Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 18.01.1954, Síða 4

Mánudagsblaðið - 18.01.1954, Síða 4
n MÁNUDAGSBLAÐIÐ ■ ; Mánudagur 18. janúar 1954 MÁNUDAGSBLAÐIÐ BLAÐ FYRIR ALLA Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Blaðið kemur út á tnánudögum. — Verð 2 kr. í lausasölu. Afgreiðsla: Tjarnarg. 39. — Símar ritstj.: 3496 og 3975. PrentsmiSja ÞjóSviljans b.f. Kosningahorfur í Reykjavík Framhald af 1. síðu. Alþýðuflokkurinn. Spámar, sem ég hefi heyrt um fylgi Alþýðuflokksitis eru milli 4.500 og 5.700 atkvæði. Hann missir líklega svolítið af atkvæð- iim yíir á Þjóðvörn, en fær í staðinn eitthvað af - Lýðveldis flokksatkvæðum ög kannske fá- ein atkvæði frá Kommúnistum. Hann er öruggur um tvo menn, en líkumar á þvi, að hann vinni þriðja sætið eru fremur litlar, þó að hann geti komizt nærri því, ef vel gengur. Þjóðvarnarflokkurinn. Hann er hið mystiska x í þess- um kosningum, og erfiðast er, að spá um fylgi hans, því að hann er svo nýr af nálinni og laus í reipunum að' mörgu leyti, en það er í senn veikleiki og styrkur. Eg hefi heyrt andstæðing flokksins spá því að hann fái ekki nema 2000 atkvæði, eða miklu minna en í sumar, en eg hef líka heyrt bjartsýna þjóðvamarmenn spá flokknum 5000 atkv. Um eng- an ílokk eru spárnar eins á reiki. Flestir eru þó á því, að flokkurinn inuni vinna eitthvað á frá því í sumar. Hann muni draga allveru- Jegt atkvæðamagn frá kommún- istum, og eitthvað frá Framsókn og svolítið frá Alþýðuff kknum ®g jafnvel frá Sjálfstæðisflokkn- um, auk einhvers atkvæðahraíls iLýðveldismanna. Eg held nú, að þetta verði í smærri stíl, en marg- ir Þjóðvarnarmenn gera sér von- ir um, en þó tel ég víst, að flokk- urinn vinni eitthvað á frá því í sumar. Ýmsir, sem höfðu tilhneig- ingu til að kjósa flokkinn þá, þorðu það ekki, því þeir héldu að hann væri vonlaus, en nú er ekki því til að dreifa. Auk þess hefur hann, sem nýr flokkur, nokkra möguleika til þess að draga að sér óánægt fólk úr gömlu flokkunum. Eg gæti trúað, að flokkurinn fengi nú um 3.600 atkvæði. Hann er öruggur .um einn mann, en ég held tæplega að hann geti fengið tvo, þó að hann Itomist kannske langt upp í það. Sósíalistaflokkurimi. Einnig hér eru spárnar nokkuð á réiki ,þó ekki svo mjög sem iim þjóðvarnarflokkinn. Lægsta spáiu, sem ég hefi heyrt yar írá hörðum andkommúnista var 5000 atkvæði. Hæsta spáin sem ég hefi heyrt hjá kommún- istum sjálfum, er 7.500 atkvæði, en flestir seg/a kommúnistar að flokkurinn fái um 7000 atkvæði. Eg held, að kommúnistar missi dálítið af atkvæðum frá því í sumar og sennilega mest til Þjóð- varnarmanna, en ég held ekki, að um neitt stórfellt fylgistap verði að ræða. Eg spái því, að atkvæða- magn kommúnista verði rúmlega 6000 atkvæði, svpna 6.200—6.400. Þeir fá þrjá menn kjörna, ég held ekki einu sinni að þeir trúi því sjálfir, að þeir fái fjóra. Samkvæmt þessum spám virð- ast sennilegustu úrslit bæjar- stjómarkosnlnganna þau, að ekki verði önnur breyting á bæjar- stjóminni en sú, að kommúnistar missi sitt sæti til Þjóðvarnar. En auðvitað má ekki gleyma þ\i, að margt óvænt getur gerzt í kosn- ingum, og kannske verða úrslitin á allt aðra lund en nokkum órar fyrir. Slíkt hefur gerzt oftar en einu sinni hér á landi, og má Iminna á úrslit alþingiskosning- anna 1908 og 1931. Hverjar eru svo horfurnar um stjórn bæjarins að kosninguin loknum? Við skulum líta á nokkra möguleika. 1. Sjálfstæðismeirihluti í bæjarst/órn eins og verið hef- ur. Á þessu virðast einna mest ar líkur, þó að það sé engan veginn ömggt. 2. Samstjórn Sjálfstæðis- manna og Framsóknarmanna. Ef svo færi, að Fi'amsókn fengi oddaaðstöðu í bæjar- stjórninni ætti hún völina og kvölina. LítiII vafi er á því, að um þetta yrðu hörð átök í flokknum. Þórður Björnsson nxyndi líklega vilja brosa til vinstri, en Þórarinn Þórarins- son kannske til hægri. Lík- lega myndu helztu forráða- mexm flokksins helzt kjósa samvinnu við Sjálfstæðisflokk inn, en á öðru leitinu er gvo óttinn við Þjóðvörn. En kann- ske sleppur flokkurinn við að þurfa að standa í þessum erf- iðu sporum. 3. Samstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins. Á slíkri samvinnu virðast harla litlar líkur eins og spil- in liggja nú. 4. Samstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Sósíalistaflokks- ins. Fyrir 7—8 árum hefði slík samvinna ekki þótt nein f/ar- stæða; og það er ekki cinn sinni svo langt síðan að þess- ir flokkar unnu saman á ísa- firðí. Nú má telja þessháttar samvinnu nær óhugsandi. 5. Samstjórn Sjálfstæðis- flokksins, Alþýðuflokksins og Sósíalistaflokksins. Þessháttar samvinna mundi hafa þótt í alla staði eðiileg á árunum 1944—1946, er þessir flokkar unnu saman í ríkisstjórn. Nú kemur hún tæplega til greina. Að vísu mundu Alþýðufl. og Sósíalistafl. fremur þora að ganga til samvinnu við Sjálf- stæðisflokkixui báðir í senn en hvor í sínu lagi. Og sennilega mundi enginn Sjálfstæðismað- ur vera betur fallinn til að koma á slíkri samvinnu en Grnxnar Thoroddsen. En þrátt fyrir það tel ég líkur á slíkri samvinnu litlar eða engar. 6. Vinstri samvinna, þ. e. a. s. samvinna Framsóknarfl., AlþýðufL, Þjóðvarnarfl. og Sósíalistaflokksins. Ef svo færi að Sjálfstæðisfl. missti meirihlutann, kæmi þesskonar samvinna til greina, þó að þessir flokkar xófist upp á kráft nú í kosningabaráttunni. En erfítt mundi verða, að koma slíkri sameiningu á. Einkum muncli verða sterk andstaða gegn hexmi í Fram- sókn, og sennilega einhver í Alþýðuílokknum líka. Vel má vera, að gerðar verði tilrauix- ir í þessa átt, ef til kenxur, en allt mundi óvíst um árangur þeirra. 7. Samkomulag um kosn- ingu ópólitísks borgarstjóra. Þrátt fyrir allar deilurnar um borgarstjóraembættið er þó þetta embætti í eðli sínu fyrst og fremst ópólitískt, heldur krefst það sérþekkingar á fjármálum og atvinnumálum. Það virðist því engin f jarstæða að ætla, að flokkarnir í bæj- arstjónx sumir eða allir, geti komiff sér saman um aff kjósa ópólitískan sérfræðing í em- bættið. Vera mun völ ýmissa slíkra manna. En hætt er við, að pólitísku ofstækismennirn- ir mundu hver í sínum flokki reyna að koma í veg fyrir slíkt samkomulag. Hér er til allt of margt manna, sem eru starblindir á allt nema þrengstu flokkshagsmuni. En vafalítið er, að merri hluti Reykvíkinga muxxdi fagna því, að borgarst/óracmþættið hætti að vera bitbein pólitísku flokkanna. Borgarstjórinn á aff vera fulltrúi allra íbúa bæjar- ins, hvar í flokki sem þeir standa, en ekki baráttumaður ákveðins pólitísks flokks.'Með- an svo er hlýtur alltaf veru- legur hluti bæjarbúa að líta á hann með toi-tryggni og andúff. Borgarstjóri í Reykja- vík getur aldiæi hlotið al- mennar vinsældir, nema hann sé hafinn yfir hina pólitísku baráttu. Hltt er svo hlutverk bæjarstjórxxarinxxar að márka stefnuna í hverju máli, og auð- - vitað getur ópólitiskur borgat- st jóri framkvæmt hana á sama hátt og ópólitískir skrifstofu- stjórar í ráðuneytunum fram- kvæma stefnur rikisstjórnar í mismunandi póiitiskum lit. En þó aff þessi breyting á borgar- stjóraembættinu væri áreiðan- lega til stórbóta, geri ég mér litiar vonir um að henni fáist framgengt. Við erum of tröll- riðín af flokkshyggju og póli- tisku ofstæki til þess áð það megi takast. Þaff má þvi bú- ast við, að fulltrúamir í bæj- arstjóm Reyk/avíkur líti hér eftir sem hingað til á hvert mál eingöngu frá flokkssjón- armiffum en ekki með hags- muni bæjarbúa fyrir augum. Slíku fólki sem okkur íslend- ingum verður tæplega bjargað.. Ajax. Mánudagsblaðið er self á effirföldum sföðum: ‘iGreiððsöfusfaöir: mw Adlon, Laugavegi 11 Óðinsgata 5 — veitingastofa. Björninn, veitingastofa, Njálsgötu 49 Þröstur, Hverfisgötu 17. Florida, veitingastofa, Hverfisgötu Stjörnukaffi, veitingastofa, Hverfisgötu Sölutuminn, Hlemmtorgi Adlon, Laugavegi 126 Vöggur, Laugavegi Bíóbar, Austurbæjarbíói Tóbaksbúðin, Kolasundi Lækjartorg, Blaða- og sælgætisturn West-End, veitingastofa, Vesturgötu Ögn, veitingastofa, Austurstræti Pylsubarinn, Austurstræti. Fjóla, veitingastofa, Vesturgötu Vesturgata 53, veitingastofa Hressingarskálinn Adlon, Aðalstræti Veitingastofan, Laugavegi 80 Stefánskaffi, Bergstaðastræti Nönnugata 5, Verzl. Sigfúsar Guðfinsssonar Hverfisgata 71, Verzl. Jónasar Sigurðssonar Hiíðarbakarí Gosi, veitingastofa, Sólavörðust. og Bergst. Þórsbúð, Þórsgötu 14 Frakkastígur 16, veitingastofan ►§Verzlanir: Blaðaturn — Eymundsson Bókaverzlun — Éymundsson Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar Bókaverzlun fsafoldar Bækur og rítföng, Austurstræti Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Skólavörðust. Ritfangaverzlun fsafoldar Mál og menning, Laugavegi, Bækur og ritföng, Laugavegi Verzlun Axels Sigurgeirssonar, BarmahHð 8 Verzlunin Rangá, Skipasundi Verzlunin Drífandi, Samtúni Verzlunin Drífandi, Kaplaskjóli Verzlunin Krónan, Mávahlíð . , Biðskýlið, Álfaskeiði Verzlunin Fossvogur, Fossvogi i Biðskýli Iíópavogs, Kópavogi jHafnarfjörður: Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði Sælgætisverzlun, Strandgötu 33. Biðskýlið. - -

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.