og ætti það :að
skína á henni.
Þjóðin full af hjátrú
Á öllum öldum hefur þjóðin
trúað á hindurvitni og verið full
af hjátrú. Má minna á, að Gúð-
mundur góði Hólabiskup tók sér
fyrir hendur að vígja vatnsbóL
í landinu. Hann var það á hærra
menningarstigi en samborgarar
hans, að hann hafði vit á vatni-
Annars virðist svo, að fólkið hafi
verið á svo lágu menningarstigi,
að það hafi svalað þorsta snurn
í hvaða forarpolli, sem fyrir því
varð. Hann Guðmundur sálugi
vígði aðeins bergvatnsbrunna eða
lindir af því tagi, sem fyrir voru
hið ágætasta vatn, enda munu for
arkeldur hafa verið sjálfum sér
líkar þótt biskupinn hefði lesið
bænir sínar yfir þeim. Af þessari
vatnsvigslu o.g fleiri hégiljum var
Stöffvaði hraunflóðið?
Guðmundur tekinn í helgra
manna tölu-.
Reynt hefur verið að telja
fólki trú um, að Jón Steingríms-
son hafi með ræðu sinni í staðar-
kirkju Kirkjubæjarklausturs
stöðvað hraunflóðið, sem þá rann
fram. Það þarf nokkuð mikla
heimsku til þess að trúa því, að
þarna hafi orðið jarðteikn fyrir
áhrif messunnar. Held ég bezfe
fyrir alla þá, sem elcki vilja leika
fífl, að trúa því, að hraunflóðið
hafi stöðvast af náttúrlegum á-
stæðum, en ekki af ói’ðagjálfri
dauðlegs manns-
Þrumur og eklingar
Það eru til margar sagnir ,um
þrumur og eldingai', sem hafi átt
að; íramganga af munni kenni-
jnanna og um tákri og stórmerki,
sem þeim átti ,að birtast hvaðan-