Mánudagsblaðið - 12.10.1953, Qupperneq 5
5
Mánudagurinn Í2. okt. 1953 MÁNUDAGSBLAÐIÐ
HÆTTULEGUK
SÓÐASHAPUK
Það er heldur óhugnanlegt
timræðuefnið í dag. En ein-
hvern veginn get ég ekki stillt
mig um að minnast á þann
svívirðilega og stórhættulega
sóðaskap, sem á sér stað í
Sundlaugunum hér í bænum.
íSvo er.nú líka það að.athuga,
að ef enginn hef ur uppburðar-
lyndi ’ til þess |að mótmæla
Ósómanum, þá verður allt lát-
:tð sitja við sama.
Borgarlæknir á víst að hafa
eftirlit með hreinlæti í Sund-
laugunum engu síður en Sund
höllinni, en þar mun hrein-
læti vera í miklu betra lági. En
það eftirlit mun vera mjög af
skoi'num skammti ef nokkurt
er. •
Dóttir kunningjakonu minn
ar fékk gríðarslæma eyrna-
bólgu fyrir skömmu, svo að
hijóðhimnan spraltk og vall
jnikil vilsa út. Fær telpan að
líkindum vart fulla heyrn með
eyranu aftur.
Það fyrsta sem læknirinn
spurði um var það, hvort telp-
an færi oft í Sundlaugarnar?
Jú, þar hafði hún verið að
svamla á hverjum degi, — sér
til heilsubótar að því er móð-
irin hé'lt.
Þá fullyrti læknirinn, að
telpan mundi hafa smitazt
af jæssum óþverra í Sund-
laugunum og sagði að slíkt
yæri algengt!
Á hverju ári smitast tugir
manna af svokölluðum
Athletes Foot í Sundlaugun-
'um, en það er sjúkdómur sem
lýsir sér þannig, að einskonar
sveppir taka sér bólfestu milli
tánna á fólki og fylgir þessu
kláði mikill og önnur óþæg-
indi. .r
Þetta vita læknar bæjarins,
vita um þessa tvo sjúkdóma
að minnsta kosti, sem rekja
íná beint til Sundlauganna, en
saint er ekkert gert til þess
að stemma stigu fyrir ósóm-
anum!
BAKTERÍUGRAUTUR
Hreinlætið í Sundlaugunmn
ér fyrir neðan allar hellur.
'Vatnið er oft sjóðandi heitt og
þrífast því allskonar bekterí-
ur þar ágætlega. Einu sinni í
viku er skipt um vatn í laug-
unum, en ekki er mér kunnugt
um að neitt sé gert til þess að
sótthreinsa þær, og er því
vatnið eftir vikuna að sjálf-
sögðu orðinn einn bakteríu-
grautur.
Börn er mikið hafa stundað
Laugarnar segja, að algengt
sé að krakkar geri það af
skömm sinni að ganga örna
sinna í vatnið. Komi slíkt fyr-
ir kemur baðvörðurinn með
vatnsfötu og biður einhvern
liðtækan að veiða upp við-
bjóðinn í fötuna!! En bað-
gestum er ætlaö að synda eft-
ir sem áður i sama vatninu!
Stórar pöddur, einna líkast-
ar járasmiðum, bara stærri,
(hafa sézt þarna á sundi, og
éínu sinni isá ég stjálf tvó
eins. og toár-
glyttur fljóta ofan á vatninu.
Segja má, að slíkur og því-
líkur viðbjóður sé baðgestuirt
að kenna, er þeir hafa slíkan
skrílshátt í frammi, en það
breýtir engu um þá stað-
réynd, að hreinlæti og eftirlit
í Laugunum er mjög ábóta-
vant.
Sjúkdómurinn Athletes
Foot er ákaflega smitandi.
Víða í sundhöllum erlendis er
grunnt ker, sem baðgestir
verða að vaða í gegnum áður
en þeir fá að ganga inn að
lauginni. I keri þessu er ein-
hver sótthreinsandi vökvi,
sem á einmitt að fyrirbyggja
útbreiðslu þessa hvumleiða
kvilla. Einnig geta menn fyrir
lítið fé, leigt sér tréskó, sem
síðan eru samvizkusamlega
sótthreinsaðir eftir hvern
leigjanda.
Hér í Laugunum eru gólf-
dreglar á göngum og bökk-
um lauganna og eru þeir allt-
af gegnsósa af vatni og efast
ég um, að þeir séu nokkurn-
tíma sótthreinsaðir. I sturtu-
böðunum eru slímugar tré-
grindur á gólfunum, sem vafa
laust heldur aldrei eru þrifn-
ar.
Það væri sannarlegh fróð-
legt, að taka eins og einn líter
af Sundlaugavatni á miðviku-
eða fimmtudegi, og láta „ana-
lysera“ þá gerlastöppu. —
Eins væri líka fróðlegt að vita
hve margir tugir milljóna af
Athletes Foot-bakteríum eru
á hverjum fermillimeter á
gólfdreglunum þar.
Nei, við Reykvikingar eig-
um ekki að láta bjóða okkur
annað eins og þetta. Sundlaug
arnar eiga að vera heilsubæt-
andi en ekki lieiisuspillandi.
Og við eigum heimtingu á því,
að heilbrigðisyíirvöklin gæti
skyldu sinnar á þessu sviði.
LOÐSKINNS-SKRAUT
En tökum nú upp léttara
hjal.
I spánnýju blaði, sem ég hef
hérna fyrir framan mig, eru
rnargar hugmyndir um það
hvernig nota megi loðskinn,
sem maður kannske á í fórum
sinum, t. d. af ga,malli kápu.
Loðskinn er notað á ýmsan
hátt. T. d. er hér ein stúlkan
í fallegum bláum ullarkjól og
eru á honum lítil uppslög og
kragi úr snöggu íkorna- eða
kanínuskinni. Kragann og upp
slögin getur hún líka notað
við við peysur.
Önnur hefur gefið gömlum
svörtum hatti nýtt líf með því
að sauma Persíanerskinn á
börðin á honum. -
Hér eru líka allskonar háls-
„klútar“ úrlipru löðskinni. T.
d. hefur ein búið sér til eitts-
kóaar ffþlát-bqóst“ Xdiíkié)
úr hermelini. til þess að nota
við dragtina sína.
Hér eru stór og smá hand-
skjól (múffur) úr allskonar
loðskinnum, og er þá venju
lega sama skinn haft í krag-
ann eða á hattinn.
Belti eru líka úr loðskinni,
en til þess að bera þau þarf
maður að sjálfsögðu að vera
furðu grannur í mittið. Kápur
og jakkar eru fóðruð með loð;
skinni og jafnvel regnhlífar-
handföng eru skreytt með loð-
skinni.
Það segir sig þó sjálft, að
nota þarf loðskinnið af varúð
þannig, að útkoman verði
smekkleg en ekki kjánaleg.
NÝJASTA NÝTT
Nýjasta nýtt! Nú eru þeir
líka farnir að búa til eyrna-
lolíka, hringi og arnxbönd úr
loðskinni! Hér er mynd af
einni með heljarstóran hring
á hendinni og er sá eins og
dúskur úr minnkaskinni, cn
stór gimsteinn í miðjunni!
Önnur er með hreysikattar-
skott hangandi í eyrunum og
hefur armband á vinstri liand
legg úr samskonar skottum.
Læt ég ykkur um það dæma,
hvort yklíur finnst slíkir
skartgripir smekklegir!
Flauel er einnig notað á lík-
an hátt og loðskinn. Ein hug-
myndin er t. d. sú, að ef þú
átt flauelskjól, þá klippirðu
kringiótta dulu úr sama efni
og límir yfir gamla kringl-
ótta eyrnalokka og notar þá
síðan við kjólinn.
9999
Karlmennirnir eru sífellt að
bauna því á okkur kvenfólkið,
að við tölum of mikið og þá
venjulegast af litilli rökvísi.
Eins segja þeir að við séum
oftast ,,catty“ og kvikindis-
legar hver 1 annarar garð.
Einn húsbóndinn segist
hafa heyrt konu sina segja
eftirfarandi við eina vinkon-
una í símann:
„Hún sagði mér að þú hefð-
ir sagt henni það sein ég sagði
þér að þú mættir ekki segja
henni, en ég veit að þú sagðir
henni að segja mér ekki frá
því að þú hefðir sagt henni
þáð, svo að þú mátt ekki
segja henni að ég hefi sagt
þér að hún hafi sagt mér
það . . .“
Vinkonan hefur vafalaust
skilið það fyiirhafnarlaust
hvað við var átt. En vesalings
bóndinn var eins og stórt
spurningarmerki. Skildi ekki
meira en þótt töluð hef ði verið
kínverska!
ÞRIHJA VÍDDIN
, Þá eru nú hinar margum-
töluðu 3€> X 3 Demeosiona)
myndir komnar til landsins.
Auðvitað eru allir spenntir að
sjá þessa nýjung, og þeysa því
allir sem vettlingi valda til
þess að skoða.
Margt og mikið hefur mað-
ur lesið um þessar kvikmynd-
ir, og skrum-auglýsingar um
þær hafa verið svo glanna-
fengnar, að flestir hafa víst
gert sér of háar vonir og því
orðið fyrir hálfgerðum von-
brigðum.
T. d. var einhversstaðar
þessi saga:
Þetta er i kvikmyndahúsi,
þar sem verið ér að sýna
þriðjú-víddar mynd.
Þá gellur við einn bíó-gest-
urinn sem situr aftarlega:
„Heyrðu, þú þarna. Hvað
á það að þýða að sitja með
hattinn á höfðinu ? Maður sér
ekkert fyrir þér. Viltu gjöra
svo vel að taka ofan“!
Sá sem ávarpaður er snýr
sér þá við og svarar: „Nú,
hvað er þetta maður! Eg sem
er að leika í myndinni!“
Af þessu má sjá, að eitt-
■hvað áttu nú 3-D myndir að
vera eðlilegar!!!
En hvað sem öllu þessu líð-
ur, þá ber ekki að neita þvi,
að tæknilega er þétta mikii
framför. En gerð slíkra kvik-
mynda er enn á byrjunarstigi,
og er eflaust mikilla framfara
að vænta.
Ekki get ég neitað því, að
mér finnst óþægilegt að sitja
með þessi bannsett gleraugu.
Sé nefið á manni í minna lagi
og maður þarfa að nota sín
eigin gleraugu undir 3-D gler-
augunum, þá kemst maður í
hálfgerð vandræði, og þarf
að halda öllum glerjunúm
uppi með handaflí, en það er
vægast sagt all-óþægilegt.
Auk þess var ég rauðeygð og
voteygð er út kom af öílu
saman.
Menn fárast yfir því, að
þessar 3-D kvikmyndir sém
hér séu sýndar, sérstaklega
Vaxmyndasafnið, hafi lítið
listagildi og séu hryllilegar og
taugaskemmandi að auk.
Það mun nokkuð satt vera,
en nýung þessi er þó vel þess
virði að henni sé gaumur géf-
inn.
Kr o s s g útíi
Mámmdagsblaðsi n s
Nr. G4.
SKÝRINGAR:
Lárétf : 1. Skinn — 5. Litil — 8. Fugl — 9. Félag — 10.
Illmælgi — 11. Fara — 12. Sáðland — 14. Trúa ekki —
15. Krefja — 18. Kviksyndi — 20. Kvendýr — 21. Veizla —-
22. Karhn.nafn — 24. Rauða — 26. Fugl — 28. Verkfæri
— 29. Lands — 30, Manna.
Lóðrétt; 1. Klæðskeri — 2. Kima — 3. Verkur — 4.
Forfeðra — 5. Stauta — 6. Dýrahljóð — 7. Mjólkurmat —
9. Villa — 13. Kvemn.nafn — 16. Húsdýr — 17. Einblína —-
19. Dreitlar — 21. Fyrr — 23. Rjóða 25. Karlm.nafn —.
27. Ending.
Ráðning á lcrossgátu nr. 63.
Lárétt: 1. Skróp — 5. Smá — 8. Kaul 9. Smán — 10.
Oks — 11. Spá — 12. Lall —14. Ern —15. Sakna — 18.' Um
— 20. Són -— 21. Ok — 22. Nám — 24. Píska—26. Utar
— 28. Rórr •— 29. Marra — 30. Rak.
Lóðrétt: 1. SkoUmium — 2 Kaka — 3. Rusls — 4. Ö1 •—■
5. Smára — 6. Má — 7. Ám —9. Spennir — 13. Las —<
Jl6. Kóp — 17. Skark— 19. Máta — 21. Oki*a — 23. Masí
I
25. Sór — 27. R.R.
<’ •'Í » «•*•*£*. «í.4: ■: