Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 4
JOHAN Petersson, vinstri horna-
maður sænska landsliðsins, er hætt-
ur að leika með landsliðinu vegna
samstarfsörðugleika við Ingemar
Linnéll, þjálfara liðsins. Petersson
hefur verið einn af aðalmönnum
sænska landsliðsins undanfarin 12
ár en hann er 31 árs gamall og hefur
leikið 309 leiki og skorað 708 mörk.
PETERSSON segir við sænsku
sjónvarpsstöðina TV4 að hann hafi
rætt við Linnéll eftir að heimsmeist-
aramótinu í Túnis lauk og þar hafi
þeir ekki verið sammála um ýmsa
hluti. „Ég þakkaði því fyrir mig, ósk-
aði landsliðinu góðs gengis í framtíð-
inni og kvaddi,“ sagði Petersson.
INGIMAR Linnéll segir að
ákvörðun leikmannsins komi á
óvart. „Ég hef ekki rætt við leik-
menn eftir HM í Túnis og hef því
ekki fengið formlegt svar frá Pet-
ersson um framtíðaráform hans.
Enda er hann að hætta í atvinnu-
mennsku í Þýskalandi og ætlar sér
að gerast þjálfari í Svíþjóð og kenna
í grunnskóla með því starfi,“ sagði
Linnéll og vildi ekki tjá sig um hvað
þeim fór á milli að lokinni keppni á
HM í Túnis.
KÍNVERSKA knattspyrnusam-
bandið hefur ráðið Zhu Guanghu
sem þjálfara karlalandsliðsins en
hann tekur við af Hollendingnum
Arie Haan sem var sagt upp störf-
um í lok síðasta árs, en hann hafði
starfað sem þjálfari liðsins frá árinu
2002. Haan tókst ekki að koma Kín-
verjum í úrslitakeppni heimsmeist-
aramótsins í Þýskalandi sem fram
fer á næsta ári í Þýskalandi.
ZHU, sem er 55 ára gamall, var
áður þjálfari yngri landsliða Kín-
verja og þjálfaði félagsliðið Shenzh-
en Jianlibao á síðustu leiktíð en liðið
varð kínverskur meistari undir hans
stjórn. Fyrsti leikur liðsins undir
stjórn Zhu verður gegn Spánverjum
hinn 26. mars en um er að ræða vin-
áttulandsleik. Þremur dögum síðar
mætir liðið Írum í vináttuleik.
UNDANFARIN ár hafa Kínverjar
sótt þjálfara erlendis frá en þar má
nefna Þjóðverjann Klaus Schlappn-
er, Bretann Bobby Houghton, Bora
Milutinovic frá Serbíu/Svartfjalla-
landi, auk Arie Haan. Milutinovic
var sá eini sem kom liðinu á heims-
meistaramót en Kínverjar tóku þátt
á mótinu árið 2002 í Suður-Kóreu og
Japan, en þar tapaði liðið öllum sín-
um leikjum.
MICHAEL Walchhofer frá Aust-
urríki sigraði í samanlögðum ár-
angri á heimsbikarmótum vetrarins
í bruni í gær er hann kom fjórði í
mark á heimsbikarmóti í Lenzer-
heide í Sviss. Norðmaðurinn Lasse
Kjus sigraði á mótinu í dag en þetta
er annar sigur hans á heimsbikar-
mótinu á keppnistímabilinu, annar
varð Bode Miller frá Bandaríkjun-
um og þriðji varð Fritz Strobl frá
Austurríki.
MILLER er í efsta sæti í saman-
lögðum árangri á heimsbikarmótum
vetrarins en annar er Benjamin
Raich frá Austurríki sem er 108
stigum á eftir Miller.
THIERRY Henry, framherji Ars-
enal, segir forsvarsmenn félagsins
verði að líta í eigin barm vegna ár-
angurs félagsins í Meistaradeild
Evrópu undanfarin misseri og er
það mat franska landsliðsmannsins
að félag sem kaupi leikmenn fyrir
lægri upphæð en Tottenham Hot-
spur eða Birmingham geti ekki bú-
ist við miklu í Meistaradeildinni. „Ef
litið er á þær fjárhæðir sem Man-
chester United og Chelsea hafa not-
að á undanförnum misserum til leik-
mannakaupa þá erum við ekki í
sömu deild á því sviði. Við erum ekki
einu sinni í sömu deild og Birming-
ham eða Tottenham,“ sagði Henry í
gær við London Evening Standard.
FÓLK
Um síðustu helgi fór fram Ford-mótið á Doral-vellinum á
Miami í Flórída en þar kepptu flestir
af bestu kylfingum
heims og sigraði Tig-
er Woods eftir harða
baráttu við Phil
Mickelson. Sam-
kvæmt reglum PGA-mótaraðarinn-
ar er forsvarsmönnum móta bannað
að greiða kylfingum fyrir það eitt að
mæta á svæðið en slíkt var algengt
fyrir nokkrum misserum. En hin
nýja aðferð sem IMG beitti á Ford-
mótinu þykir minna á gamla tíma
sem leiddi til þess að bestu kylfingar
heims mættu aðeins á þau mót þar
sem þeir fengu væna þóknun fyrir
það eitt að skrá sig til leiks.
Í bréfinu sem GolfDigest hefur
undir höndum er greint frá því að
hægt sé að fá kylfinga á borð við
Vijay Singh, Ernie Els, Sergio
Garcia, Retief Goosen, John Daly og
Davis Love III fyrir það eitt að reiða
fram 6–12 millj. kr. fyrir 18 holur.
Í öðrum verðflokki eru kylfingar á
borð við David Duval, Todd Hamilt-
on, Chris DiMarco, Charles Howell
III, Luke Donald, Mike Weir, Stuart
Appleby, K.J. Choi, Jesper Parne-
vik, Ben Curtis, Fred Couples og
Jim Furyk en þeir sætta sig víst við
að fá „aðeins“ 3–6 millj. kr. fyrir að
mæta á svæðið.
Forsvarsmenn PGA-mótaraðar-
innar telja að IMG sé á „gráu“ svæði
og verður að þeirra sögn farið í ít-
arlega rannsókn á starfsháttum
IMG en vitað er að Vijay Singh, Ser-
gio Garcia, Retief Goosen og Padra-
ig Harrington fengu greitt frá Ford-
fyrirtækinu áður en mótið hófst fyrir
að taka þátt á móti sem fór fram á
mánudegi fyrir mótið.
Gríðarleg samkeppni er á milli
þeirra aðila sem skipuleggja PGA-
mót á hverju ári enda taka bestu
kylfingar heims ekki þátt á þeim öll-
um. Sjónvarpsáhorf á Ford-mótið á
Doral-vellinum fór fram úr björtustu
vonum og hefur ekki verið meira frá
því á Mastersmótinu fyrir ári á Aug-
usta er Phil Mickelson braut ísinn og
sigraði á fyrsta stórmóti sínu á ferl-
inum.
Forsvarsmenn PGA-mótaraðar-
innar brugðust við frétt GolfDigest
með þeim hætti að senda út bréf til
skipuleggjenda PGA-móta víðsveg-
ar um Bandaríkin. Í því bréfi er tek-
ið skýrt fram að ekki sé leyfilegt að
greiða kylfingum fyrir að taka þátt á
mótum og að mati PGA er athæfi
IMG á mjög gráu svæði sem verði
rannsakað nánar.
Davis Love III sem situr í stjórn
PGA fyrir hönd samtaka atvinnu-
kylfinga er allt annað en sáttur við
að vera á listanum sem birtist í Golf
Digest en hann segir að ekkert slíkt
samkomulag hafi verið gert við fyr-
irtækið. Að auki hafa John Daly og
Jim Furyk sent frá sér yfirlýsingu
að þeir séu ekki skjólstæðingar
IMG.
Hinn reyndi bandaríski atvinnu-
kylfingur, Paul Azinger, segir að
bandaríska mótaröðin og sú evr-
ópska muni eiga undir högg að
sækja ef fyrirtæki og einstaklingar
fari að greiða bestu kylfingum heims
himinháar upphæðir fyrir það eitt að
láta sjá sig á svæðinu. Slíkt hafi
gerst á árum áður en verið bannað.
„Arnold Palmer og Jack Nicklaus
byggðu upp grunninn að PGA-móta-
röðinni eins og við þekkum hana í
dag. Þeir voru ekki að leika fyrir há-
ar upphæðir og hefðu eflaust getað
leikið fyrir mun hærri upphæðir með
því að mæta á önnur mót á vegum
fyrirtækja víðsvegar um Bandarík-
in. Ef þeir hefðu gert slíkt hefði golf-
íþróttin ekki náð þeirri hylli sem hún
hefur í dag. Ég vona að bestu kylf-
ingar heims sjái heildarmyndina í
stærra samhengi, því án þeirra verð-
ur erfitt fyrir golfíþróttina að vaxa
og dafna enn frekar,“ segir Azinger.
Reuters
Hermt er að hægt sé að bjóða í að leika hring með frægum golfurum. Ernie Els mun vera einn þeirra.
Golfarar á uppboði
Í nýjasta tölublaði bandaríska golftímaritsins GolfDigest er greint
frá því að fyrirtækið IMG, International Management Group, sem er
umboðsskrifstofa flestra þekktustu kylfinga heims hafi sent for-
svarsmönnum móta á PGA-mótaröðinni umdeilt bréf. Þar sem þeir
bjóða starfskrafta bestu kylfinga heims á mánudegi áður en vænt-
anlegt PGA-mót hefst á umræddum velli á fimmtudegi og leiða þeir
að því líkum að þessir kylfingar séu líklegri til þess að taka þátt á
mótinu fái þeir „starf“ á mánudegi við það að leika einn 18 holna
hring með „velgjörðarmönnum“ mótsins sem er á dagskrá.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
tók saman
Bestu kylfingar heims á „gráu“ svæði á bandarísku mótaröðinni
SVÍINN Pierre Fulke er í efsta sæti
að loknum fyrsta keppnisdegi Kat-
ar-mótsins í golfi sem er hluti af
Evrópumótaröðinni. Fulke lék í
gær á 6 höggum undir pari eða 66
höggum en hann fékk sjö fugla og
skolla á 18. braut. Þrír kylfingar
eru jafnir á fimm höggum undir
pari en þeir eru Ástralinn Richard
Green, Garry Houston frá Wales og
Henrik Stenson frá Svíþjóð.
Fulke hefur einbeitt sér að því að
hanna og skipuleggja golfvelli á
undanförnum misserum og mun
hann taka sér átta vikna frí frá
golfinu að loknu mótinu í Katar til
þess að sinna þeim verkefnum sem
hann er með á sinni könnu. „Ég hef
fengið meiri áhuga á golfinu eftir
að ég fór að taka mér löng frí á
milli móta,“ sagði Fulke í gær en
hann hefur þrívegis sigrað á Evr-
ópumótaröðinni á sínum ferli.
Allra augu beindust að Suður-
Afríkumanninum Ernie Els í dag
enda sigraði hann á Dubai-mótinu
um síðustu helgi.
Els var langt frá sínu besta í gær
og lék á einu höggi yfir pari vallar,
en hann fékk einn fugl, á síðustu
holu dagsins. Els er í 81.–95. sæti að
loknum fyrsta keppnisdegi en hann
er langefsti kylfingum mótsins sé
miðað við heimslistann í golfi, en
þar er Els í þriðja sæti á eftir Vijay
Singh frá Fijí og Tiger Woods sem
endurheimti efsta sætið um sl. helgi
með sigri á Ford-mótinu. Golf-
sambandið í Katar fékk Els til þess
að taka þátt á mótinu með því að
greiða honum fyrir það eitt að
mæta á svæðið en slíkt er bannað á
bandarísku mótaröðinni en þar sem
mótið í Katar er hluti af Asíu- og
Evrópumótaröðinni eru aðrar regl-
ur í gildi hvað greiðslur af þessu
tagi varðar.
Fulke er
efstur í
Katar