Morgunblaðið - 30.03.2005, Side 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KEFLVÍKINGAR TÓKU ÍR-INGA Í KENNSLUSTUND / C2–C3
Þrír leikmenn í viðbótar eru nán-ast nýliðar því Stefán Gíslason
hefur leikið þrjá landsleiki, Grétar
Rafn Steinsson tvo og Ólafur Ingi
Skúlason einn.
„Það er ómögulegt að segja hvort
þeir fái allir að spreyta sig, það fer
allt eftir því hvernig leikurinn verð-
ur. En við erum með 17 leikmenn og
megum nota þá alla,“ sagði Ásgeir
Sigurvinsson landsliðsþjálfari.
Þess má geta að frá því Ásgeir og
Logi Ólafsson tóku við landsliðinu í
maí 2003 hafa aðeins þrír nýliðar
fengið tækifæri. Það voru Kristján
Örn Sigurðsson, Ólafur Ingi Skúla-
son og Björgólfur Takefusa, sem all-
ir léku sinn fyrsta landsleik í Mexíkó
í nóvember sama ár. Nýliðunum
undir þeirra stjórn gæti því fjölgað
um meira en helming í kvöld.
Leikurinn gegn Ítölum í Padova
er sögulegur fyrir þær sakir að það
að það verður í fyrsta skipti sem a-
landslið Ísland leikur á Ítalíu og hef-
ur landslið Íslands þar með lokað
Evrópuhring sínum á síðustu árum –
er búið að leika gegn öllum sterkustu
knattspyrnuþjóðum Evrópu á þeirra
heimavelli – Ítalíu, Þýskalandi, Eng-
landi, Sovétríkjunum, Spáni, Frakk-
landi, Rússlandi, Hollandi, Skot-
landi, Svíþjóð og Belgíu.
Fjórði leikurinn gegn Ítalíu
Ísland mætir Ítalíu í fjórða sinn í
landsleik í knattspyrnu í kvöld þegar
þjóðirnar eigast við í Padova.
Reyndar voru fyrstu tveir leikirnir,
árin 1987 og 1988, í forkeppni Ól-
ympíuleikanna í Seoul og þar mátti
ekki tefla fram leikmönnum sem
höfðu verið í byrjunarliði í Evrópu-
keppni eða heimsmeistarakeppni.
Ítalir unnu þá 2:0 í Pescara og 3:0 á
Laugardalsvelli og tefldu fram firna-
sterku liði. Þriðji leikurinn var svo
hin eftirminnilega viðureign á Laug-
ardalsvellinum 18. ágúst á síðasta ári
þegar Ísland vann, 2:0, með mörkum
Eiðs Smára Guðjohnsen og Gylfa
Einarssonar.
Þess má geta að Birkir Kristins-
son var varamarkvörður íslenska ól-
ympíuliðsins í Pescara 1987 en var
síðan aðalmarkvörður þegar liðin
mættust á Laugardalsvellinum. Að-
eins átta af þeim 17 leikmönnum sem
tóku þátt í sigurleiknum gegn Ítölum
eru í íslenska hópnum í kvöld.
Reuters
Dado Prso, sem skoraði fjórða mark Króatíu gegn Íslandi, 4:0, er hér búinn að
leika á Pétur Hafliða Marteinsson. Pétur og samherjar mæta Ítölum í kvöld.
Fjórir nýliðar gegn Ítalíu?
SVO kann að fara að fjórir nýliðar fái að spreyta sig með íslenska
landsliðinu í knattspyrnu í kvöld þegar það mætir Ítölum í vináttu-
landsleik í Padova í kvöld. Hannes Þ. Sigurðsson verður að öllu
óbreyttu í fremstu víglínu og þá eru þeir Gunnar Heiðar Þorvalds-
son, Kári Árnason og Emil Hallfreðsson í hópnum en enginn þeirra
hefur spilað a-landsleik, Kári hefur reyndar ekki spilað með lands-
liði í neinum aldursflokki.
ÞRÍR leikmenn, tveir frá Dan-
mörku og einn frá Finnlandi, verða
til reynslu hjá úrvalsdeildarliði
Fram í knattspyrnu sem kom til
Spánar í gær og dvelur þar í æf-
ingabúðum næstu vikuna.
„Okkur buðust margir fleiri leik-
menn en ákváðum að setja þessa í
forgang og sjá hvernig þeir koma
út,“ sagði Brynjar Jóhannesson,
framkvæmdastjóri hjá Fram, við
Morgunblaðið í gær. Ekki fengust
nánari upplýsingar um leikmenn-
ina að svo stöddu hjá forráðamönn-
um Framara í gær en þeir eru
væntanlegir til móts við liðið í dag
eða á morgun.
Írski varnarmaðurinn Ross
McLynn, sem samdi við Framara
fyrir skömmu, er kominn til móts
við þá á Spáni og kemur með þeim
heim til Íslands. Framarar eru í
Monte Castillo, skammt frá Cadiz á
Suður-Spáni, og þeir munu aðeins
nýta ferðina til æfinga en ekki spila
æfingaleiki.
Framarar
prófa Finna
og Dana í
Portúgal
LANDSLIÐSMENN Þýska-
lands í knattspyrnu, undir
stjórn Jürgen Klinsmann,
fá hver 24 millj. ísl. kr. í
vasann ef þeir verða heims-
meistarar í Þýskalandi
2006, en úrslitaleikurinn
verður leikinn í Berlín 9.
júlí það ár. Þetta er miklu
hærri upphæð en þeir áttu
að fá fyrir að verða heims-
meistarar 2002, en þá var
upphæðin 7,8 millj. kr. Þeir
fengu 5,7 millj. kr. fyrir
silfursætið – Þjóðverjar
töpuðu úrslitaleiknum fyrir
Brasilíumönnum, 2:0.
Leikmenn þýska liðsins
fá fjórar millj. kr. í vasann
fyrir að komast í átta liða
úrslitin á HM 2006, átta
millj. kr. fyrir að komast í undanúrslit og síðan tólf
millj. kr. fyrir að fagna sigri í úrslitaleiknum.
Þess má til gamans geta að leikmenn Þýskalands
sem urðu heimsmeistarar 1990 á Ítalíu fengu 5,2 millj.
kr. í sinn hlut, leikmenn Þýskalands sem urðu heims-
meistarar 1974 í Þýskalandi fengu 2,4 millj. kr. og
einnig Volkswagen-bjöllu, sem þeir gátu ekið um á.
Leikmenn Þýskalands sem fögnuðu heimsmeistaratitl-
inum 1954 í Sviss höfðu ekki eins feitan gölt að flá og
leikmenn gera í dag – þeir fengu aðeins 100 þús. kr. í
vasann og einnig sjónvarpstæki ásamt skáp utan um
það.
Þá má geta þess að ef landsliðsmenn Þýskalands ná
að fagna sigri í álfukeppninni, sem fer fram í Þýska-
landi 15. til 29. júní í sumar, fá þeir 4,8 millj. ísl. kr. í
vasann. Þjóðverjar leika þar í riðli með Ástralíu, Túnis
og Argentínu.
Þjóðverjar stóðu sig ekki vel í Evrópukeppninni í
Portúgal í fyrra – fóru heim eftir riðlakeppnina án sig-
urs. Þeir áttu þá að fá átta millj. kr. á mann fyrir sigur
á EM.
Þjóðverjar fá
góðan vasapening
fyrir sigur á HM
Jürgen Klinsmann
FJÓRIR ungir, íslenskir knattspyrnumenn fara til
skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts um næstu helgi.
Eggert Gunnþór Jónsson, tæplega 17 ára Eskfirðingur
sem nú leikur með Þór á Akureyri, fer þangað í annað
sinn, á föstudag, og nú með foreldrum sínum, en hann
dvelur þar í fjóra daga. Forráðamenn Hearts hafa sýnt
Eggerti mikinn áhuga, að sögn Ólafs Garðarssonar, um-
boðsmanns. Eggert var fastamaður í drengjalandsliðinu
á síðasta ári og einnig í liði Fjarðabyggðar sem vann sér
sæti í 2. deild.
Á sunnudag fara þrír piltar úr æfingahópi drengja-
landsliðsins til félagsins, en þeir eru allir 16 ára á þessu
ári. Það eru Haraldur Björnsson, markvörður úr Val,
Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Steinn Gunn-
arsson úr KA. Guðmundur Reynir er nýkominn frá Dan-
mörku þar sem hann var til reynslu hjá Bröndby.
Hearts keypti á dögunum Hjálmar Þórarinsson frá
Þrótti í Reykjavík og rennir greinilega hýru auga til Ís-
lands í framhaldi af því.
Fjórir piltar á
förum til Hearts
CLIVE Allen, fyrrverandi marka-
hrókur hjá Tottenham og fleiri lið-
um og núverandi unglingaþjálfari
hjá félaginu, er
hæstánægður
fyrir hönd Emils
Hallfreðssonar,
sem var kallaður
inn í A-lands-
liðshóp Íslands í
knattspyrnu fyr-
ir leikinn gegn
Ítölum í Padova í
kvöld. Emil gekk
til liðs við Tott-
enham frá FH í
byrjun árs og hefur leikið með
varaliði félagsins síðan.
„Hann fékk símhringingu í gær-
kvöldi. Smá mál, leikur gegn Ítalíu!
Þetta er stórkostlegt fyrir hann,
Emil lék með 21-árs liðinu á föstu-
dag og nú er hann í aðalhópi Ís-
lands. Þetta er stórt skref á hans
ferli, og sýnir að það er vel fylgst
með framförum hans. Það jafnast
ekkert á við það að fá tækifæri til
að spila gegn einni að fremstu
knattspyrnuþjóðum veraldar,“
sagði Allen á vef Tottenham í gær.
Clive Allen
ánægður
með Emil
Emil
Hallfreðsson